Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1983, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1983, Blaðsíða 11
DV. FIMMTUDAGUR11. AGUST1983. 11 VIÐTALIÐ: Marlanne ínnan um þjálfunartækin á sjúkrahúsinu á Neskaupstað. öll aðstaða er þar hin besta. „Ég var að lesa í hollensku blaðiheima og rakst á auglýsingufrá sjúkrahúsinuhér á Neskaupstað.” DV-mynd: Bjamleifur. „fSLENDINGAR ALLT ÖDRU- VÍSIEN HOLLENDINGAR” — segir Marianne Westenberg, hollenskur sjúkraþjálfari sem starfar á sjúkrahúsinu á Neskaupstað „Ég var aö lesa í hollensku blaði heima og rakst þá á auglýsingu frá sjúkrahúsinu hér á Neskaupstað þar sem óskað var eftir sjúkraþjálfara til starfa. Ég sendi inn umsókn, fékk starfið og hóf síðan störf hér í byrjun síðasta árs.” Þessi orð eru sögð á reiprennandi íslensku af 23 ára gamalli stúlku, Marianne Westenberg, hollenskum sjúkraþjálfara sem starfar á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Neskaupstað. Hún er frá Wageningen í Hollandi og þegar hún kom til Islands fyrir um einu og hálfu ári kunni hún ekki stakt orð í íslensku en hún hefur lært málið á undraverðan hátt í starfi sínu. Orsök þess að sjúkrahúsið á Nes- kaupstað auglýsti eftir sjúkraþjálf- ara erlendis er sú að svo virðist sem enginn íslenskur sjúkraþjálfari vilji starfa á Neskaupstað. Það fer ekki á milli mála, þegar rætt er við starfsfólk sjúkrahússins, að Marianne hefur unnið hug og hjörtu þess, slíkur er vitnisburðurinn um hana. Hún er líka einstaklega lát- laus og viðkunnanleg. En hvernig kemur s\’o landinn hfenni fyrir sjónir? „Islendingar eru allt öðruvísi en Hollendingar. Og það skemmtilegasta sem mér hefur fundist við Islendinga er þetta hvað þeir eru allt öðruvísi. Það sama á líka við um sjálft landiö.” Það var í lok ársins 1981 sem Marianne iauk námi í sjúkraþjálfun í Hollandi og því er sjúkrahúsiö á Nes- kaupstað hennar fyrsti vinnustaður í faginu. „Það er mjög erfitt að fá vinnu sem sjúkraþjálfari í Hollandi, en ég vona þó að mér takist það þegar ég sný aftur heim í lok ágúst.” Hvers saknar hún svo helst að heiman? „Ég sakna þess mest að geta ekki farið á kvöldin á matsölustaði og borðað. Einnig hef ég verið mikið í ballett heima og ég sakna hans líka mjög. En ég byrjaði sjálf hér á Nes- kaupstað með jassballett. Ymsir sýndu þessu áhuga í byrjun og komu til mín, en síðan datt áhuginn niður og f ólk hætti að koma. ” Eiginmaður Marianne kom með henni hingað til lands og hefur starf- að í frystihúsinu á Neskaupstað og einnig hefur hann stoppaö upp fugla. Þau ferðuðust nokkuð um landið í fyrrasumar og á næstunni, þegar Marianne hefur lokið störfum, fara þau með togara til Akureyrar. Þaðan ætla þau yfir Kjöl til Reykjavíkur og kannski til Vestmannaeyja líka. „Mér hefur liðið vei hér á Nes- 'kaupstað,” segir Marianne um dvöl sína, og það er víst að hennar verður saknaö. Langur biðlisti er líka af fólki sem þarf á sjúkraþjálfun að halda. En hver veit nema sjúkra- húsið á Neskaupstað auglýsi aftur í hollensku blaði. Reynslan er að minnsta kosti góð. -JGH. „Bítlamir munu taka við af rokkurum” „Það er verið að vinna í þessu máli núna og ekkert komiö á hreint hverjir koma þama fram en þetta verður örugglega meiri háttar skemmtun,” sagði Olafur Laufdal veitingamaður er við spurðum hann hvort farið væri að vinna að undirbúningi fyrir aðra hátíð sem koma á í stað rokkhátíöarinnar sem gerði hvað mesta lukku á Broadway sl. vetur. Yfir 20 þúsund manns voru við- stödd rokkhátíðina á Broadway en þar komu fram gamlir rokksöngvarar og hljóms\’eit Björg\’ins Halldórssonar. Gerðu þeir stormandi lukku og var tal- ið nokkuð víst að önnur álíka hátíð yrði á boðstólum í Broadway í vetur. „Við ætlum að taka núna fyrir bítla- tímabilið með öllum sínum hippum og blómum,” sagði Olafur. „Gunnar Þórðarson mun hafa allan veg og vanda af þessu og velur þá bítlasöngv- ara og hljóms\’eitir sem þarna kunna Ólafur Laufdal. að koma fram. Er hann að vinna í þessunúna. Þessi bitlahátíö byrjar í næsta mánuði og mun verða í það minnsta fram að áramótum. Þá er hugmyndin að taka rokkið upp aftur en breyta því og bæta frá því sem var í vetur,” sagði Olafur. . -klp- — segir Ólafur Laufdal íBroadway, um hátíðina sem þaráað byrja í næsta mánuði A jadidas HELSINKI: ■ ■ ÍSLENZKA FRJÁLSÍÞRÓTTA- j LANDSLIÐIÐ KEPPIR j EINGÖNGU í ADIDAS FATNAÐI. ■ ■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Suðuvélaleigan AUÐBREKKU 63 simi|45535 Leiga á kolsýrusuðuvélum fyrir járn og álsuðu með argon. Litlar vélar fyrir bílaviðgerðir. 220 v einfasa. Passa í venjulegan tengil. Einfaldasta aðferð við boddýviðgerðir. Fljótlært og á hvers manns færi Stórar vélar allt að 250 Amp 3 fasa, fyrir meiri háttar smíði. Afsláttur veittur af leigugjaldi ef vélin er leigð 115 daga eða lengur. FRANKFURT Intemationále Automobil Ausstellung 15. - 22. september r 1983 l BILAR - VARAHLUTIR - VERKFÆRI ALÞJÓÐLEG BÍLASÝNING í FRANKFURT 1983 Eigum takmarkaðan sætaíjölda á þessa eftirsóttu sýningu. Þetta er sýning sem fagmenn og áhugamenn ættu ekki að láta framhjá sér fara. Góð hótel í nágrenni sýningarsvæðisins - Bókanir hafnar. Sum HVERFISGOTU 105 Höfum fengið takmarkað magn af 1100 x 20/16 Barum vörubifreiðahjól- börðum á mjög hagstæðu verði. Góðir greiðsluskilmálar. JÖFUR HF Nýbýlavegi2 - Kópavogi - Sími 42600 j VÖRUBIFREIÐASTJÓRAR - VERKTAKAR!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.