Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1984, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1984, Page 21
DV. LAUGARDAGUR18. FEBRUAR1984. Svona geta auglýsingar litið út i Video-skann. Stillimynd verða allar alvöru-sjónvarpsstöðvar að hafa. Þó útsendingartimi Video-skann sé ekki fullkomlega reglulegur má gefa stórgerða beinagrind af honum. A sunnudögum frá 1Ó til 12 er barna- tími og samhliða seinasta lið í sjón- varpinu endursýnd biómynd. Mánudagsdagskráin hefst klukkan 18 með bamatíma og um kvöldið, samhliða því síðasta í sjónvarpinu, er ný kvikmynd. Á þriðjudögum er líka bamatími klukkan 18 og síðar um kvöldið er endursýnd mynd. Miðvikudagarnir eru hins vegar fri- ir, ekkert í Video-skann nema eitt- hvað sé til daemis að veðri og fólki leiðist heima. Þá er stundum hringt í útsendingarstjóra og beðið um af- þreyinguáskjáinn. Fimmtudagskvöldið er aðalsjón- vaipskvöldið, enda sefur íslenska sjónvarpið. Klukkan 20 em fréttir og svipmyndir af lífinu í Olafsfirði og tvær k vikmyndir á eftir. Nú dregur að helgi og dagskrá föstudagsins hefst með bamatima klukkan 18. Tværkvikmyndir em um kvöldið og sú fyrri þeirra samhliöa myndinni í sjónvarpinu. Þegar líður á nótt getur átt til að færast blámi yf- ir skjáinn, hálfsmánaðarlega aö minnsta kosti. Myndimar sem voru til sýningar á föstudagskvöldi eru endurteknar á laugardegi og geta því þeir sem kusu að sleppa fyrri myndinni þá og kannski horfa á myndina í íslenska sjónvarpinu séö endursýninguna. Þeir sem misstu af fréttunum á fimmtudagskvöldi geta líka séð þær aftur á laugardegi klukkan 13. Um helgar teygist dagskrá Video- skann gjaman fram yfir miönættið. Virka daga er hins vegar miðaö við að útsendingu ljúki eigi síðar en 23.40 og er það gert svo bömin freistist ekki til að hanga við sjónvarpið fram eftir öllu. Það er hvorki hátt til lofts né vitt til veggja i stúdeói Video-skann, enda láta menn sér nægja eitt horn i bilskúr við Aðalgötu. Vissulega er ekki hægt að taka þarna upp viðamiklar dagskrár en þetta nægir fyrir fréttirnar og þarna er fréttamaðurinn, Ágúst Sigurlaugsson, á sínum stað. Fréttamaður Video -skaim í Ólafsfirði: Kastljós kveikti sjónvarpsáhugaim „Eg byrjaði á að lesa fréttimar í ágúst 1982 og tek einnig viðtöl og lýsi kappleikjum,” sagði Ágúst Sigur- laugsson sem er fréttamaður hjá Video-skann. „Þá hugsaði ég að þetta yrði bara einu sinni í mánuði. Mér datt aldrei í hug að þetta ætti eftir að verða svona mikiö. 1 fyrstu gerði ég þetta eiginlega vegna þess aö mér fannst fólk hafa vantrú á þessu. Svo varð þetta svo vinsælt að égfóralvegíþetta.” Þó talsverð vinna fylgi því að senda út fréttatíma einu sinni í viku þá er þetta aöeins frístundagaman hjá Agústi og honum líkar frétta- mennskan vel, segir hann. — Hefurðu haft einhvem sérstak- an áhuga á fréttamennsku? „Þaö er nú skritiö meö það. Þannig var að ég lenti í sjóslysi árið 1979 og hætti við þaö á sjónum. Upp úr þvi kom hvort tveggja, vinna mín á skrifstofu Verkalýðsfélagsins Einingar og fréttalesturinn. Fyrir þaö að sleppa lifandi frá slysinu var maður gerður gjaldþrota.um leið og skip ferst er maður atvinnulaus. Ég var 1,5 tíma í sjónum, fékk heiftar- lega lungnabólgu og var frá vinnu í fleiri mánuði. Síðan hef ég aldrei náð méraðfullu. Eftir þetta lenti ég í blaðaskrifum við siglingamálastjóra vegna öryggismála sjómanna og var einu sinni kallaður í Kastljós í sjónvarp- inu. Þaö má eiginlega segja að áhug- inn fyrir sjónvarpi tengist þátttök- unni í þessu Kastljósi.” — Hvaðferlangurtímihjáykkurí að setja saman fimmtudagsfréttirn- ar? „Eg geri mér grein fjrir að þó þetta séu ekki nema innanbæjar- fréttir þá þyrfti aö vera margra klukkustunda vinna við svona þátt. Hann er hins vegar unninn undir- búningslaust á mjög stuttum tíma. Einhvern veginn hefur þetta þó sloppiö þannig að fólk hefur verið ánægt.” — Eru menn viljugir að koma fram? „Það gengur nú ekki nógu vel að fá fólk. Eg hef líka oft veriö að brýna þaö til aö benda manni á áhugavert efni. Því miöur er lítið um það en þó aöeins.” — Þú hefur ekki látið þér detta í hug aö sækja einhverja menntun í fjölmiðluninni? „Ég ætlaði mér einu sinni á nám- skeið í fjölmiðlun hjá Álþýðusam- bandi tslands. Þá var svo mikið að gera að ég komst ekki. Eins hefur mig langað til að fara í sjónvarpið og kynna mér lýsingu og annað slíkt. Það er ýmsu ábótavant hjá okkur í sambandi við aðstöðu en ég vona aö húnfariaðbatna.” — Er eitthvað á döfinni að auka þjónustuna? „Eg hef mikinn hug á að láta krakkana, til dæmis í barnaskólan- um, útbúa þætti. Þau myndu velja efnið og vinna þaö sjálf. Einnig eru miklir möguleikar í sambandi við alls konar fræöslu bæði með lestri og að ná mönnum, sem eru vel heima á ýmsum sviðum, í viðtöl, það má fá alls kyns fróðleik frá gamalli tíð, unga fólkið gerir sér ekki alltaf grein fyrir hvernig lífið var þá.” — Áttu von á að þetta kapalsjón- varp verði langlíft í Olafsfirði? „Eg hef mikla trú á að þetta eigi eftir að dafna. Það vantar bara betri tækjakost.fleira fóik Jg að þettaverði notað meira. I sambandi við mögu- leikana get ég nefnt einn þáttinn sem mér finnst mjög góður. Skúli sendir spóiu með f réttum suður fyrir gamla Olafsfiröinga. Þar eru vissir hópar sem hittast á heimilum hver annars og horfa á fréttir að heiman.” — Finnst þér kannski að bæjar- yfirvöld ættu að styðja þennan rekstur? „Állavega i sambandi við ein- hverja hluti sem tengjast bænum sjálfum. Til dæmis kæmi eitthvað af og til frá bæjarstjórn. Skúli gæti líka gert eitthvað fyrir bæinn í sambandi við heimildasöfnun og fengi stuðning íþví.” — Þú lýsir líka kappleikjum, hvemig finnur þú þig í starfi íþrótta- fréttamanns? „Eg var með algjöra íþróttadellu og hætti ekki í iþróttum fyrr en á gamals aldri. Mér finnst maöur lifa upp gamla tíð viö aö lýsa leikjum. Sérstaklega er gaman, þegar verið er að senda út á eftir, að heyra hvað maður hefur að segja. I æsingnum veit maöur oft lítið hvað kemur upp úr manni. Eg verð oft hissa hvað maöur hittir oft á það rétta. ”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.