Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1983, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1983, Page 2
2 DV. FIMMTUDAGUR11. ÁGUST1983. Ganga menn með sprengju í vasanum? I Alþýöublaðinu í gær er sagt frá því að með skömmu millibíli hafi tvö dauðaslys orðið hér á landi sem að nokkru eða öllu leyti megi rekja til þess að svokallaöir plastkveikjarar eða einnota k\'eikjarar, hafi sprungið í höndum fólks. Er þama um að ræða gaskveikjara úr plasti sem kaupa má í öllum búðum. Segir blaðið að í öðru tilfellinu hafi slikur kveikjari sprungið í höndum manns sem var úti á Granda. Hafi hann fengið hjartaáfall og fallið í höfnina. 1 hinu tilfellinu hafi verið um aö ræöa konu sem hafi látist af brunasárum er slíkur kveikjari sprakk og eldur kom upp. Njörður Snæhólm hjá Rannsóknar- lögreglu rikisins, sem hefur í sínum fórum skýrslur um öll dauðsföll er koma til kasta rannsóknarlögregl- unnar, sagði er við spurðum hann um þetta að hann kannaðist ekki við að hér hefðu orðið dauðaslys sem rekja mætti ótvírætt til þessara kveikjara. Hann sagði að i sambandi við dauðsfall sem varð úti á Granda heföi komiö upp eldur í bíl sem í var einn maður. Hann hefði fundist látinn í fjöruborðinu og talið að hann hefði reynt að slökkva í sér í sjónum. Engin vitni hefðu verið aö þeim atburði og ekkert sannað hvemig eldurinn heföi kviknað. Um hitt tilfellið sagðist hann ekki hafa neinar skýrslur né vita hvaða mál það væri. Eftir því sem DV hefur komist næst mun Alþýðublaðiö þar eiga við slys þegar eldri kona lést af völdum brunasára nú nýlega. Mun konan hafa verið flutt á s júkrahús og komist þar til meðvítundar i smá- tima. Hafi hún þá sagt að hún hafi verið að kveikja sér í vindlingi með plastkveikjara og hann sprungiö i höndum hennar. Vitað er að kveikjarar þessir eru stórhættulegir og hafa víða erlendis hlotíst af þeim stórslys og jafnvel banaslys. Hefur notkun þeirra verið bönnuð á mörgum vinnustöðum um allan heim, sérstaklega þar sem menn eru innan um opinn eld, eins og t.d. á járnsmíðaverkstæðum og víöar. Þá hafa mörg flugfélög bannað áhöfnum sínum og jafnvel farþegum að nota slíka kveikjara um borð í vélum sínum. Hafa orðið nokkur dauðaslys í flug\'élum sem ótvírætt má rekja til þessara plast- kveikjara. -klp- Plastkveikjari, elnnota, sem talinn er stórhættulegur. Fjölmarglr menn e°"g° með slíka kveikjara á sér. ! DV-mynd Einar Úlason. OKKUR TÓKST AÐ FÁ ' A hfíFÁ^ TOYOTA COROLLA '82 IMÝJA - ÓKEYRÐA, Á MJÖG HAG- STÆÐU VERÐI. GREIÐSLUKJÖR - ÞÚ KEMUR OG SEMUR. OPIÐ VIRKA DAGA OG LAUGARDAGA KL. 9-19. BÍLASALAN BLIK Skeifunni 8, sími 86477. Plastkveikjaramir: „Þetta er stór- hættulegur hlutur" — segir Þórir Hilmarsson, forstjóri Brunamálastofnunarinnar „Þetta er stórhættulegur hlutur sem ber að varast, sérstaklega á vinnustöðum þar sem menn fara með eld,” sagði Þórir Hilmarsson, forstjóri Brunamálastofnunarinnar. „Það er ekki í verkahring Bruna- málastofnuna rinnar að hlutast til um að bann verði lagt við notkun þess- ara kveikjara. Þetta heyrir undir dómsmálaráðuneytið, en annars er það lögreglan sem hefur eftirlit með sprengjum, sprengiefnum og hlut- umsemgeta valdiðsprengingu.” ■ Þórir á sæti í samnorrænni nefnd, Nordex, sem fjallar m.a. um með- ferð sprengiefnis, en þar komu þessir kveikjarar