Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1983, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.1983, Qupperneq 36
o<$<$-aHt safi. ÁRMÚLA 38 REYKJAVlK, SÍMI82186 OG 83830. 27022 ÁUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA33 SMÁAUGLÝSINGAR—AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR ÞVERH~LTI 11 86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14 ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1983. HVAR ER SKIPSTJORINN? Það er bílstjóri í bílnum en enginn skipstjóri i brúnni enda kjölurinn á bak og burt. í upphaflegri mynd sinni mun skipið hafa heitið Friðrik Sigurðsson og þarna er brú þess á leið austur í Dyrhólaey. Þar mun hún þjóna því hlutverki að skýla vél sem knýr spil og dregur báta af og á sjó. -EIR/DV mynd Sveinn. RIKISSJOÐUR ÞOUREKKI SKJtrmuEKKAm — segir fjármálaráðherra um f járlagaf rumvarpið 1984 FYRSTA TAPIÐ Karl Þorsteins hélt jöfnu gegn Klnverjanum í biðskákinni úr 6. umferð en í gær áttu íslensku strák- amir í höggi við þá bandarísku og vegnaði miður. Margeir barðist í bökkum gegn Kudrin en tókst aö snuða andstæðinginn um vinning og hélt jöfnu. Jón L. hafði ögn betur gegn Fedorowicz, en ekki nóg til vinnings og lauk þeirri skák einnig með jafntefli. Jóhann tefldi með svörtu gegn Wildersem lék mjög djarflega, fórnaði manni og náði bullandi sókn og beiö Jóhann ósigur í þeirri-rimmu. Karl gerði jafntefli við Whitehead á 4. boröi og lyktaði þá umferðinni með bandarískum sigri, 2,5-1 þ, og er þetta fyrsti ósigur íslensku sveitarinnar. Sovétmenn unnu V-Þýskaland 3—1, England vann B-sveit Bandaríkjanna 3—1, Kína vann Skotland sömuleiðis 3— 1. Eru þá sovésku piltarnir aö vonum langefstir með 21 v., 2. Bandaríska A-sveitin með 185 v., 3.-4. Island ogl Kína með 17,5 v., 5.-8. England, Frakkland og V-Þýskaland með 16,5 v. 1 dag keppa okkar menn við Þjóðverjana en eftir það verður róöurinn ívið léttari í þremur síðustu umferðunum, hvort sem það nægir þeim til að hreppa annað sætið. -BH. Fjárlagafrumvarpið fyrir 1984 var til umræðu á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun og þar gaf Albert Guðmunds- son fjármálaráöherra upplýsingar um þær áætlanir sem gerðar hafa veriö á vegum ráöuneytisins. Búist er viö aö áætlanir um helstu liði fjárlagafrum- varpsins liggi fyrir innan viku. Gert er ráð fyrir mikilli tekjurýrnun ríkissjóðs á næsta ári. Þannig er áætl- að að söluskatts- og innflutningstekjur lækki um allt að 1800 milljónir króna á næsta ári miðað við verðlag í lok þessa árs en það eru um 10% af heildarút- gjöldum ríkissjóðs á þessu ári. Albert Guðmundsson sagði í samtali við DV í morgun að forsendur f járlag- anna væru meðal annars að gengi yrði haldið stöðugu, vextir lækkuðu reglu- lega út áríð í samræmi við lækkun verðbólgu og að ekki yrði veitt svig- rúm fyrir miklar launahækkanir. „Við höfum verið að reyna að finna smugur fyrir skattalækkanir en svig- rúmið er ekki neitt,” sagði fjármála- ráðherra. „Ástandið er miklu verra en við gerðum okkur grein fyrir í kosn- ingabaráttunni.” Taldi hann að engar verulegar skattalækkanir kæmu til við álagninguánæstaári. -OEF PULSUVAGN VANTAR MÁLGAGN — Ásgeir Hannes Eiríksson pulsusali hefurfullan hugáað kaupa Helgarpóstinn „Fyrir ári lýsti ég yfir áhuga minum á því að kaupa Helgarpóstinn en hef enn ekki fengið endanlegt