Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1983, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1983, Síða 4
4 DV. ÞRIÐJUDAGUR30. AGUST1983. P Hátíðleg athöfn í Skarðskirkju: „SOLIN SKEIN MEIRA AÐ SEGJA Á MEÐAN” —sagði Kristinn Jónsson, bóndi á Skarði Prestar ganga til guðsþjónustu í Skarðskirkju. Síðastir fara sr. Jón Einarsson og sr. Ingiberg J. Hannesson og sr. Ölafur Skúlason vigsiubiskup. „Þetta var ákaflega hátíðleg athöfn,” sagði Kristinn Jónsson, bóndi á Skarði í Dalasýslu. „Sólin skein meira að segja á meðan á athöfninni stóð.” Eins og DV greindi frá í gær var haldin hátíðarguðsþjónusta á Skarði sl. sunnudag í tilefni af því aö endur- byggingu kirkjunnar á staðnum er nú lokið. Fjöldi manns sótti at- höfnina og rúmaði kirkjan ekki alla þá gesti sem komu til að hlýða á guðsþjónustuna. Sátu því margir í bifreiðum sínum fyrir utan kirkjuna og hlýddu á messu úr hátölurum sem komið hafði verið fyrir utan kirkju. Skarðskirkju bárust margar góðar gjafir í tilefni þessara merku tímamóta. Má þar nefna ljósprent af Skarðsbók, teppi og minningar- skjöld, dregil, prestaskrúða og tvo kertastjaka. Þeir sr. Jón Einarsson og sr. Ingiberg J. Hannesson sóknar- prestur þjónuðu fyrir altari. Sr. Olafur Skúlason vígslubiskup flutti predikun. Svo hittist á að vígslubiskup hafði gefiö saman hjónin á Skarði, þau Kristin Jóns- son og Þórunni Hilmarsdóttur, fyrir nákvæmlega 17 árum.Þáhaföi hann einnig skírt elsta son þeirra sem ein- mitt opinberaði trúlofun sína sl. sun udag. Við guðsþjónustuna voru gefin saman í hjónaband Olafur Eggerts- son og Svava Hjaltadóttir en Olafur er í 26. ættlið út af Húnboga Þor- kelssyni er bjó á Skarði á 11. öld. Bóndinn á Skarði, Kristinn Jónsson, er einnig í 26. lið frá Húnboga. Sama ættin hefur því búiö á Skarði í Dala- sýslualltfráll. öld. -JSS. «C Að lokinni guðsþjónustu þáðu kirkju- gestir veitingar að Skarði. Árneshreppur: Ekki messað íheyönnum Frá Regínu, fréttaritara DV á Ströndum. Hinn ungi prestur, séra Einar Jónsson, messaði í Ámeskirkju á sunnudaginn 28. ágúst. Séra Einar flutti íÁmes ásamt fjölskyldu sinni í fyrravor og var mikill fögnuður hjá Ámeshreppsbúum að fá presi eftir 15 ára prestleysi. Það þykir afar mikið öryggi að hafa góðan sálusorgara á hinni gömlu hlunnindajörö. Alltaf er full kirkja hjá honum þegar messað er. Brottfluttir Arneshreppsbúar urðu fyrir miklum vonbrigðum er þeir voru á ferð á æskuslóðum sínum í sumar að heyra ekki í sín- um góöa presti því hann er orðlagður fyrir að halda stuttar og sn jallar stólræður sem kirkjugestir sofna ekki undir heldur fara eftir. En ástæðan fyrir því aö þeir gátu ekki heyrt í prestinum er að það er samkomulag milli prestsins og sóknarbamanna að ekki er messað á meðan heyskapur stendur yfir. Björgvin til írlands - á alþjóðasöngkeppni Björgvin Halldórsson, söngv- arinn góðkunni, mun í byrjun okt- óber taka þátt í söngva- keppni á Irlandi. Keppnin, sem heitir „Castlebar intemational song contest”, fer fram í borginni Castelbar og er þetta í 18. sinn sem húnerhaldin. Björgvin syngur tvö lög í keppninni og eru það lögin „Baby don’t go”, sem er eftir hann sjálfan og lagið „Sail on” eftir Jóhann Helgason. -SþS. Olafsfjörður: Velheppnaðar björgunar- æfingar Fyrir skömmu voru haldnar samæfingar björgunarsveitanna á svæði sex, en það nærfrá Hvamms- tanga austur að Grenivík. 7 sveitir voru mættar til leiks, samtals 70 manns, og voru sett á svið bæði flugslys og bílslys. 7 voru látnir slasast og liðu ekki nema 2 tímar frá slysi þar til hinir slösuðu voru komnir á sjúkrahús á Ölafsfirði. Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Þegar list verður „théatre de la merde” Á Islandi starfa margar menning- arstofnanir, sem kosta mikið fé og flytja margvíslegan boðskap til iandsmanna í formum, sem hafa á sér yfirbragð listar en er lítið annað en margvíslegt dægurþras búið til sviösetningar. Mest ber á svonefndri alþýðulist, bæði í leikhúsum og á músíksviðinu, en hið ritaða orð er mestmegnis á stigi blaðagreina um ákveðin málefni. AUt þykir þetta gott og blessað og gengur undir samheit- inu list á tyllidögum og alþýðan virð- ist fagna, enda er mikið um popp í músíkinni og leikhúsin eru aUajafna full. Þá er bóksala með eindæmum og tíu málverkasýningar eru í gangi í einu. Stór hluti af þessari athafna- semi er greiddur af rikinu eða ríkis- reknum stofnunum, og þarf því ekki af peningaástæðum að Ieita tU alþýð- unnar um stuðning. Hér hefur öðru hverju verið bent á, að þótt mikJll fyrirgangur ríki í listum og hér sé staðsett norræn menningarmiðstöð, verði ekki vart neinna varanlegra menningarverðmæta, sem við getum verið stoit af, heldur sé um að ræða list, sem snýst mest um naflann á listamönnunum sjálfum og sé þeim til skemmtunar og dundurs. En þaö er á fleiri stöðum á jarð- kringlunni, sem Ula kemur heim og saman stofnanalist og raunveruleg list. Nýlega hafa orðið mlklar um- ræður um llstastofnanir i Frakk- landi, sem þykja úr hófi dýrar og pólitískar. I St. Etienne rak borgar- stjórinn yfirmann menningar- miðstöðvarinnar, sem er kommún- isti, ásamt framkvæmdastjóra ár- legrar kvikmyndahátíðar í borginni. Og í Nantes skáru borgarfuUtrúar niður f járveitingu tU listamiðstöðvar um verulega f járhæð og lýstu yfir að skipuleggjendur starfseminnar væru haldnir „öfugsnúnu verðmætamati” við val á verkefnum. Enn meira var skorið niður i Brest vegna „menning- arleiða”. Þetta eru ekki einu dæmin í Frakklandi. Þar virðist nú háð bar- átta um yfirráðin yfir alþýðulistinni. Menningarmiðstöðin í Nantes varö að deUumáU, þegar þar var sýnt leik- rit um samband mannsins við af- gang sinn. Michel Chauty borgar- stjóri hefur sagt, að blöðin hafi fund- ið kjarnann í verkinu með því að kaUa það: „Théatre de la merde”, (skitaleikhúsið). Aðrir borgarst jórar hafa kvartað undan því, að sósialist- ar notuðu menninguna í áróðurs- skyni og fylltu ibúana af pólitiskum viðhorfum sinum. Christian Cabal, aðstoðarborgarstjóri i St. Etienne segir, að fyrir vinstri menn sé menn- ingin pólitiskt áróðursafl eins og blöðin. Og annar borgarstjóri segir: Framvegis munum við halda okkur við „fasistíska” listviðburði eins og kammermúsík og lúðrasveitir. Sósíalistar eru auðvitað litið hrifn- ir af þessu framtaki franskra borg- arstjóra. En þeir fá ekki við það ráð- ið, að stórlega er dregið úr f járveit- ingum tU svonefndra lista, þar sem þeir stjórna ekki borgum. Hér verða fjárveitingar aftur á móti stöðugt hrikalegri. Þjóöleikhúsið er nú þann- ig statt, að ekki er tU fyrir launum um þessi mánaðamót. Þvi hefur lengl verið stjórnað af sósialistum, sem virðast hafa það eitt markmið að eyða peningum. Sjóðir eru nú tóm- ir, þótt ríkið borgi meira en jafnvirði bvers aðgöngumiða. Og í þessu húsi er verið að sýna hvert metverkið á fætur öðru í aðsókn, eigi að trúa blaðafulltrúanum og blöðunum, og varla um annað meira talað í fjöl- miðlum, komi eitthvert bullverkið á fjalimar. En við getum ekkert gert tU að draga úr „listinni”. Á sama tíma og veinað er yfir kjaraskerð- ingu, heimtar gáfumannaliðið að rík- ið borgi undir listapostulana. Það er ekki nema í Frakklandi, þar sem menn hafa þrek tU að segja að loka verði leikhúsum, þegar alþýðulistin er komin á það stig í höndum kjara- kröfuhópanna, að blöðin byrja að tala um „théatre de la merde”.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.