Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1983, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1983, Blaðsíða 6
6 DV. FÖSTUDAGUR 20. MAl 1983. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Seveso er nú dauður bær eftir slysasprenginguna í efnaverksmiðjunni um árið en unnið hefur verið að hreinsun umhverfisins. — Tilhægri sést hver áhrif eitrunin getur haft á þau fórnardýrin sem þó sleppa lífs. Barna- pía CIA Tass-fréttastofan greindi frá því í gær að Moskvulögreglan hefði skamma hríð haft í haldi bandariska barnfóstru eftir að lögreglan hafði leyst upp samkomu hjá vottum Jehóva. Því var haldið fram að hún væri erindreki bandarísku leyniþjón- ustunnar, CIA. „Barnapían frá CIA” var Sue Pamela Came kölluð og var sagt aö hún hefði látið „vottunum” í té peninga, ritvélar og segulbönd. — Came gætti bama Plunkerts, annars sendiráðsritara bandaríska sendiráðs- insíMoskvu. Díoxín-eitrið fundiö i ónotuðu sláturhúsi Tass heldur því fram að vottar Jehóva séu á snæmm CIA en safnaðar- starf þeirra er bannað í Sovétríkj- unum. Carne, sem hefur verið í Moskvu í tvö ár, yfirgaf Sovétríkin á sunnu- daginn. Hún var handtekin fyrir að hafa yfirgefið Moskvu til þess að sækja samkomu vottanna í Kalinin án þess að gera hlutaðeigandi yfirvöldum viðvart. Umsjón: Guðmundur Pétursson Franskir herbílar hófu árla í morgun flutninga á 41 tunnu af hinu banvæna díoxín-eitri, sem fannst í ónotuðu sláturhúsi í þorpinu Anguilcourt noröur í landi við belgísku landa- mærin. Þarna er loks komiö fram úrgangs- eitrið sem hvarf frá Seveso á ítalíu, þar sem stöðugt hefur verið unnið aö hreinsun eftir slysasprenginguna 1976 í efnaverksmiðjunnL Um tveggja mán- aða bil hafa menn velt fyrir sér hvar eitrinu hafi verið holað niður og hefur verið leitað víða í álfunni. Fulltrúar frönsku stjómarinnar og svissneska fyrirtækisins Hoffmann-La Roche, sem átti efnaverksmiðjuna í Seveso, voru viðstaddir þegar eitur- tunnumar vom fermdar á herbílana. Svissneskir sérfræðingar verða Frökk- um til ráðuneytis um hvernig best má eyða úrganginum. Tunnurnar munu allar hafa verið heilar en svissnesku sérfræðingamir voru hneykslaðir á því hvemig frá þeim hefði verið gengið í geymslu. ' Díoxín er tíu þúsund sinnum ban- vænnaenblásýra. Eiturúrgangurinn verður nú fluttur í eina ofninn í allri Evrópu sem getur brennt hann upp til agna en ekki er sagthvarsáer. Eigandi sláturhússins, sem leigt hafði húsið til geymslu, segist ekki hafa vitað hvað í tunnunum var. Þær hafa verið þar síðan 4. nóvember. Svissneska fyrirtækið hafði lýst því yfir að 2,2 smálestir af eiturúrgangin- um hefðu verið fjarlægðar frá Seveso og þeim fyrirkomið eftir löglegum leiðum. Síðar kvisaöist að verktakinn sem verkið annaðist hefði blekkt menn varðandi það hvað hefði orðið um eitrið. Vildi hann ekki upplýsa hvert það hefði verið sent og hófst þá leitin. Stúdentinn álitinn myrtur af lögreglu Kæruleysi mannanna í umgengni við eitruð úrgangsefni hefur orðið tilefni mót- mæla meðal annars við svissneska fyrirtækið sem á efnaverksmiðjumar í Seveso. Skattahækkanír í blóra v/ð Reagan öldungadeild Bandarikjaþings, þar sem flokksbræður Reagans eru í meiri- hluta, samþykkti í gærkvöldi fjárlaga- áætlun fyrir árið 1984 sem gengur í berhögg við vilja forsetans. Til dæmis er þar gert ráð fyrir