Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1983, Page 5
DV. FÖSTUDAGUR 20. MAI1983.
5
Fiskrf ræðingar og fleiri óhressir með fækkun skrapdaganna:
Ekkert samráð
haft víð Hafrann-
sóknastofnunina
„Ég tel aö vertíðin, eins og hún hefur
komið út í ár, gefi ástæöu til aö menn
séu varkárir meö ásóknina í þennan
stofn,” sagði Jón Jónsson, forstööu-
maður Hafrannsóknastofnunarinnar,
er við spurðum hann aö því hvort hann
og aðrir fiskifræðingar væru sáttir við
þá auknu ásókn sem sjávarútvegs-
Ruslahaugar
við öll hús
Ibúar í Hóla- og Fellahverfi, svo og
Seljahverfi í Breiðholti hafa undan-
fama daga verið að gera heldur betur
hreint fyrir sínum dyram. Að frum-
kvæði Framfarafélaganna hafa þeir
hreinsað lóðir sínar, götur, opin svæði,
svo og úr bílskúrum og geymslum húsa
sinna.
Fengu þeir um 3000 plastpoka hjá
hreinsunardeild borgarinnar og voru
þeir fylltir af allskonar rusli. Hafa
starfsmenn hreinsunardeildarinnar
unnið að því undanfama daga að keyra
þetta rusl frá þeim á haugana.
Ibúar í Kópavogi, Hafnarfirði og
víða hafa gert slíkt hið sama, og má
víða sjá stórar ruslahrúgur þar fyrir
utan húsin. I fleiri hverfum og götum í
Reykjavík hafa menn hug á að fylgja
þessu góða fordæmi eftir, en vita ekki
aimennilega hvemig þeir eiga að snúa
sér í því að fá poka og aðra aðstoð hjá
borginni.
Pétur Hansson hjá hreinsunardeild
borgarinnar sagði að hreinsunardeild-
in tæki ekki að sér að hreinsa frá einu
og einu húsi. Það yrði allt of mikið
verk. Ef íbúar í einni götu eða íbúða-
lengju tækju sig aftur á móti saman og
hreinsuðu hjá sér, horfði málið öðru
vísi við. Þeir fengju poka og síðan yrði
séð um að keyra ruslið á brott.
Hreinsunardeildin óskaði eftir góðu
samstarfi við borgarbúa við að halda
borginni hreinni og jákvætt framtak
eins og þetta væri vel séð af henni. -klp-
Þingeyri:
Ekkert mokað
og títíð flogið
„Við emm ekki í neinu sambandi við
vegakerfi þjóðarinnar og ekkert útlit
fyrir að svo verði á næstunni,” sagði
Bjami Grímsson, kaupfélagsstjóri á
Þingeyri, í samtali við DV.
Hann og fleiri Þingeyringar eru
mjög óhressir með samgöngum^lin
þar, en þar hafa menn verið hálflokað-
ir inni í allan vetur. „Það hefur enn
ekki verið hreyft við því að moka
Hrafnseyrarheiðina eða Dynjandis-
heiðina og þó hefur verið hér mjög
þokkalegt veður að undanfömu, ” sagði
Bjarni. ,JEf ekkert á að gera verðum
við sjálfsagt að bíða fram í
ágúst/september eftir að snjórinn fari
afsjálfu sérafheiðunum.”
Bjarni sagöi einnig að menn á Þing-
eyri væm mjög óánægöir með þjónustu
Flugleiða við staðinn. ,,I vetur vom
þeir með þrjár ferðir í viku hingað, en
nú hafa þeir fækkað þeim niður í tvær
og þær eru báðar í tengslum við Isa-
fjörð.
Það bjargar okkur að skip Skipaút-
gerðar ríkisins koma hingað einu sinni
í viku. En það tekur okkur á annan
sólarhring að komast þá leiðina suður
til Reykjavíkur og það þykir mörgum
langurtími,”sagðiBjami. -kip-
Selfoss:
Vætulaust blíðviðri
Hér er sól, en vantar vætu. Hitinn
' hefur verið frá 10 og upp í 12 og 14 stig á
daginn i forsælu en kólnar með kvöld-
inu og er bara ansi andkalt ef einhver
gola er. Mér er sagt að verið hafi um
frostmark hér á Selfossi í nótt. Það er
ekki farið að sleppa hérna hrossum, en
fólk er samt í sólskinsskapi. Ekki þó
unga fólkið sem er að útskrifast úr
skólunum og fær enga vinnu, nema
þeir heppnu sem komast í sveit í þrjá
Sænsk söngkona í Blómasalnum
Sænska söngkonan, Stina-Britta
Melander, syngur fyrir gesti Blóma-
saiar Hótei Loftleiða um helgina.
