Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1984, Blaðsíða 35
DV» 'fc AUGA«ÐAGt>ÍW8rFEBflUAÍl 16 84n
35
P
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
Rossi og Rummenigge
eiga fátt sameiginlegt
Ég hef að undanförnu fengið óskir
um að blanda inn í þessa dálka um
ensku knattspyrnuna svolítilli kynn-
ingu á evrópskri knattspyrnu og
knattspyrnumönnum frá meginland-
inu. Aödáendur meginlandsknatt-
spyrnu geta því tekið gleði sina þvi
að í framtíðinni er ætlunin að gauka
öðru hvoru að fróðleiksmolum víðs
vegar úr Evrópu.
Og byrjum þá á þeim frægustu,
auðvitað Rossi og Rummenigge.
Þessir tveir frábæru sóknarleik-
menn eiga sárafátt sameiginlegt
fyrir utan það að vera með mark-
sæknustu leikmönnum í Evrópu. Jú,
þeir hafa báöir verið kjömir knatt-
spyrnumenn Evrópu og þeir voru
tveir markahæstu leikmenn HM á
Spáni 1982. Þeir eru báðir fæddir í
september, Rossi 23. árið 1956 og
Rummenigge þann 25. 1955. Þar með
er það upptalið.
Knattspymuferill þessara kappa
hefur verið svo ólikur sem frekast
má hugsa sér. Miðað við vegasalt
(upp og niður) feril Rossi sýnist ferill
Rummenigge viðburðalítill og leiðin-
legur.
Rummenigge er
ánægður hjá Bayem
— þar sem hann hefur komið sér upp stóru safni verðlaunagripa
• Ferill Karl-Heinz Rummenigge er öllu fábrotnari.
Alveg síðan hann spilaði sinn fyrsta leik í Bundeslig-
unni árið 1974 hefur hann verið í framför. Hann lék sinn
fyrsta landsleik gegn Wales árið 1976 og hefur varla
misst úr leik síðan. Rummenigge, sem hefur skorað
næstflest mörk Bayern frá upphafi, á stórt safn verð-
launagripa. I því eni m.a. Þýskalandsmeistaramedalí-
ur, bikarsigrar, sigur í Evrópukeppni landsliða,
Evrópukeppni félagsliða o.fl., o.fl.
Hann hefur unnið meirihlutann af því sem hægt er að
vinna á sviði knattspymunnar. Eitt er það þó sem er í.
litlu verðlaunasafni Rossi sem Rummenigge hefur
ekki. Nefnilega heimsbikarinn.
Tryggð Rummenigge við lið sitt,
Bayem Miinchen, á sér fáar
hliðstæður. Þrátt fyrir svimandi há-
ar upphæðir sem nefndar hafa verið í
sambandi við kaup á honum þá hefur
hann alltaf neitað og segist ánægöur
hjá sínu félagi með sínar 15 millj.
króna í árstekjur. (Rossi hefur 10
millj.).
Tekjur vegna auglýsinga sjá
svo um að tvöfalda þessar upphæðir.
Olíkt Rossi, sem er gáskafullur og
fjörugur að eðlisfari, þá er Rummen-
igge rólegur og hæglátur. Frægðin
hefur ekki stigið honum til höfuðs og
rólegur persónuleiki hans hefur
haldiö honum frá hneykslismálum
og því sem svo mörgum íþrótta-
stjömum er gjarnt, að vera alltaf í
fréttunum hvort sem um er að ræða
Anthony Costly—á af mæli þrisvar á ári.
I Afríku em útiiiðin oft ekki að
hafa fyrir því að fara til búningsher-
bergjanna í hálfleik af ótta við að
töfralæknir andstæðinga hafi skvett
bölvun á staðinn.
I Chile er fækkun áhorfenda á
leikjum orðið svo mikið vandamál að
þeir eru farnir að spila tvo og þrjá
leiki í röð á sama vellinum til að
minnka kostnaðinn. Þá mætir fólk á
svæðið klukkan 3 e.h. og þeir hörð-
ustu fara ekki fyrr en klukkan 9 um
kvöldið.
