Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1983, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1983, Blaðsíða 9
DV. FIMMTUDAGUR11. ÁGUST1983. 9 Útlönd Útlönd Hér standa þau saman brosandl, Liz Taylor og fyrrum eiginmaður hennar, Richard Burton. Það er þó ekki vegna þess að þau ætli sér að taka saman að nýju. Þvert á móti, því maðurinn, sem Liz heldur svo fast í, er lögfræðingur- inn Gonzales Luna sem hún var að trúlofast. Burton hallar sér binsvegar að sinni núelskuðu, Sally Hay, en þau sögðust samgleðjast Liz og Gonzales inni- lega. Liz Taylor trúlofuð enn á ný Leikkonan Elizabeth Taylor hefur kunngert trúlofun sína og hjóna- bandsráðagerðir með mexíkönskum lögfræðingi að nafni Victor Gonzales Luna. Það yrði í áttunda skiptið, sem Elizabeth Taylor gengi fram kirkju- gólfið undir brúðarmarsinum og Luna verður þá sjöundi eiginmaður hennar. — Hún giftist leikaramun Richard Burton tvisvar sinnum. Þau ætla aö láta pússa sig saman þegar hætt verður sýningum á „Private Lives”, leikriti þar sem þau Liz Taylor og Dick Burton fara með aðalhlutverkin. Talsmaður Burtons og eiginkonu hans Sally Hay (þau giftu sig í síð- asta mánuði) segir að þau hjón gleðj- ist mjög yfir þessari trúlofunarfrétt. Raf magnslaust og umf erðaröngþveiti Rafmagnslaust varð í Manhattan í gær þegar eldur kom upp í háspennu- stöð neðanjarðar. Tekur þetta til svæðisins milli 30. og 42. strætis og 6. og 7.-traðar. Mikið umferðaröngþveiti skapaðist af þessu í gær því að auðvitað slokkn- Drúsar ræna 3 ráðherrum úr Ubanon- stjórninni aði líka á götuvitum. Þurfti um 600 manna lögreglulið til þess að greiða úr flækjunni. Tókst aö ráða niöurlögum eldsins á 4 klukkustundum en rafmagn verður varla komiö á aftur fyrr en um helg- ina. Sleppt án lausn- argjalds Auðugur írskur lögfræðingur hefur ‘verið látinn laus úr prísund mannræn- 'ingja, án þess aö kæmi til þess að 1 lausnargjaldið væri innt af hendi. — Lögreglan á Suður-Irlandi hefur hand- tekiö þann sem talinn er hafa rænt lög- manninum. Lögfræðingnum hafði verið rænt á heimili hans á þriðjudagskvöld. Undir gapandi byssukjafti var hann numinn á brott en eiginkonu hans skipaö aö ! hafa til 50 þúsund sterlingspunda ’lausnargjald ef hún vildi sjá bónda sinn lífs aftur. Ræninginn mun hafa búið skammt jfrá þeim stað þar sem bófahópur IRA- manna reyndi í síðustu viku að ræna jkanadíska iðjuhöldinum Galen Weston. Lögmanninum, William Somerville, var sleppt lausum í aöeins 8 km fjar- lægð frá heimili sínu. Sagt er að hann Isé náinn vinur bresku konungsfjöl- jskyldunnar. Shagari náði endur- ■ ■■■ ■ r kjori i Nígeríu Shehu Shagari, forseti Nígeríu, hefur tryggt sér annaö 4-ra ára kjörtímabil í embætti með sigri yfir fimm mótfram- bjóðendum sínum í forsetakosningun- um, sem fram fóru í landinu um helgina. Atkvæðamunur varð honum hag- stæöari en lengi framan af hafði horft við í talningu atkvæðanna. Fékk Shagari 12 milljón atkvæði