Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1983, Page 36
FLYTUR
FJÖLBREYTT
EFNI
VIÐ ALLRA
HÆFI.
AUGLÝSINGAR
Z/UZZ SÍÐUMÚLA33
SMÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA
SKRIFSTOFUR
ÞVERHOLTI 11
RITSTJÓRN
SÍÐUMÚLA 12—14
LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ1983.
MIKIL
ÖLVUNÁ
ÞJÓDHÁTÍD
Hátíðarhöldin á þjóðhátíðardaginn var mikil ölvun í miðborginni en ekki er
fóru vel fram um allt land og með hefð- kunnugt um að slys hafi orðið á fólki.
bundnum hætti. Ágætt veður var um allt Rúða var brotin í Búnaðarbankanum í
land í gærdag en undir kvöldið fór víða Austurstræti í nótt.
að rigna og varð að færa skemmtanir Mikil ölvun var einnig í Reykjavík að-
undirþakafþeimsökum. faranótt þjóðhátíðardagsins. Þá voru
I Reykjavík var dansað á Lækjartorgi miklar annir hjá lögreglunni og 13 voru
fram eftir nóttu. Að sögn lögreglunnar teknirfyrir ölvun viðakstur. -ÓEF.
SAUTJÁN MANNS FENGU FÁLKAORÐU
Forseti Islands sæmdi í gær eftirtalda Islend-
inga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu:
önnu Guðmundsdóttur, New York, riddara-
krossi fyrir störf að félagsmálum og í þágu
sjúkra. Björn Jónsson, f.v. bónda að Bæ í Hofs-
hreppi, Skagafirði, riddarakrossi fyrir félags-
málastörf. Einar Olafsson, fv. bónda í Lækjar-
hvammi, Reykjavík, riddarakrossi fyrir félags-
málastörf í þágu landbúnaðarins. Emu Finns-
dóttur, fv. forsætisráðherrafrú, Reykjavík,
riddarakrossi fyrir störf í opinbera þágu.
Guðmund K. Magnússon, háskólarektor,
Reykjavík, stórriddarakrossi fyrir embættis-
störf. Hauk Jörundarson, skrifstofustjóra,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf í þágu land-
búnaðarins. Helga Hannesson, fulltrúa, Reykja-
vík, riddarakrossi fyrir félagsmálastörf. Hjört
Hjálmarsson, fv. skólastjóra Flateyri, riddara-
krossi fyrir félagsrnálastörf. Hörð Bjarnason,
fv. húsameistara ríkisins, Reykjavík, stjömu
stórriddara fyrir embættisstörf. Ingólf Theo-
dórsson, netagerðarmann, Vestmannaeyjum,
riddarakrossi fyrir störf í þágu sjávarútvegs-
ins. Jóhann G. Möller, fv. bæjarfulltrúa, Siglu-
firði, riddarakrossi fyrir félagsmálastörf. Jón
R. Hjálmarsson, námsstjóra, Selfossi, riddara-
krossi fyrir störf að uppeldis- og fræðslumálum.
Jón Aðalstein Jónsson, orðabókarritstjóra,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir orðabókar- og
fræðistörf. Ottó A. Michelsen, forstjóra, Reykja-
vík, riddarakrossi fyrir félagsmálastörf og
brautryðjendastörf að notkun tölva á Islandi.
Steinþór Gestsson, fv. alþingismann, Hæli í
Gnúpverjahreppi, riddarakrossi fyrir félags-
málastörf. Þór Vilhjálmsson, forseta hæstarétt-
ar, Reykjavík, stórriddarakrossi fyrir embætt-
isstörf. Þórarin Þórarinsson, ritstjóra,
Reykjavík, riddarakrossi fyrir störf að féiags-
málum og blaðamennsku.
