Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1983, Page 40
27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA 33
SMÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR
ÞVERHOLTI 11
86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14
BritniÖ bardi á Akurey á strandstad. Bilar björgunartnanna sjást ofar
i fjörunni. Taug er bundin vid bátinn og jarðýta er tit taks.
DV-tnynd: Einar Ólason.
Vélbáturinn
Akurey:
STEYTTIÁ SKERI
OG RAK UPP í FJÖRU
Vélbáturinn Akurey SF-52 strand-
aöi í sandfjöru um 500 metra fyrir
austan Hornafjarðarós á hádegi í
gær. Níu manna áhöfn tókst aö
bjarga sér í land af eigin rammleik
og sakaði engan.
Vélarbilun varö er báturinn var
skammt fyrir utan ósinn. Rak bátinn
hratt undan hvassri vestanátt inn á
milli skerja, steytti á einu þeirra og
rak upp í f jöru. Gátu skipverjar ekk-
ert aöhafst til aö hindra strandið.
Björgunarsveit Homafjarðar var
kölluö út. Björgunarmenn voru
mættir þegar bátinn rak að.
Akurey er 86 lesta eikarbátur,
smíöaöur í Danmörku áriö 1963. Bát-
urinn er geröur út frá Hornafiröi.
Skipstjóri er Jón Haukur Hauksson.
Af níu manna áhöfn eru þrír Færey-
ingar.
Gera á tilraun til aö ná bátnum út á
flóðinu í dag. Hann virtist óskemmd-
ur er DV-menn flugu yfir strandstað
síödegisígær. -KMU/ÖM.
Sverrir Hermannsson:
Framkvæmdastofnun verði
lokað fram yfir kosningar
LOKI
Því ekki bara loka for
gúdd?
I blaðinu Suðurlandi mátti lesa
fyrir skemmstu að Sverrir Her-
mannsson, forstjóri Framkvæmda-
stofinunar ríkisins, heföi látið þau orö
falla á fundi hjá sjálfstæðismönnum
á Selfossi að réttast væri að loka
Framkvæmdastofnun fram yfir
kosningar. Astæöumar væm þær aö
framsóknar- og alþýðubandalags-
ráðherramir væm aö slá kosninga-
víxlana sem sennilega væru upp á
100 milljónir í erlendum lánum. Með
lokum stofnunarinnar væri hægt aö
koma í veg fyrir þá óráðsiueyðslu
sem virtist standa fyrir dymm til
andlitslyftingar ráöhermnum.
Er DV bar þessa frétt undir Sverri
sagðist hann hafa talaö blaöalaust á
Selfossfundinum og hann myndi ekki
nákvæmlega hvaöa orð hann heföi
látiðfallaþar.
„Eígum við ekki bara aö ætla aö
þetta sé rétt meö farið,” sagöi Sverr-
ir Hermannsson. -SþS
Hæg-
læti í
veðrinu
Veðurfræöingar búast viö hæglætis-
veðri um allt land yfir helgina. A
sunnudag fer aö þykkna upp vestan-
lands en bjart verður áfram austan-
lands. Víðast á landinu ætti því aö vera -
gott skíöaveöur og allir skiöamenn
sem vettlingi geta valdið ættu aö
leggja sitt fram í norrænu fjölskyldu-
keppnina á skíðum.
-ÓEF