Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1983, Side 36
73090
SENDIBÍLASTÖÐ
KÓPAVOGS
AUGLÝSINGAR
jL/UÁA SÍÐUMÚLA 33
SMÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA
SKRIFSTOFUR
ÞVERHOLTI 11
Símsvari á kvöldin
og um helgar
Q//1 1 RITSTJÓRN
O00 I I SÍÐUMÚLA 12—14
NÝ STEFANÍA RÆDD
Svavar Gestsson átti í morgun
fund með fuDtrúum annarra flokka en
Sjáifstæðisflokksins þar sem rætt var
um möguleika á myndun meirihluta-
stjórnar. Alþýöuflokksmenn og
framsóknarmenn hafa þó látið í ljós
efasemdir um slíka ríkisstjórn. Uk-
ur benda til aö Svavar muni skiia
umboðisínuídag.
Viöræðum Sjálfstæöisflokksíns við
Alþýðuflokk og Bandalag jafnaðar-
manna er nú lokið, þar sem þing-
flokkur sjálfstæðismanna taldi að
ekki væri um samstarfsgrundvöU að
ræöa. Viðræöur Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks munu væntan-
lega hefjast aftur um helgina þar
sem gerð verður úrslitatilraun til að
koma saman samstjóm þessara
flokka. Vilji er til aö fá Alþýðuflokk-
inn með í þær viðræður enda hafa
kratar tilkynnt flokknum að þeir séu
reiðubúnir til viðræðna um önnur
skilyrði en forsætisráöherra í þeirri
samstjóm. Magnús H. Magnússon,
varaformaður Alþýðuflokksins,
sagði í gær að til greina gæti komið
að flokkurinn fengi neitunarvald eða
hluta þingrofsréttar. Hann sagði
ennfremur aö ef Alþýðuflokkurinn
fengi stjómarmyndunarumboö
myndi hann reyna samstjórn með
Framsóknarflokki og Sjálfstæöis-
flokki. Framsóknar- og sjálfstæðis-
menn munu hafa takmarkaðan
áhuga á að veita krötum þingrofsrétt
í ríkisstjóm.
A ríkisstjómarfundi í gær var rætt
um hvort fresta ætti verðbótagreiðsl-
um 1. júní með bráöabirgðalögum.
Engin ákvörðun verður tekin í þeim
efnum fyrr en eftir helgi. Alþýðu-
bandalagsmenn em hlynntir frestun
og framsóknarmenn geta fallist á
hana ef þaö greiðir fyrir myndun
meirihlutastjórnar. En talið er að
málin skýrist það mikiö um helgina
að ekki þurf i aö koma til frestunar.
ÖEF
Konan sem varð
undir vélskóf lunni:
Mikið brotin
og marin
Konan sem slasaðist á Miklubraut-
inni á miðvikudaginn liggur nú á gjör-
gæsludeild Borgarspítalans. Hún varö
fyrir því að vélskófla velti bíl hennar
og ók síðan yfir hann. Konan þótti
sleppa furðulega vel að komast lífs af
úrþessuslysi.
Þorbjörg Magnúsdóttir, yfirlæknir á
gjörgæsludeild, sagði í morgun að líö-
an konunnar væri eftir atvikum. Hún
væri auðvitað mikið slösuð og ætti lík-
lega eftir að eiga í áverkum lengi enn.
En miðað viö allt hefði hún sloppiö al-
veg furðulega vel. Konan er mikið
beinbrotin, meðal annars er brot á
hálsliðum. Eftir þeim rannsóknum að
dæma, sem unnt hefur veriö aö gera
ennþá, er þó talið líklegt að hún sleppi
við lömun. Hún er mikið marin, sér-
staklega á vinstri hlið. Lungu og melt-
ingarvegur virðast ósködduð. Þor-
björg sagði að enn gæti fleira átt eftir
að koma fram við frekari rannsóknir
þó allir vonuðu heitt að svo yrði ekki.
DS.
Höfnuðu boði
um tryggingu
Enn liggja ekki fyrir niðurstöður í
máli Sjóla RE—18 sem var tekinn að
meintum ólöglegum veiðum fyrr í vik-
unni.
Aö sögn Guðmundar L. Jóhannes-
sonar, hjá bæjarfógetaembættinu í
Hafnarfirði, var áhöfninni gefinn kost-
ur á að halda á veiðar í gær gegn trygg-
ingu. Þvítilboöi varhafnað.
