Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1983, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1983, Side 28
28 DV. ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST1983. Andlát Marinó Guömundsson, er lést 21. ágúst, verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju miðvikudaginn 31. ágúst ki. 15. Minningarathöfn um Ragnhelði Hansen Þorsteinsson, Uthlíð 4 Reykja- vík, fer fram í Dómkirkjunni í Reykja- vík fimmtudaginn 1. sept. og hefst kl. 10.30. Jarðsett verður að Húsafelli síð- degis sama dag. Kristbjörn Tryggvason, læknir, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 31. ágúst kl. 13.30. Stefanía Sigurðardóttir, dvalarheimil- inu Hlíö Akureyri, veröur jarðsungin frá Akureyrarkirkju á morgun, miövikudaginn 31. ágúst kl. 13.30. Guðmundur Ágúst Gíslason, pípulagn- ingameistari, Hjaltabakka 28, verður jarösunginn frá Fríkirkjunni miöviku- daginn 31. ágúst kl. 13.30. Ásta Jónsdóttir, Túngötu 43, lést á heimili sínu laugardaginn 27. ágúst. Eiríkur Garðar Gíslason, rafvirkja- meistari, Kleppsvegi 140, lést í Landa- kotsspítala aðfaranótt 27. þ.m. Árni Þorsteinn Árnason, fv. lóöaskrár- ritari, lést sunnudaginn 28. ágúst. Ragnheiður Stefánsdóttir frá Star- mýri, Hátúni 10A, andaðist í Land- spítalanum 5. ágúst. Jaröarförin hefur fariö fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sigríður Guðjónsdóttir, Langagerði 126, andaðist í Landspítalanum 28. ágúst. Guðrún Sörensen, Kleifarvegi 8, andaðist í Borgarspítalanum 27. ágúst. Ernst Georg Berndsen andaöist aö heimili sínu, Karlsskála Skagaströnd, 21. ágúst sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. ALUÞETTA FYRIR AÐEINS 100 KRÓNUR Velkomin á Iðnsýningu 83 í Laugardalshöll. Stórkostleg sýning á íslenskriframleiðslu. 120 sýnendur kynna framleiðslusínaog þjónustu á um 4000 m2 sýningarsvæði. Vörukynningar, kynningarafslættir, tölvur, vélmenni (eitt þeirra hefur núþegar lærtsvolítiðí íslensku), tískusýningar og margtfleira. Happagestur dagsins hlýturvinning og skemmtikraftartroða upp. Gagn og gaman fyrir aðeins 100 krónur-fyrir fullorðna, 40 krónurfyrir börn 6-12 ára og frítt fyrir þau yngstu. Þið látið Iðnsýningu 83 ekki fram hjá ykkur fara. ÍSI£NSKFR4MflD AÐNAÐIBVGGÐ lEDNSVNING 19/8-4/9 ILAUGARDALSHÖLL FELAG ISLENSKRA ÐNREKENDA 50ÁRA í gærkvöldi____________I gærkvöldi ALLTAF TAKA DANIR NIÐUR BUXURNAR Alltaf eru Danir samir við sig. Allt- af þurfa þeir að sýna berrassað fólk í sjónvarpsleikritum sínum. Ein- kennileg árátta það. Ekki voru liðnar margar mínútur af dönsku myndinni Þursabit í sjón- varpinu í gærkvöldi er tekist hafði að sýna bæði karl- og kvenlíkama í allri sinni nekt. Þar með hafði leikstjór- anum tekist að uppfylla það sem virðist vera regla númer eitt hjá dönskum kvikmyndagerðarmönn- um. Eg fæ ekki í fljótu bragði séð hvaöa nauðsynlega tilgangi þessar stripl- ingasenur Dananna eiga aö þjóna. Sjálfsagt kenna danskir kvikmynda- skólar að meö þessu náist fram ein- hver hughrif hjá áhorfandanum. Einhvem tíma þótti þetta spenn- andi. Þannig var það aö minnsta kosti þegar ég var smágutti. Þegar danskt leikrit var annars vegar var alltaf gaman að laumast til að horfa á. Eg held aö flestum þyki þetta orðiö hvimleitt. Þetta er orðið þreytt. Dan- irnir verða að beita öörum aðferðum til aö grípa áhorfandann. Annars þótti mér gaman að dönsku myndinni. Hún hefði ekki verið verri þótt leikaramir hefðu haldið nærbux- unum uppiumsig. Hvemig er það annars með hinar opinberu byggingar á Islandi. Hvers- vegna skyldi engin þeirra hafa gull- húð utan á rúðunum? Þannig varð mér hugsað þegar ég horfði á þýsku myndina um gulliö. Þar var sýnt hvemig gullþynnur eru notaðar utan á rúður. Eftir öðru fannst mér það passa við höll eins og þá sem hýsir Fram- kvæmdastofnun aö hafa gyllta glugga. Það væri ekki amalegt fyrir kommissarana að horfa í gegnum gull úr eldhúsinu meðan steikunum væriskolaðniður. Verst er hve lítiö gull er að finna á bak við peningaseðla sem notaðir em á erfiöleikatímum til að reisa Seölabankahús, rafveituhús