Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1983, Side 33
DV. FIMMTUDAGUR11. AGUST1983.
33
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Syiðsljósið
ENDALAUS
ending
Það hefur viljað brenna við að hjóna-
bönd frægra leikara hafi þótt frekar
fallvaltar stofnanir og þegar frægir
leikarar hafa enst í hjónabandinu með
sama aðilanum í fimmtón ár þá er
orðið tímabært að fara á stjá og for-
vitnast um hvernig á þessari fast-
heldni stendur eiginlega. Roger Moore,
er leikari sem ætti að vera mönnum vel
kunnur og segir hann að hjónaband
hans og Lúsiu hafi enst svona lengi
vegna þess að um afbrýðisemi sé ekki
að ræða milli þeirra. Ennfremur segir
hann hafi vit á því að halda kjafti
þegar konan fær geðvonskukast. „ef ég
fer að steyta görn þá gefur hún mér
einn á lúðurinn”. Moore er orðinn 55
ára gamall og segir það ekkert angra
sig þótt aðrir menn gefi konu hans
auga, en hún er 43 ára. „Eg verð bara
grobbinn og tel það hrós fyrir hana og
fyrir smekk minn á konum. Ég hef
aldrei verið afbrýðisamur.” Lúsia var
á sama máli. „Ég vemda hann Roger
minn en ég er ekki afbrýðisöm út í
hann vegna þess að ég er falleg líka.”
Lúsia bætti því við að hún yrði sko
fljót að komast að því ef hann færi að
dandalast með einhverri glyðru en
sagði hins vegar: ,,Ein og ein nótt
skiptir engu máli til eða frá, en verði
hann hins vegar ástfanginn af annarri
þá myndi það tákna endalok hjóna-
bandsins.” Lúsia hefur ekkert á móti
þvi að hann leiki áfram í Bond mynd-
unum og er ekkert smeyk um hann
innan um hin föngulegu fljóð sem leika
ailtaf í myndunum. Moore sagðist
alveg vilja viðurkenna það að konan
hans tæki flestar þær ákvarðanir sem
teknar væru á heimilinu. Hann bætti
hins vegar drýgindalega við: ,,En ég
hef aftur á móti alltaf síðasta orðið og
þaðer: já elskan.”
Vóðvafæði
Þennan gaur þekkja þeir sem hafa
séð kvikmyndina Rocky III, en í
þeirri mynd leikur hann illræmdan
slagsmálahund sem hefur af Rocky
heimsmeistaratitilinn eftir feikilegt
blóðbað í hringnum. Vinurinn kallar
sig herra T. og er eins og myndin ber
með sér allsvakalegur á velli. Hann
hlaut mikla frægð fyrir hlutverkið í
myndinni og leikur nú í sjónvarps-
þætti í Amerfku sem heitir A-liðið.
Myndin er tekin er hann mætti í
veislu eina mikla sem haidin var
skammt fyrir utan Los Angeles og
þótti mönnum það allundariegt að
þrátt fýrir að hinar yndislegustu
' krásir væru þar á borðum þá mokaði
hann á disk sinn ársskammti af bök-
uðum baunum. Einn forvitínn vatt
sér að honum og innti hann eftir þvi
af hverju hann fengi sér bakaðar
baunir þegar allir þessir réttir væru í
boði. Herra T. sagöi: „Mér líka
bakaðar baunir og auk þess eru þær
skrambi góðar fyrir vöðvana á
mér.” Klykkti kappinn út með því að
hnykla nokkra vöðva máli sínu til
áréttingar.
Hvort sem i!la viðrar eða vel
þá er sölumennska í fullum
gangi í Austurstræti og
Lækjartorgi meðan þar er
kúnna að finna. Loftur Ijós-
myndari var þar á ferð fyrir
helgi og rakst á þessa
stúlku sem var að selja
varning upp úr grtarkassa
og ekki var annað að sjá en
að hún trekkti bærilega að.
DV-mynd Loftur/SLS.