Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1983, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1983, Blaðsíða 39
DV. ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER1983. 3P Sandkorn Sandkorn Sandkorn Ólafur Ragnar. Þingtídindi Ekki œunu vera miklir kærleikar með þeim flokks- bræðrum Garðari Sigurðs- syni og Ölafi Ragnari Grímssyni um þessar mundir. Ekki mun þó algengt að upp úr sjóði „á almanna- færi”. Það gerðist þó í síðustu Garðar. viku er upp úr sauð hjó þeim félögum i umræðum um kvótafrumvarpið. ölafur Ragnar hafði verið að sauma að Halldóri Asgrímssyni sjávarútvegs- ráðherra og lét sem hann talaði fyrir munn f jölda þing- manna. Garðar fór næstur í pontu og kvað fast að orði. Sagði hann Olaf Ragnar ekki hafa neitt umboð tU að tala fyrir aðra en sjálfan sig, enda hefði hann ekkert vit á sjáv- arútvegsmálum frekar en neinu öðru. Vakti þessi ádrepa nokkra athygU. Litadýrð Kaupmenn hafa keppst um að auglýsa ódýrt kjöt að und- anförnu. Samkvæmt þeim upplýsingum mun nú víða vera hægt að fá hræódýrt hangikjöt og iondonlamb, svokallað, svo eitthvað sé nefnt. En nú eru komnar tU leiks illar tungur sem segja að þessar ódýru kjötvörur séu ekkert annað en gulgræna kjötið er var mlkið tU um- ræðu nú nýverið. Sé búið að dubba það upp i spari- búninginn og nú skuli það selt gegn vægu verði. Einn raunsæismaðurinn sagði m.a. að þess yrði líklega ekki langt að bíða að kjötborðin í verslununum yrðu eins og litaspjald í málningavöru- versiun á að líta. „Og svo eru menn að setja á sig bindi á sunnudögum áður en þeir láta þetta í sig,” sagði hann. Söluvara Ekki er ýkjalangt siðan rit- færir menn uppgötvuðu að umfjöUun um látna ættingja gæti gefið vel af sér. Þeir eru orðnir nokkrir sem látið hafa slík ritverk frá sér fara á bók fyrir jólin og halað þannig inn álitlegar fjárhæðir. Nýjasta afbrigðið í þessum flokki hefur nú Iitið dagsins ljós undir heitinu „Bréf til Sólu”. Þar eru birt ástarbréf Þórbergs heitins Þórðar- sonar til Sólrúnar Jónsdóttur. Fram hefur komið að Sólrún heitin gerði ráðstafanir til að brenna bréfin enda hefur hún ekki talið þau eiga erindi fyrir augu óviðkomandi fólks. En bréfaböggullinn komst þó aldrei í eldinn og því fór sem fór. Fjáröflun Talsvert fjör var á aðal- fundl rekstrarfélags ölfus- borga sem haldinn var nú um helgina. Eins og fram hefur komið í frásögnum DV af þvi þrótt- mikla starfi sem fram fer innan félagslns var fundar- gerð frá aðalfundi þess 1982 aldrel lögð fram. Hafði fundurinn verið tekinu upp á segulband sem síðar var sagt í ólagi. Því reyndist ekki unnt að fá skorið úr ágreinings- málum sem risu eftir að sá aðalfundur hafði verið haldinn þvi fundarsam- þykktir voru engar skráðar. En nú bar svo við á fundinum um heigina að fulltrúar Verslunarmanna- félags Reykjavíkur lögðu fram fundargerð frá síðasta aðalfundi upp á 44 siður. Kváðust þeir hafa látið vélrita fundargerðina upp eftir segulbandsspólunni við illan leik. Hefði verkið kostað Utlar 700 krónur og var fundargerðin nú boðin til sölu á fundinum. Þótti mönnum þarna fundin góð leið tU fjár- öflunar. Umsjón: Jóhanna S. Sigþórsdóttir. Útgerðanneim — skipstjórar á Austurlandi Tökum aö okkur uppsetningu á björgunarbátagálga frá Öla Olsen í Ytri-Njarðvíkum. Upplýsingar í síma 97-6166 og 97-6480 (heimasími). VÉLAVERKSTÆÐIESKIF JARÐAR. Útboð Vegagerð ríkisins býður út gerð stálbita fyrir brú á NA-landi. Nefnist útboöið STÁLBITAR FYRIR BRÚ Á HÖLKNÁ í ÞISTILFIRÐI Helstu magntölur eru: Heildarlengd bita 143 m. Heildarþyngd stáls 331. Útboðsgögn fást hjá aðalgjaldkera Vegagerðar ríkisins Borg- artúni 5,105 Reykjavík gegn 500 kr. skilatryggingu. Gera skal tilboð í samræmi við útboðsgögn og skila í lokuðu umslagi til Vegagerðar ríkisins í Reykjavík fyrir kl. 14 þann 20. janúar 1984 og kl. 14.15 sama dag verða tilboðin opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Reykjavík í desember 1983. VEGAMÁLASTJÓRI. >★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★ * JÓLABÓK STRÁKANNA í ÁR J * Louis Newcome höfuðsmaður J var 14 ára, þegar borgara- * styrjöldin í Bandaríkjunum í hófst, — hann var bara ber- * fættur og rauðhærður strákur $ — hver hefði trúað því, að í hann væri njósnari? Hann í rataði í margan og mikinn % háska, en slapp heill á húfi úr í hverri hættu og missti aldrei í móðinn. Hann lýsir atburðunum eins og hann man þá, og bókin bregður upp fagurri mynd af einum mesta manni Banda- ríkjanna, Abraham Lincoln. PRENTVER 9' bara jólagjafir heldur nytsamir hlutir sem þurfa afl vera til á flestum heimilum. SKÓLA- OG FERÐARITVÉL Ennfremur: BROTHER SKÓLA- OG HEIMILISVÉL 3912C, rafknúin sem einnig hentar smærri og miðlungs fyrirtækjum. 33 cm vals með leiðréttingu. Japönsk gæðavara. ALVÖRU RAFMAGNS NUDDPÚÐI MEÐ 3 HRAÐA STILLINGUM OG HITA. GÆÐAVARA FRÁ SVISS. ALVÖRUNUDDTÆKI með mismunahraða og millistykkjum. GÆÐAVARA FRÁ SVISS. Eigum einnig sérlega ódýra fótboltaskó (malarskó) úr ekta leðri. Nr. 31 —38. Höfum fengið nýja aukahluti í prjónavélarnar svo sem milli- færslukamba og kamba til að skipta um lit. PEDIMAN hand- og fótsnyrtitæki, raf- knúifl. Ennfremur PEDIMAN hand- og fótsnyrtitæki mefl mismunahraða fyrir snyrtistofur. Svissnesk dvergasmiði. BORGARFELL HF. SKÓLAVÖRDUSTnG23^ S|MM137^ j

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.