Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1983, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1983, Side 10
10 DV. ÞRIÐJUDAGUR30. AGUST1983. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Umsjón: Guðmundur Pétursson Menachem Begin, forsætisráö- herra Israels, lét á sér skilja um helgina að hann hefði hug á því að segja af sér og hætta afskiptum af stjómmálum. Hann hefur verið for- sætisráðherra í fimm ár og leitt þjóð sína á meðan til friðarsamninga sem fáir höföu þorað að láta sig dreyma um að gætu tekist. En hann hefur einnig leitt hana út í styrjöld sem vakið hefur upp gegn honum mikla andstööu, jafnt heima fyrir sem er- lendis. — Og allan tímann hefur það ekki farið leynt að Begin hefur átt við heilsubrest að stríða, svo alvarlegan að nægt hefði til aö buga margan manninn. Friðarverðlaun og herfarir Það eru margar mótsagnirnar í stormasömu lífi þessa umdeilda stjómmáiaforingja, sem fyrst gat sér orðstír fyrir hörkulega fram- göngu sem skæruliðaforingi ofstæk- ismanna í Palestínu en hlaut síðan 1979 friöarverðlaun Nóbels fyrir und- irritun friðarsamninga Israels við Egyptaland. Þó lét hann ekki líða lengra en þar til í júní 1982 áður en hann greip til hernaðaraðgerða til þess að flæma skæruliða Palestínu- araba burt frá nágrannalandinu Líb- anon. Á meöan Begin var fordæmdur af andstæðingum sínum erlendis sem ofstækisfullur þjóðernissinni og yfir- gangsseggur litu margir Israels- n enn hann sem þann harðskeytta leiðtoga er Israel þyrfti einmitt með. Æ ofan í æ gerði hann að engu til- raunir stjómarandstöðunnar til þess að kljúfa og fella samsteypustjóm hans, sem hann myndaði eftir seinni kosningasigur sinn í júni 1981. Eiginkonumissirinn þyngsta áfallið Begin komst til valda 1977 eftir 29 ár í stjómarandstöðu, þar sem han og flokkur hans biðu átta sinnum auðmýkjandi ósigra fyrir verka- mannaflokknum. Ættmennamissir í útrýmingabúðum nasista, Síberíu- vist, vinamissir í skæruhernaði gegn Bretum, kosningaósigrar, gagnrýni og bölbænir trúbræðra sem ann- arra.. . ekkert af þessu virtist megna að beygja harðjaxlinn. Né heldur alvarlegur heilsubrestur, eins og tvö hjartaáföll, eitt slag og mjaðmargrindarbrot, sem hann hef- ur orðiö að þola á seinni árum. En fráfall eiginkonu hans, Alizu, sem andaðist í nóvember 1982, eftir að hafa verið hans stoð og stytta í fjörutíu ár, virðist hafa gert útslagiö. Síðan hefur nánustu vinum hans og félögum fundist sem honum væri þrotinn viijinn til þess að sækja á móti brattanum. Stefna Begins Harðb'nustefna Begins í auknu landnámi gyðinga á vesturbakka Jórdanár og þversköllun við hvers konar hugmyndum um stofnun eigin ríkis Palestínuaraba féll í góðan jarðveg fylgismanna hans meðal austrænna gyðinga og rétttrúnaðar- manna. Undir þeirri stefnu hefur Israel boðið heimsálitinu byrginn og innlimað ríki sitt, Gólanhæðimar, sem hemumdar voru í stríðinu 1967, og síðan lýst Jerúsalem höfuöborg ríkisins, og þá arabiska hlutann þar með. Hin einstrengingslega þjóðemis- stefna Begins hefur nær leitt til ein- angrunar Israels á alþjóðavettvangi og á stundum hefur legið við vinslit- um Israels og Bandaríkjanna, sem hafa nánast veriö eins og sverð og skjöldur Israelsríkis á vígvellinum, á efnahagssviðinu og á diplómata- vellinum. En aldrei virðist Begin hafa efast um að hans leiðarljós sé það rétta. Fjöldamorðin í Líbanon I upphafi ver getið tveggja örlaga- mestu ákvarðana