Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1983, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1983, Side 6
6 DV. ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGUST1983. Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Iðnsýningin í Laugardalshöll: EITTHVAÐ FYRIR ALLA, KONUR JAFNT SEM KALLA Ótalmargt er að skoða og sjá á sýnlngunnl. Glóðvolgii jójó hringir renna vel ofan í börnin. nMr nnl Má bjóða þér sælgseti.... .eða sildarbát? Þá er búiö aö opna dyr Laugar- dalshallarinnar aö Iönsýningu '83 og þegar hafa þúsundir manna lagt leiö sína á sýninguna. Á sýningunni sýna 120 fyrirtæki margvíslegan iðnvarn- ing og gefur því auga leiö aö margt eraðsjá ogskoöa. Viö brugöum okkur í Höllina dag einn fyrir stuttu til aö berja dýröina augum. Þótt klukkan væri ekki nema þrjú og nýr sýningardagur rétt aö byrja var þegar komin töluverö biö- röö viö miöasöluna. Greinilegt aö margir hafa ætlað sér að skoöa sýn- inguna í ró og næöi, lausir viö hinn gífurlega manngrúa sem iðulega kemur á sýningar í Hölhnni aö afloknum almennum vinnudegi. Inni í anddyri HaUarinnar eru bós- ar matvælafyrirtækjanna og þar iðar allt af Ufi. Uti í einu hornanna er bakarí, útibú frá Ragnarsbakaru í Keflavík og þar eru bakaðar fimm tegundir af jójóhringjum allan liðlangan daginn. Þar sem víöar er fólki gefinn kostur á aö smakka á vörunni og kaupa hana síðan á tU- boösveröi á eftir. Sælgætiö er fyrirferðarmikiU þáttur í matvælakynningunni og virt- ust krakkamir taka því fegins hendi aö fá aö smakka gottið í hverjum bás. Ekki amalegt aö geta skóflaö upp í sig ókeypis sælgæti. Gosið var heldur ekki langt undan, EgiU sterki sýnir veldi sitt í einum bás, í öömm skorar Sanitas á fólk aö smakka kók og pepsi og segja til um hvor drykkurinn sé betri. „Látiö bragðkirtlana ráöa ferðinni,’” sagöi fólkiö í þeim básnum við sýningar- gesti. VífUfeU bauö upp á kók, hvaö annað, og auglýsingamyndir. Svo var þarna t.d. síld og lax, ís og kaffi, smjörlíki og fiskiboUur. Meira að segja gamla og góöa lýsiö var á sínum staö. Þegar horft var yfir anddyriö kviknaði sú spurning hvort ekki væri hægt aö hafa svona markað allt áriö um kring. Byggja yfir einhverja götuna úr gleri og hita markaðinn upp meö heitu vatni. Víöa erlendis tíökast svona innimarkaöir en ekki hér þar sem þeirra er þó mest þörf sakir veöráttunnar. En áfram meö iðnsýninguna. Við emm komin í aðalsalinn og stöndum allt í einu innan um gínur í fjölbreyti- iegum fatnaöi. Stöku sinnum heldur einhver nærsýnn sýningargestur aö gínumar séu Ufandi og ávarpar starfsfólkiö. Þær þegja, gesturinn roðnar. Á kvöldin Ufna víst gínurnar viö, þá eru haldnar tískusýningar og gestum sýnt aUt hiö nýjasta í íslenskri fatagerö. I einum bás hjóla þrjár svartar gínur á gírahjólum, klæddar íslensk- um sportfatnaöi. Hinum megin viö gangveginn em tvær kanínur í búrum meö faUega löng hár. „Þaö má bráöum fara aö klippa þær,” segir stúlkan í Álafoss-básnum. Kanínurnar eru til að minna á þá nýjung hjá fyrirtækinu aö nota blöndu af uU af sauðfé og kanínum í fatnað. Leiöin Úggur framhjá húsgögnum og framleiðendur einingahúsa sýna í nokkmm básum. SkyndUega blasir viö sjónum vélmenni sem lyftir glös- um og mælir á íslenska tungu. Aö vísu er hreimurinn kominn frá Bandaríkjunum en þaö er auka- atriöi. Annað vélmenni er á öörum stað, það lyftir kubbum og er þögult. „Nei, þarna er hann Sævar,” segir gestur og bendir á eina mynd í sýningarbás Ljósmyndastofu Gunnars Ingimarssonar. MáUö er athugaö, þetta er ekki Sævar, bara einhver líkur honum. Áfram er haldiö. „Hvaö er aö sjá í bás nr. 81,” segir þulan hjá útvarpi sýningarinnar. Þaö er skundaö þangaö. Og sjá, hér er verið aö kynna málningu. Slæmt aö maður skuU ekki aö vera aö mála núna, tautum viö og röltum lengra. Innst í aðalsalnum er búiö aö reisa heilt hús. Þaö eru nokkur fyrirtæki á Suöurnesjum sem byggt hafa húsið í sameiningu og er þaö hið glæsileg- asta. Viö hUðina eru boUar og diskar og fleiri varningar frá GUt til sýnis. Þá er þaö neöri salurinn. Meiri húsgögn, ofnar, dekk, veifur og umbúðir. Við höfum ekki undan aö skoöa básana, taka á sýningargrip- unum, spyr ja um verö. Heyröu, viö gleymdum útisvæðinu. Þaö er ranglað þangaö framhjá bát- unum og inn í litiö hús. Þar er verið að kynna framleiðslu ýmissa fyrir- tækja, BM Vallá, Steypustööin, Hampiöjan og hvaö þetta nú allt heitir. Stóriöjan fær einnig aö fljóta meö, járnblendiö og áUö. Við erum komnir meö stjörnur í augun, orönir hálfringlaöir enda höfum viö þeyst um svæöiö á miklum hraða, ekki gefiö okkur nægUegan tíma eins og hverjum sýningargesti er nauðsynlegt. Og þar meö er búið aö drepa aUs staðar niður fæti. Og sýningin, hvernig er hún? Góð, allténd vel peninganna viröi. Það ætti aUa vega enginn aö þurfa aö lóta sér leiöast í HöUinni þann tíma sem sýningin stendur, en henni lýkur 4. septem- ber. -sa. Kanínan hjá Álafossi fær nýtt vatn. Giit sýnir fjölda muna úr ieir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.