Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1983, Blaðsíða 9
DV. FÖSTUDAGUR 20. MAl 1983.
9
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
„Hvernig nenniröu þessu, er þetta
ekki mikill vandi?”hafa sumir gestir
minir spurt mig þegar ég hef gefið
þeim volgt gerbrauð, beint úr ofninum.
En bökun gerbrauðs er einhver sú ein-
faldasta og þægilegasta matreiösla
sem til er. Otrúlega margir þora hins
vegar ekki að reyna við hana af því að
þeir halda hana allt of flókna til þess að
geta ráðiövið hana.
Ég var lengi á sömu skoðun. I mat-
reiðslu í skólanum í gamla daga var
okkur kennt að búa til gerbrauö.
Fannst mér það óttalegt mas, bæði
flókið og leiðinlegt. I fyrsta skiptið sem
ég reyndi bakstur úr geri heima við
breyttist það álit ekki. En af með-
fæddri þrjósku hélt ég áfram og sé nú
að þaö er bara eins með gerið og aðra
lifandi hluti, það verður að fara rétt að
því.
Grundvallaratriðið er hitastigið á
vökvanum sem það er leyst upp í. Sé
það rétt getur fátt farið úrskeiðis. Mér
er meira aö segja sagt aö nú sé búiö að
setja undir þann leka líka því hægt sé
að fá „instant” ger sem ekki þarf einu
sinni að leysa upp. Það er einfaldlega
sett saman við mjölið sem bakað er úr.
Ekki hef ég prófað þessa nýjung en
veit um fólk sem notar hana með góð-
um árangri og segir brauðið ekki verða
síðra.
Þegar ger er leyst upp á vatnið að
vera við líkamshita manns. Mér finnst
best að mæla þetta svona nokkum veg-
inn með litla fingri. Og ég hika ekki við
það að taka vatnið beint úr krananum,
hitaveituvatn og kalt vatn í bland. Það
er alveg óþarfi 'að hita vatn sérstak-
lega til að baka úr. Hitaveituvatnið er
ekki síðra, inniheldur meira aö segja
víða nokkuö af steinefnum. Vatnið
sem gerið er leyst upp í þarf að vera
svona þrisvar sinnum fyrirferðarmeira
en gerið. Ekki er þetta samt neitt
nákvæmnisatriði. Ef vatniö verður of
mikið er einfalt aö bæta viö örlitlu af
mjöli og sé það of h'tið má bæta meiru
við. Gerið leysist ekki upp nema vatnið
sénægilegt.
Ekki reka á
eftir gerinu
Það er annaö sem passa verður upp á
þegar bakaö er úr geri. Það er að hgfa
nægan tíma. Það þýöir ekkert að ætla aö
reka á eftir gerinu. Kannski er þessi
staðhæfing næg til þess að einhverjum
hrýs hugur, getur ekki hugsaö sér aö
standa sveittur í eldhúsinu tímunum
saman. Þá skal hugga með því aö alls
ekki þarf að standa yfir væntanlegu
brauði allan tímann. Meðan það er að
lyfta sér er hægt að gera ýmislegt ann-
að. Og þeir sem eiga góðar hrærivélar
geta meira aö segja látið þær hnoða og
gera allt mögulegt á meðan. Hörðustu
gerbakstursmenn segja reyndar að
það sé ekkert að marka að hnoða
brauðið í vél. En ég hef prófað það og
veit að bragðið veröur ekkert síðra og
næringin ugglaust ekki heldur. Hví
skyldu þeir sem það vilja þá ekki nota
hrærivélina?
Þeir sem reyndúr eru orönir í ger-
bakstri notast oftast ekki viö uppskrift-
ir nema til hliðsjónar. Þeir finna fljótt
hvað þeim þykir best og baka eftir sín-
um eigin uppskriftum. Fyrir byrjand-
ann er hins vegar best aö fara eftir
uppskrift. Má benda á matreiöslubæk-
ur Sigrúnar Davíðsdóttur í þessu sam-
bandi. I þeim eru ákaf’.ega skýrar og
góðar leiöbeiningar sem mjög auðvelt
eraðfaraeftir.
Eins og fyrr segir þá verður að gefa
sér góðan tíma til að baka gerbrauð.
Það þarf að lyfta sér tvisvar sinnum
áður en það er bakað. Fyrst í skál eftir
aö öllu hefur verið blandaö saman og
síðan á bökunarplötunni eða í forminu.
Yfir skáhna þarf að breiða vel. I upp-
skriftum er oftast mælt með því að
breiða rakt stykki yfir hana. En mér
hefur reynst enn betur að nota plast-
fUmu. Þá verður skálin alveg þétt og
geriö nær að lyfta deiginu betur.
Hvað á að nota?
