Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1983, Side 5
DV. FOSrITrÐAX5UR9."SEPTEMBER'l'983.'
5
Mörgum skellinöðrum
stofíð í Reykjavík!
„ERFITT AÐ HAFA
UPPÁ ÞJÓFUNUM”
— segir Önundur Jónsson lögreglumaður
„Jú, þaö er mjög mikið um að
skellinöðrum sé stolið og því miður
er erfitt að hafa upp á þjófunum. Og
það er alls ekki alltaf að hjólin finnist
aftur,” sagði önundur Jónsson, hjá
rannsóknardeild lögreglunnar í
Reykjavík, er við ræddum við hann
um skellinöðrustuldina í bænum.
„Eg vil endilega koma því að og
skora á eigendur skellinaðra að
ganga betur frá þeim. Setja á hjólin
sterka keðjulása. Og ekki aðeins að
læsa hjólunum, heldur einnig að læsa
þau við eitthvað fast. ”
Sem dæmi um þessa hjólastuldi
sagði önundur að hann hefði verið
með til rannsóknar mál þar sem h jóli
var stolið í Hlíðunum. Það fannst
vestur í bæ, „en stórskemmt”.
-JGH.
„Þetta er orðin algjör plága”
— segir Viðar Æ varsson, eitt af mörgum fórnarlömbum skellinöðruþjófa
„Þetta er orðin algjör plága sem
gengur nú yfir. Skellinöörumar fá
hreinlega ekki að vera i friði.
Geysilega mörgum er stolið og þá er
það ekki síðra vandamál, hve mikið
er um að einstökum hlutum af
hjólunum er stolið. Þau standa oft
hreinlega berstrípuð eftir.”
Sá er þetta mælir er aðeins 15 ára
gamall. Hann er Reykvíkingur,
heitir Viðar Ævarsson, og er einn af
f jölmörgum, sem * er á hinum
svokallaða skellinöðrualdri. Og hann
er einn af mörgum fórnarlömbum
skellinöðruþjófa.
Fyrir um hálfum mánuði, laugar-
dagskvöldið 29. ágúst, skrapp hann
til kunningja síns, sem býr við Berg-
staðastræti 81. Hann skildi skelli-
nöðruna sína eftir fyrir utan.
„Þegar ég kom út aftur svona um
klukkustund síðar, um miðnættið,
var hjólið horfið. Eg lét lögregluna
strax vita um þjófnaðinn og leitaði
svo megnið af nóttinni aö hjólinu meö
vinimmum.”
Daginn eftir fór Viðar aftur til lög-
reglunnar og öll fjölskylda hans fór
núað leita. Hann og faðir hans, Ævar
Sveinsson, komust á slóö seint á
sunnudagskvöldið sem leiddi til þess
að piltur var handtekinn og síðar
tveir á Homafiröi.
Þeir höfðu þá stolið hjólinu, hirt
eitthvað af því, og hent því síðan
fyrir utan verslunina Grímsbæ í
Fossvoginum. En hjólið, hvítt
Yamaha árgerð ’82, með númerið R-
1313, fékk ekki að vera lengi þar.
Einhverjir aðrir óprúttnir stálu því
nefnilega aftur. Og þeir hafa ekki
fundist.
„Þetta er orðið svo mikiö vanda-
mál, að menn eru hættir að fara á
hjólum í bíó. Og ég veit um strák sem
hefur þrisvar sinnum komið að
hjólinu sínu berstrípuöu eftir að búiö
var að hreinsa af því hluti eins og
spegla, hlífar, afturljós og þess hátt-
ar.”
Sjálfur hefur Viðar komiö aö
hjólinu sínu þegar búið var að
hreinsa nánast allt af því.
Þó að Viðar og faðir hans Sævar
hafi gert ítrekaða leit að hjólinu
hefur það ekki enn fundist. Og
þannig er það um marga aðra. Það
er setið eftir með sárt ennið og hjól
upp á tugi þúsunda eru glötuð.
Þeir Viðar og Sævar hafa boðið
rífleg fundarlaun öllum þeim sem
gætu gefið upplýsingar til lög-
reglunnarumhjólViðars. -JGH.
