Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1983, Blaðsíða 17
DV. ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER1983.
17
Lesendur Lesendur
Ekki er hægt að vera vel til fara, þegar blautt er, því oft ausa bQstjórar yfir gang-
andi vegfarendur úr drullupollum, segir Margrét í bréfi sínu.
UMFERÐAR-
ÓMENNING
—áíslandi
Margret Hansen skrifar:
Hver hryllingurinn rekur annan nú í
umferöinni, þaö fer ekki fram hjá
neinum sé litið í blöð og hlustaö á
fréttir. Allir geta fengið hlutverk í
þessari hryllingsóperu, bæði stórir og
smáir.
Eftir að hafa stundum veitt um-
ferðinni erlendis athygli og boriö hana
saman við ómenninguna hér mundi ég
skammast min væri ég félagi í ein-
hverju íslensku bifreiðaeigendafélagi.
Ég trúi því ekki að þeir félagar geti
ekki gert eitthvaö til úrbóta og það á
svokölluðu umferðarári.
Vafalaust bíöa margir þess aldrei
bætur sem lenda í því að missa ást-
vini vegna hraðaaksturs sem hefur
orðið mannsbani eöa valdið
örkumlum. I minni fjölskyldu uröu
tvö umferðarslys, annað dauðaslys, á
tæplega 10 mánuðum, svo lái mér
hver sem vill þó ég þori ekki aö aka
bíl framar. En þá þarf ég að taka
þátt í þeirri niðurlægingu sem fylgir
því að vera gangandi vegfarandi í
umferðinni hér á landi.
Vilji fólk komast yfir umferðar-
þungar götur veröur það aö hlaupa
eins og hrædd hænsni, tillitsleysi bíl-
stjóra er svo yfirþyrmandi. Við þessa
niðurlægingu bætist svo að ekki þýðir
aö vera vel til fara, þegar blautt er,
því bílstjórarnir þurfa aö flýta sér og
þá ausa þeir oft yfir gangandi vegfar-
endur úr druUupollum.
Ég læt þessu lokiö, meö tUvitnum
úr frægri „mömmustrákaverðlauna-
bók.” Og við settumst inn í bUinn
hans afa og fórum heim til ömmu. Afi
keyrði alveg svakalega hratt og einu
sinni var hann næstum búinn að
keyra yfir konu sem var að fara yfir
götuna. Mamma æpti upp og spurði
hvort hann væri vitlaus að keyra
svona, en afi hló og sagöi aö kerl-
ingar sem væru aö þvælast úti þegar
hann væri í ökuferð mættu þakka
fyrir að sleppa lifandi.”
Já, svona er nú íslenski húmorinn í
dag, og barnahúmorinn líka.
Peran sprungin
—segirbréfritari
Þar setti fagmaður peruna í en ekki
kviknaði ljós. Peran var síðan reynd á
öðrum stað og ekki kom ljós þar
heldur.
Ég hélt því aftur í bUabúöina og bað
um nýja peru en verslunareigandinn
sagði ranga meðferð hafa valdið því að
peran hefði brunnið yfir og vUdi því
ekki bæta hana.
Ég hafði þá samband við innflytj-
anda perunnar og bauðst hann tU að
bæta mér hana en ég vildi að
verslunareigandinn bætti mér peruna.
Hann ætlar ekki að gera það og þar við
situr.
— DV haföi samband viö BUabúð
K.G. í Hafnarfirði og sagöi eigandi
verslunarinnar aö hann þekkti þetta
mál. Perur eru viðkvæmar og margt
getur valdið því að þær skemmist. I
þessu tilviki væri um að ræða peru sem
ekki mætti snerta með berum höndum
því þá brynni hún yfir. Ekki sagðist
hann vita hvað hefði valdið því að um-
rædd pera hefði brunnið yfir en sagði
að ailar perur frá þessu fyrirtæki væru
prófaðar þegar þær væru sendar frá
verksmiðjunni. Oft væri það aö fólk
kæmi með gamlar perur og perur sem
það hefði sjálft skemmt og vildi fá
nýjar í staðinn. Því væri ómögulegt
fyrir verslunareigendur að vita hvort
raunverulega væri um gallaða peru að
ræða eða gamla peru. „Innflytjandi
perunnar hafði boðist til aö bæta
manninum peruna frekar en að þetta
yrði að blaðamáli,” sagði eigandinn,
„en það finnst mér ekki rétt leið.”
Ljósaperan sem unga stúlkan er að
setja í ljósalampann er grelnilega ekki
eins viðkvæm og sú sem bréfritari
keypti og kvartar undan.
Smári Kristjánsson skrifar:
Fyrir hálfum mánuði keypti ég peru
eina í bílabúð hér i Hafnarfirði. Hana
fór ég með á radíóverkstæði hér í bæ.
JIS
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121
Sími 10600
Húsgagnadeild
- Sími 28601
Munið okkar
hagstæðu
greiðsluskilmáia
VÞÝSK
LEÐUR
SÖFA
—
Er byítingarkennd nýj-
ung frá Wella.
Er notað þegar hárið
er lagt eða blásið og
skilar sérlega góðum
árangri í hár sem feng-
ið hef ur permanent.
MJÉÍ!*-
Afrafmagnar hárið,
hárgreiðslan helst bet-
ur og hárið greiðist og
leggst betur en ella.
Inniheldur einnig nær-
ingu og gerir hárið
viðráðanlegra og
gefur því glans.
NÝJASTA
NÝTT^^SJS
FRÁ
WfLLA
Svona notar þú
frá
W£llA
•
Hristið dósina vel fyrir
notkun.
•
Sprautið froðunni í
lófann og látið hana
þenjast út. Hæfilegt
magn er á stærð við
golfkúlu.
•
Dreifið froðunni jafnt í
hárið.
•
Greiðið, leggið eða
blásið hárið eins og
óskað er.
•
Þú getur keypt
á hárgreiðslustofunni
þinni
Heildsölubirgðir
Halldór
Jónsson
h/f
- ^