Gerið er auðvitað það atriðið sem best
er að byrja á. Pressuger er það al-
tekur gerið lengri tíma í það að lyfta
deiginu. Og einhvem veginn verður
brauðið betra fyrir bragðið. Mjög gott
er að hnoða deigið að kvöldi til úr köld-
um vökva og stinga skáhnni með því
inn í kæU. Þegar komið er heim úr
vinnu næsta dag er deigið passlegt tU
þess að láta það lyfta sér aftur.
Ýmsu smálegu má síðan bæta út í
þetta. TU dæmis salti, sykri og ein-
Ostur i og með gerbrauði er
sérstaklega ijúffengur. Osta og
smjörsaian hefur gefið út marga
bæklinga sem i er að finna upp-
skriftir að sliku brauði. Hér er mynd
úr einum þeirra.
besta. En það er ekki aö öUu leyti eins
lipurt og þægilegt og þurrgerið. I
fyrsta lagi fæst það ekki víða. Hér í
Reykjavík er helst hægt að fá það í
verslunum sem selja svonefndar
heUsuvörur. Uti á landi veit ég hreint
ekki hvort hægt er að fá það. Þurrger
er því sjálfsagður kostur þar sem svo
er. Þurrgerið er Uka að mörgu leyti
þægUegra í notkun. Það geymist enda-
laust í vel lokuðum stampi og alltaf er
hægt að gripa tU þess. Pressugerið á
það hins vegar tU að mygla í ísskápnum
ef ekki er vel að gáð. Þó að ótrúlegt sé
er reyndar hægt að frysta það. Þá þarf
hins vegar ögn meira af því en venju-
lega. Um það bil eina teskeiö af þurr-
geri þarf fyrir hver 10 grömm af
pressugeri. Þannig geta menn fundið
út hvað þeir þurfa af annarri gerteg-
undinni sé hin gefin upp.
Mjöl, bæði gróft og fínt er síðan ann-
að grundvallaratriði. Ohætt er að nota
margar mjöltegundir saman. TU dæm-
is rúgmjöl, heUhveiti og hveiti. Mis-
jafnt er hversu mikinn vökva þarf á
móti hverri tegund mjöls og hversu
mikið ger þarf. Kynniö ykkur það.
Þannig þarf mikinn vökva í brauö sem
í er rúgmjöl og einnig meira af geri en í
hveitibrauö.
Vökvi er síðan þriðja grundvallar-
atriðið. Hann má vera mjólk, vatn, safi
og jafnvel saft. I mörgum uppskriftum
er mælt meö því að allur vökvinn sé
velgdur. Sé það gert gengur gerjunin
fyrr. En ef menn hafa nægan tíma er
um að gera að nota kaldan vökva. Þá
Hægt er að baka stór brauð og smá, gróf og fin, sæt og ósæt. Allt eftir þvi
hvað menn eru i skapi tilað borða.
hverju feitmeti, rúsínum, fræjum eöa
kryddjurtum. Allt eftir því hvað menn
ætla sér með brauðið. Án aUs þessa er
þó hægt að komast af en játast verður
að brauðið verður þá ekki eins gott.
Aðferðin
1. Leysiö gerið upp í Ukamsheitum
vökva. Látið það bíða smástund á
meðan þið finniö annað til.
2. Blandið saman í skál þurrefnum,
feitmeti, ef það er notaö, og öðrum
vökva.
3. Blandiðgerblöndunniútí.
4. Hnoðið með höndunum eða í hræri-
vél þar til deigið sleppir skáUnni.
5. Breiðið rakt stykki eða plastfUmu
yfir skáUna og látið deigið lyfta sér
þar til það er orðið um það bil helm-
ingi stærra en það var í upphafi.
6. Hnoðið deigið aftur og bætið í það
mjöli ef ykkur finnst þess þurfa og
mótið í boUur eða brauð.
7. Bakið við um það bil 200 gráðu hita.
Tíminn fer eftir stærð, um 15—20
mínútur fyrir boUur og um klukku-
tíma fyrir stór formbrauð.
Þetta er aUur vandinn. Gott gengi.
DS
£3=3
jafnvel öndvegisviður
þarf umönnun
Harðviðurer notaður þarsem annar mýkri viðurdugarekki. í
útihurðir, um borð í skipum, já alls staðar þar sem mikið mæðir
á vegna veðráttu eða notkunar. En jafnvel öndvegisviður þarf
umönnun. Viðinn þarf að hreinsa og verja gegn ofþornun.
International hefuralltsem til þarf: Hreinsi sem
auðveldur er í notkun og skaðar ekki kítti, lakk eða málningu.
Og olíu sem varnar því að viðurinn þorni.
Öndvegisviður á góða umönnun skilið.
2C International
Að baka brauð heima
er leikur einn
— en nokkra þolinmæði þarf til