Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1983, Side 14
14
DV. LAUGARDAGUR18. JUNI1983.
1« « » »1
VINNUVÉLAEIGENDUR
Tökum aö okkur slit- og viðgeröarsuöur á tækj-
um ykkar þar sem þau eru staðsett hverju sinni.
FRAMKVÆMDAMENN - VERKTAKAR
Færanleg verkstæöisaöstaöa okkar gerir okkur
kleift að framkvæma alls kyns járniðnaðar-
verkefni nánast hvar sem er.
STÁL-ORKA
M « » »'
Sími: 78600 á daginn
og 40880 á kvöldin.
Lausar stöður
hjá Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg vill ráöa hjúkrunarfræðinga til starfa við
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar, Droplaugarstöðum,
Snorrabraut 58. Starfskjör skv. kjarasamningum.
Upplýsingar veittar á staðnum eða í síma 25811.
Umsóknir skulu vera skriflegar og greina m.a. frá menntun
og starfsreynslu, auk almennra persónulegra upplýsinga.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkur-
borgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, fyrir kl. 16 inánudaginn 27.
júní.
Snoghoj Folkehojskole er en
nordisk (olkehojskole,
hvor du udover nordiske emner
bl.a. kan vaelge mellem mange tilbud indenfor:
musik, litteratur, vævning, keramik,
samfundsforhold, psykologi m.m.
Pá vil mode mange elever fra de ovrige
nordiske lande,
og vi tager pá studietur i Norden.
Kursustider:
31/10 - 21/4
eller
2/1 - 21/4
Skriv efter vor nye skoleplan
SNOGH0J
NORDISK FOLKEH0JSKOLE
DK 7000 Fredericia
STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
AF SMÁAUGLÝSINGUM
Ný grafíK
Veittur verður
10% AFSLÁTTUR
afþeim smáauglýsingum
/ D V sem eru staðgreiddar.
Það te/st staðgreiðsla
ef auglýsing er greidd
daginn fyrir birtingardag.
Verð á einni smáauglýsingu
af venjulegri stærð,
sem er kr. 260,-
lækkar þannig
íkr. 234,-
efum
staðgreiðs/u er að ræða.
Smáauglýsingadeild,
Þverholti 11 - sími27022.
„Við erum öll búin að vera eitt ár í
forskóla og þrjú ár í grafíkdeild,” segir
Elín Edda Ámadóttir, ein af fimm
ungum grafíklistamönnum sem nú
opna sýningu á göngum Kjarvals-
staða.
Þau sitja fjögur við kaffiborð á
Kjarvalsstöðum: Tryggvi Ámason,
Lára Gunnarsdóttir, Kristbergur 0.
Pétursson og Edda. önnu Hendriks-
dóttur vantar í hópinn.
„Þetta em allt verk unnin á síðasta
ári,” segir Tryggvi. Einhverjar mót-
bárur berast úr hópnum þess efnis að
til séu eldri verk á sýningu þeirra.
Þegar þau em spurð um innihald
verka sinna verða svörin misjöfn.
Tryggvi segir aö þegar hann skoöi
verk sín þá taki þau flest útgangspunkt
í listasögunni. Risastór og óræk sönnun
hallast upp að vegg þarna í ganginum.
Það er verk samsett úr sex stórum
andlitsmyndum af Monu Lisu í ýmsum
litasamsetningum. Tryggvi vann þetta
verk á tímabilinu frá 4. febrúar til 6.
apríl. Hann kallar það Monaroe.
Ástæðan er sú að það minnir um margt
á verk Andy Warhol sem gerði verk
sem var fimmtíu Marilyn Monroe
myndir. Tryggvi gerði lokaritgerð sína
um Andy og Marilyn-mynd hans. Hann
segir um myndröð Andy að ef til vill
verði hún hið eina sem fólk muni eftir
af Marilyn eftir ákveðinn árafjölda.
Hann bendir á Monu Lisu og segir hana
lifa sem mynd Leonardos da Vincis
en ekki sem persónu. Hann segir:
„Þetta er kannski dæmi um hvernig
Mona hefði verið meðhöndluð ef hún
hefðilifaðídag.”
Næst kemur að Láru og Elínu Eddu
aö útskýra sig. Elín segir þær báðar
gera sjálfsmyndir en mjög ólíkar í út-
færslu. Það staðfestist þegar myndir
þeirra eru skoðaðar. Röð sjálfsmynda
Láru sýnir hana í ákveönu umhverfi.
Þær heita allar sjálfsmynd nema ein
sem sýnir hana sitja og horfa á flautu-
leikara. Hún heitir Morguntónleikar
undir maísól. Lára segist ekkert hafa
um myndir sínar að segja, þær verði
menn aö skoða og meta síðan.
Sjálfsmyndir Eddu eru öðruvísi. Þær
heita The Masquerade og Tálmynd.
Þar bregður fyrir leikhúsgrímu og
fleira og blaðamaður verður að viður-
kenna að þessar sjálfsmyndir myndi
ekki hægt að nota á vegabréf.
Þá er komið að því aö rek ja gamirn-
ar úr Kristbergi. Hann er með tvö
verk liggjandi óupphengd en fleiri
heima. Hann segir að viðfangsefnið sé
flæðarmálið og unnið úr því á hug-
lægan hátt. Hann er með mynd af
handfæri sem er ekki allt þar sem það
er séö. Þaö breytist í hryggjarsúlu í
manni. Myndir af sjómönnum. Svo er
hann með netmynd: Netiö er riðið úr
sjónvarpsskermum og Kristbergur
segir þá mynd vera úttekt á vanda-
málum nútímans séðum í gegnum
sjónvarpsskerma. Á sjónvarpsskerm-
unum eru tertar sem útskýra boðskap
myndanna frekar.
Ætlaðir þú í framhaldsnám er-
lendis?
„Já, ég var lengi að velta fyrir mér
að fara til Hollands eöa Þýskalands í
framhaldsnám. En ég læt þaö bíða.
Hann ætlar að fara í auglýsingadeild
næsta ár. Ætlarðu þá að hætta við
myndlistina?
„Nei, ég bæti auglýsingadeildinni
viö þetta, bara til að drýgja tekjurn-
ar,”segirhann.
Nú erum við komin að kaffiborðinu
aftur. Talið berst að því hver framtíð
sé fyrir þau. Ætla þau að hella sér út í
að reyna að lifa á listinni? Við þessu
fást óljós svör. Lára segir að það sé
best að láta hverjum degi nægja sína
þjáningu. Þau eru að minnsta kosti öll
ánægð meö að sýna á Kjarvalsstöðum
því þangað kemur margt fólk.
Aö lokum væri forvitnilegt að fá að
vita hvers vegna sýningin heitir Ný
grafík?
Þau segja að það sé vegna þess að
þau langi til að fólk viti að hér séu á
ferðinni aðrir grafíkerar en hafi verið
aö sýna hér á undanfömum árum.
-SGV