Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1983, Side 28
36
DV. FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER1983.
Til húseigenda
og garöeigenda
Steinar fyrir
bílastæði og
innkeyrslubrautir
Gangstéttarhellur 10 gerðir, kantsteinar, steinar í
bílastæði, vegghleðslusteinar, margar gerðir, til
notkunar utanhúss og innan. Komið, skoðið og
gerið góð kaup. Greiðsluskilmálar.
Opið til kl. 16 laugardaga
HELLU 0G STEINSTEYPAN
VAGNHÖHM 17. SÍMI30322.
REYKJAVlK
Ég óska eftir aö fá sendan KAYS pöntunarlistann
í póstkröfu á kr. 98.- (að viðbættu póstburðargjalfli).
Nafn
Heimili
Staður
Vandi stjómmála
á Norðurlöndum
— viðfangsef ni fundar norrænna st jórnmálaf ræðinga
„Vandi norrænna stjómmála” var
viðfangsefni fundar Sambands nor-
ranna stjómmálafræöinga sem haldinn
var í Reykjavík dagana 21. til 28. ágúst
siöastliðinn. Islenskir stjórnmálafræð-
ingar skýrðu á fundinum frá þróun
stjórnmálafræði á Islandi og rannsókn-
um í þeirri grein og einnig voru lagðar
fram ritgerðir og greinargerðir um
það efni sem var yfirskrift fundarins.
Svanur Kristjánsson lagði fram rit-
gerð um Kommúnistahreyfinguna á
Islandi á árunum 1920 til 1938, þar sem
þróun hennar er skýrð með hliðsjón af
samskiptum við Alþjóðasamband
kommúnista, Komintem og innan-
landsaðstæðum. Einnig er gerður
samanburður á kommúnistaflokkum
Norðurlanda og leitað skýringa á
tiltölulega miklu fylgi Kommúnista-
flokks Islands.
Stefán Olafsson átti ritgerð um verð-
bólgu á Islandi. Olafur Þ.. Harðarson
kynnti fyrstu fræðilegu kosningakönn-
un sem gerð hefur verið hérlendis.
Tekin hafa verið viðtöl við um 1000
manns og er gagnasöfnun að mestu
lokið.
Samband norrænna stjómmála-
fræðinga heldur uppi fjölþættri starf-
semi og má þar nefna útgáfu tímarits-
ins Scandinavian Political Studies.
Rannsóknarhópar vinna á vegum þess
og þing eru haldin á þriggja ára fresti.
Verður næsta þing í Svíþjóð að ári
liðnu. -ÓEF
Skrifstofuhús KísiHöjunnar og viðbyggingin. DV-myndir Finnur Baldursson.
Kísilgúrverksmiðjan:
Stærri skrifstofur
— viðbyggingin um 220 fermetrar
Frá Finni Baldurssyni fréttaritara DV
í Mývatnssveit.
Ráðist var í miklar byggingarfram-
kvæmdir við Kísiliðjuna h/f í sumar.
Þar er verið að byggja 220m2 viðbygg-
ingu við skrifstofuhús fyrirtækisins.
I henni á að vera kaffistofa, fata-
geymslur, böð og snyrtingar og mun
starfsmannaaðstaöa hjá fyrirtækinu
taka stórt framfaraspor þegar þetta
verður tekið í notkun.
Það eru Stefán Oskarsson á Rein í
Reykjahverfi og Sniðill h/f í Mývatns-
sveit sem vinna fyrsta hluta verksins.
Þeir eiga að skila byggingunni fullfrá-
genginni að utan 25. sept. nk.
Verkið hefur gengiö mjög vel. I vetur
verður síðan boðinn út annar áfangi
þess, þ.e. innréttingar í bygginguna.
-JGH.
VIKáSL
"fsesta
MEÐAL EFNIS
í ÞESSARIVIKU
Póstnr.