Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1983, Side 10
10
Útlönd
Útlönd
* Útlönd
DV. MIÐVIKUDAGUR 9. NOVEMBER1983.
Útlönd
Umsjón: Herdís Þorgeirsdóttir
Frá hersýningu á Rauða torginu á sextíu ára afmeeii byitingarinnar, 7. nóvember 1977 — sem þáverandi leiðtogi Brezhnev fylgdist með.
Ætli Andropov
leiðist hersýningar?
vamarstööu, bæði heima fyrir sem
:og gagnvart umheiminum. Fram-
kvæmd NATO-áætlunar í Evrópu nú
á næstu vikum er mjög mikill ósigur
fyrir forystuna í Kreml.
Beria leiðist ballett
Hvort sem Andropov er illa kvefað-
ur eða hreinlega að hugsa stíft
hvemig hann eigi að bregðast við
aðgeröum í vestri nú á næstunni þá
velta menn engu að síður vöngum yf-
ir því hvaö sé að gerast bak við tjöld-
in í Kreml. Það hefur aldrei áður
gerst að leiötogi hafi misst af hersýn-
ingunni á Rauöa torginu á byltingar-
afmælinu.
Innan vestrænnar stjórnmálafræði
er grein sem kallast ,,Kremlfræöi”,
þ.e. greining á atferli forystunnar í
Sovétríkjunum. Menn reyna að leysa
gátur um valdasamspil eða átök út
frá myndum eða textum, ræðum og
yfirlýsingum, þingum og ráðstefnum
kommúnista o.s.frv. Til dæmis
myndu menn skoða uppröðun foryst-
unnar á myndum sem teknar eru við
tækifæri eins og hersýninguna á
Rauða torginu. Áður en Brezhnev dó
var alltaf athugaö hver jir stóöu næst
honum á myndum. Þannig geta litlar
visbendingar gefið til kynna miklar
breytingar. Frægt er dæmiö um
fyrirsögn í The New York Post fyrir
þremur áratugum, sem sagði:
„Kannski að Beria leiðist ballett”.
Tilefni fréttarinnar voru vangavelt-
ur um Lavrenti Beria, yfirmann
sovésku leyniþjónustunnar. Beria
hafði ekki mætt ásamt forystunni við
sýningu hjá Bolshoi ballettinum í júlí
1953. The New York Post birti þá
hina frægu fyrirsögn, en heimurinn
fékk aldrei aö vita vissu sína, þ.e.a.s.
hvort Beria leiddist ballett, því aö
hann hafði verið fangelsaður og
drepinn.
Hvort sem Andropov leiöast her-
sýningar eða ekki — þá er ljóst aö á
næstu dögum verða miklar vanga-
veltur um hvers stjarna rís hæst á
himninum í Kreml.
H.Þ.
Ef til vill er Yuri Andropov alvar-
lega veikur. Ef til vill ekki. Fyrir
hálfum mánuöi hætti hann við opin-
bera heimsókn til Búlgaríu. Síöast-
liðinn laugardag var hann ekki
viðstaddur opinber hátíðahöld í
Moskvu í tilefni af byltingarafmæl-
inu né hersýningu á Rauða torginu á
mánudag. Fjölmiðlar skýrðu frá því
aö Andropov væri kvefaöur. Þetta er
í fyrsta sinn sem leiðtogi Sovétríkj-
anna er ekki viðstaddur hina árlegu
hersýningu á Rauöa torginu 7.
nóvember.
Fjarvistir Andropovs gefa tilefni
til ýmissa vangaveltna bæði erlendis
sem og heima fyrir. Vangavelturnar
snúast um það hvort Andropov, sem
er 69 ára, sé raunverulega veikur og
ef svo sé, hver sé við stjómvölinn nú.
Það vekur grunsemdir að smá-
kvefpest geri það að verkum aö
leiðtoginn sé fjarri opinberu lífi hálf-
an mánuö. Þetta er í fyrsta sinn jafn-
framt sem fjölmiðlar í Sovétríkjun-
um skýra svo vel frá heilsufari
leiðtogans og vekur það grunsemdir
um aö það sé verið að undirbúa fólk
undir langvarandi fjarvistir. Leonid
Brezhnev dó þremur dögum eftir
hersýninguna á Rauöa torginu fyrir
ári. Þá hafði verið ýjað aö veikindum
hans í nokkuö langan tíma. Á hinn
bóginn hafa sovéskir fjölmiölar
reynt að draga upp þá mynd undan-
farið að Andropov væri enn við
stjómvölinn þrátt fyrir „kvefið”.
