Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1983, Side 8
8
DV. FÖSTUDAGUR 20. MAl 1983.
Smurbrauðstofan
BJÖRNINN
NjáUgötu 49 - Sími 15105
Lausar stöður
Við Menntaskólann í Kópavogi eru lausar til umsóknar fjórar
kennarastöður í íslensku, ensku, efnafræði, stærðfræöi og
eðlisfræöi.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil og
störf skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu
6,101 Reykjavík, fyrir 10. júní nk. — Umsóknareyðublöö fást í
ráðuneytinu.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
13. maí 1983.
Laus staða
Viö Fjölbrautaskólann á Akranesi er laus til umsóknar staða
aöstoðarskólastjóra. Gert er ráð fyrir að aöstoöarskólastjóri
sé að öðru jöfnu ráðinn til fimm ára í senn úr hópi fastra kenn-
ara á framhaldsskólastigi.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um námsferil og störf skulu
hafa borist menntamálaráöuneytinu, Hverfisgötu 6, 101
Reykjavík, fyrir 10. júní nk. — Umsóknareyðublöö fást í ráðu-
neytinu.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
13. maí 1983.
Styrkir
til háskólanáms í Búlgaríu
Búlgörsk stjórnvöld bjóöa fram í aðildarlöndum UNESCO átta
styrki til háskólanáms í Búlgaríu um sex mánaða skeið á há-
skólaárinu 1983—84. Styrkirnir eru ætlaðir til framhaldsnáms
í búlgarskri tungu og bókmenntum, listum, sögu, verkfræöi
eða búvísindum. Umsækjendur skulu ekki vera eldri en 45 ára
og hafa lokið háskólaprófi áður en styrktímabil hefst. Um-
sóknum skal komið til menntamálaráöuneytisins, Hverfisgötu
6, 101 Reykjavík, fyrir 11. júní nk. - Sérstök umsóknareyðu-
blöð og nánari upplýsingar fást í ráðuneytinu.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
13. maí 1983.
Lausar stöður
Við Fjölbrautaskóla Suðurnesja í Keflavík eru lausar til um-
sóknar nokkrar kennarastöður. Um er að ræða eftirtaldar
kennslugreinar: íslensku, erlend mál, stærðfræði, eölisfræði
og sérgreinar á tréiðnabraut. Varðandi siðastnefnda starfið
skal tekið fram að krafist er meistararéttinda í iðngreininni.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir með ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf
skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,101
Reykjavík, fyrir 10. júní nk. — Umsóknareyöublöð fást í ráðu-
neytinu.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ,
13. maí 1983.
Ráöherranetnd
Noröurlanda
Norræna menningannálaskrifstofan í Kaup-
mannahöfn
I Norrænu menningarmálaskrifstófunni í Kaupmannahöfn eru
lausar til umsóknar stööur fulltrúa á sviði vísindamála og
stjórnsýslu.
Auglýsing með nánari upplýsingum um stöðurnar verður birt í
Lögbirtingablaði nr. 52/1983. — Umsóknir skulu hafa borist
fyrir 31. maí 1983 til Nordisk ministerrád, Sekretariatet for
nordisk kulturelt samarbejde, Snaregade 10, DK-1205 Koben-
havn K.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ,
13. mai 1983.
Lausar stöður
Nokkrar kennarastöður viö Menntaskólann að Laugarvatni
eru lausar til umsóknar. Um er að ræöa eftirtaldar kennslu-
greinar: Efnafræði, frönsku, dönsku og íslensk fræði. Æskilegt
er að umsækjandi geti kennt fleiri greinar en eina. I íslenskum
fræðum er um að ræöa starf til eins árs.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir meö ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf
skulu hafa borist menntamálaráöuneytinu, Hverfisgötu 6,101
Reykjavík, fyrir 10. júní nk. — Umsóknareyðublöð fást í ráðu-
neytinu.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ,
13. tnaí 1983.
Neytendur Neytendur Neytendur
Eggjamálið:
Geir á Vallá hefur sótt
um heildsöluleyfi
geir G. CiEIRSSON
VALLÁS8WS»P8«
ii<?yk..javí.ic, maí 19^-3.
Vrartlííi&sluráft lan-.ibitnaftarirs,
llr. 'iunnnr Gu'M jart.stion,
lísndaiiöllinni v/1 'ar.atori.
; v í í'..
IJndirrita&ur ssrKir T.'n. npGjabúsina aö Vallá, i-.Jalarnesi
uin FeildsSluleyfi á o.jgJuis, op vísor til vfirlýsinea
rYaiRleiOsluráfis í £ jölmifiluin ;>ar sew f>aö lýsir ylir því
aö tyrirhur,u6 dreifincarstöa ecftja eie.i eKKi aft véra i
forrai einokunar.
Ilndirritaöur raun aft sjálfsöp.óu uppfyll.i bau sKilyrfti,
snnt hundln verfta leyfisveitinr.unni, enda sjái i’ramleiösluráö
uir aft jafnratöis veröi eætt meöal 1 eyl ishnfa.
Svo sem getið hefur um hér í DV hef-
ur dreifingarstöð eggjabænda verið
mikiö til umræöu að undanförnu.
Fimm manna nefnd Sambands eggja-
framleiðenda var kosin á félagsfundi í
febrúarmánuöi. Nefndin var kosin til
að fylgja eftir ákveðnum tillögum sem
samþykktar voru á umræddum fundi.
