Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1983, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1983, Blaðsíða 18
lö DV. FOSTUDAGUR 20. MAl 1983. íþróttir Dalglish knattspyrnu- maðurársins — Pele afhenti honum verðlaunin í hófi í Lundúnum í gær Kenny Dalglish, knattspyrnumanni árs- ins á Englandi, voru afhent verðlaun sín í hófi í Lundúnum í gær. Það var enginn annar en brasilíski knattspyrnusnUlingur- inn hér á árum áður, Pele, sem afhenti DalgUsh verðlaun sín. Hann gerði stuttan stans í Lundúnum á leið sinni til Stok hólms. Hann er í bandarísku nefndinni — Kissinger formaður — sem mætir hjá stjórn FIFA í dag. Kenny Dalglish er 32 ára og þetta er í annað skipti sem hann er kjörinn knatt- spyrnumaður ársins á Englandi. Fjórði maðurinn sem vinnur til verðlaunanna í annað sinn. Hinir eru Stanley Matthews, Tom Finney og Danny Blanchflower. hsírn. „Erfitt að leika gegn Blikunum — sem eru byrjaðir að leika „kraftaknattspyrnu,” sagði Ögmundur Kristinsson — Þaö verður erfitt að leika gegn Breiöabliksmönnum ef þeir halda áfram á þessari braut — þ.e.a.s. að leika „krafta- knattspyrnu”, eins og þeir léku gegn okkur, sagði ögmundur Kristinsson, fyrir- liði Víkingsliðsins. — AUt það fína og skemmtílegu fléttumar sem hafa verið að- aU Breiðabliks undanfarin ár eru horfnar. í þess stað einkennist leikur Uðsins af löng- um spörkum og hlaupum, eins og þau lið sem Magnús Jónatansson hefur þjáUað undanfarin ár, sagði ögmundur. — Við áttum að vinna þennan leik því við fengum fjölmörg tækifæri sem nýttust ekki, sagði ögmundur. — Það er greinUeg þreyta hjá okkur eftir mikla æfingar og strangar undir stjóm þjáUara okkar. Það er mikið spU í liði okkar og ég hef trú á að þaö eigi eftir aö koma í ljós í næstu leikj- um. Það var erfitt að leika góða knatt- spymu gegn BreiðabUki eins og leöcmenn Uðsins léku gegn okkur. Þeir gáfu okkur aldrei frið — börðust um hvem bolta, sagði ögmundur. -SOS. • ögmundur Kristinsson. 1 .. deild Þór—AkranesO—1 (0—1) Þórsvöllur, Akureyri, Áhorfendur 920. Sigþór Ömarsson skoraói mark Skagamanna á 37. mín. Keflavik — Valur 1—2 (1—1) Malarvöllurinn Keflavik. Áhorfendur 741. Sig- urður Bjömsson skoraði mark Keflavíkur á 34. mín. Þorgrímur Þráinsson (1 mín. 12 sek. og 47/100) og Magni Pétursson (85. mín.) skomðu mörk Vals. íþróttir íþróttir íþróttir íþrc • Ömar Torfason — sést hér þruma knettinum að marki Breiðabliks. Knötturinn fór rétt fram hjá marki Blikanna. I I [ I Sigurður heppinn að fá ekki að sjá rauða spjaldið i i i Sigurður Grétarsson — sóknar- | Ieikmaður Breiðabliks, var hepp-1 Iinn að fá ekki að sjá rauða spjaldið | í leik Blikanna gegn Víkingi á | Sigurður I gegn I Laugardalsvellinum. ' fékk að sjá gula spjaldið snemma í I S leiknum. Það munaði ekki miklu að * IBaldur Scheving, dómari leiksins I áminnti Sigurð undir lok leiksins og | sýndi honum þá jafnframt rauða | spjaldið. Sigurður spymti knettinum þá ■ I frá þegar Baldur hafði dæmt auka-1 ■ spymu á Breiðablik. I hinum nýju ■ | reglum dómara stendur að áminna I Ieigi menn ef þeir gera tilraun til að I tefja framkvæmd aukaspymu — ■ I t.d. á þann hátt að knötturinn kom-1 * ist ekki strax haneað sem auka- _ 1 ist ekki strax þangaö sem auka- _ I spyman skal tekin. I________________________ • Benedlkt Guðmundsson (t.v.) hef- ur hér gætur á Gunnari Gunnars- syni. DV-mynd: Friðþjófur. „Tókst það sem við