Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1983, Blaðsíða 40
SENDIBÍLASTÖÐ
KÓPAVOGS
SKEMMUVEGI50 '
Símsvari á kvöldin
og um helgar
GRIMSVOTN:
Ekkert bendir
til jökulhlaups
, ,Þaö er ekkert sem bendir til þess aö
jökulhlaup sé yfirvofandi en það
verður að ætla að gosið stytti þann
tíma eitthvað,” sagði Sigur jón Rist um
frétt Þjóðviljans í morgun þar sem
haft er eftir honum að jökulhlaup verði
úr Grimsvötnum á 10.—15. degi
gossins. Sigurjón kvaðst hafa átt við aö
jökulhlaup úr Grímsvötnum byrjuðu
hægt og rólega og aö það gæti tekið frá
viku í hálfan mánuð að vaxa í Skeiðará
þegarhlaupyrðu.
Eins og nú er háttaö meö vatnsstöðu
eru tvö til þrjú ár í hlaup miöað við að
það gysi ekki,” sagði Sigurjón.
1 morgun sást úr flugvél á leið til
Oslóar gosmökkur í fjögurra kílómetra
hæð yfir gosstöövunum. Aska virtist
veraíhonum.
„Eftir þessu virðist ástandiö vera
svipað og í gær,” sagði Ari Trausti
Guömundsson jarðeðlisfræðingur í
morgun. -SGV.
SMYGLÍMS
EYRARFOSSI
Tollverðir fundu smygl um borð í
ms. Eyrarfossi er hann var nýkominn
frá Þýskalandi í fyrradag. Var þaö um
36 flöskur af Smirnoff og 10 karton af
vindlingum.
Samkvæmt upplýsingum Tollgæsl-
unnar fannst smyglið í svokölluðu
niðurfalli í lest. Tveir skipverjar hafa
gefið sig fram sem eigendur smyglsins.
Skipið var að koma frá Hamborg i
Þýskaiandi. -JGH. i
Eiður f or-
maðurþing-
flokksins
Eiður Guðnason var í gær kosinn f or-
maður þingflokks Alþýðuflokksins. A
fundi þingflokksins í gær var Jóhanna
Sigurðardóttir jafnframt kosin vara-
formaöur þingflokksins og Karvel
Pálmason ritari hans. -ÓEF.
Vegna gengisbreytingar og annarra
kostnaðarhækkana hækkar áskriftar-
verð DV í kr. 230 á mánuði frá og með
1. júní nk. Jafnframt hækkar lausa-
söluverð blaösins í kr. 20 eintakið þó
þannig að verð Helgarblaðsins verður
óbreytt kr. 22 eintakið. Grunnverð aug-
lýsinga verður kr. 138 hver dálk-
sentimetri.
LOKI
Elliheimilið í Hafnarfirði
fy/itist í morgun. Þeir
héldu aiiir að þeir væru
oðrnir 75 ára. \
27022
AUGLÝSINGAR
SÍÐUMÚLA33
SAAÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA
SKRIFSTOFUR
ÞVERHOLTI 11
86611
RITSTJORN
SÍÐUMÚLA 12—14
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1983.
ODÝRARIJÓGÚRT
Ekki ætlað til verðsamkeppni—segir Ingi Tryggvason
,Jlúsvíkingum hefur veriö bannað
að selja okkur jógúrt. Til að fá frá
fyrstu hendi um hvað málið snerist
fórum við á fund GunnarsGuöbjarts-
sonar í gærmorgun. Framkvæmda-
st jóri Framleiösluráðs t jáði okkur að
hér væri um að ræða brot á reglugerð
i lögum Framleiðsiuráðs,” sagði
Freysteinn Sigurðsson, innkaupa-
stjóri Hagkaupa, í samtali við DV.
„Okkur var jafnframt sagt aö það
ætti að leggja þetta mál fyrir sex-
mannanefiidina. Og einnig að við
gætum ekki keypt jógúrt frá
Mjólkursamlagi KÞ á Húsavík,
nema með leyfi frá Mjólkursamsöl-
unni. Húsavfltur jógúrtin sem viö
höfum selt að undanfömu hefur selst
mjög vel. Sala á jógúrt hefur meira
en tvöfaldast aö magni til síðan þessi
jógúrt kom í verslunina, enda munar
töluverðuá verði.”
