Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1983, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1983, Síða 2
2 DV. FÖSTUDAGUR 20. MAl 1983. HANN SETUR SVIP ÁFLOTANN Japanir skoða jámblendið — ekki afhuga því að kaupa fimmtung hlutaf járins Trollbátur kemur til hafnar, hvað er svona merkilegt viö þaö? Jú, þetta er Mb. Olafur GK 33 frá Grindavík. Dæmigerður Noröursjávarkútter og líklega sá eini sem eftir er á landinu. Hann var smíðaður í Danmörku árið 1945 og heitir í höfuðið á Olafi heitnum Thors, fyrrverandi alþingis- manni og ráðherra. Þessi gamli bátur hefur verið gerður út frá Grindavík í hartnær 20 ár, og hann er eins og Grindvíkingar og sjómenn segja, einn þeirra báta sem setja svip á flotann. -klp/DV-mynd Ólafur Rúnar Grindavík. Stærsti viðskiptahringur Japana, Sumitomo, verður hugsanlega hluthafi aö um f immtungi í íslenska járnblendi- félaginu hf. á Grundartanga. Jafn- framt myndi hringurinn þá kaupa 15.000 af 53.000 tonna ársframleiðslu járnblendiverksmiðjunnar. Fulltrúar Sumitomo skoðuöu verk- smiðjuna í janúar. Nýlega fóru svo fulltrúar núverandi hluthafa, ríkisins og Elkem í Noregi, til Japans og ræddu við Sumitomo-menn þar. Ákveðið var að ræðast við aftur hér á landi í lok júní, eftir að Japanirnir hafa skoðaö verksmiðjuna nánar og í fullum rekstri. Búist er við að þá verði jafnvel skorið úr um þátttökuSumitomo. Tilgangurinn með því að bjóða Samkomulagstillögur um breytingar á stjórn fræðslumála í Reykjavík: Ingvar á móti „Ég leyfi mér að tilkynna borgar- stjóra, að af minni hálfu verða sam- komulagsdrög þessi ekki samþykkt, hvorki að efni né formi.” Svo segir Ingvar Gislason mennta- málaráðherra í bréfi til Daviðs Odds- sonar borgarstjóra vegna framkom- inna tillagna um breytingar á yfir- stjórn fræðslumála í Reykjavík. i tillögunum, sem samstarfshópur menntamálaráðuneytis og Reykjavíkurborgar hefur lagt fram, er gert ráð fyrir að skólaskrifstofa taki yfir þau verkefni fræðslustjóra og fræðsluráðs Reykjavikur sem ekki falla beint undir ríkið, svo sem málefni grunnskóla. Skilið verði á milli verk- efna borgarsjóðs og verkefna rikis- sjóðs. „Slíkar hugmyndir um „samkomu- lag”, þótt undirritaðar yrðu, hafa ekki raunhæft gildi án breytinga á grunn- skólalögum. Af þeirri ástæðu einni ber að hafna þessum hugmyndum. Þær striða gegn lögum,” segir mennta- málaráðherra. „Þá hlýt ég að tilkynna borgarstjóra að tillögur þéssar eru efnislega óað- gengilegar eins og þær liggja fyrir. Er það sist veigaminni ástæða fyrir því að ég hafna þessum hugmyndum,” segir ráðherrann. Segist hann vona að borgarstjóri athugi nánar tillögurnar áður en hann leggur þær fyrir borgar- stjórn. _____________________—KMU. AIDS-fréttin var ekki gripin úr lausu lofti Vegna viðtals sem birtist við Helga Valdimarsson prófessor í Tímanum um síðustu helgi og orða Olafs Olafs- sonar landlæknis í lesendabréfum DV þriðjudaginn 17. maí, vil ég taka eftir- farandi fram: Helgi segir að frétt DV um aö AIDS hafi greinst hér á landi sé úr lausu lofti gripin og Ölafur að hún hafi verið á misskilningi byggð. Sann- leikur málsins er sá að heimildin eru' gögn sem notuð hafa verið við kynsjúk- dómafræðslu í skólum nú síöla vetrar. Sú fræðsla er á vegum landlæknisemb- ættisins. I þessum gögnum stendur orðrétt: „Mars ’83 komið 1 tilfelli á Is- landi”. Af hálfu DV var um engan mis- skilning aö ræða og fréttin alls ekki úr lausu ioftigripin. Jón Baldvin Halldórsson blaðamaður. þessum japanska hring (trading- house) hlutdeild í járnblendifélaginu er að styrkja reksturinn með föstum viðskiptum að verulegu marki, bæði sölu og útvegun aðfanga. Rætt er um að Sumitomo kaupi allt að helming hlutafjár Elkem, en það fyrirtæki á 45% móti 55% íslenska ríkisins, og tryggi samhliða sölu á 15.000 tonnum af jámblendi á ári, samkvæmt upp- lýsingum Páls Flygenring, ráðuneytis- stjóra í iðnaðarráðuneytinu. Hann var í sendinefndinni sem fór nýlega til Japan. Verð á járnblendi hækkaði nokkuð í byrjun þessa árs eftir