hærri sköttum til þess að draga úr hallanum á ríkis- rekstrinum. Reagan hefur heitið því að beita neit- unarvaldi sínu gegn öllum frumvörp- um sem fela í sér hækkun skatta á næstu tveim árum. Hefur hann sagt að skattahækkanir mundu spilla efna- hagsbatanum. — Andmælendur hans halda því fram að halli á fjárlögunum gæti reynstverri. I frumvarpinu, sem öldungadeildin samþykkti í gærkvöldi, með 50 atkvæð- um gegn 49, er gert ráð fyrir 178,6 mill- jarða dollara halla á fjárlögum 1984 sem minnki síðan niður 127 milljarða á f jórum árum. Gert er ráð fyrir 73 mill- jarða dollara hækkun skatttekna á þrem árum. Tvívegis var fellt á þingfundinum í gærkvöldi fjárlagafrumvarp sem Reagan hafði stutt en það gerði ráð fyrir að engir nýir skattar yrðu lagðir á í biU en haUinn yrði 193 mUljarðar. Demókratar fengu nokkra frjáls- lynda repúbUkana í lið með sér við af- greiðslu f rumvarpsins. Það verður nú sent í sérstaka nefnd, sem samhæfir það frumvarpi er full- trúadeUdin samþykkti og gerði sömu- leiðis ráð fyrir töluverðum skatta- hækkunum. ingarinnar, í símskeyti sem lesiö var upp við útförina. A skilti, sem reist var við hina ný- teknu gröf, stóð skrifað: ,,Enn eitt pólskt fómarlamb”. Það er almennt áUtið að Przemyk hafi verið látinn gjalda starfa móður hans í þágu einangrunarfanga, en hún hefur sjálf sætt likamsárás fyrir. Lög- reglan hefur sagt að Przemyk hafi verið handtekinn eftir ölvunarslags- mál en málið er í rannsókn. Loft þykir rafmagnað í PóUandi þessa dagana vegna undirbúnings heimsóknar Jóhannesar Páls páfa en erkibiskup Póllands, Jozef Glemp kardináli, sagði við fréttamenn Reut- ers í gær að hann vonaðist til þess að kirkjan kæmi í kring fundi páfans og Lech Walesa í heimsókninni í næsta mánuöi. Yfirvöld sjá enga ástæðu tU þess að Walesa njóti sérstakrar áheyrnar páf- ans þar sem Walesa sé enginn sérstak- ur, aðeins fyrrverandi leiðtogi fyrrver- andi verkalýðssamtaka. Yfir fimmtán þúsund manns voru við útför pólska stúdentsins Grzegorz Przemyk (19 ára) sem lést af innvortis meiðslum tveim dögum eftir að hann haföi verið í haldi Varsjárlögreglunn- ar. Andstæðingar herlagastjórnarinnar segja, að Przemyk sé enn eitt fómar- dýr óréttlætis stjómvaldanna. —, jSér- hvert dauðsfaU er sársaukafullt.. . en þetta var sérlega grimmdarlegt.. . Því verður ekki gleymt,” sagði Lech Walesa, leiðtogi óháðu verkalýðshreyf- Walesa-hjónin í áheym hjá páfa þegar þau voru í heimsókn í Róm en Glemp kardínáli hefur hug á því að Walesa hitti páfann þegar hann kemur í næsta mán- uði til Póllands. Bóluefni gegn misl- ingum úðað í hálsinn MisUngabóluefni sem úðað er með „aerosol” brúsa ofan í háls- inn, gæti máð út mislinga í heimin- um, segja visindamenn í Chicagó. Dr. Albert Sabin, sem fann upp mest notaða bóluefnið gegn lömun- arveikinni, segir, að tUraunir í Mexíkó með mislingabóluefni þetta á ,,spray”brúsum sýndu, að það bæri 100% árangur ef notað á böm 4—6 mánaða gömul og eins hjá' eldri bömum. „MisUngar eru víða í heiminum alvarlegt heilbrigðisvandamál. Einkum í löndum þar sem þeir koma upp á seinni hluta fyrsta árs- ins,” segir Sabin og félagar hans í skýrslu, sem þeir skrifa í tímarit ameríska læknafélagsins. Segja þeir, að bóluefni, sem dælt er með sprautu, beri ekki aUtaf árangur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.