Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1983, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1983, Blaðsíða 3
DV. FIMMTUDAGUR11. AGUST1983. 3 Otibú Búnaðarbankans í Kópavogi sem opnað verður Innan skamms. DV-mynd Einar Ölason. Alexander Stefánsson félagsmálaráðherra: Tel ekki vænlegt að fjolga visitolunum —ákvöróun um tillögurSeölabankans frestað í ríkisstjóm „Eg tel það ekki vænlegt að fjölga vísitölunum og þess vegna ætti að skoða það vandlega hvort ekki er hægt að finna aöra leið til að draga úr þessum mismun sem verið hefur lán- þegum þungur í skauti,” sagði Alex- ander Stefánsson félagsmálaráð- herra í samtali við DV um tillögur Seðlabanka um nýja vísitölu hús- næðislána. I tillögunum er gert ráð fyrir að þessi vísitala byggist á visi- tölu byggingarkostnaðar, kaup- gjalds og framfærslu og að hún teng- ist lánskjaravísitölu í sumar eöa haust. „Eg lagði þessar tillögur fyrir stjórn Húsnæðisstofnunar ríkisins og var hún á sama máli og ég að heppi- legra væri að leita annarra leiða heldur en setja upp tvær vísitölur. Þess vegna var ákvörðun frestað um þessar tillögur Seðlabankans í ríkis- stjóminni. Það er meiningin að boða til fundar með launþegum núna 15. ágúst, en launþegasamtökin hafa þegar gefið út álit sitt. Þau viröast vera á þessari sömu línu, aö betra sé að leita annarra ráöa, m.a. að fá heimild til að fresta hluta afborgana af fullverðtryggðum lánum, ef greiðslubyrði eykst þannig að hækkun á lánskjaravísitölu sé um- fram hækkun visitölu kauptaxta. Þá yrði þeim afborgunum frestað og bætt við höfuðstól lánsins og láns- tíminn lengdur eför þörfum Greiðslubyrði lánsins myndi þá ekki aukast af þeim sökum." Alexander k\raðst hafa ákveðið að leggja þetta eindregið til í ríkis- stjóminni eftir fundinn með laun- þegum á mánudag þar sem hann gerði ráð fyrir að ákvörðun yrði tekin ummálið. -PÁ. Alexander Stefánsson félagsmálaráð- henra. SAMEIGINLEGT VANDAMAL ALLRA HÚSBYGGJENDA —segirfélagsmálaráðherra um vanda Byggung „Þaö er veriö að ræða málið, á hvem hátt við getum leyst þetta,” sagði Alexander Stefánsson félags- málaráðherra um erfiðleika bygg- ingafélagsins Byggung. Fram hefur komið aö verði greiðslu húsnæðis- stjórnarlána ekki hraðaö muni koma til stöðvunar framkvæmda félagsins og uppsagna starfsfólks í haust. „Þetta er sameiginlegt vandamál allra húsbyggjenda í raun og vem. Það er að mínu mati ákaflega slæmt þetta seinvirka form sem í gangi er; afgreiðsla lána er þrískipt, það tekur upp í sextán mánuði eða jafnvel lengur að fá lánin afgreidd. Það gerir það að verkum, aö hús- byggjendur, hvort sem um er að ræða byggingafélag eða einstakl- inga, verða að brúa biiið með óhag- stæðum lánum og alls konar fyrir- greiðslum. Þessu þarf að breyta, en það verður náttúrlega ekki gert öðru- vísi en í gegnum þá endurskoðun lag- anna sem nú er í gangi. Þar em fyrirmæli til nefndarinnar um að láta flýtingu lána koma fram í laga- setningunnl" Alexander sagði viðræður standa yfir viö f jármálaráðuneytið um þetta sérstaka vandamál sem hefði skap- ast í ár og hvort hægt væri að finna lausn á þvi. -PÁ. Stúdentaráð Háskóla íslands: Mótmælir áformum um kjaraskerðingu Stúdentaráð Háskóla Islands hefur sent frá sér ályktun, þar sem harðlega er mótmælt þeirri meöhöndlun sem fjárhags\'andi Lánasjóðs íslenskra námsmanna hefur fengið i fjármála- og menntamálaráðuneytinu. I ályktuninni segir að samkvæmt fregnum sem borist hafi