Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1983, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1983, Blaðsíða 18
18 DV. FIMMTUDAGUR11. AGUST1983/ Íþróttir Hlaupadrottningin Marlies Gohr hlaut sín önnur guUverðlaun í gær. Gullið til A-Þýskalands — en bandaríska sveitin komst ekki í úrslit í 4x100 m boðhlaupi kvenna Austur-þýsku stúlkurnar Silkc Gladisch, Marita Koch, Ingrid Auers- wald og Marlies Göhr, unnu auðveldan sigur í úrslitum 4X100 m boðhlaupsins í Helsinki í gær. Hlupu á 41,76 sek. og voru skammt frá heimsmeti sínu. Sveit Bretlands varð í öðru sæti á 42,71 sek. Fyrstu verðlaun Breta á mótinu nú. Þá kom sveit Jamaíku í þriöja sæti á 42,73 sek. Að öðru leyti var röðin þannig í úrslitum. 4. Búlgaría 5. Kanada 6. Sovétríkin 7. Frakkland 8. Tékkóslóvakía 42,93 43,05 43,22 43,40 43,78 Bandaríska sveitin, sem var rétt við heimsmet fyrir nokkrum vikum, komst ekki í úrslit. Alveg misheppn- aðar skiptingar hjá stúlkunum og sveitin varð fimmta í öðrum riðli und- anúrslitanna á 44,20 sek. Á eftir A- Þýskalandi, Jamaíku, Frakklandi og Kanada. -hsím. Skipting verðlauna — Pólverji sviptur silfurverðlaunum Skipting verðlauna í heimsmeistara- keppninni í Helsinki eftir keppnina í gær. G S B Bandaríkin 5 5 5 A-Þýskaland 4 4 3 Sovétríkin 3 4 7 Tékkóslóv- akía 2 2 0 Pólland 2 0 1 V-Þýskaland 1 3 1 ítalía 1 1 0 Jamaíka 1 0 1 Noregur 1 0 0 Mexíkó 1 0 0 Hoiland 0 10 Bretland 0 10 Brasilía 0 0 1 Nígería 0 0 1 Búlgaría 0 0 1 Pólski sleggjukastarinn Zdzislaw Knasmy var sviptur silfurverölaunum í sleggjukastinu af dómurum keppn- innar. Sovétmenn kæröu lokakast hans í sleggjukastinu sem fært hafði honum annað sætið. Kæra þeirra var tekin til greina og Pólverjinn var þriðji í grein- inni með þann árangur, sem hann hafði fyrir síðasta kastið. -hsím. íþróttir íþróttir íþróttir íþrc Heimsmeistaratitlamir þrír komnir í höfn hjá Cari Lewis: YFIRBURÐIRILANGSTI HQMSMETI BOÐHLAl Mesti frjálsíþróttamaður heims, Bandaríkjamaðurinn Carl Lewis, hefur náð því takmarki sem hann setti sér fyrir heimsmeistarakeppnina í Helsinkl; það er að verða heims- meistari í þremur greinum. Hann hefði eflaust getað leikið sama leik í Helsinki og Jesse Owens á ólympíuleikunum í Berlín 1936 að sigra í fjórum greinum — íþróttamaðurinn stórfenglegi sem hinum unga Lewis hefur svo mjög verið líkt við. En af því verður ekki að þessu sinni. Þrátt fyrir bestan tima í ár í 200 m keppir Lewis ekki i 200 m hlaupinu. Lætur sér nægja titlana i 100 m, langstökki og 4X100 m hlaupi — titla sem Owens vann í Berlín en hann bætti við þeim f jórða i 200 metrunum. Carl Lewis hafði algjöra yfirburði í langstökkinu, stökk léttilega — jafnvel letilega — 8,55 í fyrstu tilraun eða 49 sm lengra en Owens fyrir 47 árum. Hefur stokkið miklu lengra eða 8,79 m en lagði lítið að sér. Langstökkskeppn- in var háð milli undanúrslita og úrslita í 4 x 100 m boöhlaupinu. Þar hljóp Carl Lewis lokasprettinn glæsilega í sigursveit Bandaríkjanna