Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1983, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1983, Blaðsíða 30
30 DV. MIÐVIKUDAGUR 9. NOVEMBER1983. Nýjar bækur Nýjar bækur Nýjar bækur IÐUNN ÖLVUR SVONA ERU DÝRIN Fróði og allir hinir grisl- ingarnir eftir Ole Lund Kirkegaard Ot er komin hjá Iöunni bókin Fróði og allir hinir grislingarnir, saga og myndir eftir danska höfundinn Ole Lund Kirkegaard. Bókin hefur undirtitilinn Snargeggjaður reyfari handa bömum og öðru skynsemdar- fólki. Þetta er sjöunda bók höfundar- ins sem út kemur á íslensku. Þorvald- ur Kristinsson þýddi. — Fróði var síð- asta bók höfundar en hann lést áður en henni var lokiö. Fjölskylda hans samdi síðasta kaflann eftir frumdrög- um höfundar. Um efni sögunnar segir á kápu- baki: „I húsinu á hominu á Fróöi heima. Hann er sjö ára og nýbyrjaður í skólanum. Hann á líka kærustu. Það er hún Stína. Svo gerast óttalegir at- burðir í nágrenninu. Þjófur á hlaupa- hjóli geysist um hverfið á kvöldin og hrellir íbúana. Þá taka grislingamir í götunni til sinna ráöa. . . og brátt kemur margt skrýtið í ljós.” — Fyrri sögur Kirkegaards hafa notið mikilla vinsælda og geta má þess að Kópavogsleikhúsið sýnir um þessar mundir söngleikinn Gúmmí- Tarsan sem gerður er eftir einni sög- unni. — Fróði og allir hinir grisl- j ingamir er 90 blaðsíður. Oddi prent- aði. K.M. PEYTON Jlatnþards setrið Flambardsetrið eftir K. M. Peyton Flambardsetrið, unglingabók eftir1 K. M. Peyton, er komin út hjá Máli og menningu. Þetta er sjöunda skáldsag- an eftir þennan breska höfund sem kemur út á íslensku. Silja Aðalsteins-. dóttir þýddi. Söguhetjan, Kristína Parsons, er tólf ára þegar hún flytur til Russells móðurbróður síns á ættarsetrið Flam- bards. Síöan hún varð munaðarlaus á barnsaldri hefur hún ævinlega búið hjá frænkum sínum og henni finnst kvíð- vænlegt að flytja nú á stað þar sem karlar ríkja. Ekki bætir úr skák að frænkur hennar telja fullvíst að Russ- ell ætli að gifta hana eldri syni sínum, Mark, til að komast yfir auöinn sem hún á í vændum þegar hún verður myndug. Russell er sjálfur búinn að sóa sínu fé í hesta og veöreiðar. Þetta er söguleg skáldsaga, gerist í upphafi þessarar aldar, og átök gamals og nýs tima koma vel fram í bókinni. Sagan er afar 'spennandi og fólki og atvikum lýst á lifandi hátt. Bókin er 192 bls., unnin í Hólum. Káputeikningu gerði Sigurður Valur Sigurösson. Mánasilfur lokabindið komið út Iöunn hefur gefið út fimmta bindi af Mánasilfri, safni endurminninga sem Gils Guðmundsson hefur valiö. Er þetta lokabindi safnsins. I fimmta bindi eru minningaþættir eftir 34 höf- unda en alls er í safninu efni eftir 152 höfunda, allt frá sautjándu aldar mönnum til núlifandi manna. Skrá um efni og höfunda alls safnsins er aftast í fimmta bindi en hverjum þætti fylgir stutt æviágrip höfundar. Elstur þeirra sem efni eiga í þessu bindi er séra Þor- steinn Pétursson sem uppi var á átjándu öld en yngstur Þorsteinn Antonsson, fæddur 1943, og er hann jafnframt yngstur þeirra endur- minningahöfunda sem teknir hafa verið í safnið. Um efni fimmta bindis segir svo á kápubaki m.a.: „Hér er að fmna áður óprentaða frásögn um eitt mannskæð- asta snjóflóð á síðari tímum og minningar um skæðustu drepsótt á öld- inni. Hér eru einnig þættir með léttari svip: sagt frá metingi um skáld og sjó- menn á hafi úti, framboðsfundi