Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1984, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1984, Blaðsíða 6
6 DV. MIÐVIKUDAGUR 21. MARS1984. IMeytendur Neytendur Neytendur Neytendur TILRAUNAELDHUS DV: Létt tilraun meö eplaböku fer fram í tilraunaeldhúsinu í dag. A meöan viö bíðum eftir aö kökuilmurinn fylli vitin má geta þess að baka er íslenska oröiö yfir hiö erlenda „pie”, vefjist þaö fyrir einhverjum. Bökur meö alls konar og ólíkum fyliingum eru jafnan vinsælar á boröum, hvort sem þær eru bomar fram í lok máltíöar, sem endapunktur EPLABAKA með marens 1. Hráefni í eplabökuna, bæði botn og fylling. 6. Eplin skræld. 7. Skorin í sneiðar og þær látnar .yfir deigið. 5. Mótið smurt og klætt að innan með deiginu sem er látið vel út fyrir barmana. 3.. . . og flatt út. 4. Skorið eftir mótinu, ríflega eins og sést ú myndinni. 8. Kanilsykri strúð yfir eplasneiöarnar. 9. Vafin lengja úr afgangsdeigi og lögð yfir hringinn sem skrautkantur. Sykur, hveiti og smjör hrært saman í skúl og lútið yfir eplin ú víð og dreif í litlum „hnoðrum”. 10. Eftir 45 mínútur í ofninum er bakan tekin út og stífþeyttar eggjahvíturnar lútnar yfir. Síðan bakað í 15 mínútur. 11. Eplabakan borin fram með þeyttum rjóma. DV-myndir GVA góörar múltíöar, eöa með kaffisopa ásamt öörum hnallþórum. Eplabaka með marens Botn 3 3/4 dl hveiti l/2tesk.salt 120gsmjörlíki 4—5 matsk. kalt vatn Fylling 4—5 súr epli 11/4 dl sykur 3/4 tesk. kanill 3/4 dl sykur 11/2 dl hveiti 90 g smjör Hrært saman Marens 3 eggjahvítur 6 matsk. sykur Verklýsing Botn: 1. Hveiti og salt látiö á borð, smjörlíkið muliö saman við. 2. Vættímeðvatni. 3. Hnoöaö saman. Deigöi kælt í aö minnsta kosti eina klukkustund. Hagkvæmt aö taka til í fyllinguna ú meöan. 4. Deigið flatt út, skorið 2—3 cm stærra en mótið (sjú mynd) 5. Mótiö smurt og klætt aö innan með deiginu. Deigið er nokkuö hæfilegt í mót sem er um 40 cm í þvermál. Ef notaö er minna mót er hægt aö hnoða lengur úr afgangsdeigi í kant. Fylling: 1. Eplin flysjuö, skorin í sneiöar sem settar eru yfir deigiö í mótinu. 2. Kanilsykrinum stráö yfir eplin, einnig er gott að strá „apple pie” kryddi yfir eplasneiðarnar. 3. Hveiti, sykur og smjör hrært saman í skál og síðan látiö y fir eplin í litlum „hnoörum”. Ef búinn hefur veriö til skrautkantur, til dæmis vafinn eöa fléttaöur, er hann síðan látinn ofan á. 4. Bakan bökuð neðarlega í ofni í ca 45 mínútur viö 200—250*C hita. Marens ofan á eplabökuna má sleppa, en ef viö höldum okkur við hann þá þeytum viö eggjahvíturnar á meðan bakan er í ofninum. Þegar eggjahvítur eru þeyttar veröur aö gæta þess að hrærivélarskálin sé hrein og þurr, annars þeytast hvíturnar ekki. Eftir smástund er sykrinum bætt út í og þeytt þar til hvíturnar eru orönar stífþeyttar. Gott er aö setja nokkra dropa af borðediki út í hræri- vélarskálina, þá stífna hvítumar betur. Eftir að bakan hefur veriö í ofninum ca 45 mínútur er hún tekin út og marensinn settur yfir meö skeið. Þá er ofninn stilltur á 100° C og mótið látiö aftur í ofninn. Bakað meö marensinum í ca 15 mínútur eöa þar til marensinn er oröinn gulbrúnn. Eplabakan er borðuð volg eöa köld meö þeyttum rjóma sem eftirréttur eöa kaffibrauð. I staö elpanna má nota ýmsar aörar fyllingar í bökuna, til dæmid rabarbara og bláber. Nýkom- in eru ú markaöinn kjarnaávaxta- grautar í fernum sem eru mjög góðir. Þá er hægt aö nota sem fyllingu, til dæmis rauðgrautinn, sem er afbragös- góður. Ef viö notum grauta sem fyll- ingu þú er botninn bakaöur fyrst og grauturinn lútinn um leiö og marensinn. Ef viö notum lítiö mót fyrir bökuna, mót sem er ca 20 cm í þvermúl, getum viö notaö helmmginn af deiginu sem lok, þekja alveg eplin meö deiginu. En þá er marensinum sleppt. Vinnutími viö eplabökuna er um ein og hálf klukkustund, þar af er bakan um eina klukkustund í ofni. Og þá er bakstri dagsins lokið — verðum ú svæöinu eftir viku. -þg Neytendur Umsjón: ArnarPáll Hauksson ogÞórunn Gestsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.