Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1983, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1983, Side 16
16 DV. LAUGARDAGUR18. JUNt 1983. Nei, nei, fyrirsögnin er ekki tekin úr neinu kvæði, — svo vitað sé. Manni kemur þó óneitanlega í hug auður og völd þegar gengið er um götur Vínar- borgar. Borgin er heimsborg og alþjóðleg að auki. I henni er urmull sögulegra minja og minningar um austurríska keisaradæmiö eru geymdar innan dyra, í höllum, sem eru aðdráttarafl fjTÍr ókunnuga. Hópurinn á vegum DV og Faranda sem lagði upp frá Keflavík fimmtudag- inn 2. þ.m. til vikudvalar í Vínarborg varð alls þessa svo sannarlega áskynja. Það sem var í pakkanum Þegar fólk hefur aðeins sjö daga til umráða i stórborg eins og Vín er mikil- vægt að fyrir liggi greinargóðar upplýsingar um það helsta sem á boö- stólumerá dvalartímanum. Þótt ferðin hafi verið vel kynnt fyrir- fram þurftu ókunnugir að afla sér enn frekari upplýsinga og þær fengust svo sannarlega hjá þeim Haraldi og Petru í Faranda. — Bæklingar og Vínar-,,pró- gramm” fyrir allan mánuðinn var sótt á ferðaskrifstofuna, — og menn gátu búiö sér sjálfir til „pakka”, hver eftir sínum smekk. Á vegum ferðaskrifstofunnar voru skipulagðar tvær skoðunarferðir um Vín, ein hálfsdags skoðunarferð, fyrsta daginn, og síðar 8 klst. ferð til Wachau. Einnig var farin heilsdags ferð til Búdapest í Ungverjalandi. Þetta var hinn „opinberi” og um- samdi „pakki”, en þess utan höfðu þátttakendur útbúið sína „pakka” eins og áður segir og nutu margir góðs af þeim strax fyrsta kvöldið með því að fara í Ríkisóperuna og sjá Tann- hauser. Þeir voru heppnir því sú ópera var aðeins sýnd það eina kvöld. Það var annars eftirtektarvert hvað þátttakendur voru samtaka um að nýta tímann til skoðunarferða að degi til og njóta svo þeirra listviðburða sem á boðstólum voru aö kvöldi. Wiener Festwochen '83 Þeir sem ætluðu að tryggja sér miða í óperuna, hvort sem það var í Staats- oper eöa Volksoper, höfðu pantað og greitt miðana hér heima áður en lagt var í feröina. Þaö var líka eins gott því sérstök listavika stóö einmitt yfir þann tíma sem dvalið var í borginni og miöar því vart fáanlegir nema fyrir sérstaka heppni. I Ríkisóperunni (Staatsoper) var verið að sýna Tannháuser þann 2.6., daginn eftir Rigoletto og þann 4. var þaö Ástardrykkurinn, þá ballett eftir Igor Stravinsky. Þann 6. júní var Elektra á dagskrá, næstsíðasta daginn Rigoletto á ný og síðasta daginn var svo Ástardrykkurinn kominn enn á sviðið. I „Volksoper” var verið að sýna Greifann frá Luxemburg, ballettinn Giselle, My Fair Lady, Sígaunabarón- inn, Leðurblökuna og enn fleira. I ,3urgtheater” voru leikritin Kirsuberjagarðurinn, Othello, Wallen- exti: Geir Andersen Myndir: Gnnnar Það var alltaf heitt i Vinarborg, þetta 26~ 32 stig. Á leið i vínkjallara Esterhazys. stein eftir F. Schiller o.fl. Síðan komu leikhúsin, Akademietheater og Theat- er in der Josefstadt, með leikrit eins og Sölumaður deyr eftir Miller, Der Snob eftir Sternheim, Geschichten aus dem Wiener Wald, Maskerade o.fl. Auk allra leikrita og ópera sem sýnd- ar voru þessa viku og allan þennan mánuö er hljómleikahald fjölskrúðugt og létu þátttakendur það ekki afskipt. Hefði hópurinn komiö til Vínar einum degi fyrr hefðu menn getað farið á hljómleika hjá Sibyl Urbancic sem stjómaði kór sem flutti verk eftir Brahms, Copland, Hassler, Morley, o.fl. í Karlskirkjunni í Vín. En það var um fleira að velja. Nokkuð stór hópur fór á hljómleika hjá Armando Ford, argentínskum píanó- leikara búsettum í Vín. Þeir tónleikar verða ógleymanlegir þeim sem á hlýddu. Ennfremur voru sinfóníuhljómleikar með Vínarsinfóníuhljómsveitinni, or- gelkonsertar og kammerhljómleikar sem menn völdu á milli eftir smekk og áhuga. Ríkisóperan Þessi ópera er víðfræg og byggingin er áberandi falleg. Þaö er margt sem miðast við óperuna í borginni sjálfri, hverfið í kring nefnist t.d. óperuhring- urinn. En að fara í óperuna er sjálft ævin- týrið. Og flestir reyna að komast þang- að, — a.m.k. einu sinni. Auk þess sem húsið er listaverk að utan sem innan er andrúmsloftið i upphafi sýningar, aökoman og þjónusta öll