Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1984, Blaðsíða 1
37.000EINTÖK PRENTUÐ í DAG.
RITSTJÓRN SÍMI 866T1 • AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA SÍMI 27022
DAGBLAÐIЗ VÍSIR
69. TBL. — 74. og 10. ARG. —MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 1984.
Velfráfjár-
mögnun gengið
- segirforsætisráðherra
um húsnæðismálin
„Þaö er yfirlýst og margbókuð
stefna ríkisstjómarinnar aö húsnæöis-
málin séu forgangsverkefni og þaö er
vel frá fjármögnun þeirra gengiö bæði
í fjárlögum og lánsfjáráætlun,” sagöi
Steingrímur Hermannsson forsætis-
ráöherra er hann var spuröur hvort
sala ríkisskuldabréfanna væri for-
senda þess aö fjármagn fengist til
Húsnæðisstofnunar ríkisins.
Steingrímur sagði aö ekki væri
ástæða til að ætla annað en þaö fjár-
magn fengist sem gert væri ráð fyrir
til húsnæðismála á lánsfjáráætlun.
Sagöi hann að í viðræðum við forsvars-
menn lífeyrissjóðanna hefði komið
fram að lífeyrissjóðimir mundu geta
skilaö sínum hluta til Byggingarsjóðs
rikisins á þessu ári, eða rúmum 500
milljónum. Einnig sagöi forsætisráð-
herra að verið væri að finna ýmsar
nýjar leiðir við sölu ríkisskuldabréfa
og að hann gerði sér vonir um að
áætlað fjármagn næöist með þeim
hætti. Sagði Steingrimur að ef þessi
fjármögnun húsnæðismálanna tækist
ekki tæki riksstjórnin málið upp að
nýju.
-ÓEF.
>Kvikmyndagerðarmenn
20th Century
Foxkomnir:
Hótel á Suður-
landi fullbókuð
— f ram á vor
Um 40 manna hópur frá kvikmynda-
fyrirtækinu 20th Century Fox er nú
staddur hérlendis við undirbúning
myndatöku myndarinnar Enemy
Mine, en hluti þeirrar kvikmyndar
verður tckinn á Suðurlandi og í Vest-
mannaeyjum í vor.
Þeir sem nú eru komnir eru sviðs-
menn og smiðir og halda þeir til á
hótelum á Hellu og Hvolsvelli. Einnig
er vitað til að kvikmyndafyrirtækið
hefur þegar tekið eitt einbýlishús á
Hvolsvelli á leigu og fleiri munu verða
leigð þegar kvikmyndatökur hef jast.
Samkvæmt áætiunum eiga þær að
hefjast síðari hluta aprilmánaöar og
standa fram í maímánuð. Allt í allt
hefur 20th Century Fox leigt hótelin á
Hellu og Hvolsvelli fram að mánaða-
mótunum maí-júní en einnig er hótelið
Gestgjafinn i Vestmannaeyjum meira
og minna f ullbókað þennan tima.
-SþS
Embættismenn
bendaá 1.300
milljóna sparnað
og400 milljóna
nýja skattheimtu:
Með bandorm
upp í gatið
Embættismannanefndin sem fjár-
málaráöherra skipaði til þess að
annast náið eftirlit með framkvæmd
fjárlaganna mun nú hafa raðað upp i
frumvarpsform eða eins konar
bandorm allmörgum hugmyndiun
um spamaö, hagræðingu og einnig
nýja skattheimtu upp í fjárlagagat-
ið. Eftir því sem DV kemst næst
þýddi bandormurinn 1.700 milljóna
fyliingu í gatið, ef hann yrði sam-
þykktur óstyttur.
Gatið, eða fyrirsjáanleg gjöld rikis-
sjóðs umfram tekjur út árið, að mati
embættismanna og fjármálaráð-
herra, er taliö 1.845 mill jónir króna.
Tillögur embættismannanefndar-
innar munu taka til margvislegra
spamaðargeröa og þar með til
frestunar á framkvæmdum að
nokkm marki svo og ýmiss konar
hagræðingar- og skerðingar á þjón-
ustu. Munu þeir liðir allir geta þýtt
um 1.300 mill jónir upp í gatið.
Þá munu felast í bandorminum
uppástungur um 400 milljóna króna
nýja skattheimtu, að einhverju leyti í
bensínverði og einnig hækkun
sjúkratryggingagjalds.
Samkvæmt heimildum DV hefur
fjármálaráðherra ekki tekið afstöðu
til nema sumra liða bandormsins og
mun til dæmis vera mjög andvígur
skattahækkununum. Er talið að hann
vilji frekar að eitthvað af gatinu
standi enn opið í árslok. Hann vildi
ekki staðfesta þetta né yfiríeitt nein-
ar upplýsingar um bandorminn,
þegar DV ræddi við hann.
Þær sparnaðarhugmyndir sem
bandormurinn tekur til í núverandi
mynd munu snerta meöal annars
tryggingakerfið, ekki síst tannvið-
gerðakostnaö, menntakerfið og
vegagerð.
Mjög skiptar skoöanir munu vera í
ríkisstjórn og stjórnarflokkunum um
þennan bandorm embættismann-
anna. Er þvi líklegt að hann taki tals-
verðum breytingum.
HERB
Myndin var tekin eftír harðar umrœður um fjáriögin ísjónvarpinu ígær-
kvöid. Aibert Guðmundsson fjármáiaráðherra sagði þar að þrjár leiðir
væri tíl að mæta fjáriagahalianum: sparnaður, skattahækkanir og
eriend og inniendlántaka og yrðiað nota þær allarað einhverju leytí.
Þátttakendur i sjónvarpsþættínum i gær voru Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráðherra, Ragnar Arnalds alþingismaður, Kristín Halldórs-
dóttír alþingismaður, Eiður Guðnason alþingismaður, Stefán Bene-
diktsson alþingismaður og Albert Guðmundsson fjármálaráðherra.
Umræðunum stýrði Páii Magnússon fréttamaður.
O V-m ynd Bjarnleifur.
Skoðanakönnun DV um bílbeltin:
mm| ■ ■■ ■ ■ ■ - ■■■ ■ jl ®
séu beltin ekki spennt
Meirihluti landsmanna telur rétt I skoðanakönnun DV reyndust spurningunni.
að teknar verði upp sektir ef menn 51,2% af úrtakinu vera fylgjandi Þettaþýöirað57%þeirrasemtóku
verða gómaöir án þess að vera meö sektum. 38,7% voruþeimandvíg,6% afstöðu voru fylgjandi sektum en
bilbeltin spennt. óákveðnir og 4,2% vildu ekki svara 43%andvíg. -HH
s já viðtöl og niðurstöður á bls. 5