Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1983, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1983, Blaðsíða 24
24 DV. ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER1983. DV. ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER1983. 25 íþróttir Youri Detchev. Iletchev vill koma til íslands Rússneski knattspyrnuþjálf- arinn Youri Iletchev, fyrrum þjálf- ari Vals, Víkings og íslenska lands- liðsins í knattspyrnu, er nú tilbúinn að koma til íslands og þjálfa hér á landi. Iletchev hefur fengið leyfi til að þjálfa á íslandi. -SOS Hamilton var hetja Burnley Billy Hamilton tryggði Burnley sigur, 3—2, yfir Chesterfield í ann- arri umferð ensku bikarkeppninn- ar í gærkvöldi. Burnley mætir Ox- ford í 3. umferöinni 7. janúar. Hamilton skoraði markið rétt fyrir ieikslok. Bournemouth lagði áhuga- mannaliðið Windsor að velli, 2—0 , og leikur næst gegn Manchester United á útivelli. Sheffield United vann sigur, 1—0, yfir Lincoln og mætir Birm- ingham heima í 3. umferöinni. -SOS ÍR vann ÍR-ingar unnu sigur, 18—16, yfir Fylki í 2. deildar keppninni í hand- knattleik í LaugardalshöUinni i gærkvö.'di. íþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir Iþróttir íþrótti íþróttir íþróttir MKem með mikið af nýjum hugmyndum frá Ítalíu” — segir Ingi Björn Albertsson, þjálfari FH — Þetta var mjög gagnleg þjálfara- ráðstefna og ég kem með mikið af nýjum hugmyndum frá ítalíu, sagði Ingi Björn Albertsson, þjálfari FH- Iiðsins, sem kom frá ítaiíu á sunnudag- inn ásamt Lárusi Loftssyni en þeir voru þar á sex daga þjálfararáðstefnu á vegum ítalska knattspymusam- bandsins. Ingi Björn sagði aö 26 þjálfarar hefðu setið ráöstefnuna og þar hefðu verið margir kunnir þjálfarar — landsliðsþjólfarar Italíu, Ungverja- lands og Rúmeníu. Dave Sexton, sem sér um 21 árs landslið Englands, og Rússinn Youri Sedov, fyrrum þjálfari Víkings, sem er nú landsliðsþjálfari 21 árs landsliðs Rússlands. Man. Utd. fékk skell í Oxford Manchester United fékk heldur betur skeU á Manor Ground í gær- kvöldi, þar sem félagið mátti þola tap 1—2 fyrir Oxford í ensku deildabikar- keppninni. Oxford kemst þvi í 8-liða úr- slit og mætir Everton heima. Það var varamaðurinn Gary Biggs sem skor- aði sigurmark Oxford með skalla á 14. mín. framlengingar. Þá voru níu leik- menn félagsins inni í vítateig United þegar homspyma var tekin. Biggs, sem var nýkominn inn á fyrir Neil Whatmore, fyrrum leikmann Birming- ham, stökk hærra en allir og skaliaði knöttinn glæsilega í netið eftir send- ingu frá Trevor Hebberd. Leikmenn United tóku fomstuna í leiknum á 39. mín. þegar Arthur Graham sendi knöttinn í net Oxford eftir hornspyrnu Arnold Miihren. Norman Whiteside skaUaði knöttinn til Graham. Aðeins þremur mín. seinna var George Lawrence búinn aö jafn 1— 1, eftir aö knötturinn hafði hafnað á stönginni á marki United. Aðeins snilldarleikur Jeff Wealands, fyrrum markvarðar Birmingham, hét United á floti — hann varöi þrisvar sinnum meistaralega á síðustu stundu. Weal- ands kom til Oxford í leigubifreiö rétt fyrir leikinn. Það var kaUaö á hann til Manchester eftir að Gary Bailey markvörður hafði snúið sig á hné á æf- ingu í gærmorgun þegar United tók