Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1983, Blaðsíða 12
DV. FÖSTUDAGUR19. ÁGÚST1983.
12
DAGBLAÐIÐ-VÍSIR
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON.
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON.
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM.
Aöstoöarritstjóri: HAUKUR HELGASON.
Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON.
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON.
Ritstjórn: SIDUMÚLA 12—14. SÍMI 86*11. Auglýsingar: SÍDUMÚLA33, SÍMI 27022.
Afgreiðsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI11. SÍMI27022.
Sími ritstjómar: 86611.
Setning, umbrot, mynda ogplötugerð: HILMIR HF„ SÍÐUMÚLA12. P rentun:
Árvakur hf„ Skeifunni 19.
Áksriftarverð á mánuði 230 kr. Verð í lausasölu 20 kr.
Helgarblaö22kr.
Vísbendingum kosti frelsis
Frjálsræði í verðlagningu hefur gefið góða raun þar
sem það hefur verið reynt á þessu ári. Um ræðir innlend-
ar iðnaðarvörur, sem eiga í óheftri samkeppni við inn-
fluttan iðnaðarvarning. Verð á þessum vörum hefur yfir-
leitt hækkað minna á árinu en verð erlendu varanna.
Verð innfluttu varanna hefur einkum hækkað vegna
gengisfellingar krónunnar. En athyglisvert er, að inn-
lendu framleiðendurnir hafa ekki fært verð sinna vara
upp að því marki, ekki hækkað þær jafnmikið.
Ríkisstjóm Gunnars Thoroddsens gekkst í maí í fyrra
fyrir breytingum á verðlagslögum. Verðlagsráði var
heimilað að gefa verðmyndun frjálsa, í þeim efnum þar
sem samkeppni væri næg að mati ráðsins. Verðmyndunin
yrði þó áfram háð svokallaðri „verðgæzlu” ráðsins. I því
felst, að verðlagsyfirvöld fylgist grannt með verðlagning-
unni og grípi inn í að nýju, ef þurfa þykir.
Skref í átt til meira frjálsræðis í verðlagsmálum var
síðan stigið í október síðastliðnum, þegar Verðlagsráö
samþykkti samhljóða að miða að því að gefa verðlagn-
ingu frjálsa á samkeppnisvörum í iðnaði. Þetta kom til
framkvæmda í janúar.
Staðan varð því sú, að verksmiðjuverðið á þessum vör-
um var gefið frjálst en áfram giltu hömlur á smásölu-
álagningu. Á erlendu vörunum er hámarksálagning bæði
í heildsölu og smásölu.
Hver hefur reynslan orðið?
Verðhækkanir hafa verið miklar á árinu, eins og allir
þekkja. Lausleg athugun Verðlagsstofnunar á reynslunni
af hinu nýja fyrirkomulagi sýndi að verðhækkanir á inn-
lendu vörunum með frjálsri álagningu voru yfirleitt
minni en á erlendu samkeppnisvörunni, einkum þar sem
samkeppnin er virkust.
Athugaðar voru verðbreytingar frá áramótum til 20.
júlí. Innlendu hreinlætisvörurnar höfðu á því tímabili
hækkað um 40% en erlendar hreinlætisvörur um 71%.
Innlent sælgæti hækkaði í verði um 53% en erlent um 60%.
Innlendar drykkjarvörur hækkuðu um 30—50% en erlend-
ar um 60—70%. Innlendar niðursuðuvörur hækkuðu um
52% en erlendar um 55%. Hins vegar hækkaði innlent kex
um 54,3% en erlent um 45,5%.
Þegar athugunin var gerð, var nokkuð liðið frá gengis-
fellingu, þannig að megnið af hækkun hráefnisverðs og
annars kostnaðar innlendu framleiðslunnar ætti að vera
komið fram.
Þessar niðurstöður eru vissulega vísbending um, að
frjálsræði í verðlagningu sé af hinu góða, ef samkeppni er
næg, og þá því aðeins, að hún sé næg. En of snemmt er að
fullyrða, að slíkar niðurstöður beinlínis sanni kosti frjáls-
ræðisins í þeim efnum á íslenska markaðinum. Frekari
reynsla þarf að fást áður.
Verðlagsyfirvöld ættu að fara lengra út á þessa braut
en flýta sér hægt.
I ýmsum greinum ríkja enn hér á landi eins konar
„hringar”, þar sem fyrirtækin hafa í reynd einokunarað-
stöðu á verðlagningu. Slíkir „hringar” eru verstu óvinir
frjálshyggjunnar.
1 þeirri tilraun, sem hér greinir, hefur ríkt víðtækari
pólitísk samstaða en menn hefðu ætlað að óreyndu.
Tilraunin er því markverðari. Haftapólitík er í grund-
vallaratriðum af hinu illa og gott, að sem flestir skilji
það.
Haukur Helgason.
Eiga námsmenn
einir að sleppa við
kjaraskerðingu?
Þegar f járlög voru afgreidd i vetur,
var öllum alþingismönnum ljóst, að
framlög til Lánasjóðs ísl. námsmanna
dygðu hvergi til þess að greiða út þau
lán, sem námsmenn eiga „rétt til” skv.
lögum um Lánasjóð ísl. námsmanna.
Ekki er vitað til þess, að þingmenn
Framsóknarflokksins hafi þá haft uppi
sérstakar kröfur um að fjárframlög
væru aukin til sjóðsins, og mennta-
málaráðherra flokksins þagði þunnu
hljóði. Með því aö stjórnarskráin tekur
skýrt fram, að engar greiöslur skuli
reiða af hendi úr ríkissjóði nema fjár-
lagaheimild sé fyrir hendi, þá gaf
augaleiö þegar í vetur, að fjárskortur
myndi gera vart viö sig á skrifstofum
Lánasjóös ísl. námsmanna.
