Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1984, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1984, Síða 22
22 DV. LAUGARDAGUR18. FEBRUAR1984. Samuel Reshevsky, elsti keppandi Reykjavíkurskdkmótsins: Tefldi blindskáklr og fjöl- tefli átta ára gamall! Þótt Reykjavíkurskákmótiö, sem nú stendur yfir, sé e.t.v. ekki eins sterkt og vonast var til, eru margir kunnir garpar á þátttakendalistan- um. Sumir þeirra eru vel þekktir hér heima frá fyrri mótum en aðrir eru heimsfrægir og ættu aö vera kunnir öllum skákunnendum. Nafniö Samuel Reshevsky ætti aö hljóma kunnuglega, enda er sá skákmaöur ekki til sem á að baki lengri skák- feril. Reshevsky tefldi blindskákir og f jöltefli átta ára gamall, komst síöan í fremstu röð skákmeistara og lætur nú engan bilbug á sér finna þótt orð- inn sé 72 ára gamall. Nú teflir hann einungis ánægjunnar vegna, að eigin sögn, og býst ekki viö aö blanda sér í baráttuna um æðstu metorð. En gaman er aö fylgjast meö honum aö tafli. Reshevsky fæddist í Póllandi áriö 1911 en fluttist átta ára gamall vest- ur um haf til Bandaríkjanna, þgr sem hann hefur búiö síöan. Hann átti aöra æsku en önnur börn, því að hann ferðaðist um ásamt foreldrum sínum og tefldi f jöltefli viö fullvaxta menn. Þaö þótti undrun sæta aö svo smá- vaxinn piltur, sem varö aö standa uppi á kassa svo hann sæi yfir tafl- borðið, gæti velt reyndum skák- mönnum úr sessi. Tólf ára görnlum fannst honum komiö nóg af svo góðu og var þá í fyrsta sinn sendur í skóla til þess að læra að lesa og skrifa! Hann geröi hlé á taflmennsku sinni í tæp tíu ár en mætti þá aftur til leiks, fílefldur. Hann náöi frábærum árangri á árunum 1936—1940, tefldi í áskorendakeppninni 1948 og 1953 og fram til 1960 var hann álitinn snjall- asti skákmeistari Bandaríkjanna og þótt víöar væri leitað. Þá kom Bobby til sögunnar og skákaði „gamla undrabaminu”. Reshevsky er strangtrúaður gyö- ingur og veldur því stundum öröug- leikum á skákmótum. Hann teflir nefnilega ekki frá sólarlagi á föstu- dagskvöldi til sólarlags á laugar- dagskvöldi. Trúin heimilar engin veraldleg störf á þeim tíma. Á Reykjavíkurskákmótinu mun hann því tefla föstudagsskákir sínar frá kl. 12—17 og á laugardögum teflir hannfrá 19—24. Reshevsky lendir oft í tímahraki en á síöustu sekúndunum er hann ótrúlega útsjónarsamur og tekst oft aö breyta töpuöum stööum í unnar. Annars er hann á seinni árum einnig þekktur fyrir ýmsar misjafnlega heiðarlegar tiktúrur sínar. Hann tók upp leik gegn Hauki Angantýssyni á skákmótinu í Lone Pine fyrir nokkrum árum og hinn kunni skák- maöur Jónas P. Erlingsson var nærri búinn aö ganga af honum dauð- um eftir mikla hraðskákrimmu þeirra í Phíladelfíu, er Reshevsky hafði rangt við. En nóg um það. Viö skulum líta á skák, sem Reshevsky tefldi aöeins átta ára gamall í Lundúnum. Ekki er aö sjá aö svo ungur skákmaður stýri hvítu mönnunum, því að taflmennsk- an ber vott um mikinn þroska. Og þaö sem meira er: Báðir keppendur tefla þessa skák blindandi, þ.e. án þess að sjá taflborð. Otrúlegt afrek átta ára drengs. Hvítt: Samuel Reshevsky Svart: Griffith Blindskák, London 1920 Spænskur leikur. 