Kemur hún fram laugardagskvöldið
21. maí og sunnudagskvöld 22. mai,
hvítasunnudag.
ráðuneytið leyfði í þorskstofninn á
dögunum.
Það gerði ráöuneytið með því að
fækka skrapdögum togara og stöðva
ekki netaveiði fiskibátaflotans um
miðjan maí eins og gert hefur verið
undanfarin ár. Eru fiskifræðingar og
margir sjómenn mjög á móti þessu.
■ Segja þeir að aukin ásókn í þorskinn
komi niður á veiðunum síðar. Þetta sé
svipað og aö menn i landi ráðist á út-
sæði sem á að fara í kartöflugarðana
og eti það áður en það sé sett niður.
„Það var ekkert samband haft við
okkur um þessa skrapdagafækkun,”
sagði Jón. „Ráöuneytið segist hafa
orðiö að taka þessa ákvörðun fyrir 1.
maí af stjórnarfarslegum ástæðum.
Það er þeirra sem þar ráða að taka
ákvarðanimar og ákveða hvenær þær
taka gildi.
Við emm að vinna að því núna að
gera úttekt á þeim gögnum sem liggja
fyrir eftir vertíðina. Þau koma frá
rannsóknaskipunum og einnig úr afla
veiðiskipanna. Skýrslan verður tilbúin
siðar i þessum mánuði og hún þá lögð
fyrir ráðuneytið. Það er okkar venju-
lega leið.
Frá okkar sjónarhóli séð hefði það
því verið æskilegt að ráðuneytið hefði
beðið með að ákveða þessa fækkun á
skrapdögum togaranna þar til þaö álit
hefði legið fyrir,” sagði Jón.
-klp-
— Stórir þorskar eins og þessir, sem einn skipverja á Hilmi 2 StJ er hér
með, verða óþekkt fyrirbæri i framtiðinni ef mennirnir fara ekki variega i
sóknina iþorskstofninn, segja margir sjómenn og fiskifræðmgar.
SV-mynd S
og hálfan mánuð og fá 8—10 þúsund
krónur yfir tímabilið. Þetta myndi
þingmönnum þykja lítið kaup.
Séra Sigurður Sigurðsson, okkar
ágæti prestur, er búinn að ferma 78
böm á þessu vori í sóknarkirkjum
sínum sem em fjórar: Selfosskirkja,
Hraungerðiskirkja, Villingaholts-
kirkja og Laugardælakirkja.
Regína, Selfossi/JBH
Stina-Britta Melander syngur bæði á
íslensku og sænsku meðal annars lög
eftir Grieg, Alfvén, Rangström og
Sibelius. Einnig lög úr þekktum óper-
um og óperettum.
JBH
GARÐEIGENDUR,
SUMARBÚSTAÐAEIGENDUR
Skógrækt ríkisins se/ur plöntur á
eftirtö/dum stöðum:
HVAMMI í SKORRADAL VÖGLUM í FNJÓSKADAL
Simi 93-7061, opið virka daga og um helgar eftir samkomulagi. Sími 96-23100, opið virka daga og um helgar frá kl. 14—16.
NORÐTUNGU HALLORMSSTAÐ Á FLJÓTSDALS
í ÞVERÁRHLÍÐ HÉRAÐI
Sími um Síðumúla, opið virka daga. Sími um Hallormsstað, opið virka
nema föstudagskvöld. daga og um helgar eftir samkomu-
LAUGABREKKU VIÐ VARMAHLÍÐ, lagi.
SKAGAFIRÐI TUMASTÖÐUM í FLJÖTSHLÍÐ
Sími 95-6165, opið virka daga og um Sími99-8341, opiðmánudaga-laugar-
helgar eftir samkomulagi. daga kl. 8—18.30.
Mismunandi er hvaða plöntur eru tH á hverjum stað. Hafið samband við gróðrar-
stöðvarnar, þær veita upplýsingar um það og benda yður á hvað er tilannars stað-
ar ef þær hafa ekki til þær plöntur sem yður henta.
Við bjóðum einungis plöntur sem ræktaðar eru i gróðrarstöðvum okkar, en eng-
ar innfluttar plöntur. Við bjóðum aðeins tegundir og kvæmi sem reynsla er kom-
in á hérlendis.
VERÐIÐ
HVERGI LÆGRA
SKOGRÆKT
RÍKISIMS