létta æfingu í Oxford. Sigur Oxford var sanngjarn — leik- menn félagsins léku vel í drullusvaðinu á Manor Ground. Héldu uppi nær lát- lausri sókn að marki Man. Utd. í seinni hálfleik. Jim Smith, framkvæmdastjóri Ox- ford, var sannspár — hann sagöi fyrir leikinn að Oxford ætti góða möguleika á sigri og sínir leikmenn ætluðu sér ekkert annaö en sigur. Eftir leikinn dönsuðu og sungu áhangendur Oxford úti á veUinum. Gleöi þeirra var geysi- leg. Eftir leikinn sagði Smith að sigurinn væri of lítill eftir gangi leiksins. Við áttum aö vinna með þremur mörkum. Ron Atkinson, framkvæmdastjóri United, sagði að hann hefði verið viss um sigur eftir fyrri hálfleikinn. — Leikmenn Oxford komu grimmir til leiks í seinni hálfleik og náðu að yfir- spila okkur, sagði Atkinson. -SOS Þess má geta að landsliðsþjálfari Rússlands, Konatantin Beskow, var rekinn á sunnudaginn og er Sedov sterklega orðaöur sem arftaki hans. — Það var fariö yfir allar hliðar knattspyrnunnar á þessari ráðstefnu, sem heppnaðist í aUa staði mjög vel, sagði Ingi Björn Albertsson. -SOS Ingi Bjöm Albertsson. Fengu allt að 125 pund fyrir miða Jim Smith, framkvæmdastjóri Oxford, fann upp þaö snjaUræði að láta áhangendur félagsins bjóða í miðana á leik Oxford gegn Man- chester United i gærkvöldi í ensku deUdabikarkeppninni. Oxford á við f járhagserfiðleika að stríða og tóku áhangendur félagsins vel hugmynd Smith. Miði sem kostar venjulega 7 pund var t.d. seldur á allt upp í 125 pund. Manor Ground, leikvöUur Oxford, tekur um 15 þús. áhorfend- ur og var þar þéttsetið í gærkvöldi. 13.924 sáu leikinn, sem gaf Oxford 43.001 sterlingspund. -SOS Kristinn aftur með Val? i i i i i i i j Kristinn Björasson, fyrrum leik- maður Vals og Akraness, sem hefur leikið knattspyrnu í Noregi undanfarin ár, er kominn aftur heim og hefur æft með Valsmönnum. Það er þó óvíst; hvort Kristinn leikur með Val í sumar. Hann hefur hug á að þjálfa og leika með einhverju félagi. • Ragnar Rögnvaldsson, sem lék meö KA á Akureyri sl. sumar, hefur gengið til liðs við BreiðabUk. -sos Evrópubikarkeppnin f sundi í Ankara: Frábær árangur hjá Gross og Salinkov — Sovétríkin sigruðu f karlaflokki, Austur-Þýskaland í kvennaflokki Sovétrikin og Austur-Þýskaiand sigraðu i karla- og kvennaflokki í Evrópubikarkeppninni í sundi, sem háð var í 25 metra Iaug í Ankara í Tyrklandi um helgina. Ekki voru sett Áhangendur Lazio réðust á blaðamenn — það gekk á ýmsu í ftölsku knattspyrnunni á sunnudaginn Það gekk á ýmsu í ítölsku knatt- spyrnunni á sunnudaginn. Það bratust út slagsmál i Flórens þar sem sex áhorfendur slösuðust og i Róm var ráð- ist á blaðamannastúkuna. Juventus skaust upp á toppinn þegar félagið vann Inter Mílanó 2—0 og skoraði Frakkinn Michel Platini eitt mark og er hann nú orðinn markahæst-. ur, ásamt Paolo Rossi, með 9 mörk. Brasilíumaðurinn Zico kemur næstur með8mörk. • Leikmenn Juventus léku með sorgarbönd, til minningar um 34 sjóliða frá La Spezia, sem dóu í bílslysi á leið á leikinn. • Mikil slagsmál brutust út í Flórens eftir að Fiorentina og Roma höfðu gert jafntefli, 0—0. Áhangendur heimaliðs- ins réöust aö áhangendum Roma vopnaöir hnífum og bareflum. Sex slösuöust og einn þeirra