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Rf6 4. 0-0 Rxe4 5. d4 Be7 6. Hel Rd6 7. Bxc6 bxc6 8. dxe5 Rb7 9. Rc3 Þeir sem fylgdust með Búnaðar- bankaskákmótinu muna eftir skák deFirmians viö Knezevic í þessu af- brigði og þeir tefldu það reyndar einnig í 2. umferð Reykjavíkurskák- mótsins. I stað 6. Hel er nú talið betra aö leika 6. De2, eins og deFirmian geröi, því eftir hróksleik- inn heföi svartur mátt leika 7. —dxc6 8. dxe5 Rf5 meö góöum möguleikum til aö jafna taflið. Hvemig á átta ára drengur að „kunnateóríuna”? 9. —0-010. Rd4!Rc511.f4!? Mörgum, mörgum árum seinna tefldist 11. Rf5? d5! í skákinni Bjelajac-Knezevic, Júgóslavía 1977, og svartur jafnaöi taflið. 11. -Re6 12. Be3 Rxd4 13. Bxd4 d5 14. Df3 Bf5 Fórnar peði, en aðeins tímabundið. Hvítu peðin fara nú á skrið. 15. —Bxc216. Hacl c5 Eöa 16. —Be4 17. Rxe4 dxe4 18. Dxe4 og c-peðiö fellur einnig. 17. Hxc2 cxd4 18. Rxd5 c5 19. f5 Bg5 20. Hxc5 Hc8 21. Hxc8 Dxc8 22. f6! He8 Tapar skiptamun en taflinu verður ekki bjargað. Ef 22. —Dd7 23. h4! Bxh4 24. Re7+ Kh8 25. fxg7+ Kxg7 26. Rf5+ og vinnur biskupinn (Reshevsky). Best er 22. —Dd8 en ef Tvö pör með af gerandi forystn hjá BR Bridgefélag Reykjavíkur Nú er þremur umferöum lokiö í aðal- tvímennningskeppni Bridgefélags Reykjavíkur og hafa tvö pör tekið afgerandiforystu. Röð og stig efstu para er þessi: 1. Guflmundur Pétursson — Sigtryggur Sigurðsson 2. Sigurður Sverrisson 341 — Valur Sigurðsson 3. Simon Simonarson 324 — Jón Ásbjömsson 4. Sigurður Sigurjónsson 231 — Júlíus Snorrason 5. Ásgelr Asbjömsson 208 — Guðbrandur Sigurbergsson 6. Rikarður Stebibergsson 195 — Sveinn Helgason 7. Runólfur Pálsson 166 — Aðalsteinn Jörgenson 8. Valgarðnr Blöndal 163 — Þórir Sigursteinsson 9. Stefán Guðjohnsen 152 — Þórir Sigurðsson 10. Gyifi Baldursson 143 — Sigurður B. Þorsteinsson 115 Hér er skemmtilegt spil frá síðasta spilakvöldi. Suður gefur / a-v á hættu: Nohour A A7 <?32 O KD853 + D1074 Au>tur A D ÁKD75 O ÁG42 + K83 SUPIJK A KG10984 1094 O 976 + 9 Á flestum borðum varð loka- samningurinn fjögur hjörtu í austur. Flestir unnu fjögur hjörtu, örfáir töpuðu þeim, sem er hreint afspil, en nokkrir sagnhafar unnu fimm með góðri spilamennsku. Var þá annað-. hvort um kastþröng eöa endaspil á norðuraðræða. Hér er ein útgáfa. Sagnir gengu þannig: Suöur Vestur Noröur Austur 2S pass pass dobl pass 3L pass 3H pass pass 4H pass pass Suður spilaði út laufaníu, sagnhafi drap á ás í blindum og spilaöi spaða til þess aö opna sambandið milli hand- anna. Norður drap á ásinn og trompaði réttilega út. Þá kom tígull á ásinn og tígull trompaður. Síðan var spaði trompaður og tígull trompaður. Enn var spaði trompaður og síðustu trompin tekin. Síðan var norðri spilað inn á tígulkóng i sannaðri endastööu — fimmunnir. Það er hins vegar athyglisvert að fáir n-s reyndu fjögurra spaöa fórnina, sem er aðeins þrjá niður. Bridgefélag Breiðholts Nú er aðeins ein umferð eftir af aöal- sveitakeppni félagsins. Staða efstu sveitaerþessi: 1.