Hefur ekki sést síðan í
ágúst
Andropov hefur ekki sést meðal
starfsmanna erlendra sendiráða í
Moskvu síðan 18. ágúst. Það er sagt
að hann sé slæmur til heilsunnar al-
mennt vegna nýmasjúkdóms en
erlendir gestir, sem ræddu við hann
sl. sumar, sögöu að hann hefði verið
hinn hressasti.
Ef Andropov er ekki mjög sjúkur
hlýtur hann að koma fram á sjónar-
sviöiö mjög fljótlega til aö draga úr
Lavrenti Beria, yfirmaður sovósku
leyniþjónustunnar, sem iifiátinn
var í júlí 1953 af keppinautum
innan flokksins.
efasemdum og ugg um hver haldi nú
um stjórntaumana. Nú, þegar mikil
spenna ríkir í samskiptum austurs
og vesturs er mjög óheppilegt aö
leiðtoginn sé fjarri.
Pennastrikið dugir ekki!
Því miöur getur nýr leiðtogi ekki
notaö pennastriksaöferð Alberts til
að krota yfir mistök eða aögerðir for-
vera síns í utanríkismálum. Andro-
pov sem tók við völdum fyrir einu ári
fékk mikið af vandamálum í vega-
nesti. Afganistan er sýnilega mesti
„höfuðverkurinn" sem hann erfði.
Þar berjast hundrað þúsund sovésk-
ir hermenn án afláts.
Trúlegt er að einhver valdaátök
eigi sér staö bak við tjöldin í Kreml
og að Adropov eigi undir högg aö
sækja við fyrrum stuðningsmenn
Brezhnevs og íhaldssöm öfl innan
miðstjómarinnar. Andrei Gromyko
utanríkisráðherra gegnir að sjálf-
sögðu stóru hlutverki en hann er 74
ára og á lengstan starfsferil að baki
á sviði utanríkismála.
Samskipti leiðtoga og hers eru
mjög mikilvæg í alræöisríkjum. Trú-
legt er að eitthvað hafi kastast í
kekki í því sambandi í Sovétríkjun-
um undanfarið. Árásin á kóresku
farþegaþotuna bendir til að öfl innan
hersins séu aö sækja í sig veðrið. Þau
hin sömu öfl og harðlínumenn í
flokknum eru talin hafa heft fulltrúa
Andropovs í samningaumleitunum
við Bandaríkin í afvopnunarmálum.
Fyrirhuguð endurnýjun á meðal-
drægum kjamorkuvopnum NATO í
Evrópu hefur verið efst á baugi í
sovéskum utanríkismálum undan-
farintvö ár.
Ekki haft árangur sem
erfiði
Sovétmenn hafa ekki haft árangur
sem erfiði að koma í veg fyrir að
NATO hrinti áformum sínum í fram-
kvæmd. Ef eitthvaö er, hafa tilraunir
Sovétmanna til að hafa áhrif á
evrópsk stjómmál haft gagnstæð
áhrif. Ihaldsöfl unnu sigra bæði í
Vestur-Þýskalandi og í Bretlandi á
þessu ári. Eitthvaö virtist þiðna í
kuldalegum samskiptum stórveld-
anna sl. sumar þegar þau undir-
rituðu nýja samninga varðandi kom-
sölu og ákveðnum viðskiptahöftum
var aflétt. Enginn árangur hefur þó
orðiö í afvopnunarmálum og ýmis-
legt bendir tÚ að Sovétforystan sé orð-
in leið á þófinu og finnist í öll skjól
fokið eins og árásin á kóresku
farþegaþotuna gæti bent til.
Síöan í september hafa samskiptin i
því kólnað mjög. Sovésk stjómvöld
hafa gert sér mikinn mat úr innrás-
inni í Grenada og Reagan er kallaður
öllum illum nöfnum þar eystra nú.
Allt bendir til að flokkurinn sé að
undirbúa sovéska alþýðu undir vem-
lega spennu í samskiptum við
vestrið.
Viðreisn efnahagslífsins, eitt af
höfuðmálum Andropovs, á erfitt upp-
dráttar í því kalda stríöi sem nú er.
Sovésk stjómvöld eru komin í