þar sem íhlutun kjósanda beindi málum í óvænt efni, fyrstu söngför íslensks kórs til annars lands. Hér segja skáld frá minnisstæðri æskureynslu, húsfreyjur og ljósmæður frá striti og áhyggjum, hér er sérkennileg ástarsaga og minning frá fyrstu kynnum sveita- drengs af Reykjavík, — og er þá fátt talið.” — Mánasilfur, fimmta bindi, er rúmlega 300 síður. Oddi prentaði. Tölvur Útgefandi er Setberg Þetta þarftu að vita um Tölvur heitir nýútkomin bók sem er fyrir böm og unglinga. Otgefandi er Setberg. Á síöustu árum hefur orðiö tölvubylt- ing. Tölvur tengjast næstum öllum þáttum hins daglega lífs, bæði í leik og starfi. Tími tölvunnar er upp runninn — einnig hér á Islandi, og í þessari bók gefst tækifæri til að kynnast þessu undratæki. Dæmi um nokkrar kafla- fyrirsagnir í bókinni: Tölvubyltingin. Forrit og gögn. Stórtölvur, millitölvur og örtölvur. Upplýsingasöfnun og vinnsla gagna. Tölvur í iðnaði. Vél- menni. Talað viðtölvur. Tölvu-bók Setbergs skýrir á einfald- an og aögengilegan hátt hvernig tölvur eru samsettar og hvernig þær nýtast til margs konar verkefna. Fjölmargar litmyndir eru efninu til skýringar, en þýðandi er Lárus Thorlacius. Meðan eldarnir brenna eftir Zaharia Stancu Iöunn hefur gefið út skáldsöguna Meðan eldarnir brenna eftir rúmenska sagnaskáldið Zaharia Stancu. Kristín R. Thorlacius þýddi. Sagan f jallar um sígaunaættbálk nokkurn sem stjórn- völd í Rúmeníu reka í einangrun á gróöursnauðum auðnum landsins. Þetta gerist á tímum seinni heims- styrjaldar. I ættflokknum eru hundrað sálir og stjórnvöld neyða ættar- höfðingjann til aö halda með fólk sitt austur á bóginn. Að baki þeim geisar stríöið, framundan bíður þeirra auön og dauði. Það vita sígaunarnir ekki en af næmleika sínum lesa þeir dauðadóm sinn í augum allra þeirra sem þeir mæta og reka þá áfram tilausturs. Zaharia Stancu er eitt kunnasta og virtasta sagnaskáld Rúmena á þessari öld. Eitt frægasta verk hans er sagan Berfætlingar sem út hefur komiö á ís- lensku. Sagan Meðan eldarnir brenna er afar litrík frásögn af harðri baráttu minnihlutahóps fyrir lífi sínu á hinum mestu umróts- og skelfingartímum þegar flest siðaboð eru í upplausn. I kynningu forlags á kápubaki segir: „Með frásagnarsnilld sinni heldur höfundurinn lesendum sínum í stöð- ugri spennu á meðan eldamir brenna við búðir sígaunanna. Sagan lýsir logandi ástríðum, hyldjúpri örvænt- ingu og blindri sjálfsbjargarhvöt. Þetta meistaraverk er átakanleg harmsaga hins nafnlausa fjölda sem dæmdur er til tortímingar í grimmdar- æði stríðs og styrjalda.” Meðan eldarnir brenna er stór saga, 344 bls. Hún er gefin út meö styrk úr Þýðingarsjóði. Oddi prentaði. Litla rauða rúmið eftir Áslaugu Ólafsdóttur Ut er komin hjá Máli og menningu ný íslensk bók fyrir yngstu börnin: Litla rauða rúmið. Höfundur er Aslaug Olafsdóttir, kennari á Kirkjubæjar- klaustri, en myndirnar geröi Ragnhild- ur Ragnarsdóttir. Eiginlega er litla rauða rúmiö aðal- persónan í sögunni. Það er orðið gamalt rúm því að þrír bræður Asu eru búnir að sofa í því og kunnu ágætlega við sig. Nú er komið að Ásu. En henni finnst svo þægilegt að sofa hjá pabba og mömmu og aiveg ástæðulaust að flytja sig. Þangað til Pési kemur. Hann vill endilega fá að sofa í litla rauða rúminu.. . . Litia rauða rúmið er sett og prentað hjá Formprenti, en útliti hagaöi Repró, Valgeir J. Emilsson. I