Þegar núverandi ríkisstjórn tók við
völdum varðað takast á við ýmsan
vanda, m.a. aö taka afstööu til þess,
hvort og hvernig ætti að afla viðbótar-
fjár til Lánasjóðs ísl. námsmanna.
Menntamálaráðherra hefur lagt fram
tillögur til lausnar vandanum, annars
vegar með því að ríkissjóður leggi til
viðbótarfjármagn, en hins vegar með
því aö takmarka skyldur sjóðsins frá
þvísemnúer.
Þá bregður svo undarlega við, að
þeir þingmenn, sem í vetur neituðu að
veita fé á fjárlögum til lánasjóðsins,
fella tillögur menntamálaráðherra um
nauðsynlegar breytingar á lögunum
um Lánasjóð.
Kjallarinn
HaraldurBlöndal
Viljafá 120.000
áári
Lögin um lánasjóð íslenskra náms-
manna eru byggð á þeirri forsendu, að
námsmenn eigi að fá tiltekinn
hundraðshluta framfærslukostnaðar
lánaðan án tillits til þess, hvort þeir
muni verða borgunarmenn fyrir lánun-
um. Samkvæmt upplýsingum Sam-
bands ísl. námsmanna erlendis mun
framfærslukostnaöur manna, sem
þetta samband telur sig gæta hags-
muna, vera rúmar tíu þúsund krónur á
mánuöi og vilja námsmenn því fá
lánaðar þessar krónur. Ef þetta er rétt
mun námsmaöur eiga ,,rétt til” að fá
ca 120.000 krónur að láni verðtryggöar
á ári meðan hann stundar nám. Menn
geta svo margfaldað í huganum,
hverju þessar fjárhæðir nema miðað
A „Væri ekki skynsamlegra aö ákveða t.d.
að hver námsmaður fengi til láns svipaða
fjárhæð á mánuði og ellilífeyrisþegi, en sú f jár-
hæð er nú kr. 3.035.00 á mánuði fyrir ein-
hleyping.”
MJÓLKUR-
FLUTNINGAR
Nýlega birtist í fréttum að í athugun
væri að flytja nýmjólk og undanrennu
að norðan suður með skipiun þar sem
ótíðin í sumar hefði dregið úr mjólkur-
innleggi á svæði Mjólkursamsölunnar.
Einhverjum mjólkurvömbum hér á
höfuðborgarsvæðinu hefur sjálfsagt
brugðið í brún og verið lítt hrifnir af tfl-
hugsuninni um vikugamla mjólk úr
skipstanki. Nú kom það aldrei beinlfnls
fram hvað gera ætti við norðan-mjólk-
ina enda er það alveg Ijóst að nóg
neyslumjólk safnast enn á svæðinu yfir
hásumarið. Það er sjálfsagt ekkert
gott heldur að vera að nota vikugamla
nýmjólk í jógúrt eða jafngamla undan-
rennu í skyr. Aö þessum tveim notk-
unarmöguleikum frágengnum þá
vaknar spurningin: Hvers vegna eru
menn þá að láta sér detta svona flutn-
inga í hug?
Jógúrtskákin
1 vor var tefld ansi fjörug skák með
jógúrtdöllum milli KÞ og Hagkaups
annars vegar og Mjólkursamsölunnar
og Framleiðsluráðs hins vegar. Leik-
irnir birtust daglega í DV. Það var
leikið fram umbúðakostnaði, dreif-
ingarkostnaði, framleiðslukostnaði,
tapi á öðrum afurðum, bragðgæðum og
ýmsum fleiri misjafnlega sterkum
leikjum. En svo langhrókaði MS Fram-
leiðsluráð með svæðiseinkasölurétti,
opnaði þar meö stööuna og gaf á sér
dauðafæri. 1 miklu tímahraki fann
landbúnaðarráöherra góðan biðleik,
Björa Dagb jartsson
s.s. leyfði að seld yrði KÞ-jógúrt hjá
Hagkaupi, fékk við það skárri stöðu og
bauð jafntefli.
Það má líta þannig á að skákin sé í
bið ennþá og báðir aðilar séu aö rann-
saka biðstöðuna. Þaö gæti verið að
flutningur á mjólk að norðan til þurrk-
unar hér og jógúrtvinnslu í vetur væri
svar við biðleiknum, þ.e. MS verður að
hafa hráefni til að framleiða sína eigin
jógúrt, annars er einkasölurétturinn í
hættu og skákin töpuð. Skákin væri líka
töpuð ef þeir framleiddu sína þurr-
mjólk úr sinni eigin mjólk og keyptu
jógúrt að norðan.
Skyr og magrír ostar
Töluvert mikið af þeirri undanrennu
sem til fellur fer í skyrgerð. Nú er það
vitað mál að skyriö má framleiöa úr
undanrennudufti sem framleitt er þeg-
ar mikið berst af mjólk. Skyr er eins og
jógúrt, vara sem er gott að selja,
stendur stutt við og greiðist hratt eins
og neyslumjólkin. Smjör og sumir ost-
ar eru aftur leiðindaafurðir sem þarf
að geyma lengi og saf na á sig kostnaði.
Eins og með jógúrtina væri það af-
leitt fyrir MS-einkasöluna að þurfa að
fá Akureyrarskyr hér á markaðinn,
A Eins og með jógúrtina væri það afleitt fyr-
ir MS-einkasöluna að þurfa að fá Akur-
eyrarskyr hér á markaðinn, ekki síst þar sem
Akureyrarskyrið er einstaklega gott.”