ætluðum okkur” sagði Benedikt Guðmundsson hjá Breiðabliki Víkbigur — Breiðablik 0—0 Laugardalsvöllur: Áhorfendur 1063. það var mikil gleði í herbúðum Breiðabliks eftir að Kópavogsliðið hafði náð jafntefli 0—0 gegn tslands- meisturum Víkings á Laugardals- vellinum í gærkvöldi. — „Okkur tókst það sem við ætluðum okkur — að ná einu eða tveimur stigum frá Vikingi,” sagði Benedikt Guðmundsson, miðvörður Breiöabliks. Benedikt sagði að andinn væri mjög góður í herbúðum Breiðabliks og leik- menn liðsins ætluðu sér að vera með í baráttunni um Islandsmeistaratitilinn. — Við komum nú miklu betur undir- búnir fyrir slaginn í 1. deild en mörg undanfarin ár. Erum líkamlega sterk- ari og baráttan er meiri, sagði Bene- dikt. — Þetta er aðeins byrjunin og ég hef trú á að knattspyrnan verði betri hjá okkur í framhaldi af þessu, sagði Bene- dikt. -SOS Blikamir bön eins og grenj Ijón gegn Víkii sem fengu aldrei frið til að sýna meistarat að sætta sig við jafntefli 0- íslandsmeistarar Víkings fengu aldrei tækifæri til að sýna þá takta sem þeir hafa sýnt undanfarin tvö ár — takta sem hafa fært þeim tvo íslands- meistaratitla — þegar þeir mættu grimmum leíkmönnum Breiðabliks á Laugardalsvellinum í gærkvöldi. Blikamir mættu ákveðnir til leiks og var greinilegt að þeir ætluðu að selja sig dýrt. Þeir börðust og oft af meira kappi en forsjá — ljót brot sáust og þurfti Baldur Scheving, dómari leiks- ins, að sýna þremur leikmönnum Kópavogsliðsins gula spjaldiö og öllum fyrir grófan leik. Það voru þeir Sig- urður Grétarsson, Valdimar Valdi- marsson og Ólafur Bjömsson sem fengu gula spjaldið. Það er greinilegt að Magnús Jónatansson, þjálfari Breiðabliks, hefur breytt leikaðferð Kópavogsliðs- ins mikið. Sú skemmtilega knatt- spyma, sem hefur einkennt leik Blik- anna undanfarin ár, er horfin og í staöinn er meira um hlaup og spörk — og leikið á kröftum eins og KR-liðið og lið Isfirðinga gerðu undir stjórn Magnúsar. Hvort Magnús hefur tekið rétta stefnu með Blikana er ekki hægt að segja um eftir að hafa séð þá leika einn leik. Oneitanlega horfa knatt- spyrnuáhugamenn með söknuði á eftir hinni léttleikandi knattspymu sem Blikarnir hafa leikið undanfarin ár. Spurningin er nú — kemur sú knatt- spyrna aftur eða tilheyrir hún nú for- tíöinni? Það getur verið að „kraftaknatt- spyrnan” sé árangursríkari — að minnsta kosti náðu Blikarnir jafntefli 0—0 gegn Islandsmeisturum Víkings á þannig knattspymu. Víkingar skemmtilegri Víkingar byrjuðu leikinn vel gegn Breiöabliki en fljótlega kom í ljós að það þýddi lítið að reyna að leika knatt- spymu gegn grimmum Blikum og urðu því Víkingar aö hafa sig alla við til að veita þeim viðnám í baráttunni um knöttinn. Það var hart barist og fór sú barátta að mestu fram á miðjunni. Víkingar náðu þó að skapa sér nokk- ur góð tækifæri en þeir náðu ekki að nýta þau. Það var nýliðinn Andri Marteinsson sem lék aðalhlutverkið í þeim marktækifærum sem Víkingar fengu. Andri átti tvö góð skot að marki Breiöabliks í fyrri hálfleiknum — fyrst rétt fram hjá marki Breiöabliks og síðan varði Guðmundur Ásgeirsson, markvörður Blikanna, vel skot frá Andra. Guðmundur varði einnig skalla frá Aöalsteini Aðalsteinssyni — sló knöttinn afturfyrir endamörk. Blikarnir sluppu með skrekkinn Þegar 15 mín. voru til leiksloka voru Víkingar nærri búnir að skora. Andri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.