I stuttu máli felst í þeim tillögum að
Framleiðsluráö landbúnaöarins taki
að sér verðskráningu á eggjum, að
eggjaframleiösla verði bundin fram-
leiðsluleyfum. Einnig voru ákvæði um
félagsbundna sölu og dreifingu á eggj-
um og síðast en ekki síst að óska eftir
að Framleiösluráð veiti f járframlag úr
kjarnfóðursjóði til stofnunar dreifing-
arstöðvar á eggjum. Á blaöamanna-
fundi sem haldinn var nýlega, með for-
ráðamönnum Framleiðsluráðs land-
búnaöarins og þremur eggjabændum
úr fimm manna nefndinni, kom eftir-
farandi fram:
„Því hefur þráfaldlega verið haldið
fram, bæði í ræðu og riti að undan-
förnu, að ætlunin sé aö koma á ein-
okunarsölu á eggjum. Þetta er algjör
misskilningur. Einungis hefur verið
rætt um og reyndar samþykkt að veita
einum aðila heildsöluleyfi. Aðrir hafa
ekki sótt um slíkt leyfi. Þeir sem mest
tala um einokunarsölu bera gjarnan
fyrir sig 36. grein Framleiðsluráðslag-
anna. 1 henni kemur fram, að Fram-
leiösluráði sé heimilt að viðurkenna
Sölufélag garðyrkjumanna sem sölu-
félag ylræktarbænda og Samband
eggjaframleiðenda sem sölufélag
eggjaframleiðenda. Þegar þessi viður-
kenning hafi oröið sé öörum óheimilt
aö selja þessar vörur i heildsölu, nema
með leyfi Framleiðsluráðs.”
Það hefur verið greint frá því hér í
blaðinu aö eggjabændur, að minnsta
kosti tveir, hefðu hug á aö sækja um
heildsöluleyfi á eggjum. Nú hefur það
gerst að Geir Gunnar Geirsson, bóndi
að Vallá Kjalamesi, hefur sótt um
heildsöluleyfi á eggjum. Með bréfi til
Framleiðsluráðs landbúnaöarins, dag-
settu 6. maí síðastliöinn, sækir hann
um leyfið. Tekur hann fram í bréfi sínu
að hann muni að sjálfsögðu uppfylla
þau skilyrði, sem bundin verða leyfis-
veitingunni, enda sjái Framleiðsluráð
um að jafnræðis verði gætt meðal
leyfishafa. Birtum við bréf Geirs G.
Geirssonar með greininni.
Bókun
í Framkvæmdanefnd
Viö höfðum samband við Guðmund
Stefánsson, ráðunaut hjá Stéttarsam-
bandi bænda, og spuröum hvaö þessu
máli liði, hvort tekin hefði verið af-
staða til umsóknar Geirs.
„Bréfið var lagt fram á fundi fram-
kvæmdanefndar Framleiðsluráðsins
fyrir skömmu. Þar var bókað að sent
skuli bréf til Sambands eggjaframleið-
enda og leitað umsagnar um beiöni
Geirs” svaraði Guðmundur. ,Einnig
var bókaö að í bréfinu skyldi vera
fy rirspum um það hvort Geir G. Geirs-
son á Vallá væri ekki félagsmaöur i
Sambandi eggjaframleiöenda. Bréfið
hefur verið sent en ekki borist svar
ennþá. Þaðhefur ekki verið fundur hjá
Framleiðsluráði eftir að bréf Geirs
barst hingað svo aö þar hefur málið
ekki verið tekið fyrir, aöeins í fram-
kvæmdanefndinni sem fyrr segir. Eg
hygg aö næsti fundur Framleiösluráðs
verði fljótlega eftir næstu mánaðamót.
í byrjun júní. Svoframarlega sem bréf
hefur borist til baka frá Sambandi
eggjaframleiöenda verður máliö tekið
fyriráþeimfundi.”
-ÞG
Dagstimpillinn á kartöf lunum:
Beðist afsökunar á
mannlegum mistökum
Haraldur Benediktsson, eigandi
verslunarinnar Álfaskeiös í Hafnar-
firði, hringdi. Við sögðum á dögunum
frá kartöfluflögum sem kona nokkur
hafði keypt í versluninni. Verðmiði var
límdur yfir stimpil með síðasta sölu-
degi. Samkvæmt þeim stimpli var síð-
asti söludagur í maí 1982
Haraldur sagði það algert óvilja-
verk að verðmiðinn var límdur yfir
stimpilinn. Hann hefði hvað eftir ann-
að brýnt fyrir starfsfólki sínu að þetta
mætti ekki gera. Hitt bæri stundum við
þegar beðið væri eftir vörunni inni í
búö að flýtirinn væri mikill og yrðu
mönnum þá á mistök. Hann sagðist
hafa fengið þessa sendingu í júní á síð-
asta ári og hreinlega ekki tekiö eftir
stimplinum. Innflytjandinn segði
reyndar að síðasti söludagurinn væri í
ágúst (stimpilinn var þaö óskýr að
erfitt var að greina hvort á pokanum
stóð 08 eða 03 1982). Samt væri sá tími
sem leið frá sendingunni og fram að
síðasta söludegi mun styttri en venja
væri til. Því hefði starfsfólkið ekki
grunað að svo væri.
Haraldur vildi koma margföldum
afsökunarbeiðnum til konunnar sem
keypti kartöflurnar og bauðst til að
bæta henni þær, hvemig sem hún vildi.
Þama hefðu orðið mannleg mistök
sem reynt y rði að bæta úr.
DS
Dóra Stefánsdóttir
og
Þórunn Gestsdóttir