Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1984, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1984, Side 3
DV. LAUGARDAGUR18. FEBRUÁR1984. 3 SPURT UM AFDRIF NAUÐGUNARMÁLA Kristín Halldórsdóttir, þingmaöur Kvennalista, hefur boriö fram fyrir- spum til dómsmálaráðherra um afdrif nauðgunarmála. Fyrirspurnin er í fimm liöum og er svohljóöandi: Hversu oft hefur verið kært fyrir nauögun síöan Rannsóknar- lögregla ríkisins var sett á stofn árið 1977? Hve margar kærur hafa leitt tii ákæru? Hve margar kæmr hafa verið felldar niöur vegna skorts á sönnun- um? Hve mörgum málum hefur lokið meö sátt og hve háar upphæöir er um að ræöa í hverju tilviki? Hve margar ákærur hafa leitt tii dóma á ofan- greindu tímabili og hver hefur refsing oröiö í hverju tilviki? ÖEF ASI mótmælir Miöstjórn Alþýöusambands Islands samþykkti á fundi sínum 16. febrúar ályktun þar sem mótmælt er harðlega áformum stjómvalda um aö Afla- tryggingarsjóður verði gerður upptæk- ur og færöur í hlutfalli við aflaverð- mæti til Stofnfjársjóös fiskiskipa. Segir í ályktun ASI að meö þessu sé gengið þvert á grundvallartilgang Aflatryggingarsjóðs, mest fært til þeirra sem mest afla og atvinnu og kauptryggingu sjómanna víða stefnt í hættu. ÖEF Ákærðir fyrir líkamsárás- ir, þ jóf naði og skjalaf als I Hæstarétti hefur verið dómtekiö mál ákæruvaldsins gegn tveimur mönnum sem ákærðir em fyrir líkams- árásir, þjófnaöi og skjalafals. Mennirnir eru ákæröir fyrir alls 25 brot, þar af þrjár líkamsárásir sem þeir eiga að hafa framið ýmist saman eöa hvor í sínu lagi, aöallega á árinu 1981. I undirrétti fengu báöir mennimir skilorösbundinn dóm, annar 12 mán- aöa skilorösbundið fangelsi en hinn sex mánaöa skilorðsbundið fangelsi. Ákæruvaldiö krefst þyngingar á dóm- umþessum. Athygli vakti hve lengi málflutning- ur stóð yfir í Hæstarétti. Einn dagur dugöi ekki heldur þurfti einnig hluta af næsta degi. Þykkur bunki af skjölum fylgir máli þessu. -KMU. Verðlagsráð: Hámarksálagningfelld niður Verölagsráð hefur samþykkt aö fella niður hámarksálagningu í heildsölu og smásölu á matvöm, nýlenduvöru, sæl- gæti, hreinlætis- og hjúkrunarvöm, snyrtivöm, pappírsvöru til heimilis- nota og plast- og álfilmu til sömu nota. Samþykkt þessi, sem gerö er meö hliðsjón af samkeppnisástæöum, aö því er segir í frétt frá Verðlagsráði, tekur gildi 1. mars nk. Jafnframt sam- þykkti Verölagsráö að fella fram- leiösluverðlagningu á kaffi, gosdrykk j- um, öli og niöursoönum fiskbollum og búðingi undan veröákvörðun Verðlags- stofnunar og fella niöur hámarksverö á smjöriíki, brauði og unnum kjöt- vömm. Verðákvörðun siöastnefndu vömtegundanna veröur þó háö sam- þykki Verölagsstofnunar. Verðlagsstofnun leggur á það áherslu aö seljendum verði áfram skylt að tilkynna allar álagningar- breytingar og færa fyrir þeim gild rök. Jafnframt er bent á að samráð milli seljenda eru óheimil þegar verö- lagning er frjáls. ÍSAL ÞORIR EKKI AÐ GEFA LÍNUNA Samningafundur í kjaradeilunni í ál- verinu varö ekki langur í gær. Hann hófst klukkan 14. Honum lauk tvcimur stundum síöar. „Það gerðist ekkert. Eg bara sleit fundi. Þaö var ekki von á neinu nýju frá aöilum,” sagöi Guðlaugur Þor- valdsson ríkissáttasemjari skömmu eftir fundinn. „Eg geri ráö fyrir því aö ISAL sé aö bíöa eftir þvi sem gerist hjá Alþýðu- sambandinu og Vinnuveitendasam- bandinu,” sagöi öm Friðriksson, tals- maður starf smanna. „Þaö sem þrýstir á VSI er aö ISAL þorir ekki aö gefa línuna. En viö starf s- menn í Straumsvík ætlum ekki aö láta samningsumboðið af hendi til annarra aðila. Viö ætlum ekki að láta aöra semjafyrirokkur,”sagðiöm. -KMU. Enginn vildi stoppa Vörubílstjóri, sem