eða aðr- ar glæsibyggingar hins opinbera. Kristján Már Unnarsson. Jóhannes Ólafur Guðmundsson er lát- inn. Hann fæddist 12. júlí 1922, sonur Guðlaugar Einarsd. og Guðmundar Jóhannessonar. Að loknu kandidats- prófi í viðskiptafræðum frá Háskóla Is- lands hóf Jóhannes störf hjá föður sín- um í fyrirtækinu Magnús Th. S. Blön- dal hf. og tók svo við framkvæmda- stjóra þar. Eftirlifandi eiginkona hans er Þóra Guöjónsdóttir. Eignuðust þau fjögur böm. Utför Jóhannesar verður gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 1330. Gunnar Pétursson lést 21. ágúst sl. Hann var fæddur í Reykjavík 6. júli 1926, sonur hjónanna Péturs Guð- mundssonar og Halldóru Samúelsdótt- ur. Gunnar var einn af eigendum og starfsmönnum Málarans hf. Hann var kvæntur Sigrúnu Guðbjarnardóttur en hún lést á síöastliðnu hausti. Þau Gunnar og Sigrún eignuðust tvær dæt- ur. Utför Gunnars verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 15. Sólveig Bjamadóttir Ansnes lést 21. ágúst sl. Hún var fædd í Vík í Mýrdal 24. maí 1909, dóttir hjónanna Bjama Kjartanssonar og Svanhildar Einars- dóttur. Hún giftist Þorvaldi Ánsnes, en hann lést árið 1971. Þau hjónin eignuð- ust þrjú börn, eru tvö á lífi. Utför Sólveigar verður gerð frá Dómkirkj- unniidagkl. 15. Ólafur Tryggvason bókbandsmeistari lést 22. þ.m. Hann var fæddur aö Hól- um í Vopnafirði 28. ágúst 1902. Foreldr- ar hans voru Tryggvi Helgason og Kristrún Sigvaldadóttir. Árið 1933 hóf hanr.nám í bókiðn.TilKaupmannahafn- ar fór hann árið 1939 og stundaði þar nám í fjóra mánuði og tók að því loknu sveinspróf.Aðalvinnustaðir Olafs eftir að sveinsprófi lauk voru Félagsbók- bandið, Bókfell og síðast Gutenberg. Hann var kosinn í stjórn Bókbindarafé- lagsins árið 1942 og var þar f jármála- ritari til ársins 1949. Hann var skip- aöur prófnefndarmaður árið 1951 og gegndi því starfi til 1963 og trúnaðar- maður var hann fyrir félagið þegar hann vann í Gutenberg. Hann skrifaði greinar í Bókbindarann, blað bókbind- arafélagsins um sniðgyllingu og fleira. Eftirlifandi eiginkona hans er Sigríður Jakobína Sigurgeirsdóttir. Þau eignuð-; ust þrjú böm. Utför ólafs var gerð frá Dómkirkjunni í morgun kl. 10.30. Ferðalög Hallgrímsk irkja — starf aldr- aðra Vetrarstarfiö hefst meö ferö í Skálholt fimmtudaginn 1. september. Upplýsingar í síma 39965 eöa síma 10745. l ■ 1 ■■ Knattspyrna Knattspyrnuráð Reykjavíkur Þriðjudagur 30. ágúst. Hm. 1. flokkur Melavöllur Fylkir—Léttir 18.30 KR Miðvikudagur 31. ágúst. HM 5A Valsvöllur Valur—Fram 18.00 Fylkir HM. 5B Valsvöllur Valur—Fram 19.10 Fylkir Hm. 4A Framvöllur Fram—Valur 18.00 IR Hm. 4B Framvöllur Fram—Valur 19.10 IR Afmæli 75 ára afmæli á í dag, 30. ágúst, Agúst Sæmundsson, Sólheimum 23 Reykja- vík. Hann er fæddur á Akranesi, sonur Sæmundar Guðmundssonar kennara og ljósmyndara, sem síðar fluttist til Hafnarf jarðar, og konu hans Matthild- ar Helgadóttur frá Flateyri við önund- arfjörð. Hann ólst upp á Svarfhóli í Stafholtstungum hjá Jósef Bjömssyni bónda þar. Fór 20 ára til Noregs og lauk prófi við teknískan rafmagns- skóla. Vann í 15 ár hjá Landssíma Is- iands en hætti þar og rak efnalaug og þvottahús um árabil. Síöan stofnaöi hann niðurlagningarverksmiðjuna Síldarrétti en hefur nú selt þessa starf- semi yngri mönnum. Agúst er kvæntur Rögnu Jónsdóttur. Þau dveljast nú á Grand hotel Vama, Drushba, Búlgaríu. 85 ára afmæli á i dag, 30. ágúst, Guðjón Guðjónsson, trésmiður, Eiríksgötu 25 hér í Reykjavik. — Hann var trésmið- ur í trésmiðjunni Völundi og hætti þar fyrir um tveimur árum, en þá hafði hann starfaö þar við iön sína í 60 ár. Eiginkona Guðjóns er María Valgerð- ur Jónsdóttir. — Hann er að heiman. 85 ára afmæli á i dag, 30. ágúst, Sigur- jón Jóhannsson fyrrum yfirvélstjóri, Skeggjagötu 6 hér í borg. Hann var um árabil á skipum Sambandsins og var þar uns hann hætti sjómennsku. Er í land kom, var hann eftirlitsmaður á Stúdentagörðunum um skeið. Eigin- kona Sigurjóns er Jóna Guðrún Þóröardóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.