Götuleikhópurinn Svart og sykurlaust setti líflegan blæ á hátiðarhöldin í Reykjavik í gær meí
trúðleikum ættuðum frá kjötkveðjuhátiðum. Þessi stultudansari hefði sómt sér vel í Rio de
Janeiro. DV-mynd EÖ
Kaldursjór
fyrir norðan
Niðurstöður vorleiðangurs hafrann-
sóknaskipsins Bjarna Sæmundssonar
sýna að ástandið í hlýja sjónum út af
Suður- og Vesturlandi er tiltölulega
gott. Lítið af hlýjum sjó hefur hins veg-
ar borist inn á Norðurlandsmið. Þar er
mikill sjávarkuldi og lítið um átu og er
þess ekki að vænta að snögg breyting
verði þar á.
I leiðangrinum, sem lauk 13. júní,
voru gerðar athuganir á 115 stöðum
allt í kringum landiö, bæði á land-
grunninu s jálfu og utan þess.
LOKI
Það er eins gott að þau
vöknuðu ekki með
hrossin uppi í rúmi.
HjóníSeljahverfi
VÖKNUÐU UPP VIÐ ELLEFU
HROSS í GARÐINUM HJÁ SÉR
—hross og kindur valda tilf innanlegu t jóni á görðum í Árbæ og Breiðholti
„Við hjónin vöknuðum við eitt- ið og þegar við athuguðum þetta
hvert undarlegt þrusk fyrir utan hús- betur kom í 1 jós að ellefu hross voru í
Grímur Davíðsson úti í garði við heimili sitt í Látraseli. Á hálfum mánuði nú á
skömmum tíma hafa kindur komist inn í garðinn og eyðilagt plöntur sem búið
var að setja niður. Og enn má sjá verksummerkin eftir hrossin ellefu sem
læddu sér inn í garðinn eina nóttina siðastliðið haust. DV-mynd: GVA.
garðinum hjá okkur,” sagði Grímur
Davíðsson, veghefilsstjóri hjá
Reyk javíkurborg, í samtali við DV.
Hann og konan hans, Svanhildur
Sigurfinnsdóttir, búa í Látraseli í
Breiðholti og eru ein af f jölmörgum í
Breiðholti og Árbænum sem hafa
orðið fyrir ónæði hrossa og kinda nú í
vor. Er orðið um hreint vandræða-
ástand að ræða i hluta þessara
hverfa.
„Þetta með hrossin gerðíst í fyrra-
haust. Við vorum þá búin að sá um
vorið og kominn þokkalegasti blett-
ur. En hestamir tröðkuðu um þrjú til
f jögur hundruð fermetra af grasi, og
urðu skemmdir á grasinu talsverð-
ar.”
Á síðastliðnum hálfum mánuði
hafa svo kindur komið í garðinn
þeirra hjóna þrátt fyrir að hann sé
girtur og hafa eyðilagt hvítkálsplönt-
ur og blómkálsplöntur fyrir þeim.
„Við þorum ekki að gera neitt
meira við garðinn í augnablikinu því
að það þýðir ekkert ef þetta á að
ganga svona áfram,” sagði Grímur.
,, J ú, það er vandræðaástand vegna
þessa í Arbænum og Seljahverfinu í
Breiðholti, ” sagði Jón Helgi Haralds-
son, gæslumaður Reykjavíkurborg-
ar,um þettamál.
„Þetta ér fyrst og fremst kæru-
leysi í eigendum hestanna og fjár-
eigendunum sem eru aðallega við
Rauðavatnið og í Vatnsendahverf-
inu. Verst er ástandið í Árbænum
hvað hestana varðar en þar hafa
íbúar upp af Elliðaánum orðið fyrir
tilfinnanlegu tjóni vegna hross-
anna.”
Jón sagði að íbúar við Sigtún hefðu
einnig kvartað undan tjóni vegna
kinda sem væru í Laugardalnum og
hefðu komið inn í garðana til þeirra.
„Ef borgarlandið verður ekki girt
almennilega af verða alltaf vand-
ræði,”sagðiJónaðlokum. -JGH.