Knattspyrnuþulimir i Suður-
Ameriku hafa liklega vinninginn yfir
aðra þegar þeir hrópa
GUtTOULLLLL.
Miöaö við þetta er eins og Bjami’
Fel. sé undir áhrifum frá útfarar-
stjóra.
Hann gæti lært af kolombískum þuli
sem var að lýsa leik Athletico Junio-
ur og Nacional. Þegar Juniour skor-
aði kastaði hann höfðinu aftur, lok-
aði augunum og hóf öskur sem entist ■
í 36 sekúndur til þess eins að komast ■
að því að markið hafði verið dæmt af. ■
Hlustendur heyrðu þegar míkrafón- I
inum var hent í gólfið og þungt fóta- 5
tak til dyranna og þulurinn lét ekki |
sjásigaftur. -
I Honduras em þeir alltaf aö I
svindla á einn eöa annan hátt. Arið g
1977 voru þeir reknir úr heims- _
meistarakeppni ungiingaiandsliða |
fyrir að vera með of gamla leik- ■
menn. Helmingur af liðinu reyndist I
vera of gamall. Afleiðingarnar eru ■
þær að ýmsar knattspyrnustjörnur ■
þar syðra eiga sér marga fæöingar- ■
daga. Anthony Costly, sem lék með
landsliðinu á Spáni 1982, var sam- |
kvæmt skjölum FIF'A fæddur 13. _
desember 1954,13. nóvember 1957 og |
12. nóvember 1959 sem þýðir að ár- ■
lega setur hann met í fjölda fenginna ■
afmælisgjafa. ■
Skrítinnleíkurþessiknattspyrna. *
atvinnu þeirra eða ýmsar yfirlýsing-
ar um þetta og hitt.
Skorari, ekki stjómandi
Það er oft sagt að Rummenigge sé
maður sem stjórnar leik liðs síns.
Það er misskilningur, hans verk er
að sjá um að boltinn fari inn í markiö
og það hlutverk hefur hann leyst af
hendi með sóma. Hann hefur haldiö
því að skora mark í öðrum hverjum
leik að meðaltali alveg frá því hann
byr jaði að leika með Bayern, í tíu ár.
Þó þeir séu ólíkir knattspyrnu-
menn, Rossi og Rummenigge, eiga
þeir þaö sameiginlegt að vilja spila
hraöan fótbolta. Rossi vanur að leika
með tveimur öðrum sóknarmönnum
sem fremsti maður, en Rummenigge
er eðlilegra að leika í 4—4—2 leik-
kerfinu þar sem hann hleypur niður
vinstrivænginn og bíður eftir því að
fá boltann og svo er hann þotinn af
stað. Rob Reinsenbrink, fyrrum leik-
maður með hollenska landsliðinu,
hafði eftirfarandi um Rummenigge
aðsegja:
Rob Reinsenbrink
„Eg hef séð kantmenn sem ráða
yfir meiri tækni en Rummenigge en
hann er einn af þeim uppskerubestu í
sögu leiksins. Hann er fljótur á
boltann, bæði frá meðal og stuttum
vegalengdum og jafnvel þegar hann
er með boltann er nánast ómögulegt
aö ná honum.
Þó Rummenigge sé frægastur
fyrir mörkin sem hann skorar þá er
hann alis ekki eigingjarn og leggur
upp mikinn fjölda marka fyrir tengi-
liöi sem hlaupa upp að markinu á
meðan leikmenn andstæðinganna
eru uppteknir við að reyna að stöðva
hann.”
Það er aöeins bombarinn mikli
Gerd Muller sem hefur gert fleiri
mörk en Rummenigge fyrir Bayern.
Það er ekki víst að Kalle nái der
Bomber en hann nálgast hann með
ótrúlegum hraða. Báðir þekkja
markvörslu mjög vel og þess vegna
hefur þeim tekist eins vel upp við
markið og raun ber vitni.