sem setti nýtt heimsmet 37,86 sek. Eldra metið 38,03 sek. — sex ára. „Draumur minn hefur ræst — fyrsta heimsmet mitt,” sagði Lewis eftir hlaupið. Lokasprettur hans var geysi- lega öflugur. Hann fékk gott forskot en jafn frábær hlaupari og ítalski ólympíumeistarinn og heimsmet- hafinn Pietro Mennea var nánast sem statisti í samanburði við Lewis. Mennea hélt þó vel sínum hlut gagn- vart öðrum hlaupurum og tryggði ttaiíu silfurverðlaunin. I sigursveit USA hlupu Emmit King, sem auövitaö var á fyrsta spretti því viöbragð hans er annálaö, Willie Gault, Calvin Smith og Lewis. ítalska sveitin hljóp á 38,37 sek. Þar hlupu Stefano Tilli, Carlo Simionato, Pier Fransesco og Mennea. Sovétríkin í þriðja sæti 38,41 sek. Síðan 4. Austur- Þýskaland 38,51 sek. 5. Vestur-Þýska- land 38,56 sek., 6. Pólland 38,72 sek. 7. Jamaíka 38,75 og 8. Frakkland 38,98 sek. Langstökkskeppnin Þrefaldur bandariskur sigur í lang- stökkinu, Urslit. 1. Carl Lewis, USA, 8,55 2. JasonGrimes, USA, 8,29 3. Mike Conley, USA, 8,12 4. Laszlo Szalma, Ung. 8,12 5. Nenad Stekic, Júgósl. 8,09 6. Gary Honey, Ástralíu, 8,06 7. Antonio Corgos, Spáni, 8,06 8. Yussuf Alli, Nígeríu, 7,89 9. Gh. Cojocaru, Rúm. 7,88 ENN EINI ÚR KARA Carl Lewis—stökk 8,55 m i fyrstu tilrann. Óvænt í3000 m hindrunarhlaupi: Kenýahlauparínn Rono komst ekki í úrslitin Það vakti mikla athygli á heims- meistarakeppninni í Heisinki í gær að Kiprotich Rono, Kenýa, einn besti’ hlaupari í heimi í 3000 m hindrunar- hiaupi, komst ekki í úrslit. Varö í 12. og síðasta sæti í siðari riðlinum í undanúr- slitum. Litlu munaði að ítalinn kunni, Mariano Scartezzini, hlyti sömu örlög. Hann komst þó með naumindum í úr- slitahlaupið, sem háð verður á föstu- dag. Var með f jórða besta tima þeirra sem ekki tryggðu sér sæti beint í úrslit- in með því að verða í fjórum fyrstu sætunum í hvorum riðli. Keppt var í tveimur riölum í undan- úrslitum og áttu 12 keppendur að hlaupa í hvorum. Pólverjinn Wesolowski mætti ekki til leiks. Fjórir fyrstu í hvorum riðli komust í úrslitin og fjórir með bestu tímana þar utan. UrSlÍt Fyrri riðill 1. Colin Reitz, Bretl. 2. Hagen Melzer, A-Þýsk. 3. Henry Marsh. USA 4. Tommy Ekblom, Finnl. 5. M. Scartezzini, Italiu, 8:22,91 8:23,10 8:23,18 8:23,28 8:23,30 6. Francisco Sanches, Spáni, 7. Panajot Kaschanov, Búl. 8:23,92 8:31,95 — Bert Cameron frá Jan og Mary Decker va Mary Decker, Bandarikjunum, var mjög vinsæll sigurvegari í 1500 m hlaupi kvenna í heimsmeistarakeppn- inni í gær. Hún hafði forustu frá byrjun og virtist örugg með sigur þar til á síð- ustu beinu brautinni í markið. Þá skaust Evrópumeistarinn Svetlana Ulmasova, Sovétrikjunum, fram úr henni. Það stóð þó aðeins skamma stund. Mary svaraði með miklum spretti, tók þá sovésku og kom sem öruggur sigurvegari í mark. Ulmasovu varð svo mikið um að hún missti af verðlaunasæti. Brigitte Kraus, A- Þýskaland, og Tatiana Kazankina, Sovétríkjunum, urðu báðar á undan henni í mark. Reiknað haföi