alvarlega. • Allt gengur á afturfótunum hjá Rómarliðinu Lazio sem rak þjálfara sinn í sl. viku. Félagið komst yfir 2—0 gegn Udinese en gestirnir náðu að jafna 2—0. Áhangendur Lazio réðust að blaðamannastúkunni — vopnaðir flöskum. Utvarpsfréttamaður (Hemmi, þeirra í Róm) sem var að lýsa leiknum sagði: — „Þeir halda greinilega að ófariraar hjá Lazio séu okkur að kenna.” Síðan sagði hann hlustendum að hann yrði að hætta að lýsa leiknum þar sem hættuástand væri orðið í blaðamannastúkunni. Juventus er nú með 18 stig eftir þrettán leiki. Roma hefur 17 stig og einnig Sampdoria og Torínó. Verona er með 16 stig, Fiorentina 15 og Inter Mílanó 14. -sos nein met en frábær árangur náðist. Þó var þungt að synda í Ankara, að áUti keppenda. Sundmennirnir frægu, Michael Gross, V-Þýskalandi, og Vladimir Salnikov, Sovétríkjunum, vöktu lang- mesta athygli enda enginn smáárang- ursemþeír náöu.Grosssigraðií200m skriðsundi á 1:48,50 sek. Sergei Krasiuk, Sovét, varð annar á 1:49,98 mín., einnig í 200 m flugsundi á 1:56,07 min. og þar varöSergei Fesenko, Sovét Dýrkeypt i sjálfsmark | Benfica náði tveggja stiga for-| skoti á Porto í 1. deildarkeppninni í _ Portúgal um helgina þegar félagið | lagði Espinho að veili, 2—0, með ■ mörkum frá Nene og danska lands-1 liðsmanninum Micheal Manniche. I Porto og Varzim gerðu jafntefli, ■ 0-0. Benfica hefur 23 stig eftir tólf J leiki en Porto er með 21 stig. Þess I má geta aö Porto hefur aðeins feng- . iö á sig eitt mark i tólf leikjum sín-1 um og var það sjálfsmark sem var ■ félaginu dýrkeypt. — þaö kostaði I tap, 0—1, fyrir Benfica. Sporting I frá Lissabon er í þriðja sæti með 18 ■ stig. —sosí I„J annar á 1:59,71 mín. Þá hafði Gross einnig mikla yfirburði í 100 m flug- sundi, sigraöi á 54,20 sek., Alexei Markovsky, Sovét, annar á 55,46 sek. Salnikov sigraði í 400 m skriðsundi á 3:46,25. mín., Austur-Þjóöverjinn Stephen Leiss annar á 3:51,01 mín., Norðmaðurinn Arne Borgström varð fjórði á 3:52,84 mín. Þá varð Arne fimmti í 200 m skriðsundi á 1:52,09 mín. Salnikov sigraði í 1500 m skrið- sundi á 14:52,07 mín. Annar varö Uwe Debler, A-Þýskalandi, á 15:19,62 svo sá sovéski hafði þar ótrúlega yfir- burði. Af öðrum árangri má nefna að Birgit Meineke, A-Þýskalandi, sigraði í 100 m skriðsundi kvenna á 55,74 sek. Robert- as Zhulpa, Sovét, sigraði í 200 m bringusundi karla á 2:14,74 mín. Adrian Moorhouse, Bretlandi, annar á 2:15,49 mín. I 200 m skriðsundi kvenna sigraði Meineke á 1:59,16 mín., Ina Beyermann, V-Þýskalandi, önnur á 1:59,57 mín. og June Croft, Bretlandi, þriöja á 1:59,80 mín. Italinn Giovanna Franceschi sigraði í 200 m fjórsundi á 2:01,99mín. I stigakeppninni hlutu Sovétríkin 210 stig í karlakeppninni. Vestur-Þýska- land 182, Austur-Þýskaland 163, Italía 147, Noregur varð í 13. og neðsta sæti meö 35 stig. I kvennakeppninni hlaut A-Þýskaland 209 stig. Sovétríkin 183 og Vestur-Þýskaland 168. Noregur aftur í 13. og neösta sæti með 21 stig. hsim. Tottenham fær peninga f rá V-Þýskalandi Tottenham er byrjað að leika með auglýsingu frá hinu fræga v-þýska bjórfyrirtæki Holstein á búningi sinum. Holstein greiddi Lundúnafélaginu 425 þús. pund fyrlrauglýsinguna. • Það bendir aUt til að Coiin