Mjög hefur borið á þvi aö undan- kölluðum skellinöðrum, hafi verið
fömu að léttum bifhjólum, svo- stolið i höfuðborginni. Vilja sumir
Hvitt Yamahahjól fyrir utan eina vélhjólaverslun borgarinnar. Það er sams
konar og hjól Viðars sem stolið var fyrir stuttu. Og aðeins viku áður var
reyndar nákvæmlega eins hjóli stolið. Einhverjir ölvaðir höfðu átt leið fram
hjá því hjóU. Tóku það traustataki og fóru á því i Broadway. Þar hentu þeir
þvi og einhverjir aðrir komu og hirtu það. DV-mynd: Bjamleifur.
líkja því við „algjöra plágu”, sem
gengið hafi yfir.
Einn þeirra er fimmtán ára
pUtur, Viðar Ævarsson. Hans hjóU,
hvítu Yamaha, árgerð 1982, meö
númerinu R-1313, var stoUð fyrir
skömmu fyrir utan hús eitt í Berg-
staðastræti.
. En hvað er hægt að gera? önundur
(Jónsson, hjá rannsóknardeild lög-
reglunnar i Reykjavík, bendir skeUi-
nöðrueigendum á að ganga betur frá
hjólunum sínum og fá sér keðjulása.
Og Viðar sjálfrn-, sem við ræðum
hér við á síðunni, bendir foreldrum á
að vera vakandi fyrir því ef sonurinn
eða dóttirin eru skyndilega komin
með hjól upp á tugi þúsunda heim, án
þess að geta hafa keypt það.
-JGH.
Vlðar, ásamt föður sinum Ævari Sveinssynl, fyrir utan verslunina Grimsbæ i
Fossvogi. Þar hafði hjóU Viðars verið hent eftir að því var stoUð. En þegar
þeir feðgar komu á staðinn höfðu aðrir komið og hirt það. Og enn hefur hjóUð
ekki komið í leitimar. DV-mynd: BjaraleUur.
Mikið af góðri
síld út af
Norðurlandi
— segja sjómenn á bátum þar
Sjómenn á bátum fyrir Norðurlandi
hafa undanfariö veitt nokkurt magn
af mjög góðri síld. Segja þeir að mikið
sé af henni fyrir öllu Norðurlandi og
inn á fjörðum þar. Hefur t.d. veiðst góð
síld inni á Eyjafirði og á Skjálfanda.
Sjómaður sem við töluðum við á
Húsavík í gær sagði okkur að þetta
væri fyrsta flokks síld. „Hún er bæði
stór og 20% feit,” sagöi hann.
„Það er mikið af henni héma fyrir
utan og skömm að því að ekki skuU
vera veitt leyfi til að salta hana í
tunnur,” bætti hann við. „Þetta er sú
síld sem á aö fara í tunnur en ekki i
frystingu eins og nú er gert. Þetta eru
mikil verðmæti og það er farið iUa með
þau á þennan hátt,” sagði hann í lokin.
-klp-
Kvennatímar
í badminton
6 vikna námskeið að hefjast;
einkum fyrír heimavinnandi
húsmæður.
Hoii og góð hreyfing.
Tennis- og
badmintonfélag
Reykjavíkur.
Gnoðarvogi 1.
Simi82266.
Vcircihlutir
til boddyviðgerða í evrópska og japanska fóiksbíia,
Rússi ætlaði fram
úr þeim japanska...
Tveir harðir árekstrar urðu í Arnes-
sýslu í fyrradag. Ekki urðu slys á fólki
en talsvert eignatjón.
Á Selfossi, við Mjólkurbú Flóa-
manna, rákust saman japanskur bíU
og Rússajeppi um klukkan 14.
Japanski biUinn var að beygja af
Austurvegi inn að Mjólkurbúinu þegar
jeppinn kom aftan frá og ætlaði fram
úr. Hægra frambretti „Rússans” rakst
á vinstra frambretti þess japanska,
sem við höggið kastaöist nokkra vega-
lengd.
Síðar um daginn varð aftanákeyrsla
i Hrunamannahreppi, nánar tiltekið á
Suðurlandsvegi skammt vestan viö
Þingborg. Þar rakst Lada Sport-jeppi
aftan á gamlan WiUys-jeppa með þeim:
afleiðingum að báðir bílarnir eru taldir
ónýtir. ökumaður WiUys-jeppans var
að skipta yfir á varabensíngeymi því
að aðalgeymirinn var oröinn tómur.
Hann gat skipt yfir úr ökumannssæti
og lét jeppann sinn renna áfram á
meðan.
-KMU.
hurðabyrðl
m.a.
frambretti
húdd
framstykki
grill
stuðara.
Skeifunni 5 ■ 108 Reykiavik ■ “S 33510- 34504