Kannski næst
V-Þjóðverjum mistókst aö vinna
heimsmeistaratitilinn á Spáni 1982.
Aöalástæðan lá i meiðslum
Rummenigge, en hann gat ekki leikið
tvo síðustu leikina að fullu vegna
meiösla.
Fyrir leikinn voru Rossi og
Rummenigge markahæstir i keppn-
inni með 5 mörk hvor. Eins og vænta
mátti var þeim att mikið saman í
blöðunum fyrir leikinn og sagt að sá
sem ynni einvígið á milli þeirra yrði
heimsmeistari. Rossi vann enda
gekk Rummenigge ekki heill til skóg-
ar og þurfti að yfirgefa völlinn þegar
tuttugu mínútur voru til leiksloka.
Kannski gefst honum færi á því að
verða ofan á seinna.
MERCEDES BENZ 300 DÍSIL ÁRG. 1980
TIL SÖLU
Tii sýnis á lauqardag og sunnudag
að Gnoðarvogi 48, kjallara.
OPIÐ KL. 8-21.45
ALLA
DAGA.
FISKRETTIR FRA KR. 90, TIL KR. 110,
KJÖTRÉTTIR FRÁ KR. 120,- TIL KR. 150
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njálsgötu 49 — Sími 15105
SMURT BRAUÐ OG SNITTUR
Þroskaþjálfar
Vistheimilið Sólborg á Akureyri auglýsir lausar stöður deild-
arþroskaþjálfa á sambýlum og öðrum deildum heimilisins.
Stöðurnar veitast frá 1. mars nk. eða síðar. Umsóknarfrestur
er til 25. febrúar.
Húsnæði er fyrir hendi.
Nánari upplýsingar veita deildarstjórar eða undirritaður í
síma 96-21755.
FORSTÖÐUMAÐUR.
Psoriasis- og
exemsjúklingar
Ákveðið er að stofna til 2ja hópferða fyrir
psoriasis- og exemsjúklinga til eyjarinnar
Lanzarote 23. apríl og 16. ágúst.
Dvalið verður á heilsustöðinni Panorama.
Fyrirkomulag verður meö svipuðum hætti og í fyrri
ferðum. Ágúst-ferðin verður svo auglýst aftur síðar.
Þeir, sem hafa áhuga á að taka þátt í þessum ferðum,
vinsamlega fái vottorð hjá húðsjúkdómalækni um þörf á
slíkri ferð og sendi það merktu nafni, heimilisfangi, nafn-
númeri og síma til tryggingayfirlæknis.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS,
LAUGAVEG1114, 3. HÆÐ.
UMSÓKNIR VERÐA AÐ BERAST FYRIR 15. MARS.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS.
1982
BMW 520i automatic árg.
1983
BMW 520i automatic árg.
1982
BMW 520i árg. 1982
BMW 520 árg. 1981
BMW 520 árg. 1980
BMW 518 árg. 1982
BMW 518 árg. 1981
BMW 518 árg. 1980
BMW 323i árg. 1982
BMW 323i árg. 1981
BMW 320 automatic árg.
1982
BMW 320 árg. 1982
BMW 320 árg. 1981
BMW 320 árg. 1979
BMW 318i árg. 1982
BMW 318i árg. 1981
BMW 318 automatic árg.
1979
BMW 316 árg. 1983
BMW 316 árg. 1982
BMW 316 árg. 1981
BMW 315 árg. 1982
BMW 315 árg. 1981
Renault 20 TL árg. 1979
Renault 20 TL árg. 1978
Renault 20 GTL árg. 1979
Renault 18 TS árg. 1982
Renault 18 GTL árg. 1980
Renault 18TS árg. 1980
Renault 18 TL árg. 1979
Renault 12 TL árg. 1977
Renault 5 GTL árg. 1980
Renault 4 TL árg. 1980
Renault 4 Van F6 árg. 1979
Renault 4 Van F6 árg. 1982
OPIÐ LAUGARDAGA 1-5.