Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1983, Qupperneq 4
4
DV. LAUGARDAGUR18. JUNI1983.
Áhafnír hvalbátanna
lentu i „sjávarháska”
Áhafnir hvalbátanna héldu sína
árlegu björgunaræfingu þann 12.
júní síðastliðinn og tókst æfingin vel.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-
RAN, tók þátt í æfingunni og er það í
fyrsta skipti sem slíkt gerist.
Það var Asgrímur Bjömsson,
erindreki Slysavamafélagsins, sem
stjórnaði æfingunni.
Farið var á Hval 9 norður fyrir
Engey og þar æfö notkun björgunar-
Þannig sjá þeir TF-RAN sem hifðir eru um borð eða slakað niður úr þyrlunni.
Hér er verið að slaka Birai Gíslasyni hjá Slysavarnafélaginu niður á þilfar
Hvals 9 og auövitaö mátti hann til að smella einni af gæsluþyrlunni.
Myndir Björn Gíslason.
báta og björgunarbúnaðar. Einnig
var æfö notkun línubyssa.
Þyrla Landhelgisgæslunnar kom
þar næst inn í æfinguna þannig að
einn félagi úr Björgunarsveitinni
Ingólfi, sem farið hafði út með hval-
bátnum, skellti sér í sjóinn og síðan
kom þyrlan og hífði hann upp.
Annar félagi Björgunarsveit-
arinnar Ingólfs var fyrir um borð í
þyrlunni og var þeim báðum því næst
slakað niður á þilfar hvalbátsins.
Að sögn þeirra hjá Slysavama-
félaginu tókst æfingin vel. Áhafnir
hvalbátanna hafa í mörg ár haldið
svona æfingaráður en sumarvertíðin
hefur hafist hjá þeim. Einnig mun
vera sifellt algengara að útgerðar-
félög fái Slysavarnafélagið til að
annast björgunaræfingar fyrir þau.
-JGH.
Kristján Jónsson, stýrimaður hjá
Landhelgisgæslunni, um borö í TF-
RÁN sem hifingarstjóri. Hér er verið
að gera allt klárt fyrir „björgun”
eins félaga úr Björgunarsveitinni
Ingólfi úr sjónum.
Þeir eru vanir sjónum þessir. Hressir hvalfangarar um borð i Hval 9 norður
af Engey. Búnir að æfa notkun báta og björgunarbúnaðar og horfa hér upp til
þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-RÁN, sem tók þátt í þeirra árlegu björgunar-
æfingu í fyrsta skipti.
Sjóminjasafn Hslands heimsótt
„Húsið var í algerri niðurníðslu áður
en það var endurbyggt,” sagði Páll
Bjarnason arkitekt og framkvæmda-
stjóri endurbyggingar Brydepakk-
hússins við DV er safnið var skoðað í
vikunni.
Brydepakkhús í Hafnarfirði hýsir nú
Sjóminjasafn Islands. Húsið er taliö
byggt á árunum 1865—70, af P.C.
Knútzon og komst í eigu Hafnar-
fjaröarbæjar 1911 og var notað sem
geymsla í tengslum við höfnina og
Sfl§
Gyða og Páll skoða gamalt fallstykki frá Byggðasafni Hafnarf jarðar. Fannst það
við uppgröft skammt frá safninu og er ekki vitað hve gamalt það er. Það er talið
vera frá ámnum 1776—1787.
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar þangað til
endurbygging hófst 1981. Vinnunni við
endurbyggingu lauk nú í vor en þá á
eftir aö klára þann hluta hússins sem
aðstaða safnvaröar kemur til meö að
vera í, hins vegar er sýningarsalurinn
sjálfur fullbúinn.
Á neðri hæð safnhússins stendur yfir
sýning á skipslíkönum sem fengin voru
víðsvegar að og er henni ætlaö að sýna
þróunarsögu fragt- og veiðiskipa á
þessari öld. Var sú sýning sett upp í
tilefni af 75 ára afmæli Hafnarfjarðar-
bæjar nú á dögunum. Áætlaö er að
sýningunni ljúki 19. júní.
Á efri hæð hússins eru til sýnis munir
úr byggðasafni Hafnarf jarðar og gefur
þar aö líta muni sem tengjast sögu
bæjarins sem útgerðarbæjar. Flest-
allir munirnir eru frá síðari hluta
nítjándu aldar og fyrstu áratugum
þessarar aldar en þó getur að líta
nokkra enn eldri.
Páll sagöi að pakkhúsið yrði notað til
bráðabirgða sem sjóminjasafn. Fram-
tíöarstaöur safnsins yrði á Skerseyri
rétt hjá Hrafnistu í Hafnarfiröi.
Sjóminjasafnið yröi deild í Þjóöminja-
safninu og stefnt er að því aö hefja þar
framkvæmdir á næsta ári með
byggingu bátaskýlis sem brýn þörf er
fyrir þar sem smábátar í eigu safnsins
liggja undir skemmdum umland allt.
Gils Guðmundssn er formaður
sjóminjasafnsnefndar og aðalhvata-
maöurinn að stofnun safnsins. s.S.S.
Gyða með hafn! irska hönnun, reita-
skó. Sólinn var gerður úr bildekki og
voru skórair notaðir af körlum og
konum í fiskreitum áðurfyrr.
Teinæringurinn Leifur frá seinni hluta 19. aldar. Brydepakkhús í baksýn.
DV-myndir Þó.G.
Páll Bjarnason arkitekt og Gyða Gunnarsdóttir, þjóðfræðingur og starfsmaður
safnsins i neðri sal safnhússins. Skipslíkanasýningin í baksýn.