Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1983, Page 7
DV. FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER1983.
7
Útlönd Útlönd
Franaklr hermenn i Chad. Stjóm Hlssens Habre ftnnst Frakkar heldur aðgerharlitlir nú og rctt er tun það í Chad að
Frakkar og Líbýumenn haf i gert með sér þeg]andi samkomulag um skiptingu Chad.
Chad:
Stjómvöld
gagmýna Frakka
Ríkisstjómin í Chad hefur gagnrýnt
frönsk stjómvöld harðlega fyrir að
hafa ekki haft afskipti af loftárásum
Líbýumanna á bækistöðvar stjómar-
hersins í norðausturhluta Chad fyrr í
vikunni. Hafa embættismenn í Chad
látið að því liggja að Frakkar og Lí-
bíumenn hafi gert með sér samkomu-
lag um skiptingu Chad.
Að sögn stjómvalda í Chad réðust
líbýskar sprengjuflugvélar gegn bæki-,
stöðvum stjórnarhersins í Oum
Chalouba, sem er inn 640 kílómetra
norðaustur af höfuöborginni,
N’Djamena. Segir Hissena Habre, for-
seti Chad, að árásin hafi verið liður í
undirbúningi aö árás um Oum
Chalouba daginn eftir.
Frakkar hafa sent 2500 hermenn og
átta orrustuþotur til Chad til stuönings
við stjómarherinn. Frakkar hafa ekki
tekið beinan þátt í bardögum en til-
kynnt að þeir muni berjast ef á þá
verði ráðist. Líbýumenn og uppreisn-
armenn halda noröurhluta landsins.
Ljóst er að stjómvöld í Chad eru mjög
óánægð með hlut Frakka til þessa.
Loftárás á Managua
Stjómvöld i Nicaragua hafa
fyrirskipað flugher sínum að halda
vöku sinni eftir að uppreisnarmenn
sendu tvær flugvélar til sprengju-
árása á höfuðborgina Managua en
þetta er í fyrsta sinn sem loftárásir
em gerðar á Managua eftir að borg-
arastríðinu í Nicaragua lauk. Varn-
armálaráðherra Nicaragua, Hum-
berto Ortega, sagði blaðamönnum í
gær að loftvamasveitir um landið
allt heföu verið varaðar við.
Tveggja hreyfla flugvél í eigu
uppreisnarmanna varpaði sprengj-
um á bækistöðvar flughersins í
Managua í gærkveldi en var síðan
skotin niður og hrapaði í logum á
flugtuminn við alþjóðaflugvöllinn,
rétt hjá. A sama tíma réðst önnur
flugvél á íbúðahverfið La Fontana og
varpaði sprengju nærri heimili utan-
ríkisráðherrans, Miguel d’Escoto.
Talsmenn stjórnvalda sögðu að
margir hefðu særst í árásinni á bæki-
stöð flughersins en ekki var tilkynnt
um nein dauðsföll utan flugmanns
fyrri flugvélarinnar. Flugmaðurinn
á hinni flugvéUnni slapp á brott.
Það var svo Lýðræðislega bylting-
arbandalagið, undir stjóm Eden
Pastora, fyrrum varnarmálaráð-
herra sandinista, sem lýsti ábyrgð á
hendur sér á árásinni.
Stjórnvöld í Nicaragua segja að
fundist hafi flugskjöl í flugvélar-
brakinu sem sýni að flugvélin flaug
frá Costa Rica, þar sem Pastora
hefur aðsetur. Réöust ráðamenn í
Managua harkalega á Bandaríkja-
stjórn sem þeir sögðu að hefðu fjár-
magnaö árásina og útvegaö'bæði
flugvélar og sprengjur.
írland:
BANN VIÐ FOSTUR-
EYDINGUM SAMÞYKKT
Irar hafa samþykkt umdeilda stjórn-
arskrárbreytingu sem kveður á um
bann við fóstureyðingum. Var breyt-
ingin samþykkt með tveim þriðju hlut-
um greiddra atkvæða. En hins vegar
hafði aðeins helmingur kjósenda fyrir
því að mæta á kjörstað. Fylg jendur og
andstæðingar fóstureyðinga töldu báö-
ir að niðurstaöan væri sigur fyrir sinn
málsstaö. Fréttaskýrendur telja al-
mennt að léleg kjörsókn hafi ráðist af
óvissu kjósenda eftir hörðustu kosn-
ingabaráttu í sögu írska lýðveldisins,
þar sem flokkar, fjölskyldur, bæjarfé-
lög og starfsgreinar klofnuðu í afstöð-
unni til málsins.
Niðurstöður þykja einnig benda til
djúpstæðs klofnings milli þéttbýlis og
dreifbýlis. I fimm kjördæmum var
meirihluti á móti stjómarskrárbreyt-
ingunni og þau voru öll í Dublin.
Samþykkt stjómarskrárbreytingar-
innar þykir auka enn á óvissuna í þess-
um málum á Irlandi. M.a. velta menn
því fyrir sér hvort ekki megi sam-
kvæmt stjórnarskrárákvæðinu banna
konum á Irlandi að fara yfir sundið og
fá fóstureyðingu þar, eins og þúsundir
írskra kvenna gera á ári hver ju.
BÍLASALAN BUK
Skeifunni 8, sími 86477.
Tveir gulifallegir
Hondm PraJudm 1t$1, kopmrmmn*. ^áffmkiptur, toppáúgm, aport-
fmlguro.fi. mukahkiUr.
Ekkm mðmkirn24.0tt km. Vmrá. 330.000.
Mmrdm 929 stmtian “79, btitmns, mkktn mðmtns 97.999, grjótgrind,
útvmrp, toppbfll. Vmrð 180.000.
TIL SÝNIS OG SÖLU A STAÐNUM.
Opið laugardaga kl. 10—19.
KARATEFÉLAG
REYK JAVÍKUR
ATH: Nýtt byrjendanámskeiö í karate er að
hefjast. Innritun verður að Ármúla 36,3. hæð og í
síma 35025
föstudag 9/9 kl. 18—21,
laugardag 10/9 kl. 13—16,
sunnudag 11/9 kl. 13—15.
Aldurstakmark 12 ára.
Karate er spennandi og skemmtileg íþrótt, af-
bragðs líkamsrækt og ein fullkomnasta sjálfsvörn
sem völ er á. Karate er jafnt fyrir konur sem
karla.
KFR er elsta og stærsta karatefélag landsins.
Aðalkennarar félagsins eru 2. dan í GOJU-RYU
KARATE-DO.
Vörumarkaðurinn hf.
Armúla og Eiöistorgi.