leiö átti um Kefla- víkurveginn um hádegi á fimmtudag, ók þar fram á konu sem var á gangi á veginum skammt sunnan viö Kúa- geröi. Var konan kápulaus og aðeins á þunnum kjól og í ballskóm. Maðurinn tók konuna upp í bílinn og sagði hún honum aö henni og manni hennar heföi oröiö sunduroröa í bíl sem þau voru í. Heföi maðurinn stöövaö bílinn og kastað henni út og ekið svo á brott. Konan var búin að ganga eftir veginum í yfir 40 mínútur í leiðinda- veðri, roki og rigningu, þegar vörubíll- inn kom aö henni. Höföu fjölmargir bilar ekiö fram hjá henni á þessum tíma en enginn stansað þrátt fyrir aö hún gæfi þeim merki. Er slíkt tillits- leysi hreint ótrúlegt því þarna gat hæglega veriö um slys aö ræöa sem konan væri aö reyna að láta vita af. -klp- Stjóraaði brúðunum handleggsbrotin Fresta veröur sýningum á Trölla- leikjum sem vera áttu í Iðnó á sunnu- daginn vegna þess aö einn aöalstjórn- andinn handleggsbrotnaöi á sýningu á Selfossi í fyrradag. Er þaö Helga Steffensen sem var meö Brúöubílinn þar á fimmtudaginn ásamt Sigríöi Hannesdóttur. Þær voru að sýna á bamaheimilinu fyrir hádegi en að sýningunni lokinni hrasaöi Helga og braut höndina viö úlnlið. Gert var aö meiöslum hennar á spítalanum á Selfossi. Lét hún sig hafa það aö stjórna brúðunum á annarri sýningu þar eftir hádegi og þótti mönnum þaö vel af sér vikið hjá henni. -klp- Umferðaróhapp varð á Suðurlandsvegi rétt austan Bláfjallaafleggjarans skömmu eftir hádegi í gær. Þar valt lítil bifreið af Suðurnesjum á veginum og staðnæmdist á hvolfi. Engin slys urðu á fólki en bíllinn var töluvert skemmdur eftir veltuna. DV-myndj S. Stór BILASYNING LAUGARDAG og SUNNUDAG KL. 2-5 Sýnurn framhjóladrifs - og fjórhjóladrifs bíla Bíla sem láta ekki að sér hœða í ófœrðinni NISSAN MICRA „Fisléttur, frískur bensínspari, sem leynir á sér“ sagði Ómar Ragnarsson i yfirskrift á grein sinni í DV 29/12 sl. í greininni segir m.a. „en mér fannst bíllinn betri, en ég átti von á, þægilegri og skemmtilegri, en vonir stóðu til, og það virtist vera erfitt að fá hann til að eyða bensíni svo nokkru næmi, þótt frískiega væri ekið.“ NISSAN MICRA GL kr. 259.000.- NISSAN MICRA DX kr. 249.000.- suBARu GLT1800 fjórhjóladrifinn með háu og lágu drifi. Mest seldi bíllinn árið 1983. Af hverju heldur þú að svo sé? Kr. 418.000 SUBARU Highroof Van, HIGH R00 0EUVERY VAN 4W0 fjórhjóladrifinn: Þeir hjá Subaru eru þeirrar skoðunar að gróf torfærutæki eigi engan einkarétt á fjórhjóladrifi. Subaru Highroof 4WD er sparneytin, rúmgóð og þrælsterk sendibifreið. En hún ber leynivopn innan klæða. Það er fjórhjóladrifið. Með einu handtaki breytist þessi auðmjúki þjónn í ófærujötun sem gera má enn sterkari með því að skipta í lága gírinn. Subaru Highroof Van 4WD kr. 225.000.- subaru Hatchback, fjórhjóladrifinn: Það kemur sér ilia fyrir marga að komast ekki til vinnu þegar færð er slæm. Ert þú kannski einn þeirra? Eða ert þú einn af þeim sem hafa gaman af að takast á við ófærðina og bjóða henni byrginn? Þú þarft ekki tröllvaxinn jeppa. Subaru Hatch- back er svarið. Hann gerir ófærðina að spennandi leik og þjónar þér þess á milli eins og viljugur og skemmtilegur gæðingur. Subaru Hatchback, beinskiptur með vökvastýri kr. 396.000.- pÍCkUp framhjóladrifinn. Hvað færðu fyrir kr. 115.000? Þú færð pickup á grind með sjálfstæðri gormafjöðrun, fram- hjóladrifi, smekklegri innréttingu, þriggja strokka sparneytinni vél og margt margt fleira. Kr. 115.000 Tökum flestar gerðir eldri bfla upp í nýja. VERIÐ VELKOMIN OG AUÐVITAÐ VERÐUR HEITT Á KÖNNUNNI Ingvar Helgason h f. SYNINGARSALURINN/RAUÐAGERÐI ®33560

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.