Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1983, Side 16
16
DV. MIÐVIKUDAGUR1. JUNI1983.
Spurningin
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Hvernig líst þór á fyrirhugað-
ar efnahagsaðgerðir nýju
ríkisstjórnarinnar?
Lárus Johnsen, starfar ó Rannsókna-
stofu Háskólans: Ég hugsa að þær séu
það sem þurfti aö koma og mér finnst,
margt gott í sambandi við þær. Þær
verða vonandi til þess að ástandiö
verður stööugt en ekki með þessum
hringlandahætti.
Jóhanna Þorgilsdóttir húsmóöir: Ég
bý nú í Bandaríkjunum svo að ég veit1
sama og ekkert um þær. Ég vona bara
að þeir fái góöan stuðning hjá fólki.
í .. . ,n i—r»/
Albert Guðbrandsson, vinnur hjá i
Skeljungi: Ég get ekkert sagt um þaö
aö svo stöddu. Maöur verður bara að
bíða til haustsins og sjá þá hvort
maður á eitthvað til jólanna.
Margrét Svelnbjömsdóttir sjúkraliöi:
. Mér líst ekkert á þessa ríkisstjóm. Ég
sé ekki fram á að neitt gerist annað en
að ráðist verði að þeim lægstlaunuðu,
það miðar allt að því aö plokka verka-
íýöinn.
Stefón Jökulsson ritstjóri: Það veröur
að taka ó þessum mólum en ég óttast
að það kunni aö bitna á þeim sem verst
hafa kjörin. Mér finnst vanta talsvert
upp á að stjómmálamenn skýri fyrir ;
almenningi hvað þeir eiga við með í
orðumsínum.
„Ahyggjulaus dans
—eftirmáli
kosningaslags
Haraldur Guðnason, Bessastíg 12,
Vestmannaeyjum:
I þann mund er stjóm okkar hálofleg
kennd við Thoroddsen var farin að
berja nestið, eftir að hafa sett landið á
höfuðið, upphófust margir „gleðskap-
ir”, eins og þeir mundu segja í fjöl-
miðlum. „Ahyggjulaus dans á barmi
eldgígs”. Etum, drekkum og verum
glaöir. Vöknum með pólitiska timbur-
menn eftir kosningar.
Það var semsé sláttur á framboösað-
ilum, eins og þetta fyrirbæri er nú titl-
að í sjónvarpi og útvarpi.
Af mörgum frábærum uppákomum
■ var sú í Selfossbíói best og mest. Rútu-
feröir austur fyrir Fjall, lúðrasveitir,
leikflokkar, söngvarar og sjónhverf-
ingamenn — og Bryndís stjómaði.
Alveg æði. —
Næst héldu stórkratar fjölskyldu-
skemmtun í Broadway með lúðraþyt
og söng. Glansnúmerið auðvitað Jón
Baldvin, aðrir skemmtikraftar Bjami
Guðna, Jóhanna og Maríanna. Þar
sem Jón Baldvin er þar eru Halli og
Laddi óþarfir. Þá var karlakór, leikar-
ar, einsöngvarar og músikantar.
Svo var stormað í Hollywood og ekki
var minna um dýröir þar. Þar var
Tappi tíkarrass og rokkþyngsta hljóm-
sveitin, hvaö sem það þýðir. Diskótek-
iö á fullu.
Oþarft að nefna, aö ekki var hinum
öldruðu gleymt. Rútuferðir á staðinn.
Allt frítt. Ekið heim. Bingó, bingó. Jó-
hanna og Jón ráðherraefni tala 5
mínútur til lýðsins. Lýsir einstakri
hugulsemi við hina öldruðu sveit.
AB (allaballar) hélt marga fundi og
stóra, en þá fór verr en skyldi, slagorð-
ið góða gleymdist, um kjörseðilinn og
kjarabaráttuna og enn síöur fannst
þetta gamla góða: Samningana i gildi.
Hefði þó verið við hæfi aö minna elsku
ráðherrana og öreigavinina, Amalds
og kompaní, á kjörorðið að tama.
I lokin var Svavar orðinn svo hrædd-
Haraldur Hkir stjórnmálunum við áhyggjulausan dans á barmi eldgigs.
ur við hægri villu að hann hóf augu sin
til hæða, skrifaði átakanlegt heilsíðu-
bréf til allra kjósenda og bað aö þeim
yrði forðað frá villu. Og Svavar reynd-
ist bænheitur. —
Þá var þaö nú flott okkar Fram-
sóknarlið. B-stórfundur á Akureyri.