Appleton, framkvæmda- stjóri HuU, taki við stjórninni hjá Swansea. Welska félagið, sem skuldar 1,5 miUjónir punda, er nú á botninum í 2. deUd. • Mike Flanagan, hinum gamalkunna leikmanni QPR, er frjálst að fara frá félaginu. -SOS Ásgeir Sigurvinsson. SKAGAMENN LEIKA FYRST GEGN FRAM — og Akurey rarslagur KA og Þórs í fy rstu umf erð 1. deildar keppninnar íknattspyrnu 1984 hvernig raða á leikjum niður og í umferðir eftir töfluröð. Fyrirhugað er aö 1. deildar- keppnin hefjist fimmtudaginn 17. maí. Fyrsta umferöin í 2. deild er þannig: tslands- og bikarmeistarar Akraness byrja að verja íslandsmeistaratitUinn með því að mæta nýUðum Fram í fyrstu umferð 1. deUdar- keppninnar. Leikurinn fer fram á Akranesi. Þá er ljóst að Akureyrarliðin KA og Þór mætast í fyrstu umferðinni og má búast við hörkuleik á Akureyri. Það var dregið í gær um töfluröð í 1. og 2. deild. Þau lið sem leika saman í fyrstú umferö eru þessi — númer félaganna í töfluröðinni eru á undan. 1. Víkingur 2. Valur 3. KA 4. Akranes 5. Þréttur 10. KR 9. Keflavík 8. Þór 7. Fram 6. Keflavík Víkingar, sem fengu töflu- númer 1, leika þrjá heimaleiki í fyrstu þremur umferðunum — gegn KR, Val og Akranesi. Önnur umferð 1. deildar- keppninnar er þannig: KR- Breiðablik, Víkingur-Valur, Keflavík-KA, Þór-Akranes og Fram-Þróttur. Þeir sem hafa áhuga á að sjá hvernig allar umferöirnar veröa geta flett upp á bls. 25 í Mótabók KSl en þar sést 1. Vestmeyjar —10. Víóir 2. Siglufjörður — 9. Einherji 3. Skallagrimur — 8. ísafjörður 4. FH - 7. Tindastóll 5. Njarðvik — 6. Völsungur Þess má aö lokum geta að fyrsti stórleikur 1984 verður leikur Akraness og Vestmanna- eyja í meistarakeppni KSI 12. maí. -SOS Islenskir skíða- menn keppa íNor- egi og Svíþ jóð Bestu skíðamenn Islands eru nú á keppnisferðalagi um Noreg og Svíþjóð. Landsliðsmenn okkar í alpa- greinum tóku þátt i stórsvigskeppni í Svíþjóð á laugardaglnn og í svig- keppni á sunnudagínn. Sænski skíðamaðurinn Johann Walner varð sigurvegari í stórsvigi — fékk tímann 2:04,73 mín. Árni Þór Árnason náði bestum árangri Islend- inga — varð í 47. sæti af 105 keppend- um á 2:15,23 mín. Sigurður Jónsson varð í 60. sæti á 2:17,50 mín., Guð- mundur Jóhannsson í 66. sæti á 2:19,31 og Guðmundur Jóhannsson í 66. sæti á 2:19,31 og Erling Ingvars- son varð í 73. sæti á 2:23,67 mín. Svíinn Gunnar Neuresson varð sigurvegari í svigkeppninni á 1:58,95 mín. Sigurður Jónsson varð í 60. sæti á 2:11,73 mín. Ami Þór Amason varð 63. á 2:12,50 mín., Guðmundur Jóhannsson varö 76. á 2:16,02 mín. Daníel Hilmarsson 79. á 2:17,78 mín. Erling Ingvarsson 82. á 2:20,22 mín. og Stefán Jónsson 89. á 2:24,48 mín. Stúlkurnar tóku þátt í stór- svigskeppni í Noregi og varð sænska stúlkan Catarina Glasser-Bjerner sigurvegari á 2:02,78 mín. Islenska stúlkan Þórdis Jónsdótir varð í 22. sæti á 2:10,18 mín., Nanna Leifs- dóttir í 24. sæti á 2:11,09 mín., Tinna Traustadóttir í 35. sæti á 2:17,47 mín. og Signe Viðarsdóttir 36. á 2:17,59 min. 48stúlkurtókuþátt íkeppninni. -sos. Zurbriggen sigur- vegari á Ítalíu — og er nú efstur að stigum í heimsbikarkeppninni á skíðum Svisslendingurinn Pirmin Zur- briggen náði fomstu í stigakeppni heimsbikarsins í alpagreinum