svar,” sagði Asgeir Hannes Eiríks- son, eigandi pulsuvagnsins í Austur- stræti, í samtali við DV í gær. „Til grundvallar áhuga mínum lágu og liggja enn tvenns konar ástæður. I fyrsta lagi langaöi mig til að skipta um vinnu, finna annaö starf í stað pulsusölunnar sem ég hef stundaö í fimm ár. í öðru lagi vantar pulsuvagninn málgagn til að vinna að baráttumálum sinum en þau eru; helst að menn hjálpi sér sjálfir og öðrum umleið.” Ekki vildi Ásgeir segja hversu stórri fjárupphæð hann væri tilbúinn að verja til kaupa á blaðinu, það myndi koma í ljós á sínum tíma. Þreifingum væri haldið áfram. -EIR. RALLIÐ EKKI STÖÐVAÐ -- segirOlafurWalter Stefánssoní dómsmálaráðuneyti „Þetta mál var kannað á Selfossi í gær, þar sem rætt var við keppend- ur. Niðurstöður eru þær að dóms- málaráöuneytið mun ekki stöðva Is- landsralliö,” sagði Olafur Walter Stefánsson í dómsmálaráðuneytinu. Náttúruvemdarráð hafði beint þeim tilmælum til ráðuneytisins að það stöðvaöi Islandsrallið meðan fram færi rannsókn á því hvort þátt- takendur þess hefðu ekið leiðir sem vorubannaðar. Sigurður Helgason sýslumaður í N.-Múlasýslu sagði í viðtali við DV að grunur léki á að þátttakendur i rallinu hefðu ekið á leiðum sem voru bannaðar. „Þeir fóru yfir Jökuldalinn, sem er stranglega bannað,” sagði Sigurður. „Við höf- um skilað skýrslu til dómsmálaráðu- neytisins um þetta mál en vinnum jafnframt ennþá að rannsókn þess.” -JSS Sjánánarábls. 2. MAÐURKÆRÐUR FYRSR NAUÐGUN - kom fram vilja sínum meðþvíað neyta aflsmunaroghafa íhótunum Liölega þrítugur maður hefur verið kærður fyrir að nauöga 35 ára gamalli konu i Reykjavík að morgni sunnudags. Konan var ein á heimili sínu þegar þetta geröist og mun maðurinn hafa komiö fram vilja sínum með því að neyta aflsmunar og hafa í hótunum. Krafist hefur verið fjögurra vikna gæsluvarðhalds yfir honum. Maðurinn kom að heimili konunn- ar og bankaði upp á. Konan opnaði og komst maðurinn inn. Sambýlis- maöur konunnar var ekki heima. Maöurinn hótaði konunni þegar hún vildi ekki þýðast hann og kom síöan framvilja sínum. Einu sinni áöur hefur maöur þessi gert tilraun til nauðgunar. Hann var þá kærður fyrir líkamsárás og var dæmdur I þrettán mánaða fangelsis- vist. Var þetta fyrir um sjö árum siöan. -JGH. NAUTAHJÖRD KOM ASK- VAÐANDI í BREIÐHOLTIÐ — einn tuddinn greinilega mannýgur Vér bíðum spenntir eftir Pylsupóstinum. | Nautahjörö úr búi Vatnsenda var komin niður í íbúðarhverfið viö Unufell og Torfufell í gærmorgun. Ellefu naut voru í hjörðinni og var eitt þeirra greinilega mannýgt. Um tuttugu til þrjátíu böm á aldrinum frá fimm til tólf ára höfðu safnast í grandaleysi sínu í kringum nautin. Ekkert bamanna slasaðist þó. Aö sögn lögreglunnar í Árbæ kom hún að hjörðinni um tíuleytiö í gær- morgun. Vom tuddamir þá á beit við f jölbýlishúsin við Unufell og Torfufell, innan um krakkana. Enginn fullorðinn varnærstaddur. Þegar lögreglan ætlaði að f jarlægja nautin gerðist einn tuddinn, greinilega mannýgur, heldur óhress og myndaði sig til að ráðast á lögregluþjón. Að lokum tókst þó aðf jarlægja hjörðina. Tuddarnir voru búnir að fara yfir mikla umferöargötu, Suöurfellið, til aðkomastígrasið. Þetta mun ekki vera í fyrsta skiptið sem þessi nautahjörð kemur ask- vaðandi niður í íbúðarhverfin í Breiðholti í sumar. -JGH.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.