Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1983, Page 9
DV. ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGUST1983.
9
Útlönd Útlönd
Glistrup í
steininn á
fimmtudag
Mogens Glistrup, stofnandi
Framfaraflokksins danska, mun á
fimmtudaginn hefja afplánun tveggja
og hálfs árs fangelsisdóms fyrir skatt-
svik. Mikill fjöldi fréttamanna víös-
vegar úr heiminum er væntanlegur til
Danmerkur til aö fylgjast meö því er
Glistrup mætir í fangelsið.
Glistrup skilur við flokk sinn í
sárum og er flokkurinn nú bæði klofinn
í afstöðunni til ríkisstjómarinnar og til
Glistrups sjálfs.
— Lena Glistrup, hin 57 ára gamla
eiginkona hans, stendur eftir eignalaus
er maður hennar fer í fangelsiö og
heföi vafalaust átt fjárhagslegt basl
fyrir höndum, ef auðjöfurinn Simon
Spies, sem er fjölskylduvinur Glistrup-
hjónanna, hefði ekki komiö henni til
hjálpar. Sama dag og Mogens Glistrup
mætir í fangelsið mun Lena nefnilega
hefja störf hjá Simon Spies og er ekki
að efa að ferðakonungurinn Spies mun
greiða Lene, sem er lögfræðingur að
mennt, mannsæmandi laun.
„Nú eru fjármálavandamál mín
leyst. Þökk sé Símon Spies. Hann hefur
reynst okkur sannur vinur í neyð
okkar,” sagði Lene í samtali við
danska fréttamenn.
Lene Glistrup er nú varaformaður
Framfaraflokksins og segist staðráðin
í að halda því embætti þar til maður
hennar losnar úr fangelsi. -GAJ í Lundi.
Mogens Glistrup fer i fangelsið á
fimmtudag en Simon Spies sér fyrir
konunni á meðan.
Reguliri
Abni'hineii
und Schlank-
bleiben
Biologisch
hochwertige
Ehvéjlt-Kou
Kifi'tr.k .Vmwm.'iffcAe.-... <i
Regulin
Ertu í vandræðum með þyngdina? Þá er REGULIN
lausnin. Þú notar Regulin sem súpur, mat og drykk og
ert aldrei svangur en þú léttist. Regulin hentar öllum.
Póstsendum — sérsakt kynningarverð.
Útsölustaðir:
Æfingastöðin Engihjalla 8, Kóp.
Baðstofan Þangbakka 9, Rvík.
Þrekmiðstöðin Dalshrauni 4, Hafnarf.
Árbæjarkjör, Rofabæ 9, Rvík.
124 - REYKJAVÍK
SÍMI 66375
r
NOTAÐIR LYFTARAR í MIKLU ÚRVALI
Eigum til afgreiðsiu nú þegar eftirtalda lyftara:
Rafmagns-
1,5Tm/1. h. 330 m
2,0 Tm/1. h. 540 m
2,5 T m/1. h. 330 m
3.5Tm/1. h. 350 m
Disil-
2,0 Tm/húsi
2,5 T m/snúningi
3,0 T
4,0 Tm/húsi
Eigum ennfremur snúninga 180° og 360°.
Skiptum og tökum í umboðssö/u.
Upplýsingar: Lyftarasalan hf.
\
Sovéska geimfara
dreymir um veiðar
Sovésku geimfararnir Vladimir
Lyakhov og Alexander Alex-
androv, sem nú hafa verið tvo mán-
uði úti í geimnum, láta sig dreyma
um aö komast heim og fara í veiöi,
að sögn sovéska dagblaðsins
Pravda. 1 greininni segir einnig að
geimfaramir hafi átt erfitt meö að
sofa fyrstu dagana í geimnum og
því oröiö að nota svefntöflur. En nú
hefðu þeir vanist þeim óþægindum
sem af þyngdarleysinustafa.
„Okkur þykir báöum gott aö
sofa,” er haft eftir Alexandrov.
Það hefur verið túlkað svo að
vinnuálagiö á geimförunum sé
mikið og þeir orðnir þreyttir.
UPPLÝSINGAR GEFUR:
K. JÖNSSON & CO. HF.,
VITASTÍG 3, SfMAR 26455 og 12425.
Álverð
fer hraö-
hækkandi
Meðan lítil hreyfing er á álmarkaðin-
um í London er þar nú á ein undantekn-
ing, segir í bandaríska blaðinu Wall
Street Journal. Sú undantekning er að
eftirspurn og verð á áli fer hraðhækk-
andi. Verð á áli hefur hækkað um 20%
frá því í maí sl. og er nú 1070 pund á
tonnið. Það er birgðaskortur og aukin
eftirspum sem veldur þessum bata en
aukin eftirspurn eftir rafmagnstækj-
um og öörum varanlegum neyslu-
vörum hefur ýtt verði á áli upp á við.
Samkvæmt greininni i Wall Street
Joumal er áliönaðurinn vel settur og
enn gott útlit fyrir hækkandi verð
vegna þess hversu mjög hefur dregiö
úr framleiðslu á síðustu árum. Sem
dæmi er tekið að fyrir nokkrum árum
fluttu Japanir út ál en nú flytja þeir
málminn inn.
Hin aukna eftirspurn viröist hafa
komið framleiöendum á óvart. Segir í
Wall Street Joumal að birgðir fram-
leiðenda svari nú til tveggja og hálfs
mánaöar miðað við eftirspum og eftir-
spurnin sé svo mikil að um áramót
muni framleiðendur ekki eiga nema
tveggja mánaða birgðir, að öllum lík-
indum. Líklegt er að eftirspurn verði
meiri en framboð enn um sinn og verð
á áli hátt meöan framleiöslan er svo
miklu minni en þörfin.
Útiönd
Bolholt
Allt á fullt 5. sept.!
Lokaðir og framhaldsfl. ath.!
4 vikna haustnámskeið
Opnum eftirtalda flokka:
4.30 m.m. ( 9.15 þ—f)
5.30 m.m. (10.15 þ—f)
6.30 m.m. hádegistími 12.05
7.30 m.m.
8.30 m.a. (1.30 þ—f)
Þær sem ætla að vera í framan-
töldum flokkum á vetrarnám-
skeiði, en koma ekki á haust-
námskeið, láti okkur vita
STRAX svo við getum tekið frá
plássin, annars ganga þær
fyrir sem taka tímana núna á
haustnámskeiðin.
Nú hættum við að slóra
og störtum Bolholti með
„sæluvikustemmningu"
Kennarar: Bára og Anna
(yf irkennari í jassb.)
Gjald með ljósum 1.200.
Innritun i síma 36645.
Suðurver
50
mín-
útna
kerfi
JSB
með
músík
Allt á fullu í
Suðurveri!
Nú er það 4ra vikna haust-
námskeið 5. sept.
★ Áfram með kúrana, tímar 4
sinnum í viku.
★ Nýir og spennandi
matarkúrar.
★ Opnum alla flokka.
★ Morgun-, dag- og
kvöldtímar.
★ Tímar tvisvar og 4 sinnum í
viku.
★ „Lausir tímar” fyrir vakta-
vinnufólk.
★ Sturtur — sauna —ljós
(innifalið).
Ath.: afsláttarkort
í sólbekkina í Bolholti.
Það er frábær stemmning í
Suðurveri núna.
Sjáumst léttar og/eða
kátar.
Suðurveri —
Líkamsrækt JSB Boihoiti6.
Kennarar:
Bára,
Sigríður
og
Margrét.