eða rúmlega það á meðan Abafemi Awolowo, sem næstur honum kom, fékk tæpar átta milljónir. Atkvæðin fullnægðu báðum skilyrð- um stjómarskrárinnar fyrir lögmætu kjöri. Shagari fékk meirihluta heildar- atkvæða og náði 25% lágmarkinu sem þarf í að minnsta kosti 13 af 19 fylkum landsins. Útlönd Guðmundur Pétursson og Ólafur B. Guðnason Þrem ráðherrum Líbanons var rænt í Shouf-f jöllunum, þar sem drúsar ráöa lögum og lofum, og krefjast ræningj- amir þess að stjórnin segi af sér og aö stjórnarherinn varði kallaður burt úr þessum landshluta. Ráðherrarnir þrír höfðu verið sendir af stjómarinnar hálfu til þess að reyna að miðla málum og koma á vopnahléi milli stríðandi afla á þessum slóðum. En allan daginn höfðu herskáir drúsar og herflokkur úr Líbanonher skipst á stórskotahríð. Fangarnir þrír voru fluttir til hallar ættarhöfðingja drúsa og leiðtoga stjómarandstöðunnar, Walid Jum- blatt, en hún er í f jallaþorpinu Moukh- tara (suö-austur af Beirút). — Jumblatt, sem þykú- hollur Sýrlend- ingum, býr í hálfgildings útlegö. Hann er þó sagður hafa verið í sambandi við ræningjana og hafa fyrirskipað þeim að vinna ráðherrunum ekki mein en sleppa þeim samt ekki nema að fyrir- mælum fengnum frá honum. Einn ráðherrann (fjármálaráðherr- ann), Abel Hammiye, er sjálfur drúsi. Heilbrigðisráðherrann, Adnan Mrowel, er shiita-múslimi og þriðji ráðherrann, Pierre Khoury er marón- íti (kristinn). Ráðherramir munu hafa verið tekn- ir til fanga eftir að þeir áttu fund með trúarleiötoga drúsa, Mohammed Abu- Shaqra sjeik, í höllinni í Moukhtara. A adidas HELSINKI: SIGURVEGARINN í ÞRÍSTÖKKI, HINN PÓLSKI HOFFMANN, NOTAR EINGÖNGU ADIDAS ÍÞRÓTTAFATNAÐ. FRAM TOLVUSKOLI TÖLVUNÁMSKEIÐ Tölvuskólinn Fr^imsýn hefur nú hafið starfsemi sína að nýju að loknu sumarleyfi. Innritun er þeg- ar hafin í neðangreind námskeið er hefjast næstu daga. ALMENNT GRUNNNÁMSKEIÐ Á þessu námskeiði eru kennd grundvallaratriði tölvufræðinnar, svo sem uppbygging tölva, helstu gerðir, notkunarmöguleikar og fleira. Námskeiðið er ætlað öllum þeim er hafa áhuga á að kynnast tölvum og notkunarmöguleikum þeirra, sem og starfsmönnum fyrirtækja er starfa nú þegar við tölvur eða munu gera það í náinni framtíð. Innritun og frekari upplýsingar um námskeið skólans fást í síma 91-39566 milli kl. 16 og 18. Tölvunámskeið er fjárfesting í framtíð þinni. Tölvuskólinn Framsýn, Síðumúla 27, Pósthólf 4390,124 Reykjavík, sími 39566. SELJUM í DAG Saab 99 GL '81, 2 dyra, hvítur, ekinn aðeins 30 þús., sem nýr bíll. Saab 900 GLS '81, ekinn að- eins 22 þús., Mtur Ijósblár, 4 dyra, bein- skiptur. Saab 900 GLE '82, hvítur, 4 dyra, 5 gíra, ekinn 26 þús., útvarp-kass- ettutæki, skipti möguleg á ódýrari. Saafa 900 EMS 79, 3 dyra, rauð- ur/sanseraður, ekinn aðeins 56 þús., bíll í toppstandi, skipti á ódýrum Saab möguleg. TOGGURHR SAAB UMBOÐIÐ BÍLDSHÖFÐA 16. SIMAR 81530 OG 83104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.