Þar tveir ráðherrar og framboðsaðil-
ar. Svo kom stóra gleðin í Háskólabiói
eða var það í Höllinni. Bændaflokkinn
okkar munaði ekki um að fá stórsöngv-
ara frá Italíu til aö hressa upp á liðið
með fáeinum lögum og undirleikara
frá sama landi. Auk þess komu fram
Olafur fyrrum formaður og Laddi. Og
ekki gleymdi hann gamlingjunum,
blessaður Olafur, bauð nokkrum
hundruðum til veislu, spjalls og tekið í
höndina á eins mörgum atkvæðum og
við varð komið. öll þessi aldraða sveit
fékk svo kaffi og með því og skammt af
lífsvisku hins aldna stjómmálamanns.
Fóru menn klökkir og meö þökk í huga
af fundi foringjans, en hvort allir hafa
borgað fyrir sig eins og til var ætlast er
önnur saga. —
Ekki lét íhaldið sinn hlut eftir liggja,
sem þess var von og vísa. Hver heil-
síðan (breiðsíöa) í Mogga flutti fagn-
aöarboöskap Alberts: Kosningahátíö
með efsta manninum. Söngur, bingó og
fyrirbænir. Laddi og Albert slíta svo
samkundunni.
En það versta er eftir: „Allir gestir
fá miða afhentan við innganginn, sem
er ávisun á alvöru (leturbr. HG)
hamborgara frá ASKI”.
Skylt er að geta þess, að ekki var
eldri borgurum gleymt (hvað sem
skeður nú eftir kosningar). Við fengum
langt og gott opið bréf með eiginhand-
arundirskrift 12 frambjóðenda Sjálf-
stæðisflokksins og fór vel á því að miöa
viö postulatöluna. Samkvæmt þessu
góða bréfi á að gera svo margt fyrir
okkur, að við óttumst að ekkert verði
eftir handa okkur í næstu kosningum —
nema hamborgarar.
á barmi eldgígs”
„EKKIHUGLEYSI
TIL HJÁ KRÖTUM”
Kristín Árný Sigurðardóttir, Bjarn-
hólastíg 12, skrifar:
Mér þykir Svarthöfði gerast heldur
ósvífinn í árásum sínum á alþýðu-
flokksmenn þar sem hann vogar sér aö
væna þá um ósjálfstæði. Lýsir þetta
dæmigerðri afbrýðisemi auðvaldsins.
Þegar þeim tekst ekki að koma rósinni
í eigið hnappagat á hún náttúrlega aö
vera komin í hnappagat Alþýðubanda-
lagsins.
Það þýðir lítið fyrir Svarthöfða að
reyna aö slá ryki í augu verkamanna
og segja Karl Steinar ætla að setja
heimili þeirra á hausinn. Þau eru á
hausnum og hafa verið það lengi. Það
J vita allir sem fylgst hafa með hverjir
hafa verið í rikisstjórn síðastliöin 12 ár
aö þetta eru ekki verk alþýðuflokks-
manna og vitanlega kunna allir lands-
menn aö telja og hljóta aö sjá glöggt á
þingmannafjölda Alþýöuflokksins aö
ekki voru það þeirra þingstörf sem
komu öllu á kaldan klaka. Nei, en þaö
þurfti auðvitað að fá einhvem til að
moka flórinn en þaö vita flestir aö það
þýöir lítið þegar f jóshaugurinn er orð-
inn svo stór að hann situr fyrir lúgunni.
Nei, það þýðir ekkert að væna Alþýðu-
flokksmenn um hugleysi. Þeir eiga það
hreinlega ekki til. Þaö þýðir heldur
ekki að reyna aö lítillækka Kjartan
fyrir aö segja nei, þegar hann sér fram
á að verkalýðurinn á ekki aö fá bita af
kökunni sem hann bakar?
,,Það þýðir lítið fyrir Svarthöfða að slá ryki i augu verkamanna og segja
Karl Steinar ætla að setja heimili verkamanna á hausinn " segir Kristin Árný
Sigurðardóttir m. a. ibréfi sínu.
„Við mótmæltum Geir í síðasta prófkjöri”
! — en samt verður hann ráðherra
Magnea Sigurðardóttir hringdi:
Hvemig stendur eiginlega á því að
' þingflokkur sjálfstæðismanna hefur
11 valið Geir Hallgrímsson ráðherra? Eg
er sjálfstæðismanneskja og hef lengi
verið, en Geir Hallgrimsson er ekki að
mínu skapi. Svo er um fleiri eins og
bersýnilega kom fram í síðasta próf-
kjöri og alþingiskosningum. Við mót-
mæltum honum í prófkjörinu en á
okkur hefur ekki verið hlustaö.
Að mínu mati hefði veriö rétt aö
fyrst formaöurinn komst ekki á þing,
hefði átt aö fela varaformanninum,
Friðriki Sophussyni, stjómarmyndun.
Eg skil ekki hvers vegna þjóöin á að
vera aö kjósa ef að kosningum loknum
raða menn sér í ráðherrastóla sem
engin atkvæði hafa á bak við sig.