Málsgögn voru send til embættis rík-
issaksóknara síðdegis í gær. Sagði Guð-
mundur að úrskurður yrði væntanlega
kveðinn upp f yrir hádegi í dag.
-JSS.
LOKI
Hver er munurinn á
geimskutlu og geim
—skutiu?
Lokunargjaldið
í Grundarf irdi:
Olöglegt
— segir Gísli
Jónssonogkrefst
þessaðgjaldíð
verði endurgreitt
„Mér finnst þetta svo augljóst í
reglugerð að ég leyfi mér að fullyrða
að það sé með öllu óheimilt samkvæmt
19. grein reglugerðar fyrir Rafmagns-
veitur ríkisins að taka lokunargjald ef
lokun hefur ekki verið framkvæmd,”
sagði Gísli Jónsson, prófessor og fyrr-
verandi rafmagnsveitustjóri, í samtali
við DV í morgun. Eins og kunnugt er af
skrifum DV hafa ýmsir, meöal annars í
Grundarfirði, fengið á sig slík g jöld.
„Eg vil undirstrika,” sagði Gísli,
„að það er ekki heimilt að taka gjald'
fyrir sé ekki lokað. Heimildin í reglu-
gerð er um að setja gjald fyrir endur-
opnun. Þetta mál undirstrikar vel
hversu vamarlaus neytandinn er.
Þarna getur hann ekkert leitað nema
til Rafmagnsveitnanna og ráðuneytis-
ins og þau túlka reglugerðir auðvitað
sér í hag. Eg tel að Rafmagnsveitun-
um beri tafarlaust að endurgreiða
þessi g jöld og það með vöxtum. Ef það
verður ekki hef ég fullan hug á að taka
þetta mál upp hjá neytendasamtökun-
um.” -JBH.
DV verdlaunar
skutlumyndir
DV hefur ákveðið að veita verðlaun
fyrir þrjár bestu myndirnar af flugi
geimskutlunnar yfir Reykjavík í gær-
kvöldi. Veitt verða þrenn verðlaun,
þrjú þúsund krónur, tvö þúsund og eitt
þúsund krónur. Nánar verður skýrt frá
samkeppninni í DV á morgun. óm.
Geimskutlan Enterprise á baki
júmbóþotunnar yfír miðborginni
klukkan hálfniu i gærkvöldi. Esj-
an i bakgrunni.
DV-mynd: Loftur.
Geimskutlan yf ir Reykjavík:
FLAUGIFIMMTIU METRA HÆÐ
Tugþúsundir manna sáu banda-
rísku geimferjuna Enterprise á baki
Boeing 747-þotu i aöeins fimmtíu
metra hæð yfir Reykjavíkurflugvelli
klukkan 20.31 í gærkvöldi. Þessi sér-
kennilega samstæöa, þetta risafer-
líki, var það stærsta fljúgandi far
sem flestir höföu nokkru sinni séð;
yfir 220 tonn að þyngd, 70 metra
langt, 24 metra hátt og vænghafið 60
metrar.
Geimskutlan var orðin hálftima á
eftir áætlun þegar hún sást frá Kefla-
víkurflugvelli koma fljúgandi úr
vestri inn Faxaflóann meö stefnu á
Akranes. Við Skipaskaga kom hún
inn á aðalfluggeisla norður-suöur
brautar Reykjavíkurflugvallar og
fylgdi honum. Burðarþotan lækkaði
sig eins og hver önnur flugvél í að-
flugi og setti niður hjólin. Yfir miöj-
um flugvellinum var hún í svipaöri
hæð og öskjuhlíð.
Skutlan stefndi síðan á Grindavík.
Taka þurfti víða beygju til aö komast
inn á lokastefnu Keflavíkurflugvall-
ar. Þar var lent klukkan 20.45.
Samgönguráðherra, Steingrímur
Hermannsson og sendiherra Banda-
ríkjanna á Islandi, Marshall
Brement, tóku á móti áhöfninni sem
var undir stjórn Larry Griffin. Þar
var einnig samankominn mikill
mannfjöldi.
Geimskutlan fór frá Islandi í
morgun klukkan hálfníu. Hún er aft-
ur væntanleg 7. júní á leið sinni vest-
ur um haf.
-KMU.