aldeilis sér- stök. Þaö væri alltof langt mál að fara að lýsa einni sýningu, t.d. þeirri er sá er þetta ritar f ór á, Ástardrykknum. Ef setiö er á góðum stað, t.d. i einni stúkunni fyrir miðju, kemst áhorfandi ekki hjá að njóta tónlistar og atburða á sviði í því samræmi sem stjórnendur sýningar hafa fyrirhugað. Veitingaaðstaöa til aö taka á móti gestum í hléi er hreint frábær og úrval veitinga er í stíl við slika listahöll sem óperan er. Þama er við hæfi að fá sér kaffi og litlar smákökur (petit fours), drekka kaffið standandi og rabba viö sessunautana i stúkunni. En dýrt er Drottins orðið, og kannski engin furða. Meðalverð miða er þetta 600-1000 Sch. eða ísl. kr. 1.020,- til kr. 1.700,- og síðan enn hærra. Enginn mun þó hafa séð eftir þvi að hafa bætt þeirri ógleymanlegu reynslu við lífshlaup sitt að hafa komið í Ríkisóperuna í Vin. Og að lokum En það er fleira í Vínarborg sem þátttakendur í ferð DV og Faranda sáu og þeir voru iraunað „meðtaka” borg- ina i skömmtum allan tímann. I Kartner, göngugötunni, iðar allt af mannlífi langt fram eftir kvöldi. Veit- ingahús, inni og úti, eru full af fólki, kurteisu og siðfáguöu, innfæddum, sem eru því vanir að umgangast „túr- istana”, og ferðamönnum sem krefjast þjónustu umfram allt. Á matstaðnum Zu den 3 Husaren, sem fékk verðlaun sem besti mat- staður í Vin 1982 og auk þess besti mat- staöur í Austurríki, er matur og þjón- usta með þeim ágætum að lengra þarf ekki að leita. — Matseðill staöarins er með ólíkindum fjölbreyttur, þar af ekki færri en 45 forréttir. Eigendumir, Uwe Kohl og Ewald Plachutta, fengu til liðs við sig hinn þekkta Egon von Fodermeyer og það var hann sem skipulagði þjónustu og matseðil þannig að heimsfrægt er orðið. I Matthíasarkjallara, ungverskan matstað, er skemmtilegt að fara til að borða eftir leiksýningu t.d. og matur og vín renna ljúft niður undir tónlist- inni ungversku sem leikin er við borðin og nánast alls staöar i salnum. Og það er einnig hægt að fara og borða í Dónárturninum, 150 m háum. Veitingasalurinn snýst um sjálfan sig, einn hring á 30 mínútum og er útsýnið hið ákjósanlegasta og skýringar til reiðu svo fólk geti áttað sig á því hvert horft er í það og það skiptið. Einn er sá staður sem ekki má láta ógetið. Þaö er baðstaðurinn Stadion Bad þar sem Vínarbúar geta farið á „ströndina” rétt eins og þeir sem búa í námunda við sólarstrendur. Það er þess virði að eyða þar dags- stund því þar gefur á að líta. Þar eru ekki færri en 8 stórar útisundlaugar ásamt geysistórri tilbúinni „bað- strönd”, steyptri og hvítmálaðri. Þama er vatnið grynnst við jaðrana en smá- dýpkar eftir því sem lengra er haldið út í vatnið. Með klukkustundar milli- bili eru settar í gang „sjávaröldur”, þá hlaupa allir af stað til að ná í, ,öldu”. Búningsklefar af öllum gerðum em svo þúsundum skiptir, útiveitinga- staöir, rennibrautir fyrir yngstu kyn- slóöina og h vaðeina skortir ekki. Manni verður oftar en ekki á að hugsa upphátt við slíkar kringum- stæöur: „því er ekki svona heima hjá okkur á Islandi?” — En hér byggist allt á „flísum” í hólf og gólf, sturtu- klefum og siðast en ekki síst teikning- um samþykktum af hinu opinbera svo öllu sé til skila haldið. — Og svo verður ekkineitt úrneinu! Þeir í Vín, og raunar Austurríki öllu, era ekki miklir „haftamenn”. Þaðsést best á fjárstreymi í veltu og viðskipt- um. Landið hefur verið opið alþjóð- legum viðskiptum frá stríðslokum, eins konar veltiás viðskipta milli austursogvesturs. Þeir fara að líkt og Hollendingar, Svisslendingar, Luxemborgarar og Belgar. Þeir auglýsa eftir fyrirtækjum erlendis til að setjast aö í landinu, bjóða skattfrelsi og aðstöðu en setja tvö skilyrði: greiðslu á aðstöðugjaldi og að landsmenn hafi vinnu við fyrir- tækin, — búið. Við erum enn að gá til vinstri og hlusta á hvað þeir segja þar. Að fara til Vínar í viku, það er Vínar- veisla, og það ættu fleiri að gera en hópurinn frá DV og Faranda. Staldrað við i einu hinna 1400 herbergja sumarhallarinnar. Viðhald á herbergjum og munum, sem varðveittir eru og geymdir i viðkomandi vistarverum, er eftirtektarvert.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.