Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1983, Blaðsíða 8
DV. MIÐVIKUDAGUR 9. NOVEMBER1983.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Arafat í hópi lífvarða sinna, en hann virðist nú rúinn nœr öllu fylgi meðal al-
mennra skæruliða PLO, sem hafa þúsundum saman gengið í lið með
uppreisnarmönnum.
Skriðdrekar sýrlenska hersins í Líbanon hafa lagt uppreisnarmönnum
skæruiiða lið í sókninni gegn síðustu vígjum Arafats. _________>
LEIÐTOGASKIPTI
HJÁ PERONISTUM
Lorenzo Miguel, verkalýðsforingi og
leiðtogi Peronistaflokksins í
Argentínu, hefur sagt af sér flokksfor-
mennsku eftir ósigurinn í
þingkosningunum á dögunum.
Miguel var varaforseti peronista, en
í reyndinni leiðtogi þeirra, þar sem
flokksleiötoginn Maria Estela
Martinez de Peron, ekkja Juans
Perons sem dvelur í útlegð á Spáni, er
forseti aðallega að nafninu til.
Við tekur af Miguel annar vara-
forseti peronista, Carlos Juarez,
kjörinn fylkisstjóri í Santiago del
Estero norður í landi.
Enn aftökur í Kína
Tveir karlar og ein kona voru tekin
af lífi í Kína, en þau höföu unnið sér
það til sakar aö hafa stoliö komi og
komskömmtunarseðlum í stóram stíl.
Vora þau dæmd fyrir að hafa selt um
250 smálestir af korni ríkisins og
stungið söluverðinu í eigin vasa. Eins
höfðu þau selt 650 þúsund kom-
skömmtunarseðla. — ÖU þrjú vora á
þrítugsaldri.
Mál þessara þriggja er dæmigert
fyrir þá herferð sem farin er gegn af-
brotum í Kína, en frést hefur að
þúsundir manna hafi hlotið dauðarefs-
ingu fyrir ýmsa glæpi.
'■' ■:•
Hartsóttaö
síðasta vígi
YasserArafat
Uppreisnarskæruliðar innan PLO
sækja nú að síðasta vígi Yasser Arafat
og stuöningsmanna hans í Líbanon þar
sem þeir hafa búið um sig í Baddawi-
búðunum í útjaðri Trípolí.
Þangað hafa fylgismenn Arafats
hopað eftir sex daga linnulausa bar-
daga þar sem beitt hefur verið
fallbyssum, eldflaugum og
skriðdrekum Sýrlendinga.
Andstæöingar Arafats, sem að
uppreisninni standa gegn honum innan
samtaka skæruliða Palestínuaraba,
hvetja síöustu bardagamenn hans til
þess að leggja niður vopn. Kölluðu þeir
áskoranir sínar úr hátölurum.
Jafnframt hafa forystumenn í
Trípolí lagt að Arafat og mönnum hans
að gera vopnahlé, en menn óttast um
líf og limi borgarbúa og raunar einnig
um borgina ef bardagar harðna við
búðirnar sem renna saman við hafnar-
borgina.
Uppreisnarmenn sækja aö búðunum
úr þrem áttum en Miðjaröarhafiö ver
fjórðuhliðina.
Vitað er að aö minnsta kosti 200
manns, mest óbreyttir borgarar, hafa
látið íífið í bardögunum þessa sex
daga. Hundruð hafa særst.
Arafat hefur sagst vera reiðubúinn
til vopnahlés en segir jafnframt að
menn hans verði að fá aö verja hendur
sínar. Hann féllst þó á að flytja
stórskotalið sitt burt frá höfninni þar
sem hann hafði komið því fýrir þegar
hann flúði frá Nahs al-Bared sem féll í
hendur uppreisnarmönnum.
Hinn 53 ára gamli skæraliöaleiðtogi
virðist rúinn öllu fylgi meðal almennra
skæruliða í A1 Fatah-samtökunum.
Þúsundir fyrri fylgismanna hans hafa
snúist í liö meö uppreisnarmönnum
Mohammeds Saeds Musa ofursta sem
daglega er kallaður Abu Musa. Ofurst-
inn nýtur ötuls stuðnings Sýrlands-
hers.
Abu Musa hefur boðið Arafat til við-
ræðna en hinn síðamefndi hefur ekki
svarað því boði enda er þess í hinu
orðinu krafist af uppreisnarmönnum
að hann gefi sig fram til þess að svara
tU saka fýrir herrétti vegna „afbrota
gegn alþýðu Palestínuaraba”.
Kúbanskar leyni-
skyttur dyljast
í skógum Grenada
Um fimmtíu Kúbumenn eru enn
sagðir fara huldu höfði í hitabeltis-
skógum Grenada. Era þeir sagöir fara
einförum sem leyniskyttur eða þá fáir
saman. Ibúar á Grenada, jafnt sem
bandarískir hermenn, hafa orðiö varir
við leyniskytturnar.
Um 2000 manna lið úr innrásar-1
hernum kembir Grenada og smærri
nærliggjandi eyjar í leit að Kúbumönn-
unum og þeim fáu þjóðvaröliðum semj
enn leika lausum hala. — Þjóðvarðliöiö
á Grenada hef ur verið leyst upp.
Mest hefur borið á leyniskyttum í
Grand Etang-fjöllum beint norður af
höfuðborginni, St.George’s. I
K
Um 2000 dátar kemba nú Grenada og
nærliggjandi smáeyjar í leit að Kúbu-
mönnum og síöustu þjóðvarðliðunum.
Leyniþjónusta Bandaríkjahers hefur
til yfirheyrslu menn úr þjóðvarðliðinu
og eins þá sem taldir era hafa verið
höfuðpaurarnir í samsærinu gegn
Bishop forsætisráðherra. Upp-
lýsingunum verður komið til bráöa-
birgðastjómarinnar sem sett verður af
sir Paul Scoon landstjóra.
SPJÖLL A SKÖG-
UM AF MENGUN
V-þýska stjómin ætlar að verja
20 milljónum marka til rannsókna
á úrræðum sem bjargað geti
skógum landsins, en þeir hafa
spillst stórkostlega vegna loft-
mengunar.
Sagt er að 8% skóga í V-Þýska-
landi beri oröið merki iðnaðar-
mengunar og hinnar svokölluðu
„sýrðu rigningar”, sem stafar frá
reykháfum verksmiðja og út-
blæstri bifreiða.
Verstar munu skemmdimar í
skógum í Bæjaralandi og Baden
Wiirttemberg, en þar eru um tveir
þriðju skógana skemmdir af
mengun.