Litla rauöa rúmió Dýrin og maturinn þeirra og Skoppa Bókaútgáfan Björk hefur sent frá sér 2 barnabækur í safninu: Skemmtilegu smábarnabækurnar, sem hafa verið sígildar barnabækur í áratugi og átt miklum vinsældum að fagna, m.a. hjá mörgum skólamönnum, sem notað hafa þær við smábarnakennslu. Bækur þessar eru: 1. Dýrin og maturinn þeirra, endur- sögð úr dönsku af Stefáni Júlíussyni rithöfundi og kemur nú út í fyrsta sinn. Hún er 14. bókin í safninu. Dýrin og maturinn þeirra er prentuð í 4 litum, bráðskemmtileg og mjög vel til hennar vandað. Bókin er þar að auki vel til þess fallin að auka þekkingu lítilla barna á f jölda dýra, sem myndir eru af í bókinni. Bókin er unnin í Prentsmiðj- unni Odda h/f. 2. Skoppa er 11. bókin í þessum flokki í þýðingu Vilbergs Júlíussonar skóla- stjóra. Hún hefur komið út áöur en verið ófáanleg í mörg ár. Hún er einnig prentuð í litum í Prentverki Akraness h/f. Aðrar bækur í þessum bókaflokki eru: Bangsi litli, Benni og Bára, Bláa kannan, Dísa litla, Græni hatturinn, Láki, Leikföngin hans Bangsa litla, Kata, Stubbur, Stúfur, Svarta kisa og Tralli. Við guð erum vinir eftir Kari Vinje Kari Vinje lýsir í bókinni köflum í hinu daglega amstri hjá Júlíu og móður hennar og leikfélögum. Þar flétt- ast inn ýmsar spurningar úr heimspeki barnanna, Júlía vill fá að vita allt um lífið og tilveruna, sem móðir hennar og aðrar sögupersónur glíma við að svara. Öllu þessu er lýst á hinn eðlileg- asta hátt og snýst því bókin á stur.dum ekki síður um fullorðna fólkiö en börnin. Kari Vinje er norskur verölaunahöfundur og skrifar einkum fyrir börnin. Eftir hana hefur komið út á íslensku bókin Kamiila og þjófurinn, en bókina Viö guð erum vinir þýddi Margrét Hróbjartsdóttir. Bókin er myndskréytt af Borghild Rud, en Búi Kristjánsson teiknaði káupumynd. ÍARl VINJE VÍÐ GUÐ ERUM VINIR Prentverk Akraness annaðist bóka- gerðina. eftir Sigmund Erni Rúnarsson Ut er komin hjá bókaforlaginu Svart á hvítu ljóðabókin Ostaðfest ljóð eftir Sigmund Emi Rúnarsson. Náttúran er umfjöllunarefni þess- arar bókar. Skáldiö leggur land undir fót, finnur sér myndir í öllum blæbrigðum þess. Og jafnan er manneskjan með í för. Ostaðfest ljóð er önnur ljóðábók Sigmundar Emis Rúnarssonar. Arið 1980 sendi hann frá sér ljóöabókina Kringumstæður. Sigmundur er norðanmaður, fæddur og uppalinn á Akureyri. Hann starfar nú sem blaöamaður sunnan heiða, við Dagblaðið Vísi í Reykja- vik. Óstaðfest Ijóð Svona eru dýrin eftir Joe Kaufman Setberg hefur gefiö út barna- og unglingabókina Svona eru dýrin, eftir Joe Kaufman. Áöur hafa komið út í þessum bókaflokki Svona er tæknin, Svona er heimurinn og Svona erum við. Þessi nýja bók, Svona eru dýrin, fjallar um dýr og fugla, villt dýr og tamin, lífshætti og hegðun, líkamsgerö og útbreiðslu. Hvaða dýr er stærst? Hvaöa farfugl flýgur lengst? Hvaö átu stóreðlurnar? Hve langt getur kengúra stokkið? Hvenær var farið að temja hesta? Hvað er beltisdýr? Hvaða dýr hefur andarnef, sundfit og loðinn feld? Svona eru dýrin vekur athygli á ýmsu forvitnilegu í fari dýranna í kringum okkur og fræðir okkur um framandi dýr í fjarlægum löndum. Skemmtilegar myndir og fróðlegt les- mál. Bókin er í stóru broti og ríkulega myndskreytt. Þýðandi: ömólfur Thorlacius. MÁNA silfur SAFN ENDURMINNINGA CILS GUDMUNDSSON VALDI EFNIO

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.