í gær þegar hann sigraði í super-stórsvigi í Val Gardena á Italíu. Aðstæður voru mjög erfiöar til keppni, snjóstormur. Þetta var fyrsti sigur hins tvítuga Zurbriggen í super-stórsvigi heims- bikarsins. Hann hefur nú hlotið 97 stig í keppninni en næstur er Franz Heinzer, Sviss, með 87 stig. Andreas Wenzel, Lichtenstein, sem talinn er líklegur sem helsti keppinautur Zur- briggen í stigakeppninni, varð sjötti í gær. Hann er nú í fimmta sæti sam- anlagtmeð53stig. Þeir Ingemar Stenmark og Mahre-tviburamir, Phil og Steve, hafa lítið látið að sér kveða. Tvíburamir era meira að segja farn- ir heim til Bandaríkjanna og munu ekki keppa í svigi í Val Gardena í dag. Koma til keppni á ný eftir ára- mótin. Sigurtími Pirmin Zurbriggen í gæevarl:35,33min. 1 öðru sæti varð annar Svisslend- ingurinn, Martin Hangl að nafni, á 1:35,76 mín. Hangl kom heldur betur á óvart. Var með rásnúmer fimmtíu. Þriðji varð Leonard Stock, Asturríki, ál:36,63mín. hsim. Enskir hrósa Ásgeiri i Það er kannski að bera í bakkafuUan lækinn að rita hrósyrði um Ásgeir Sigurvinsson á íþróttasíðu íslensks dagblaðs. Þó verður ekki hjá því komist þegar umsagnir um kappann í erlendum blöðum eru þess eðlis aö óvíst er hvort íslenskur knattspyrnu- maður hefur í seinni tíö verið meira metinn en Ásgeir er nú. Asgeir hefur að undanfömu leikiö betur en nokkru sinni fyrr og er vafalaust að nálgast hátind knattspymuferUs síns. Frammistaða hans með Stuttgart hefur ekki farið framhjá fréttamönn- um í vöggu knattspyrnunnar, Eng- landi. I síðustu viku var grein í enska blaðinu Daily Express um vesturþýska Tlieir soccer at club levell J hás been blitzed witli tlieir| I two ontstanding players being 1 Stuttgart midfield tnan Asgelr I J Signrvisson — an Icelander, I Iwould you believe—and .Vlunichl Igoalkeeper Jean-Marie I’IaiT, a| lUelgian. Hér sést kafli úr grelninni i DaUy Express. knattspyrnu og geröur samanburður á stööu hennar og enskrar knattspyrnu. Fram kemur aö tveir knattspyrnu- menn hafi sett mestan svip á „bundesUguna” i vetur, verið „out- standing”, og þeir séu íslenski miðvallarleikmaðurinn Ásgeir Sigur- vinsson hjá Stuttgart og hinn belgíski markvöröur Bayern, Jean-Marie Pfaff. Aðrir kappar eru ekki nefndir á nafn og sýnir þessi stutta tilvitnun betur en flest annaö hvíUkt nafn Ásgeir Sigur- vinsson er orðinn í evrópskri knatt- spymu. háhá. íþróttir íþrótt Iþróttir íþróttir íþróttir íþróttir OSKABOKIN HENNAR I AR SPENNANDI ÁSTARSAGA Það var í boði markgreifans af Mendao sem Malcolm Travellian og unga konan hans, Rakel dvöldu á hinu stórfeng- lega ættarsetri í Portúgal Malcolm var orðinn áberandi frekur og ruddalegur við gestgjafa sína, sem létu greinilega í Ijósi við Rakel, að hún væri langt í frá velkomin, og markgreifasonurinn Luis, lét fyrirlitn- ingu sína á Rakel og manni hennar óspart í Ijós. Hvað bjó að baki þessu öllu? Og hvernig átti Rakel að hafa stjórn á því, hvernig hún gegn vilja sínum laðaðist að Luis? Hvernig skyldi þetta allt enda? PRENTVER m m 1 Jólagjöfin í ár Rúm m/útvarpi, klukku, segulbandi, bókahillu, rúmfataskúffu og dýnu. EFIMI: BEYKI VERÐ KR. 18.400. AKLÆÐI: RÚSKINNSLÍKI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.