-2. Sveit Gunnars Traustasonar 147 Vestur 6532 G86 0 10 + AG652 AFBURÐAGREIND BÖRN Opinn fundur að Hótel Borg nk. sunnudag, 19. febrúar, kl. 15.00. Framsögumenn: dr. Bragi Jósepsson, dr. Andri Isaksson, Elín Olafsdóttir og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Pallborðsumræður: Fyrirspumum svarað. SÁUM (Samtök áhugafólks um uppeldis- og menntamál) Kennarafélag Reykjavíkur. 1.-2. Sveit Heimis Tryggvasonar 147 3. Sveit Antons Gunnarssonar 136 4. Sveit Rafns Kristjánssonar 126 5. Sveit Gunnlaugs Guðjónssonar 117 Eftir þessa einu umferð næst- komandi þriðjudag verður spilað létt rúbertubridge og byrjar það um kl. 21.30. Þriðjudaginn 28. febr. hefst butler- tvímenningur og er skráning hafin hjá keppnisstjóra. Athygli er vakin á því að Húsvíking- 'ar eru væntanlegir i heimsókn og verður spilaður tvímeiuiingur kl. 1 e.h. laugardaginn 25. febr. og eru félagar beðnir um að fjölmenna og spila við gestina. Spilaö er í Gerðubergi í Breiðholti. Bridgefélag Hafnarfjarðar Mánudaginn 13. febr. lauk barómet- er félagsins. Fyrir síðasta kvöldið höfðu Ámi Þorvaldsson og Sævar Magnússon náð rúmlega 100 stiga forustu og aðeins átti eftir að spila 5' umíerðir. Töldu menn víst að sigurinn félli þeim í skaut en það átti þó ekki eftir að verða. Bjöm Eysteinsson og Kristófer Magnússon gengu berserks- gang og höfðu áður en yfir lauk unnið upp forskotið og gott betur. Þeir félag- ar urðu þannig sigurvegarar en Ámi og Sævar máttu láta sér nægja annaö sætið. Efstu sætin á mótinu skipuðu annars eftirtalin pör: Bjom Eysteinsson-Krlstófer Magnússon 326 Ámi Þorvaldsson-Sævar Magnússon 314 Bjaraar Ingimarsson-Þórarinn Sófusson 184 Georg Sverrisson-Kristján Blöndal 172 Olafur Valgeirsson-Ragna Olafsdóttir 170 Ásgeir Ásbjömsson— Gnðbrandnr Sigurbergsson 154 Næsta keppni er Board a match keppni, þ.e. sveitakeppni með tvímenningsfyrirkomulagi. Er áætlað að hún verði þr jú kvöld. Spilað er í Iþróttahúsinu við Strand- götu og hefst spilamennskan kL 7.30 mánudaginn 20. febr. Bridgedeild Skagfirðinga Nú er aöeins eftir að spila eina umferð í sveitakeppni og er röö efstu sveita þessi: 1. Sveit Magnúsar Torfasonar 112 2. Sveít Guðmundar Theodórssonaar 107 3. Sveit Sigmars Jónssonar 102 4. -5. Sveit Bjöms Hermannssonar 96 4.-5. Sveit Guðrúnar Hinriksdóttur 96 Síðasta umferð verður spiiuð þriðjudaginn 21. febrúar kl. 19.30 í Drangey, Síðumúla 35. Bridgesamband Suðurlands Dagana 3.-5. febr. var haldið Suður- landsmeistaramót í sveitakeppni að Flúðum í Hmnamannahreppi. 