sé ætlunin að veita LlN aðeins 135 milljónir af þeim 182 milljónum sem sjóðurinn þarfnast fram að áramótum. „Þetta þýðir, að námsmaður fengi aöeins 78% af fram- færslukostnaði þeim sem LlN áætlar honum fyrir nauðþurftum. Náms- mönnum yrði því gert að lifa af 8787 krónum, sem eru um 2000 krónum und- ir lágmarkslaunum. Skerðing myndi því þýða að námsmenn ættu ekki aöra lausn enaöhrökklast frá námi.” Skorað er á ríkisstjómina að endur- skoða afstöðu ráðuneytanna og veita LIN það fjármagn sem sjóðurinn þarfnast til að geta staðiö við skuld- bindingar sínar. Stúdentaráð minnir á að námslán eru verðtryggö lán en ekki styrkur. Þaö sé hæpið að sú kjaraskerðing sem felst í áformum ráðherra standist fyrir dómstólum og muni námsmenn ekki hika við að láta reyna á rétt sinn þar. -PÁ. Drögum vel úr ferð við blindhæðir og brýr. GÓÐA FERÐ! : MÉUMFERDAR ----UrAo Bankaútibúunum fjölgar ótt og títt: VERIÐ AÐ OPNA SJÖ NÝ ÚTIBÚ Á STÓR-REYKJA- VÍKURSVÆÐINU — og þar með eru innlánsstofnanir á landinu orðnar yf ir 200 talsins Þrátt fyrir að almenningur kvarti yfir peningaleysi virðast engin lát vera á að bankar og sparisjóðir opni útibú um allt land. Samkvæmt upplýsingum bankaeftirlitsins hefur verið veitt leyfi fyrir opnun sjö nýrra útibúa. Er verið að opna sum þeirra núna en önnur verða opnuö á næstu mánuðum. Með þessum nýju útibúum verða inn- lánsstofnanir, sem taka við peningum frá almenningi til ávöxtunar, orðnir yfir 200. Um síðustu áramót voru við- skiptabankamir með 116 afgreiðslu- staði á landinu. Sparisjóðimir voru með 47 afgreiöslustaði, innlánsdeildir Sam- vinnufélaganna voru 29 og þar fyrir utan var póstgíróstofan og Söfnunar- sjóður Islands sem starfræktur hefur verið síðan f yrir aldamót. Landsbankinn er með flesta af- greiðslustaðina, eða 39 talsins. Sá fer- tugasti verður opnaður innan skamms, en það er útibú á Ártúnshöfða í Reykja- vík. Búnaðarbankinn er annar í röð- —VIDEO-"- OPID ÖLL KVÖLD TIL KL. 23 Kvikmyndamarkaðurinn Skólavörðustig 19. Vidaoklúbburinn Stórhoftíl. Simi35460. VIDEO inni. Afgreiðslustaðir hans eru 30 tals- ins og sá 31. bætist við einhvern næstu daga þegar Búnaöarbankinn opnarúti- bú í Kópavogi. Hin fimm útibúin, sem þegar hefur veriö veitt leyfi fyrir, eru einnig á Stór- Reykjavíkursvæðinu. Samvinnu- bankinn mun opna útibú á Ártúnshöfða á þessu ári og Sparisjóöur Reykja- víkur mun opna útibú á Seitjarnamesi í næsta mánuöi. Þá er Iðnaðarbankinn með leyfi til að opna útibú við Réttarholtsveg í Reykjavík, Utvegsbankinn með leyfi til að opna útibú í Breiðholti og Spari- sjóður Hafnarfjarðar með leyfi til að opna útibú i suðurbænum í Hafnarfirði. Ekki er enn byrjað á framkvæmdum við þessi útibú en sjálfsagt er þess ekki langt að bíða að þau verði opnuð. Verða þá innlánsstofnanirnar á land- inu orðnar yfir 200 talsins, og þar án efa nægar hirslur til að geyma allt fé landsmanna. -klp- Tvær Vikuferð 16. ágúst Nú sláum við saman tveimur skemmtilegustu borgum megin- landsins og kynnumst því bestasem hvor um sig hefur upp áað bjóða. Verð kr. 15.950.- miðað við gistingu í 2ja manna herbergi. Innifalið: Flug til og frá Amsterdam, gisting i 3 næturá Victoriahóteli í Amsterdam, 4 nætur á Mondial hóteli í París, skoðunarferðir um París og til Versala, rútuferð Amsterdam-París-Amsterdam og islensk fararstjórn. Barnaafsláttur kr. 4000,- Samvinnuferdir-Landsýn AUSTURSTRÆT112 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.