til umræðu fyrir tveim árum. „Þar var okkur sagt frá slysum sem orðið höfðu af völdum þessara kveikjara,” sagði Þórir. ,,1 öðru tilfellinu sprakk kveikjari í brjóst- vasa manns og i hinu tilfellinu í buxnavasanum. Astæðan var ókunn, en báðir þessir menn létust af völd- um áverka sem þeir hlutu af sprengingunni. Þaö var rætt um það í nefndinni hvað gera ætti í sambandi við þessa kveikjara, en engin ákvörðun tekin þá. Menn álitu þó að þetta væri stór- hættulegur hlutur og var talin full ástæða að brýna fyrir fólki hættuna sem því væri samfara að vera meö svona kveikjara á sér.” -klp- Plastkveikjaramir. Flugleiöaáhöfnum bannað aö fara meö þá um borö Meðal þeirra flugfélaga i heimin- um sem hafa bannað áhöfnum sinum að nota hina svokölluðu plastlweikj- ara, eða einnota kveikjara, um borð í vélum sinum eru Flugleiðir. „Fyrir rúmlega þrem árum, eða 9. maí 1980, sendum við öllum flugáhöfnum okkar bréf þar sem við gáfum þau fyrirmæli að þær notuðu ekki slíka kveikjara um borð í vélum okkar,” sagði Leifur Magnússon, framk\'æmdastjóri flugrekstrar- sviðs Flugleiða. „Eg held að þessum fyrirmælum hafi verið fylgt í hvívetna. Það vita allir sem koma nálægt flugi að þessir k\'eikjarar geta verið hættulegir, bæði í flug\'élum og annars staðar. Ástæðan fyrir þessu var sú að við fréttum um tvö slys sem höföu orðið um borð í flugvélum af völdum þess- ara kveikjara. Höfðu þeir sprungiö í höndum fólks og banaslys orðiö í báöum tilfellum. Sum flugfélög hafa bannaðfarþeg- um sínum að fara um borð í vélar sínar með svona kveikjara. Við höf- um enn ekki gert það, en það er tími til kominn að kanna það mál, eða í það minnsta að óska eftir því við þá að þeir fari ekki um borð með svona kveikjara í sínumfórum.” -klp- Plastkveikjararnir: EITTLÍTID GATGETUR VALDID MIKILLISPRENGINGU „Ég veit ekki til að þessir k\’eikjarar hafi valdið slysum á vinnustöðum hér á landi,” sagði Sigurður Þórarinsson, deildarstjóri eftirlitsdeildar Vinnueftirlits ríkis- ins. „Ég hef aftur á móti heyrt og lesið um slys sem hafa orðið af þeirra völdum erlendis. Þessir kveikjarar eru sérstaklega hættulegir á vinnu- stööum þar sem menn eru með eld eins og til dæmis á verkstæðum þar sem unniö er með logsuðutækjum eða við smergel. Það sem gerist, þegar kveikjarinn springur, er að gat kemur á plasthulstur hans. Þarf ekki nema lítinn neista eða þá að vindlingur kemur við plastið og gerir gat á það. Við þaö lekur gasiö úr kveikjaranum út og þegar kviknar í því verður sprenging og eldur, ” sagði Sigurður. -klp- Gulróf nabændur stof na félag Stofnað hefur verið félag sunn- lenskra gulrófnabænda. Var stofnfund- ur haldinn sl. sunnudag. Á fundinn voru mættir framleiðend- ur á svæðinu frá Hvalfirði aö Lóma- gnúpi. Fjörugar umræður urðu um sölu- og markaðsmálin og voru fundar- menn á einu máli um að þörf væri á betri tengslum milli framleiðenda, dreifingaraðila og neytenda. Tilgangur og markmið félagsins er meðal annars að beita sér fyrir umbót- um í verðlagningu, sölu og markaðs- málum, enn fremur að auka tengsl framleiðenda og neytenda og beita sér fyrir kynningu á næringargildi og holl- ustu gulrófna. Stendur gulrófna- framleiöendum úr öllum landshlutum til boða að taka þátt í starfi félagsins. -JSS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.