Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1983, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1983, Blaðsíða 13
DV. FIMMTUDAGUR11. ÁGUST1983. 13 nærtækan sökudólg og skeyta skapi sínuáhonum. Velmegunarþjóðfélag er hugtak sem oft hefur heyrst hin síöari ár og áratugi. Nokkuð hefur staðið í mönnum aö útskýra hvað átt er við með því. Mér finnst raunsæjasta skýr- ingin, sem ég hefi heyrt, vera sú að það sé þjóöfélag þar sem fólkinu líður betur í dag en í gær. Skipti þá ekki höfuðmáli hver hin veraldlegu efni þess séu í krónum talið. Fátæk þjóð ó okkar mælikvarða geti verið velmeg- unarþjóðfélag, svo lengi sem hagur hennar fari batnandi, fleiri magar verði saddir, fleiri ungböm lifi af og fleiri ungmenni eigi kost á menntun. Andstæða þessa hlýtur þá að vera þjóðfélag, þar sem kjör fóiks fara versnandi. Skiptir þá heldur ekki höfuðmáli hvernig kjörin eru í krónum talið. Hræddur er ég um að samkvæmt þessari skýringu sé hæpiö að við getum talist velmegunarþjóðfélag í dag vegna þess hvernig kjör okkar hafa þróast síðustu misserin. Viö einblínum á hið neikvæða í þróun mála og viljum síaukna velmegun, helst án þess að þurfa nokkuð að hafa fyrir henni og hlöðum upp óánægju hið innra með okkur ef ekki gengur allt eins og við viljumhafa það. En þarf þetta að vera svona? Þurfum við að vera vonleysið upp- málaö og sjá svartnætti framundan i hverju skrefi? Nei, við þurfum þess ekki en við þurfum aö geta horfst í augu við raunveraleikann og skilja or- sakir hans. Rányrkt hafog land Frumorsök þess hvemig fyrir okkur er komið er tvimælalaust sú að við höfum lifað um efni fram, hvert og eitt okkar og sem þjóð. Mér er ljóst aö þessi orð „hvert og eitt okkar” má hór- toga á ýmsa vegu því vissulega hafa kjör okkar verið misjöfn, tekjurnar mismiklar og forsjálnin í meðferð þeirra sömuleiðis. En það erum við hvert og eitt sem myndum þá þjóð sem býr í þessu landi og við getum ekki þvegið hendur okkar af því hvernig komið er. Við höfum látiö okkur það vel líka að lifa um efni fram og þar af leiðandi við ;fölsk lífskjör. Við unnum í raun ekki fyrir þeim kjörum sem við kusum að | lifa við sem þ jóð heldur notuðum erlent 'lánsfé til eyðslu og munaðar. Slíkt er fölsk lífskjör og einhvern tímann hlaut iað koma að því að lát yrði á. Afturkipp- urinn er mikill, kjörin verða í bili enn : lakari en þau hef ðu þurft að vera ef allt jheföi verið með felldu undanfarin ár, en slfkt mun jafna sig innan skamms. Ég held að við höfum lengi lifað í' [mikilli blekkingu Islendingar, blekk- ingu sem móðir náttúra getur hvenær sem er rifið frá augum okkar og kannski er hún nú þetta árið rétt að minna okkur á að svo sé. Við lifum að vísu í mjög fögru landi, sem býr okkur á margan hátt hin bestu skilyrði til þess aö lifa hamingjusömu lífi, en aö vissu leyti erum við og höfum alltaf verið „á mörkum hins byggilega heims”, eins og eitt sinn var sagt. Við höfum bara komist hjá því aö viður- kenna þetta á meðan við höfum ausið iupp úr djúpi hafsins eins og villimenn og rányrkt jörðina í landi okkar. Nú virðumst við þama vera komnir á nokkurn leiðarenda. Veiði- mannatímabili til lands og sjávar virðist vera aö ljúka, við verðum að fara aö gera það upp við okkur hvort við ætlum aö lifa áfram i þessu landi