Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1983, Page 5
DV. MIÐVIKUDAGUR 9. NOVEMBER1983.
5
Landbúnaðinn verður að
leysa úr fangelsi SÍSog
Framsóknar
segir Guðmundur Halldórsson, heildsali á Húsavík,
sem SÍS neitaði um að selja kjöt til útflutnings
„Láttu mig vita þegar þú veröur
kominn í gegnum SlS frumskóginn,
var sagt við mig þegar ég fór að
athuga með flutninga á kjötinu, sem
SIS neitaði svo að selja mér,” segir
Guðmundur Halldórsson á Húsavík
sem segist vera með tilbúinn samn-
ing um sölu á hrútakjöti og kjöti af
geldfétilFæreyja.
Hann segir að þetta svar sýni
glöggt að öllum sé ljóst hvers lags
kínamúr SlS sé búið aö hlaða upp í
kringum hagsmuni sína og burgeis-
anna í Framsóknarflokknum á sviði
landbúnaðarmála og þá sérstaklega
kringum útflutning á kjöti.
Landbúnaðurí
fangelsi
„Það þarf að leysa landbúnaðinn
úr því pólitíska stofufangelsi, sem
SIS og Framsóknarflokkurinn hafa
hneppt hann í,” segir Guðmundur.
Hann segir ennfremur að það séu
hrein ósannindi sem komu fram í
svari Magnúsar Friðgeirssonar,
framkvæmdastjóra Búvörudeildar
SlS, varðandi kjötsöluna, sem birtist
í DV í fyrradag.
„Þeir buðust aldrei til að gerast
aðilar að sölunni, heldur heimtuðu
þeir af mér nafn kaupandans í
Færeyjum og sögðust síðan skyldu
sjá um þetta sjálfir,” segir
Guðmundur.
Og ótta þeirra SlS manna, um að
salan kynni að skaða sölu þeirra á
lambakjöti á Færeyjamarkaði, telur
Guðmundur ástæðulausan og einung-
is tyUiástæðu til að neita honum um
kjötið.
Hártoganir
„Þeir vissu fuUvel að þetta kjöt
átti aö fara i allt aðra notkun en
lambak jötiö og þegar ég benti þeim á
það byrjuðu þeir aö tala um að þetta
væri eitthvert annars flokks kjöt og
þess vegna ekki faUið til útflutnings.
Það eru hins vegar tómar hártoganir
sem sést best á því að þeir vildu fá
nafniö á kaupandanum sjálfir tU að
geta selt honum kjötið,” segir
Guðmundur.
Aðdragandi þessa kjötmáls er sá
að kaupfélagið á Húsavík tilkynnti
bændum það í haust að það myndi
ekki greiða fuUt verð fyrir hrútakjöt,
sem lagt yrði inn hjá þvi á komandi
sláturvertíð. Var bent á aö kjötið
væri nánast óseljanlegt og þar aö
auki tU birgöir frá árinu áöur bæöi af
hrútakjöti og k jöti af geldfé.
Tíu tonn
af kjöti
Fór Guðmundur að áeggjan nokk-
urra bænda að kynna sér málið og
komst hann í samband við aðila í
Færey jum sem var tUbúinn að kaupa
til að byrja með tíu tonn af hrútakjöti
og kjöti af geldfé, bæði gamalt og
nýtt. Næðist sh'kur samningur nú var
aðihnn tUbúinn að gera mun stærri
framtíðarsamning við Guðmund.
Guömundur sneri sér tU kaup-
félagsstjórans á Húsavík sem tók
málaleitan hans vel en sagðist þurfa
að ráðgast við yfirmenn sína fyrir
sunnan. Að þvi loknu sagði hann
Guðmundi að best væri að Guðmund-
ur talaði sjálfur við þá fyrir sunnan.
Taiaði Guðmundur við Magnús
Friðgeirsson sem tók honum mjög
ljúfmannlega en sagðist ekki geta
ráðið þessu upp á sitt eindæmi og
benti honum á aö tala við Jóhann
Steinsson deildarstjóra. Og í því
samtaU kvað við annan tón því
Jóhann fór fram á að Guömundur
gæfi sér upp nafnið á færeyska fyrir-
tækinu og síðan myndu þeir hjá SlS
sjá um þetta.
