Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1983, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1983, Síða 7
DV. ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGUST1983. 7 Neytendur Neytendur Neytendur Júlíseðlarnlr streyma inn enda stutt til mánaðamóta. Með sumum þeirra fáum við bréf sem eru vel þegin. DV-mynd EÓ. Neytendaraddir um landshomabókhaldið Senn líður að einum mánaðamótun- um enn. Hjá okkur er tíminn í kringum mánaðamót meðal annars helgaður heimilisbókhaldinu. Upplýsingaseölar til samanburðar á heimiliskostnaði júlimánaðar streyma inn og með þeim sumum bréfkorn. Kostnaður vegna heimilis er óbrigöult umræöuefni, reyndar dró ofurlítið úr vinsældum þessa fasta umræðuþáttar manna á meðal um miðbik sumars hér á suðvesturhorn- inu. Veðrið komst í efsta sæti. Nú má vart á milli sjá hvort umræöuefniö, dýr heimilisrekstur eöa veðrið, hefur betur. Tölurnar í heimilisbókhaldi okkar hér á neytendasíðunni ýmist hryggja eða gleðja. Stundum valda þær jafnvel deilum og það milli hjóna sem er nú dulítið slæmt. Góö vísa er aldrei of oft kveðin, því verður hún kveðin hér enn og aftur. Tölur þær sem birtast hér mánaðarlega í okkar heimilisbókhaldi eru meöaltalstölur. Á sumum heimil- um er útkoman á búrekstrinum sú að hver einstaklingur neytir matar (og notar sápur og aðrar hreinlætisvörur) fyrir ja, segjum eitt þúsund krónur. A næsta heimili er sami kostnaður á ein- stakling þrjú þúsund krónur. Við blöndum saman heimilisrekstri beggja heimilanna og fáum út meðaltals- kostnað á einstakling tvö þúsund krónur. Þetta eru aðeins einföld dæmi til að fylla í vísuna litlu fomu og marg- kveönu. Þessi útkoma gæti valdið deil- um á því heimili þar sem neyslan er þrjú þúsund krónur en aftur glatt hjörtu þeirra sem búa á þúsund króna heimilinu (og þeir hugsa . . . aldeilis tekstmérvelupp). • Viö eram þegar farin að glugga í upplýsingaseðlana með júlítölum en útreikningur bíður síns tíma. Bréfin sem okkur berast með seðlunum eru okkur afar kær og vel þegin. Mættu hverri viku þau vera fleiri því að í þeim má oftast finna réttan neytendatón. Stiklum viö á nokkrum „röddum neytenda” öðrum lesendum en bréfriturum til fróöleiks. Eitt. bréf barst okkur frá Svíaríki sem undirritað er: Einn á heimleið. I bréfinu segir: Eg var að lesa Dag- blaöið-Vísi mánudaginn 8. ágúst og sá þá þetta skemmtilega landshoma- bókhald. Eg hélt að þið hefðuð kannski gaman af að sjá okkar tölur fyrir júlímánuð hérna í Svíaveldi, tölurnar eru reiknaðar yfir í íslenskar krónur (gengi 3,6). Þessi mánuður varö heldur dýrari en vanalega vegna sumarleyfis. Við leyfðum okkur aðeins meira í sumarfríinu en aðra daga, til dæmis keyptum viö einn bjórkassa og eina viskíflösku . .. . „Annað” á seðlin- um er það sem flokkast undir alveg ónauðsynlegan varning, til dæmis sælgæti, gos, blöð, hljómplötur og svo framvegis. Ég vil taka þaö fram að við reykjum ekki, fórum einu sinni í bíó og aldreiá ball. Svo getur maður spurt sig hvort maður hafi það betra í Svíþjóö eða á Islandi? Fyrir utan það að það er drep- leiðinlegt hér. Tímakaupiö er um það bil 40 krónur sænskar eða 144 íslenskar krónur (verkamannalaun). Svo aö lokum vil ég þakka DV fyrir góða þjónustu. Einn á heimleiö. P.S. Viö höfum haldið bókhald í tæpt ár. Viö bjóöum þá sem eru á heimleið velkomna heim í dýrtíðina og góða veðrið og þökkum bréfið. Á upplýsingaseðli þessarar fjölskyldu, en þrír einstaklingar fylla þennan