þannig að böm okkar njóti hér mann- sæmandi kjara í framtíðinni eða hvort við ætlum þeim að flytjast til annarra þjóða þegar síðasti þorskurinn hefur verið veiddur og síöasta torfan er blásin upp. Við þurfum samt alls ekki að ör- vænta. Við eigum þrátt fyrir allt gott land og gjöfult, aðeins ef við viljum skilja það og umhverfi þess. Við verðum til dæmis að skilja að það verður ekki nytjað til alhliða landbún- aðarframleiöslu með sömu hag- kvæmni og þau lönd þar sem akrar gróa sjálfsánir. Við verðum að skilja að auðlindir hafsins geta þrotið, bæði vegna ofveiöi og vegna náttúruskil- yrða. Við verðum líka að skilja að sá er ekki alltaf ríkastur sem mestu eys upp heldursá sem ávaxtar best sitt pund. Magnús B jarnfreðsson. RúnarÁrmann Arthursson Eða kann einhver betri skýringu? Svo vikið sé að friðargöngunni í fuilri alvöru þá var þannig staðið að þvi verkefni að það hefur ekki farið á milli mála hver tilgangurinn er. Mót- mælum göngunnar var beint gegn báð- um risaveldunum og fólkið sem að þeim stóð kom úr öllum áttum enda var ekki lokað á neinn sem vildi sýna málefninu stuðning. Bæði Sovétríkin og Bandarikin hafa stefnt öllu lífi á jörðunni í bráöa hættu. Oskir þeirra sem í friöargöngunni voru. eru friður og frelsi og réttur þjóöa til að ráða sínum málum sjálfar án af- skipta óviðkomandi herveldis. Kjarn- orkusprengjan er hættulegasta ógnun- in við tilveru mannkyns fyrr og síöar, og atburðir á borð við þá sem áttu sér stað í Hiroshima og Nagasagi fyrir 38 árum mega aldrei gerast aftur. Látum söguna ekki endurtaka sig og tökum öll þátt í baráttu gegn kjarnorkuvígbún- aöinum, því í sérhverjum kjamavíg- oddi stórveldanna og bandamanna þeirra er falin hótun um sh'ka endur- tekningu. Rúnar Ármann Arthursson, framkvæmdastjóri Friöargöngu ’83. Reynslan af álverínu — svar til Kristins Snæland, erindreka, utbreiðslustjóra m.m. Svar til Kristins Snæland, erind- reka, útbreiðslustjóra m.m. Mörgum mun þykja óþarft að svara svo röksemdalitlu skrifi sem kjallaragrein Kristins Snæland í DV 25/7 síðastliöinn var. Hann segist vera að svara grein okkar um hagmál, sem birtist í sama blaði 14/7. Kristinn kveður réttast að svara henni með rakalausum þvætt- ingi. Hann stendur s\’o sannarlega við það fyrirheit. Gott dæmi um málflutning hans er að hann reynir að styðja málstað svissneska álhringsins með romsu um fyrri störf sín. En óbrjálaður lesandi sér í sjónhending aö upptalning þessi, sem gæti sómt sér ágætlega í umsókn um starf, á ekki erindi í blaðagrein umhagmál. 1. Kristinn viðurkennir að ,, í upp- hafi voru gerðir slæmir samningar við Isal” (hér er sýnilega átt við samningana 1965 við Alusuisse), en hann telur ekki aö hætta sé á að slíkt endurtaki sig og treystir núverandi ríkisstjórn fyllilega til að leysa málið og semja betur um næstu stóriðju- fyrirtæki. Við erum ekki jafnbjart- sýnir á að samningamenn rikis- stjómarinnar iæri af reynslunni, minnugir samningamistakanna áriö 1975. En að sjálfsögðu vonum við hiö besta. Skeleggar kröfur islensku samninganefndarinnar í fyrra mánuði gefa ef til vill tilefni til að ætla að viðhorf rikjandi stjórnmála- afla hafi eitthvað breyst siðan síðast. En orsök þess að margir þessara samningamanna hafa reynst illa er að þá skortir hugmyndafræöilegar forsendur til að skilja aö erlendir auðhringar svífast einskis í sam- skiptum við smáþjóðir. Stjórnvöld eru ekki eins alvitur og Kristinn heldur þau bersýnilega vera, jafnvel þótt þau hafi meirihlutafylgi á þingi. Ríkisvaldið er skeikult. 