Þessu neitaöi Guðmundur og
sagðist ekki afhenda SlS neinn
markað sem hann væri búinn að afla
sjálfur. Sagöist Jóhann þá myndu
athuga máUð og baö Guðmund að
hafa samband síðar. Guðmundur
gerir það og er þá sagt að búið sé að
afgreiða máUð og niðurstöðuna fái
hann hjá kaupfélagsstjóranum á
Húsavík. Hún reynist á þann veg aö
Guðmundur fái ekki kjötið. Baö
Guðmundur um neitunina skriflega
en því var synjað.
Þannig stendur máUð enn í dag en
Guðmundur segir að þessu sé engan
veginn lokið af sinni hálfu og hann
muni berjast fyrir því að rjúfa ein-
okunarveldi SIS á sviði landbúnaöar
hérílandinu.
SþS
Aðfara sadd-
ur í óperuna
Islenska óperan, Flugleiðir og
veitingahúsin AmarhóU og Kvosin
hafa i sameiningu skipulagt sérstakar
hópferöir utan af landi. I boöi eru
ferðir th Reykjavíkur, flugieiöis eða
landleiðis, gisting í tvær nætur á Hótel
Esju eöa Loftleiðum, kvöldverður í
Arnarhóli eða Kvosinni og heimsókn í
Islenskuóperuna.
Svo að dæmi sé tekið þá kostar flug-
far frá Akureyri til Reykjavíkur og
heim, gisting í tvær nætur, kvöld-
veröur og óperusýning frá kr. 3.200.
Venjulegt flugfargjald þessa leið kost-
ar 3.060 kr. Rútuferð frá Selfossi en að
öðru leyti sömu atriöi kosta 1.600
krónur.
Tilboðið miðast við tuttugu manna
hópa eða stærri og gUdir verðið tU ára-
móta. Reykvíkingar og nágrannar
þeirra á höfuðborgarsvæðinu geta
einnig notiö óperusýningarinnar og
kvöldverðar með sama hætti fyrir 700
krónur. Flugleiðir, söluaðUar þeirra
og Islenska óperan taka á móti
pöntunum. -JH.
Frá sýningu ÍsJensku óperunnar i La Traviata eftír Verdi.
Dísilbílar
Datsun 280 c disil órg. '81, skinn I
130.000 km, litur gullbrons, góð I
dekk, útvarp + segulband. Verð |
kr. 335.000.
Mercedes Benz 2401 órg. 1977,1
bill i sérflokki, ekinn 220.000 km. I
Verð kr. 350.000. Skipti ó|
ódýrari.
Citroðn CX 2000 órg. 1977, ekinn
100.000 km. Verð kr. 200.000.
Gultfallegur bíll. Skipti ó ódýrari
eða dýrari.
Range Rover órg. 1974, ekinn I
140.000 km, góð dekk. Verð kr.
240.000. Skipti ó ódýrari eða
svipuðu verði.
Subaru 1600 4 x 4 órg. 1960,
vetrardekk, ekinn 40.000 km. |
Skipti á ódýrari. Verö kr.
250.000. Einnig fyrirliggjandi órg. |
1981 - 1982 af Subaru 4x4.
Econoline 150 órg. 1978, 6 cyl.,
sjólfskiptur, óslitinn bill. Verð
kr. 250.000. Einnig fyrirliggjandi
órg. 1980, 6 cyl., beinskiptur,
gott lakk, allur klseddur. Verð
kr. 390.000.
stil i stáll
sctböno
bot«
uÖ
UNDIR
TÖLVUR
PRENTARA
RITVÉLAR
Bókabúð
Sigfúsar Eymundssonar
Austurstræti 18
Konráð Axelsson
Armúla 36 (Selmúlamegin)
Toyota Cressida GL órg. 1981,
ekinn 60.000 km, topplúga, raf-
magn í öllu, sportfelgur, sjólf-
skiptur, fallegur bill. Skipti ó
ódýrari. Verð kr. 330.000.
Ch. Citation, litur gullsans, órg.
1980, ekinn 14.000 km. Verð
kr.265.000. Skipti á ódýrari.
Allir þessir bílar eru
á staðnum
GRENSÁSVEGI 11 -
108 REYKJAVÍK - SlMI 83150