verið meö fyrir hlaup- iö að Kazankina, sem á heimsmetið á vegalengdinni (8:26,78), yrði helsti keppinautur Mary Decker en til þess kom aldrei þó munur væri ekki mikill i lokin. Hávaxna stúlkan frá Banda- ríkjunum var sú sem réð þessu hlaupi. Urslit: 1. Mary Deckcr, USA, 8:34,62 2. Brigitte Kraus, V-Þýsk., 8:35,11 3. TatianaKazankina,Sov., 8:35,11 4. Svetiana Uimasova, Sov., 8:35,55 5. WendySly, Bretl., 8:37,06 6. AgnesePossamai, ítaliu, 8:37,96 7. Jane Fumiss, Bretl., 8:45,69 8. Natalia Artemova,Sov., 8:47,98 Sænska stúlkan Eva Emström var tólftaá8:57,59mín. Síðari riðill. 1. Boguslaw Maminski, Póll. 2. PatrizIlg,V-Þýsk. 3. JuliusKorir,Kenýa, 4. Joseph Mahmoud, Frakkl. 5. Domingo Ramon, Spáni, 6. Roger Hackney, Bretl. 7. GraemeFell.Bretl. 8. Brian Diemer, USA, 9. Peter Renne, N-Sjál. Rono varö 12. á 8:33,97 mín. 8:20,81 8:20,83 8:21,07 8:21,29 8:21,61 8:22,44 8:23,22 8:23,39 8:25,72 hsím. Jamaika-sigur í 400 m. Það hafa margir stórkostlegir hlaup- arar komið frá eyjunum í karabíska hafinu og í gær varð Bert Cameron frá Jamaika hinn öruggi sigurvegari í 400 m hlaupinu. Tíminn í úrslitahlaupinu þó ekki eins góður og reiknað hafði ver- ið með. 1 síðustu beygju voru Vestur- Þjóðverjamir Shamrahl, sem nýlega setti Evrópumet 44,50 sek., og Hartmut Weber fyrstir. En Cameron, með sín- „Hugsaði ekki um heims- met aðeins að sigra” — sagði tékkneska húsmóðirín Jarmila Kratochvilova eftir að hún hlaut sinn annan heimsmeistaratitil „Ég er mjög ánægð með sigurinn. Ég hugsaði ekkert um heimsmet i hlaupinu, aðeins að sigra,” sagði tékk- • neska húsmóðirin Jarmila Kratochvil- ova eftir að hún hafði hlotið sinn annan heimsmeistaratitil i Helsinki i gær, sigrað með yfirburðum í 400 m hlaup- inu og sett nýtt heimsmet, 47,99 sek. Fyrsta konan í heiminum sem hleypur vegalengdina innan við 48 sekúndur. „Það er nú gott að fá þriggja daga frí fyrir 4 X400 m boðhlaupið. Kominn tími til,” bætti Jarmila við brosandi. Þar gæti hún hlotið sinn þriðja heimsmeist- aratitil og þar með jafnað árangur Bandarikjamannsins Carl Lewis. Þau tvö rísa hæst sem mestu afreksmenn heimsmeistarakeppninnar. Það var aldrei spurning hver myndi sigra 5x 400 m hlaupinu í gær. Yfir- burðir Jarmilu voru ótvíræðir og hún fékk mesta keppni frá vinkonu sinni, löndu sinni Tatana Kocembova, sem enn einu sinni varð að láta sér annaö sætið lynda á eftir afrekskonunni miklu. En þau vonbrigöi voru fljótt úr sögunni þegar vinkonurnar hlupu hönd í hönd heiöurshring á vellinum við mikinn fögnuð áhorfenda. Urslit. 1. J.Kratochvilova,Tékk. 2. Tatana Kocembova, Tékk. 3. Maria Pinigina, Sovét. 47,99 48,59 49,19 4. Gaby Bussmann, V-Þýsk. 49,75 5. Marita Payne, Kanada 50,06 6. Irina Baskakova, Sovét 50,48 7. Dagmar Rybsam, A-Þýskal., 50,48 8. Rosalyn Bryant, USA 50,66 Eldra heimsmetið í 400 m átti Marita Kock, A-Þýskalandi, 48,15 sek., sett á Evrópumeistaramótinu í Aþenu í fyrrahaust. -hsim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.