Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1983, Side 10
10
DV. LAUGARDAGUR18. JUNI1983.
Linda eftir 14 ár með Paul MeCartney:
Það verðnr uppþot ef ég
slæ slöku við á heimilinu
Linda McCartney, sem er gift einu
af mestu stórstimunum í poppinu,
Paul McCartney, er vön því aö lifa í
afhjúpandi ljósi hins opinbera lífs.
Henni hefur þó tekist á undraveröan
hátt að sleppa við sterkustu geislana
og hefur þannig getaö búiö Paul og
börnunum f jórum gott heimili. Linda
bannar börnum sínum að veita viðtöl
og gerir þaö afar sjaldan sjálf. Þetta
viðtal er þess vegna eitt af fáum.
Linda er ekki á nokkum hátt í
skugga manns síns. Hún syngur
nokkuð og er mjög virt sem ljós-
myndari og sýnir víðs vegar um
veröldina.
En Linda er þó fyrst og fremst
móðir og kona. Hún er nýoröin fjöru-
tíu ára og hefur aliö f jögur börn. Elst
er Heather20ára. Þá kemur Mary 13
ára, Stella 11 ára og James litli sem
erfimmára.
London, erfið. Aðdáendur öskruðu
fyrir utan svefnherbergisgluggann
og eyöilögðu töluvert af töfrum
hjónabandsins. Þau voru þó nógu
skarpskyggn til aö taka tillit til að-
stæðnanna og fluttu inn í meöalstórt
hús úti á landi. Þar hefur f jölskyldan
McCartney síðan haldið sig og bömin
hafa skipt á milli sín tveimur af
þremur svefnherbergjum hússins.
Þrjú yngstu bömin ganga í venju-
lega rikisskóla og Linda og Paul
skiptast á um að sækja þau. Dóttir
Lindu frá fyrra hjónabandi, Heath-
er, er að læra ljósmyndun og það er
sagt að hún sé mjög efnileg.
Linda gætir þess að verja börnin á
jarðbundinn hátt. Það virðist sem
Paul sé ákaflega ánægöur með
stjómun hennar því gegnumsláttar-
lagiö Mull of Kintyre er afrakstur ró-
legrar ferðar út á land.
McCartney börnin eru sjaldan Ijósmynduð. Linda verndar þau fyrir Ijósmyndurum svo að lif þeirra verði sem eðlilegast.
Sá sem gefur
fær mikið til baka
frá börnunum
Það hljómar kannski eins og aö ég
sé alltaf heima og aö við leiöumst
aldrei hönd í hönd. Hvomgt er rétt.
Við höfum okkar markmið hvort um
sig.
Eiginlega hefði ég ekki haft neitt á
móti því að vera „bara húsmóðir”.
Margir segja að húsmæður séu
kúgaðar af bömum sínum. Eg er
ekki sammála því. Ef börnum er
boðið upp á heiöarlega vináttu færð
þú mikið til baka,” segir hún.
Flutt úr skarkalanum
Linda hefur alltaf hugsað um börn-
in sjálf. Hún hefur aldrei notað barn-
fóstmr, óiíkt öðmm poppmilljóna-
mæringum. Uppeldi verður að koma
frá hjartanu en ekki hverjum sem er
segir hún.
Linda setur heimilið framar öðru
og margir telja það einmitt ástæðuna
fýrir því aö hún og Paul hafa haldið
saman í fjórtán ár. Það er ótrúlega
langt hjónaband ípoppheiminum. Til
samanburðar má geta þess að á
þessu timabili hafa allir hinir
Bitlarnirskilið.
Linda og Paul hafa þó átt við sin
vandamál að etja. Sérlega voru
fyrstu árin, þegar þau bjuggu í
Paul krefst fleiri barna
Hið rólega og ánægjulega fjöl-
skyldulíf er ein af ástæöunum til þess
að Paul fer sjaldan í hljómleika-
ferðalög. Það em þrjú ár síðan hann
gerði það síðast og þá var megin-
áherslan lögö á að hitta á fri í skólan-
um til þess að börnin gætu verið með.
„Við höfum verið gagnrýnd fyrir
að vera að þvælast með bömin okkar
í hljómleikaferöalög,” segir Linda.
Böm Pauls og Lindu draga blaöa-
menn aö sér eins og segulstál. Linda
fylgist vandlega meö þvi. Það em
engin viötöl eða myndatökur leyfð,
að svo miklu leyti sem hún fær við
ráðiö. Hún er mjög ákveðin kona.
„Við Paul erum mjög samhent við
Linda og Paul. Linda ferðast mikið með manni sinum.