14 sveitir tóku þátt í mótinu. Suöurlands- meistari varð sveit Brynjólfs Gests- sonar, en auk hans spiluðu í sveitinni Helgi Hermannsson, Kristján Blöndal og Valgarð Blöndal. Röð 10 efstu sveita varð þessi: Sveit stig 1. Brynjélfs Gestssonar B.S. 220 2. Sigfúsar Þórðarsonar B.S. 185 3. Leifösterby B.S.&B.V. 172 4. Kristján M. Gunnarsson B.S. 171 5. Ragnar Óskarsson B.Þ. 135 6. Hermann Erlingsson B.L. 133 7. Karl Gunnlaugsson B.Hr. 129 8. Sigurður Hjaltason B.S. 106 9. Hreínn Stefánsson B.L. 105 10. EbiarSigurðsson B.Hv. 101 Keppnisstjóri var Guðmundur Kr. Sigurösson og stjórnaði hann af sinni alkunnu snilld. B.S.S. kann honum sínar bestu þakkir fyrir störf hans fyrr og síðar. Bridgefélag Sauðárkróks 30. janúar lauk sveitakeppni Bridge- félags Sauðárkróks. Spilaðar vom sjö umferðir. Staða efstu sveita varð þessi: Sveit stig Páls Hjáimarssonar 116 Bjarka Tryggvasonar 114 Jéns Tryggva Jökulssonar 78 Ingibjargar Agústsdóttur 64 8 sveitir tóku þátt íkeppninni. Mánudaginn 6. febrúar var spilaður tvimenningur hjá félaginu. Spilað var í tveimur 20 para riðlum og urðu úrslit þessi: A-riðUl stig Agnar Sveinsson og 1 Valgarð Valgarðsson 131 Erla Guöjónsdóttir og Haukur Haraldsson 115 Kristinn Olafsson og Geir Eyjólfsson 115 B-riðill stig Soffía Daníelsdóttir og Þórdis Þormóðsdóttir 144 BjarkiTryggvason og Halldór Try ggvason 139 Gunnar Þórðarson og Bragi Halldórsson 114 Bridgefélag Reyðarfjarðar og Eskifjarðar Vetrarstarfsemin hófst 4. október. Fyrst var spilaöur 4 kvölda tvímenn- ingur, 18 pör, úrtökumót fyrir Austur- landstvímenning: Úrslit: stig 1. Guðjón Bjömsson — Aðals tcinn Valdimarsson 591 2. Aðalsteinn Jónsson — Sölvi Sigurösson 590 3. Kristján Kristjánsson — Þorsteinn Ólafsson 582 AðaJsteinn og Sölvi urðu síðan í 1. sætií Austurlandsmótinu. Meistaramót félagsins, 7 kvölda tvímenningur, var næst á dagskrá. CrsUt: stig 1. Friðjón Vigfússon — Ásgeir Metúsalemsson 1513 2. Hafsteinn Larsen — Jóhann Þorsteinsson 1512 3. Kristján Kristjánsson — Þorsteinn Ólafsson 1470 18 pör tóku þátt í keppninni. Nú stendur yfir sveitakeppni félagsins og em þátttakendur 10 sveitir Staðan í dag er hjá 3 efstu sveitunum: Sveit stig Jónasar Jónssonar 66 eftir 4 umferðir Pálma Kristmannsson 64 eftir 4 umferðir Friðjóns Vigfússonar 58 eftir 4 umferðir Bridgedeild Barðstend- ingafélagsins Mánudaginn 13. febrúar vom spilaðar 11. og 12. umferð í aöalsveita- keppni félagsins. Staða 8 efstu sveita þegar 1 umferð er eftir: 1. Þórarinn Áraason 205 stig 2. IngvaldurGústafsson 164 stig 3. VlðarGuðmundsson 153 súg 4. Sigurður Kristjánsson 151 stig 5. Þorsteinn Þorsteinsson 128 stig 6. Hannes Ingibergsson 127 stig 7. Ölafur Jónsson 123 stig 8. Guðmundur Jóbannsson 119 sUg Næst verður spilað 20. febrúar og hefst keppni stundvíslega kl. 19:30. Spilað er í Síðumúla 25.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.