Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1984, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1984, Qupperneq 13
13 ÍÍÍ&iV; wusirup hefur /engst af skopast aö sjálfum sér og öðrum og aldrei verið spéhreeddur. Þessi mynd er tekin á ströndinni. P oinangraður á ’ h''ort sviPta skyh s Voigt. annar af sneru baki við f ngi °g er byrjaður, „7Z%?rl álafer"S sins- Þegaralltlék i lynd ð Þl°ða frettamonnum heim i glæsihýsi sitt þar s koðlum i einkasundlaug og át marsipanhluð á N hefurhar>o tapað öllu nema eiginkonunni /,«, " Z ”ess< niynd er tv«m HÍn9he'9Í 09 , . /m Þmgmönnum manna hans inn í sali danska þings- ins gekk að sjálfsögðu ekki átaka- laust fyrir sig. Fyrirbærið kom dönskum yfirvöldum illa á margan hátt og reyndu þau allt sem í þeirra valdi stóð til að klekkja á Glistrup vegna meöferðar hans á skatta- lögunum, en árangur varö lítill fyrst í stað. Fjármálaráðherra sá er sat við völd er Glistrup kom fram í sjónvarpinu í janúar 71 gafst gersamlega upp og hrundi niður, far- inn að heilsu. Og Glistrup var kærður fyrir skattsvik. F yrsti dómurinn féll í bæjarrétti árið 1978. Þar var Glistrup sekur fundinn og gert að endurgreiða dönsku skattheimtunni eina og hálfa milljón danskra króna ella sitja í tukthúsi í 6 mánuöi. ^3 listrup var þá upp á sitt besta, hló og áfrýjaði málinu til lands- réttar. B Eystri landsrétti var hann svo dæmdur 1981 í 4 ára fangelsi og f jög- urra milljóna króna sekt og þá fór gamanið að kárna. Glistrup hætti að hlæja og tók upp nýjar baráttu- aðferðir. Nú líkti hann sjálfum sér við Galileo, hann væri kerfisgagn- rýnandi sem yfirvöld ætluðu sér að knésetja hvað sem það kostaöi. Bar- áttu hans í skattamálum mætti líkja við starfsemi dönsku neðanjarðar- hreyfingarinnar á stríðsárunum. Hún væri e.t.v. ólögleg, en réttmæt eins og á stæði. M ■ VI álinu var áfrýjað til hæsta- réttar og voru málskjöl þá orðin svo viðamikil að ekki dugði lengur aö merkja þau með bókstöfum, heldur varð að nota rómverskar tölur. þ • egar hér var komið var farið að halla undan fæti hjá Glistrup svo um munaði. Hann er eitt sinn hafði verið meöal ríkustu manna í Dan- mörku neyddist til að selja einbýlis- hús sitt sem er eitt hiö glæsilegasta í landinu — með sundlaug og öllu til- heyrandi þar sem Glistrup var vanur að veita blaöamönnum viötöl árla morguns. Málaferlin voru dýr og sektirnar varð að greiða. Til að foringinn stæði ekki á götunni með konu og þrjú stálpuð böm sló flokkurinn saman í hús handa Glistr- up og var þaö nefnt „heiðurs- bústaður”. I sjálfum Framfara- flokknum hafði einnig hallaö undan fæti hjá Glistrup. Þingmenn sem áður höfðu litið á foringjann sem nokkurs konar hálfguö og fylgt honum í gegnum þykkt og þunnt sneru nú við honum baki. Fyrir þeim vakti aö bjarga eigin skinni og hefja samstarf við aðra borgaraflokka á danska þjóðþinginu, reyna að breyta ímynd flokksins eftir að ljóst þótti aö Glistrup væri að tapa slagnum fyrir dómstólum. Að lokum stóðu ekki nema tveir af þingmönnum Fram- faraflokksins með Glistrup og er hvorugur þeirra nú á þingi. Annar hefur gerst bilasali, hinn ekur sjúkrabifreið. ^3 listrup hélt því fram að án sín væri Framfaraflokkurinn ekkert. Hann myndi þurrkast út af þingi strax og sín nyti ekki við. And- stæðingar Glistrups innan þing- flokksins sögðu foringjann búinn að vera og best að sigla á önnur mið. D áðir höfðu nokkuð til síns máls. I hæstarétti var Glistrup dæmdur i þriggja ára fangelsi og þriggja milljón króna sekt og auk þess sviptur lögmannsréttindum sín- um. Um leið hrundi fylgið af Fram- faraflokknum og nú í síðustu þing- kosningum, í janúar sl., fékk Fram- faraflokkurinn ekki nema 6 þing- menn kjöma, þar á meðal Glistrup sjálfan en hann hlaut næstflest persónuleg atkvæði allra frambjóð- enda, hvar í flokki sem var. þ ■ egar þingkosningamar voru haldnar var Glistrup nýbyrjaður að afplána fangelsisdóm sinn i Horseröd-fangelsinu rétt utan við Kaupmannahöfn. Strax og ljóst var að hann hefði hlotið kosningu, tók þinghelgin gildi á ný og Glistrup yfir- gaf fangelsið sem frjáls maður og settist í sæti sitt í þjóðþinginu. ,,Ég fer ekki aftur í fangelsið. Mín bíða 25 góð ár í dönskum stjórnmálum,” sagöi hann er hann yfirgaf fangelsið. En vera hans i þingsölum varð heldur stutt í þetta skipti. Meirihluti þingmanna ákvað að svipta Glistrup þinghelgi og varð hann því að hverfa aftur í fangaklefa sinn í Horseröd og halda áfram afplánun. Þar situr hann nú þó svo fangelsisstjórinn hafi þráfaldlega farið fram á að þurfa ekki að hýsa Glistrup lengur. Glistr- up er nefnilega erfiöur fangi, um þaö em bæði meðfangar hans og fang- elsisstjórinn sammála. u ■ ■ vort Glistmp á afturkvæmt á þing skal ósagt látiö, hann hefur fyrr komið mönnum á óvart. Flestir hafa snúið við honum baki nema fjöl- skyldan og kjósendur. Lena, eigin- kona Glistrups, hefur fengið skrif- stofustarf hjá ferðaskrifstofukóng- inum Simon Spies og vinnur þar fyrir daglegu brauði sínu og lestarmiðum út í Horseröd þangað sem hún fer vikulega aö heimsækja mann sinn. Y ■ firvöld segja að réttlætinu se fullnægt. Glistmp heldur því f ram að hann sé fómarlamb ofsókna kerfis- ins sem hann gagnrýndi og barðist gegn. A • » uðurinn horfinn, atvinnan og allt. Svona geta 114 sekúndur orðið langar. -EIR.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.