að hafa farið mjög langt niður í fyrra. Það var komið í um 1.400 vestur-þýsk mörk um Siglf irðingar hafa haldið menningar- viku siðan árið 1975 í tilefni af afmælis- degi kaupstaðarins sem er 20. maí. t ár hefst menningarvikan föstudag- inn 20. mai, kl.17, með sýningu á verkum Birgis Schiöth í Ráðhús- salnum. Sýningin verður opnuð með ávarpi og hljóðfæraleik. Birgir, sem er Siglfirðingur, sýnir þar 126 myndir, teikningar og málverk. Sýningin stendur til 26. mai. Hátíðarsamkoma hefst i Nýja Biói kl.20 um kvöldið með ávarpi Óttars Proppé bæjarstjóra. Þá mun Alda Möller flytja hátiðarræðu og er þetta í fyrsta sinn sem kona gegnir því hlut- Tíunda starfsári Söngskólans í Reykjavík er senn að ljúka. I vetur stunduðu 120 nemendur nám við skól- ann og þreyttu 75 þeirra próf í síðustu viku. Prófdómari að þessu sinni var Antony Crossland frá Konunglegu tón- listarskólunum í Englandi. Skólinn hefur frá upphafi fengið er- lenda prófdómara, en ástæöan fyrir þeirri ráðstöfun er sú að tryggja nem- endum skólans það að kennslutilhögun og námsárangur nemendanna sé sam- bærilegur við þaö sem finnst í ná- grannalöndum okkar. Að þessu sinni luku 6 nemendur 8. stigs prófi sem er lokapróf úr almennri deild. Þá lauk einn nemandi, Ingunn Ragnarsdóttir, prófi úr kennaradeild skólans. Síðasti hluti prófa þessara eru tón- leikar sem 2 eða 3 nemendur halda sameiginlega. miðjan febrúar, en hefur ekki stigið síðan. Að sögn Stefáns Reynis Kristjáns- sonar, fjármálastjóra íslenska jám- blendifélagsins hf., þurfa að fást 1.600 1.700 mörk fyrir tonnið svo að við- unandi sé. Jámblendiverðið var þar um kring og hærra bæði 1979 og um það leyti sem rekstur verksmiðjunnar hér hófst. Vonir standa því til að þetta verð náistfljótlega. Eftirspurn eftir járnblendi er mikil um þessar mundir og verksmiðjan á Grundartanga er nú rekin með fullum afköstum sem jafngilda eins og áður sagði um 53.000 tonna framleiðslu á heilu ári. verki á menningarviku. Því næst mun skáld dagsins, Matthías Johannessen, lesa úr verkum sinum. Loks syngur karlakórinn Vísir undir stjóra Andrew Hurrel. Inni á milli fyrrgreindra atriða verður samleikur þeirra Andrew Hurrel og Sigurðar Hlöðverssonar á hom og trompett. Einnig leikur' blásarakvintett tónskólans. Dansleikur verður um kvöldið á Hótel Höfn og hefst hann kl.23. Það skal tekið fram að aðgangur er ókeypis að málverkasýningunni og samkomunni í nýja Bíói. Kristján Möller/EA. Fyrstu tónleikarnir verða föstudags- kvöldið 20. maí, kl. 20.30, en þá syngja þær Soffía Bjarnleifsdóttir sópran og Elín Osk Oskarsdóttir sópran. Aðrir tónleikar skólans veröa laug- ardaginn 21. maí kl. 3, en þá koma fram þau Kolbrún á Heygum Magnús- dóttir alt, Ester H. Guömundsdóttir sópran og Sigurður Þórðarson bassi. Síöustu tónleikarnir í þessari tón- leikaröð verða síöan miðvikudaginn 25. maí kl. 20.30. Þá koma fram Ingunn Ragnarsdóttir sópran og Guðmundur Þ. Gíslason tenór. Undirleikarar verða þau Jórunn Viöar, Guörún A. Kristinsdóttir og Pavel Smid. Tónleikarnir verða haldnir í tón- leikasal Söngskólans aö Hverfisgötu 44 og eru öllum opnir meöan húsrúm leyf- ir. Aðalfundur Olíufélagsins Skeljungs hf. Aðalfundur Olíufélagsins Skeljungs hf. veröur haldinn 27. maí 1983 kl. 17.00 að Suðurlandsbraut 4, Reykjavík. 1. Á dagskrá er, auk venjulegra aðalfundarstarfa: 1 Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa. 2. Tillaga um innköllun eldri hlutabréfa og útgáfu nýrra hluta- bréfa í þeirra stað. 3. Tillaga um breytingu á samþykktum félagsins í samræmi viðlið 2. 4. Önnurmál. OLÍUFÉLAGIÐ SKELJUNGUR HF. Grillhelgi framundan Kryddlegið kjöt grillpinnar í úrvali Grillaðir kjúklingar / heilir kr. 145, Egg 49,90 pr. kg Kjúklingar 99,00 pr. kg Nýj«in9 HEILSUTORG (MIKIÐ ÚRVAL) Opið föstudaga til kl. 19:30 A Opið laugardaga til kl. 12:00 rHÓLAGARÐUR KJÖRBÚO, LÓUHÓLUM 2—6, SÍMI 74100 HERB Siglufjörður: Menningarvika hefst í dag NEMENDATÓNLEIK- AR SÖNGSKÓLANS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.