Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1983, Blaðsíða 20
uaaDDODDDDaDOOflaDaODDOD
20
Digj
DV. ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER1983.
NÝJASTA
JANE FONDA
BÓKINj
• Daglegt prógramm fyrir ðrið 1984 i
leikfimi og mataræði til megrunar
og bættrar heilsu.
• Besta bókin til þessa.
• Sendum í póstkröfu.
192 bls. Verð kr. 395,00
NÁTTÚRULÆKNINGABÚÐIN,
8
D
D
D
D
O
D
LAUGAVEGI25 OG v/ÓÐINSTORG. SÍM110262. g
□□BDDDDODnDDDODDDDaDDDDDDDDDDDDOnnnODDDDDDn
TILVALIN ^ JÓLAGJÖF
’Jtiumfih
ÞEKKT MERKI - VÖNDUÐ VARA
Glæsibæ
Sími83210
Laugavegi 66
Sími28990
Glerkrukkur
fyrir kökur og fleira.
Mjög mikið úrval
af spánskri glervöru
ámjög
hagstæðuverði.
Búsáhöld og gjafavörur
Glæsibæ,
sími 86440. <
Næg vlnna hefur verið i flskvinnslustöðinni Odda á Patreksfirði í haust. Hér er unnið við hausa og hrygg til upp-
hengingar fyrir skreið. DV-mynd Elín Oddsdóttir
Patreksfjörður:
Nægur fiskur í Odda
Frá Elínu Oddsdóttur, fréttaritara DV
á Patreksfirði.
Það hefur gleymst í öllum þeim um-
ræðum um vandamál og atvinnuleysi
á Patreksfirði að ekki hafa öll fisk-
vinnslufyrirtæki veriö lokuð hér, síöur
en svo.
I fiskvinnslustöðinni Odda hf. ríkti
ánægja og vinnugleði þegar tíðinda-
maöur DV leit þar inn enda hefur verið
unnið þar upp á hvern dag í haust og
vetur.
Þaö var verið að flaka karfa, skera
úr skreið og hengja upp þorskhausa
ásamt hrygg og þunnildum sem renna
út eins og heitar lummur og aldrei er
nóg af að sögn Jóns Magnússonar for-
stjóra.
Hann sagði að vinnslan gengi vel hjá
sér. Tveir bátar væru gerðir út, Vestri
og Patrekur, og þeir væru látnir sigla
með aflann þegar þyrfti að vinna
skreið og saltfisk en að öðru leyti væri
aflinn unninn heima.
Jón sagðist ekki vera hrifinn af
kvótakerfinu eða skömmtun sjávar-
afla, hann sagðist hafa varað við þess-
ari þróun. Hún hefði einungis þau áhrif
að innan nokkurra ára fengist enginn
alminlegur maður til sjós. Þessi þróun
mála vekti ekki ánægju sjómanna við
aö skara fram úr á nokkurn hátt. Það
yrði aðeins meðalmennskan sem réði.
Hann varaði við þessari „sósíalíser-
ingu”, eins og hann komst að orði.
-GB
Hraðf rystihús Patreksf jarðar:
Vinnsla hafin á ný
Landsbankinn hefði hjálpaö til viö að
halda skipunum á veiðum, afli hefði
verið góður svo og fyrirgreiösla hjá
fiskkaupendum, t.d. Fiskvinnslunni á
Bíldudal og Noröurtanganum á tsa-
firði. Þar hafa skipin landað að undan-
förnu. Þá sagði Jens aö afskipun og
greiðsla afurða hjá afurðadeild Sam-
bandsins heföi verið fljót og góð og að
hlutafé hefði verið aukið í fyrirtækinu.
„Engar fyrirgreiðslur hafa fengist
hjá sjóðunum ennþá,” sagði Jens, „en
við lítum björtum augum á framtíð-
ina.”
Björn Á. Jónsson verkstjóri og Vig-
fús Þorsteinsson sögðust vera ánægðir
með opnunina. Allir sem hefðu verið á
atvinnuleysisskrá væru komnir til
vinnu en hjá fyrirtækinu ynnu 46
manns. Þeir sögðu að verið væri að
vinna þorsk í fimm punda pakkningu á
Ameríkumarkaö.
I vinnslusalnum var unnið af fullum
krafti og þar ríkti mikill áhugi og
vinnugleði. Á skrifstofunni var mikið
annriki við afhendingu vinnulauna en
þar var verið að borga út sex vikna
laun. -GB
Frá Elínu Oddsdóttur DV á Patreks-
firði.
Vinnsla hófst að nýju í Hraöfrysti-
húsi Patreksfjarðar þriðjudaginn 13.
desember. Það hafði veriö lokað síöan í
október.
Jens Valdemarsson framkvæmda--
stjóri sagði að margt hefði hjálpast að.
Jens Valdemarsson, framkvæmdastjórl Hraðfrystihúss Patreksfjarðar, hefur í
nógu að snúast nú þegar vinnsla hefur verið hafin á ný. DV-mynd Elín Oddsdóttir
ORÐSENDING
TIL VIÐSKIPTAVINA LEIKFANGAVERS KLAPPARSTÍG 40
Þar sem verstunin hættir fljótlega eftir áramót, viljum við benda viðskiptavinum okkar é að við eigum
mikið af vörum á gömlu og góöu verði.
Sjón er sögu ríkari.
Um leið og við þökkum fyrir viðskiptin á liðnum árum óskum við ykkur gleðilegra jóla.
LEIKFANGAVER