Begins. Friðar- samninganna við Egypta og innrás- arinnar í Líbanon í fyrra. Meö hinu síðara tókst honum að tvístra skæru- liðum Palestínuaraba um lönd ar- aba, en meðstórtjóni fyrir Líbanon. I I byrjun síðari heimsstyrjaldar var Begin handtekinn af sovéskum hemámsyfirvöldum og sendur til Si- beríu. Þegar Þjóðverjar réðust inn í Sovétríkin 1941 var honum sleppt og hann kom til Palestínu 1942 sem dáti úr pólska hemum. Foreldrasína og bróður missti hann í helför nasista. í skæruhernaði gegn Bretum I Palestínu héldu Bretar uppi eftir- liti meö skorðum þeim, sem settar vom að kröfu araba fyrir innflutn- ingi gyðinga. Síonistar skipulögðu neðanjaröarstarfsemi til þess að fara á bak við Breta og þegar undir- búningur hófst fyrir stofnun sjálf- stæðs rikis gyðinga tóku leynisam- tökin Haganah að búa gyöinga undir vopnaburð vegna átakanna sem framundan voru við araba þegar Bretar yrðu á brott úr Palestínu. Menn greindi á um baráttuaðferðir og þeir róttækustu stofnuðu skæm- liðasamtökin Irgun Zvai Leumi (þjóðarherinn). Enginn gekk harðar fram í hryðjuverkum en skæmliða- foringinn Begin. Bretar lögðu 10 þús- und sterlingspund til höfuðs honum (sem svaraði til nær 1,5 milljóna króna í dag). — Begin lét m.a. menn sína sprengja King David-hóteliö í Jerúsalem í loft upp en þar hafði breski herinn aðalstöðvar sínar. Um 100 manns f órust í sprenging unni. 29 ár í stjórnarandstöðu Hinir hófsamari innan Hagnah höfðu óþokka og raunar megnustu andúð á þessum starfsaðferðum. Þar á meðal var David Ben-Gurion, sem síðar myndaði fyrstu ríkisstjóm Israels og var burðarásinn í verka- mannaflokknum, þegar hann var stofnaður. Begin stofnaði þjóðemis- sinnaflokkinn Herut (Frelsi) ásamt öörum Irgun-foringjum og varð þing- flokksformaöur hans. Hann lét stöð- ugt meira að sér kveða í st jórnarand- stöðunni og umræðum á þingi og lá stjórninni mest á hálsi fyrir „friðar- dúfu”stefnu hennar. Ben-Gurion lýsti Begin einhvem tíma sem brjáluðum foringja skemmdarverkamanna og eitt sinn var borið á Begin að hann ætti í sam- særi um byltingu og valdarán. Bræðingur margra flokka Begin átti fyrst aðild í ríkisstjóm eftir sex daga stríöið 1967 þegar hann var ráðherra án ráðuneytis í þjóð- stjóm Levi Eshkol og átti sinn þátt í að móta þá stefnu Israels að neita að hörfa af hemumdu svæöunum. Gahal-samtök hans, sem mynduð- ust þegar Hemt og frjálslyndi flokk- urinn runnu saman, gengu út úr stjóminni 1970 í mótmælaskyni við að stjórnin sýndist ætla að fallast á friðaráætlun Bandaríkjamanna, er fólu í sér að Israel skilaði hemumdu svæðunum. 1973 sameinaðist Gahal öðrum smærri flokkum í Likud-sam- steypunni, sem í kosningunum 1977 fékk 45 þingsæti (af 120) og náði aö mynda meirihluta 77 þingmanna og binda enda á margra ára stjórnar- setu verkamannaflokksins. Stríð og friður ■ Það sama ár flaug Anwar Sadat Egyptalandsforseti í sína frægu ferð til Jerúsalem til þess að bjóða Israel- um frið, ef þeir vildu skila Sinaí- skaga og heita Palestínuaröbum sjálfsstjóm á vesturbakkanum og Gaza. Upp úr því hófust Camp Dav- id-viðræðurnar með milligöngui Bandaríkjastjórnar og þær leiddu til friðarsamningsins sem undirritaöur varímars 1979. Begin hefur alltaf túlkaö samning- inn þrengstum skiiningi og hefur ekki verið fáanlegur til aö veita Pal- estínuaröbum nema mjög takmark- aða stjóm eigin mála. 1981 rétt fyrir kosningar tókst hon- um að endurheimta nokkuð af fyrra fylgi með því að fyrirskipa