/
Fjórtán ár er óhemju langt hjónaband i poppheiminum. Linda er fræg fyrir hæfiieika sinn til að halda
heimilinu saman.
uppeldið,” segir hún. „Viö höfum
fylgt sömu stefnu frá upphafi,.! Það
sem skiptir mestu er að allt sé sem
náttúrlegast. Bömin eiga ekki að
vera öðravísi en önnur börn. Þau
eiga að gera það sama og önnur og
ekki njóta neinna forréttinda,” held-
ur Linda áfram.
„Heather sem er elst er nokkurs
konar loftvog. Ef hún hrukkar ennið
er eitthvað að.
Heather er falleg dóttir og skyn-
semdarstúlka. Hún var sex ára þeg-
ar ég hitti Paul og Paul hefur dýrkað
hana frá upphafi.
Ég tróð barninu ekki upp á Paul,
hann hefur bara dýrkað hana. Svo
einfalt er það. Þess vegna vildi hann
að við eignuðumst bam saman eins
fljótt og hægt yrði. Það leiö heldur
ekki miklu lengri tími en níu mánuð-
ir áður en María fæddist. En Paul
var ekki ánægður með bara eitt
barn. Hann vildieignast fleiri.
Linda jurtaæta.
Paul krefst roast beef
Þegar við áttum orðið þrjár dætur
og ég varð ólétt í f jóröa skiptið var
ekki óeðlilegt að drengur væri efstur
á óskalistanum. Paul var utan við sig
af gleði þegar J ames fæddist.
James var því miður tekinn með
keisaraskuröi. Ég segi því miður því
að fæðingar eiga að vera náttúrlegar
en ekki í deyfilyfjavímu.”
McCartney börnin fá enga lúxus-
meöhöndlun þrátt fyrir að foreldr-
arnir hafi efni á að bjóða þeim allt
hið besta. „Ég þoli ekki að sjá böm
sem eiga svo mikiö af leikföngum að
þau meta ekki neitt,” segir Linda.
Bömin okkar fá gjafir á afmælisdög-
um og ekki neitt meira,” segir hún
ákveðin.
Hrein efni og náttúrleg er það sem
Linda leggur mesta áherslu á, ekki
bara í fatnaöi heldur líka í matar-
gerð. Linda er grænmetisæta en Paul
er alls ekki eins hrifinn af grænu lin-
unni og hún. Hann krefst roast beef
eins og hver venjulegur Englending-
ur.
„Eg bý oft til grænmetisrétti,”
segir Linda, „og börnunum finnst
það gott. Eg krefst þess ekki að börn-
in séu jurtaætur en ég held að þau
langi ekki til að borða fallegu dýrin.
Gamaldags kvenmynd
Þrátt fyrir að Paul hafi ekki farið í
ferðalög nýlega þýðir það ekki að
hann sé alltaf heima. Þvert á móti.
Hann er mikið í stúdíóum gerir
videomyndir og tekur upp fyrir sjón-
varp. Hann getur ekki gert neitt af
þessu heima í Sussex. Þegar hann
skipuleggur vinnu sína tekur hann þó
alltaf tillit til f jölskyldunnar.
Mikið af upptökuvinnu fer fram í
London og þá fer hann á milli. Hann
velur þó stúdíó mjög gjarnan á
dæmigerðum sumarleyfisstöðum.
Tug of War er til dæmis tekin upp að
hluta á einum slíkum staö á meöan
James litli byggði sandkastala á
ströndinni.
Eg krefst þess ekki að við séum
með en Paul krefst þess,” segir
Linda. „Þannig var það líka þegar
ég og Paul fórum í hljómleikaferðir
með Wings. Paul hafði trú á mér sem
tónlistarmanni og ég gekk í hljóm-
sveitina og hafði gaman af. Við Paul
vomm bæði gagnrýnd mjög fyrir
þaö.
Kannski var gagnrýnin réttmæt.
Eg var ekki tónlistarmaður þegar ég
hitti Paul. Eg var ljósmyndari. Það
erégáfram,”segir Linda.
„Paul er skilningsríkur og tekur
tillit til annarra. Það er rangt af mér
að segja að mér hafi ekki verið hjálp-
að viö að byggja upp eigin feril.
Hann krefst þess hins vegar af mér
að ég sé húsmóöir. Hann hefur
dálítið af gamaldags viðhorfum um
að konan eigi heima við grautarpott-
ana. Hefði ég ekki látið undan hefði
soðið uppúr,” segir Linda.
,jEg hef þó enga löngun til aö láta
sverfa til stáls. Mér líður vel sem
húsmóður og hef metnað á því sviði.