Eins og greint hefur verið frá í DV
hófst sala á Húsavíkur jógúrtinni í
Hagkaupum fyrir um það bil
mánuði. Þeirri jógúrt er pakkað í
hálfslítra femur og er hálfur lítri
fjórum krónura ódýrari en jógúrt í
plastdósum sem framleidd er hjá
Mjólkurbúi Flóamanna.
Ingi Tryggvason formaður Stéttar-
sambands bænda sagöi í samtali við
DV að samkvæmt þessu ákvæði væri
um óiöglega framkvæmd aö ræða.
„Það er ætlast til aö samræmi sé á
verði mjólkurafuröa um land allt.
Samkeppnin á að vera í fjölbreytni
afurðaenekkiverði.”sagði hann.
-ÞG.
Mikill fjöidi starfsmanna safnaðist saman fYrir utan skrifstofur áiversins imorgun. Voru þeir að mótmæia
fjöldauppsögnum ráðamanna fyrirtækisins.
Starfsmenn álversins:
Mótmæla upp-
sögnunum
— verkalýðsfélögin
héldu sameiginlegan
f und í morgun
Á fundum verkalýðsfélaganna í
Islenska álverinu í gær var samþykkt
að fela trúnaöarmannaráði þeirra að
gangast fyrir mótmælaaðgerðum
vegna f jöldauppsagnanna á dögunum.
Það voru 75 starfsmenn sem fengu
uppsagnarbréf, sumir með mikla
starfsreynslu. Hefur verið ólga meðal
starfsmannanna vegna þessa þar sem
þeir telja að forsendur fyrir uppsögn-
um séu ekki fyrir hendi.
Fyrsta aðgerð trúnaðarmannaráðs-
ins var fundur fyrir framan skrifstofur
álversins klukkan 10.00 í morgun.
Þangað voru boðaðir allir starfsmenn
fyrirtækisins sem höfðu möguleika á
að sækja fundinn. Fleiri aðgerðir
munu f yrirhugaðar.
örn Friðriksson, aðaltrúnaðar-
maður í álverinu, sagði í morgun að
þetta væri í fyrsta skipti sem verka-
lýðsfélögin á svæðinu boðuðu til sam-
eiginlegs fundar. Átti hann von á miklu
fjölmenni, enda hafi verið góöur hugur
í mönnum á f undunum í gær.
-JBH.
Fjölbýlishús við Fellsmúla heldurekki vatni:
Framkvæmdir stöðvaðar
Leyfi vantar f rá byggingarnef nd
Framkvæmdir við f jölbýlishús við
Fellsmúla voru stöðvaðar í gær af
byggingarfulltrúa Reykjavíkurborg-
ar. Reistir hafa verið að hluta vinnu-
pallar og undirbúin klæðning á hluta
hússins. Ibúar hússins töldu sig hafa
leyfi byggingarnefudar fyrir fram-
kvæmdinni sem er útlitsbreyting.
Formaður byggingamefndar,
Hilmar Guðlaugsson, taldi um mis-
skilning aö ræða, leyfi fyrir þessari
framkvæmd heföi ekki verið veitt.
Málið verður tekið fyrir í dag á fundi
nefndarinnar.
Fjölbýlishús númer fimm og sjö
við Fellsmúlana hafa iékið í fleiri
ár. Tvisvar hafa sprunguviögerðir
farið fram á húsunum en ekki dugað.
Telja íbúar álklæðningu einu varan-
legulausnina.
-ÞG
Vinnupallar hafa verið reistir og
undirbúningsvinna hafin við ut-
litsbreytingu á húsi númer sjö
við Fellsmúla. Byggingafulltrúi
stöðvaði framkvæmdina i gær.
Íbúar töldu sig hafa leyfi en það
liggur ekki fyrir enn. Húsið á að
álklæða og hefur efnið veriÓ
keypt.
DV-mynd: ÞóG.