loftárás tii aö eyðileggja kjamorkuver Iraka. Stjórn hans hélt því völdum áfram. Hefur henni tekist að lafa í þeim með naumum meirihluta, þrátt fyrir tíðar vantrauststillögur og margan álits- hnekki. Hinn barðlyndi skæruliðaforingi hefur aldrei þótt lipur í samningum, en Sadat tókst með aðstoð Bandarikjastjómar að semja um frið. A þlngfnnrii í Knesset (Begin annar fró vinstri í neðstu röð) en stjórn hans hef- ur lafað á naumum meirihluta þrátt fyrir æði margar vantrauststillögumar og aðrar atrennur stjómarandstöðunnar. þeim átökum og síðan hafa fallið um 500 ísraelskir hermenn. Andstæðing- ar Begins í Israel segja að innrásin hafi komið óorði á Israel, sem hafi fengið á sig yfirbragð blóöþyrsts heimsvaldasinna, og verstur hnekk- irinn hafi verið fjöldamorðin í flótta- mannabúöum Palestínuaraba í Sabra og Chatila sem unnin voru af h'bönskum bandamönnum Israela. Þótt Israelsstjórn setti á laggirnar sjálfstæöa nefnd til rannsóknar á fjöldamorðunum hefur hún ekki get- að þvegið hendur sínar af allri ábyrgð á því illvirki. Niðurstaða nefndarinnar birtist í skýrslu hennar er gerð var kunn í febrúar í vetur. Þar var fordæmdur hlutur Sharons vamarmálaráðherra í málinu og lagt til að hann yrði látinn víkja úr stjórninni. Sharon sagöi af sér en Begin skipaöi hann jafnfljótt ráð- herra án ráðuneytis. — Rafael Eitan yfirhershöfðingi og Shamir utanrík- isráðherra sættu gagnrýni í skýrsl- unni og Begin sjálfur slapp ekki viö ámæh fyrir „áhugaleysi” um ákvarðanir hersins, sem teknar höfðu verið af Sharon (um að senda falangistana inn í búðirnar vitandi um hefndarþorsta þeirra og brenn- andi hatur í garð PLO). Þó gekk það ekki svo langt að lagt væri til að Beg- in segði af sér. En þá fyrir skömmu hafði Begin misst eiginkonu sína og upp úr þessu hefur Begin æ sjaldnar komið fram fyrir almenningss jónir. Breyttur leiðtogi Það þótti óhkt Begin þegar hann tvísté frammi fyrir læknaverkfalhnu mikla og aftur þótti hann einkenni- lega hikandi þegar hann aflýsti upp úr þurru fundi sínum með Reagan forseta (í júh). Fjölmiðlar í Israel hafa viðrað efasemdir um póhtíska framtíð Begins og látið í veðri vaka að hann búi ekki lengur yfir þeim andlega síyrk sem þurfi til að stand- Allza, eiginkona Begins, og bóndi hennar á ferðalagi í New York. Frá- fall hennar virðist hafa náð því sem Rússar, nasistar, arabar og pólitískir andstæðingar og sjúk- dómar megnuðu aldrei — að beygja Begin. Tvö hjartaáföU, eltt slag og bylta, sem leiddi tU mjaðmargrindarbrots, hafa herjað á Begin síðustu árin. ast stormasama heimsókn til Wash- ington. Lenti í Síberíu Begin fæddist í Brest-Litovsk 16. ágúst 1913. Þá var það hérað í Pól- landi, en heyrir nú til Sovétríkjun- um. Menachem Wolfovitch Begin, eins og hann var skírður fullu nafni, lauk lagaprófi frá Varsjárháskóla 1932. A táningsaldri hreifst Begin strax af kenningum pólska gyöings- ins og zíonistans, Zeev Jaobtisky, sem á árunum 1920 til ’30 varð fyrst-’ ur manna til þess að réttlæta hugsan- lega valdbeitingu í Palestínu. Begin var aðeins 15 ára þegar hann gekk í raðir Betar, ungmennahreyfingar pólskra gyðinga, og lærði þar vopna- burð. Slíkur var eldmóðurinn aö hann átti sinn þátt í því að kjörorði Betar „Eg mun ekki rétta upp hönd nema til sjálfsvamar” var breytt í „Eg mun rétta upp hönd til varnar þjóð minni og til endurheimtar heimalandsmíns.” LEIÐARLOK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.