2. Mikil grunnfæmi er að halda að háar tekjur verkafólks við álverið í Straumsvík sanni að fyrirtækið færi þjóðinni hagnað. Hið rétta er að verksmiðjan getur greitt þetta hátt kaup vegna óteljandi hlunninda, sem dregin eru úr vasa íslenskra skatt- borgara. Þar er rafmagn, undir kostnaðarverði, þýðingarmesti þátturinn. Yms íslensk fyrirtæki væru sjálfsagt til í að hækka launa- greiðslur sínar nokkuð gegn því að vera t.d. undanþegin tollum eins og álverið og fá rafmagn undir kostnaðarverði frá ríkinu. Ef einhver er á spena hjá hinu opinbera þá er það gauksunginn i Straumsvík. 3. Ekki höfum við rannsakað línu kommúnista í stóriðjumálum, en það er misskilningur hjá Kristni að halda undirritaða andvíga stóriöju á Islandi. Aðaltilgangur með Kjallarinn stóriðjufyrirtækjum i landinu hlýtur hins vegar að vera að nýta orkulindir þess svo þjóðin hafi af þeim tekjur. En skemmst er frá því að segja að hagnaður landsmanna á hverja selda kilóvattstund rafmagns hefur lauslega áætlað helmingast vegna viöskipta við álfélagið. Stóriðjan á ekki að vera íslendingum útgjalda- liður heldur tekj uliður. 4. Kristinn virðist lítið eða ekkert hafa skilið í grein okkar og viljum við þess vegna árétta megininntak hennar. Við teljum að öfgakenndar kjaraskerðingar ríkisstjórnarinnar nú séu afleiðing rangrar iðnaðar- stefnu sem gengur út á aö útlendir auðhringar láti grelpar sópa um auölindir landsins. Þaö er landsölu- stefna. Meginforsenda hennar hlýtur að vera sú skoðun að innlendir iðnrekendur séu ónytjungar er ekki geti haldið uppi atvinnu í landinu, jafnvel þótt þeim væru gefnar stór- gjafir áþekkar þeim sem fallið hafa í skaut álfélaginu. Su afstaða aö vilja frekar gefa eða leigja útlendum f jár- plógsmönnum aöalauðlindir lands- ins, fiskimið, vatnsföll og vinnu laun- ,þega, heldur en að nota þær í þágu landsmanna sjálfra, er það sem við nefndum sníkjudýrahagfræði. BirgirBjöm Sigurjónsson Ámi Sigurjónsson 5. Kristinn Snæland eyðir Iöngu máli í að tjá menntamannafyrirlitn- ingu sína. Sýnir það best rökþrot hans að hann skuli skorast undan umræðum og fara að rífast í svo per- sónubundnu málefni sem skólaganga okkar er. Röksemdir verða hvorki sterkari né veikari við upplýsingar um hver sá er sem ber þær fram, né heldur af því að rakið sé hvaða nám eöa aðra atvinnu hann hefur stundað. 6. Að lokum: Kristinn nefnir okkur kommúnista, sem er greinilega ein- hvers konar meiðyröi í munni hans. Við vitum ekki með vissu hvers vegna við erum þarna kenndir við kommúnismann; en okkur er ljóst að þegar launamenn, eins og við erum, agnúast út í skattsvik stórlaxa og arðrán milljónafélaga þá koma alltaf upp einhverjir talsmenn fjár- dráttarhugsjónarinnar og stimpla gagnrýnina „kommúnisma”. Sömu gasprarar kalla það jafnan kommún- isma er smáþjóðir reyna að brjótast undan oki stórvelda. Fyrir hvað eru slíkir menn erindrekar og útbreiðslu- stjórar? Með þökk fyrir birtinguna. Árni Sigurjónsson, Birgir Björn Sigurjónsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.