fjölskyldukvóta, sýna tölur að matar- kostnaður í Svíaríki er síst lægri en hér. Á seðlinum eru kr. 7.747,- fyrir mat og hreinlætisvörur. I annaö hafa farið 2.945,- krónur, samtals eru út- gjöld kr. 10.692,- Við gerum ekki ráð fyrir að húsaleigukostnaður, hiti, rafmagn eða sími sé í heildar- upphæðinni. Bréfritari segir í bréfi sínu aö „annaö” sé ónauösynlegur vamingur. Til samanburðar á þessum tölum frá Svíþjóð litum við á þrjá seðla frá jafnmörgum fjölskyldum hér, alla frá þriggja manna fjölskyldum. Á fyrsta seðlinum var þriggja manna fjölskylda með kr. 3.870,- í mat og hreinlætisvörur, næsta kr. 5.613,- og sú þriöja kr. 12.383,- Meðaltal á einstakling er kr. 2.582,- hjá f jölskyldunni í Svíþjóð, þeirri fyrst- nefndu hér heima kr. 1.290,- næstu 1.871,- og síðustu kr. 4.128,- Meðaltal á einstakling í fjölskyldunum þremur sem búsettar eru iiér er 2.430 krónur en meðaltal einstaklinganna þriggja í Svíþjóð er 2.491,- Dæmið um fjöl- skyldumar þrjár breytist sjálfsagt mikiö um næstu mánaðamót þegar reiknaðir hafa verið allir upplýsinga- seðlar frá þriggja manna f jölskyldum. Næst grípum við niður í bréf að austan en þar segir meðal annars: „Tölurnar á júlíseðlinum eru æði skrautlegar en engin sérstök skýring eráþeim. Afborganir af lánum, bensín og fleira og fleira er fljótt að koma í hvern „þúsundkallinn”. I mat og hreinlætisvörur fóru litlar 8.307 krónur (4 í heimili), þar af 1.150 krónur vegna þriggja daga ferðalags. En á ferðalögum er fæöið alltaf dýrara hjá okkur en heima...” I öðru bréfi, sem kom að noröan, segir bréfritari: „Eg sendi núna í fyrsta skipti og vonandi kemur hann ekki allt of seint. Liðurinn „annað” er frekar hár því tvo víxla þurfti að greiða, rafmagn og þess háttar. Alltaf heldur maður í vonina og vonar aö út- gjöldin verði lægri um næstu mánaða- mót.” Hér látum við staðar numið um „landshornabókhaldiö” og neytenda- raddir í bili, meira á næstu grösum. -ÞG. Rangt hringaverð Við misskildum hvor aöra á dögunum, ég og afgreiðslustúlkan í Ragnarsbakaríi í Keflavík. Ég spurði um verð á jójó hringjum en fékk upp verö á kleinuhringjum. Nú er það svo að jójó hringirnir eru mun stærri en kleinuhringirnir og því dýrari. Þeir kosta 10 krónur á Iðn- sýningunni í Laugardalnum. Það er ennþá eini staðurinn sem þeir fást á. I framtíðinni verða þeir hins vegar seldir víða en þá á 15 krónur stykkið. Bið ég fólk aö afsaka við okkur bakarísstúlkuna þennan rugling. DS. EINBÝLISHÚS ÚTI Á LANDI Litið, snoturt einbýlishús tilsölu i Grundarfirði. Hagstæðir greiðsluskilmálar. Næg atvinnutækifæri fyrir ungt fólk á staðnum. Upplýsingar í sima 93-8703. SEGLSKÚTA TIL SÖLU Af sérstökum ástæðum er seglskútan Lýsistrata IL- 2 til sölu ef viðunandi tilboð fæst. Lýsistrata er 8,05 m á lengd, 2,9 m á breidd, með góðu svefnrými fyrir f jóra fullorðna, mjög góð inn- rétting með kortaborði, eidunar- aðstöðu og salerni. í bátnum er Volvo-penta innanborðsvél, Wall- as miðstöð, tveir vegmælar, dýptarmælir, Saturn kompás. Fullkominn seglabúnaður: tvírif- að stórsegl, einrifuð stórfokka (Genoa), fokka, stormfokka og belgsegl (spinnaker). Lýsistrata er góður kappsiglari sem hentar einnig til fjölskyldusiglinga og ferðalaga. AUar frekari upplýsingar í síma 96-24696. œasjö^j^jíjösjejösjíjíjíj^xjöösjsjíjaíjsjssjatfaö^. BARON borðreiknivél með strímli Lipur Létt Kynningarverð kr. 3.980,- Hljóðlát Örugg SENDUM UM LAND ALLT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.