Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1983, Blaðsíða 1
Frjalst, óháð dagblað
DAGBLAÐIЗVÍSIR
180. TBL. — 73. og 9. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 11. ÁGÚST1983.
Það sem koma skal?
RUSSA R SKIOTA
RIGNINGUNA NKHJR
—væri vel hægt að gera hér fyrir vestan land, segir
Sigurjón Rist vatnamælingamaður
Á þingi sem Sigurjón Rist vatna-
mælingamaöur sótti fyrir skömmu í
Sovétríkjunum kom m.a. fram aö
Rússar geta stjómaö úrkomunni aö
vissu marki.
„Þeir skjóta skýin einfaldlega
niður áöur en þau ná fram,” sagöi
Sigurjón í viðtali við DV. „Þeir nota
þessa aöferö aöallega viö haglský
sem myndast á landsvæði þar sem
f jöllin eru allt aö því 5000 metra há
Húsbruni
ínótt
og úr sh'kum skýjum kemur ekki
nein venjuleg rigning, heldur högl
,sem eru á stærð við hænuegg.
Ástæöan er einfaldlega sú aö þegar
slík úrkoma hellist yfir akrana bæl-
ast þeir alveg niður. Skýin eru skotin
niöur meö ven julegum fallbyssum en
skotin eru einhvers konar köfnunar-
efniskrystallar sem umlykja skýin —
og þá rignir úr þeim.”
Sigurjón sagði aö vafahtiö mætti
nota sömu aðferð hér fyrir vestan
land þegar rigningin nálgast en ekki
vildi hann mæla meö þvi. „Þetta
gengur svona upp og niður hér á
landi,” sagöi Sigurjón, „stundum
rigning, stundum ekki. Aö vísu er
þessi mikla úrkoma sem veriö hefur
ákaflega bagaleg fyrir bændur en
þeirra vandamál er einfaldlega það
að þeir hafa byggt fjós sín þannig að
þeir eiga í vandræðum með að gefa
súrhey, vantar tækjakost og aðstööu.
Norður í Eyjaf iröi hafa bændur aftur
. á móti byggt fjós sín þannig aö súr-
heysgjöf er ekkert vandamál.”
Á þingi því sem Sigurjón sótti í
Sovétríkjunum og fyrr var á minnst
var ekkert rætt um hvemig búa ætti
til sólskin. Enn sem komið er eru
menn ekki famir aö skjóta sólum á
loft úr f allbyssum.
-EIR.
Húsið er mikið
skemmt, ef ekki ónýtt
eftir brunann.
DV-mynd S.
Þrennt í yfirheyrslu hjá lögreglunni
Tveir fullorðnir menn og fullorðin
kona voru í morgun í yfirheyrslum hjá
lögreglunni í Reykjavík vegna bruna
sem varö í húsinu Þrastargötu 3 í nótt.
Fólkinu, sem segist hafa haft dvalar-
stað þarna, ber ekki saman um elds-
upptökin, en þaö var viö skál þegar
eldurinn komupp.
Slökkviliðiö fékk tilkynningu um eld-
inn um klukkan 12.30 í nótt. Þegar það
kom á staðinn var húsið, sem er htiö
timburhús, alelda og stóöu eldtungurn-
ar út um gluggana. Var næsta hús við
hliðina í mikilli hættu og var lögö
áhersla á aö bjarga því og aö slökkva
eldinn.
Reykkafarar fóru inn í húsið en þeir
áttu erfitt með aö athafna sig vegna
rafmagnsleiöslna sem lágu um allt og
sköpuðu mikla hættu. Varö að rjúfa
loftlínuna að húsinu s\-o köfurunum
væri óhætt að athafna sig inni í því.
Fólkinu, sem var í húsinu, tókst aö
komast út og var það flutt á slysavarö-
stofuna og siöan á lögreglustööina.
Sagðist þaö oft hafa haft dvalarstað
þarna en heimihsfang þess er og hefur
veriö á nokkru reiki að undanfömu.
Eigandi hússins er liðlega áttræöur
’ maður en hann var ekki í því þegar eld-
urinn kom upp. Stendur hann nú uppi
húsnæðislaus því húsiö er mikið
skemmt, ef ekki ónýtt.
-klp.
Fyr8ta íslenska gift-
ingarathöfnin sem
farið hefur fram um
borðíMS. EDDUátti
sér stað í gœr. Þar
voru gefin saman
Bergþóra Árnadóttir
og Þorvaldur Ingi
Jónsson. Sr. Sólveig
Lára Guðmundsdótt-
irgafþausaman.
DV-mynd Helgi
Plastkveikjar-
amirstór-
hættulegir
-sjábls.2
Þjófarnir
staðniraðverki
Þrir menn voru handteknir
á Hótel Borg í nótt þar sem
þeir voru að stela úr her-
bergjum. Höfðu þeir m.a.
komist inn í herbergi hjá sof-
andi manni og voru búnir að
ná sér þar í peninga og annað
þegar lögreglan kom að
þeim.
Skömmu síðar náði lögregl-
an í einn mann í viöbót, en sá
hafði brotiö glugga í verslun-
inni Lýsingu við Laugaveg og
farið þar inn. Haföi hann
skorist illa við innbrotið en lét
það samt ekki aftra sér frá að
leita að einhverju verömætu
sem hann gæti haft meö sér á
brott.
Til þess fékk hann þó engan
tíma. Lögreglan var mætt ó
staðinn og flutti hann á slysa-
varðstofuna og síðan í fanga-
geymsluna, þar sem hann fær
aö dúsa ásamt þremenning-
unumafBorginni. ‘ -klp-