Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1984, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1984, Blaðsíða 28
28 DV. MIÐVIKUDAGUR 21. MARS1984. Dagmar Guðrún Arnadóttir lést 10. mars sl. Hún fæddist í Reykjavík 27. júní 1915. Hún var dóttir hjónanna Finnbjargar Kristófersdóttur og Arna Pálssonar. Að loknu námi við Kvenna- skólann í Reykjavík 1931 hélt hún utan og lauk hjúkrunarnámi við Rigs- hospitalet í Kaupmannahöfn 1939. Hún starfaði á rannsóknarstofu Borgar- spítalans frá árinu 1961. Utför hennar veröur gerð frá Fossvogskirkju í morgun kl. 10.30. Margrét Jakobsdóttir frá Asbjarnar- nesi andaðist 19. mars í Sjúkrahúsinu á Hvammstanga. Jarðarförin auglýst síðar. Olafía Guðmundsdóttir, Þórufelli 4, áður til heimilis að Hólmgarði 10, lést í hjartadeild Landspítalans að morgni 20. mars. Jónatan Brynjúlfsson rafvirki, Fögru- kinn 14 Hafnarfiröi, lést af slysförum laugardaginn 17. mars. Gunnlaugur Marteinsson pípulagn- ingamaður, Reykjamörk 10 Hvera- gerði, andaðist í Borgarspítalanum 20. mars. | Áttu: VASADISKÓ _ | | FERÐAKASSETTUTÆKIY 5 2 FJARSTÝRÐAN BÍL ‘ 3 u. > J eða annað tœki fyrir rafhlöður sem þú J ^ notarmikið. ® ^ Ef svo er þá eru Sanyo-cadnica o rafhlöðurnar og hleðslutækið fyrir þig. ^ Meira en SPARNAÐUR - ÞÆGINDi PÆST I VERSLUNUM UM LAND ALLT DIESELVÉLAR HF„ SUÐURLANDSBRAUT 16, SÍMI 35200 SKIPPER CS112 - LIT-DÝPTARMÆLAR Hagstætt verð og greiðsluskilmálar 2ja ára ábyrgð Friðrik A. Jónsson h.f. Skipholti 7, Reykjavík, Simar 14135 — 14340. Halldór Isleifsson, Meistaravöllum 21 Reykjavík, andaðist í Landakotsspít- ala mánudaginn 19. mars. Hilmar Helgason, fyrrverandi formað- ur SÁA, veröur jarðsunginn frá Dóm- kirkjunni fimmtudaginn 22. mars kl. 13.30. Ragnheiður Jónsdóttir, Sólheimum 35, erlátin. Utförinhefurfariðfram. Anna Gunnarsdóttir lést 10. mars sl. Hún fæddist 26. júlí 1906 á Gíslakoti, Ásahreppi, Rangárvallasýslu. For- eldrar hennar voru Gunnar Gunnars- son og Þuríður Einarsdóttir. Anna út- skrifaðist búfræðingur frá Bændaskól- anum á Hvanneyri árið 1929, fyrst ís- lenskra kvenna. Hún útskrifaðist 1933 frá garðyrkjuskóla í Danmörku, Vil- vorde. Vann sem garöyrkjukona á Vífilsstöðum og í Reykholti. Giftist ár- ið 1939 Kristjáni Eiríkssyni frá Gras- geira á Melrakkasléttu. Bjuggu þau á Borgum í Þistiifirði í 34 ár og eignuðust sex börn. Kristján léstárið 1974. Síð- ustu æviárin bjó Anna á Sólvallagötu 45 í Reykjavík. Utför hennar verður gerðfrá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30. Kvikmyndir Marlene Jobert. Kvikmyndaklúbbur Alliance Francaise I kvöld og annað kvöld veröur sýnd í Regn- boganum kl. 20.30 lögreglumyndin Síöasta þekkta heimilisfang (Dernier domicile connu). Myndin er gerö 1970 af José Giovanni. I helstu hlutverkum eru Lino Ventura, Mariene Jobert og Michel Constantine. Marceau Léonette er iögreglumaöur sem ekki hefur hlotiö neina menntun en hefur komist í stööu aöstoöarfulltrúa eingöngu vegna eigin veröleika. Dag einn handtekur hann drukkinn bilstjóra sem reynist vera sonur þekkts málaflutningsmanns. Sá siöar- nefndi skerst í leikinn og starfsframi Marceaus er að engu gerður. Hann er færður yfir á litla hverfisstöö þar sem hann, ásamt ungri konu sem einnig starfar i lögreglunni, annast minni háttar verkefni. Þangað til einn dag að sérstök deild innan lögreglunnar felur Marceau og Jeanne, ungu konunni, aö hafa upp á Roger nokkrum Martin en vitnisburður hans er nauðsynlegur til þess aö knésetja moröing ja. En rannsóknin hefur staöiö yfir í fimm ár og Martin er í felum því að hann óttast aö verða ráöinn af dögum af leiguþýi hins ákærða. Málið á að koma f yrir rétt eftir nokkra daga og Marceau og Jeanne hafa þvi aðeins tak- markaðantímatilþessaðfinnaMartin... Sakamálamynd þar sem söguþráðurinn er þétt og listilega ofinn og myndin veröur í senn næ, tilfinningarík, ljóðræn og fínleg, segir í fréttatilkynningu. Endursýning á Not a Love Story í IMorræna húsinu Ákveðið hefur verið að endursýna kanadísku heimildarmyndina Not a Love Story — kvik- IMauðungaruppboð annað og síðasta á hluta í Bolholti 6, þingl. eign Guðna Jónssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavik, Jóhannesar Jóhannes- sen hdl., Asgeirs Thoroddsen hdl., Páls A. Pálssonar hrl. og Þorsteins Eggertssonar hdl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 22. mars 1984 kl. 11.30. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. í gærkvöldi_____ í gærkvöldi ...en þjóðin veit ýmislegt fleira Hún var býsna fróöleg fréttamynd- in breska frá Ungverjalandi. Kommúnismi með öðru sniöi. Ungverjar fara sínar eigin leiðir í efnahags- og atvinnumálum og margt minnti frekar á vestrænan lífsmáta en austrænan. Þessu öllu voru gerð góð skil. Það sáust líka glefsur frá byltingunni 1956, sem bætti þáttinn mjög. Það er farið hálfilla meö Agöthu sálugu Christie í þessum sögum hennar eins og þær eru skemmtileg- ar aflestrar. Skarpsýn skötuhjú eru alveg mislukkuö. Hún þessi dæma- lausa tilgeröarrófa, hann litlu skárri. Hvernig á að fylla upp í gatið? spurði hinn nýi þingfréttamaður sjónvarpsins, Páll Magnússon, í sinni fyrstu þingsjá í gærkvöldi. Þarna hefur sjónvarpið fengið góðan liðsmann, áheyrilegan og öruggan, sem á áreiöanleg eftir að spjara sig, þótt auðvitað væri stjóm hans ekki aðfinnslulaus í þessum fyrsta þætti. öll þjóðin veit að litli maöurinn í þjóðfélaginu hefur eignast góðan vin í ríkisstjórninni, sagöi fjármálaráö- herra. öll þjóöin veit ýmislegt fleira. Hún veit að verið er að reisa hús seöla- bankans, hún veit um nýju flugstöð- ina sem reisa skal, hún veit um ráð- herrabílana, veisluhöldin þeirra og utanlandsreisur og svo miklu, miklu fleira. Hún veit líka að nú skal hún spara og spara. Allt er í athugun, bæði prívat og óprívat. Þetta var nú meira orðaplunkiö. Hefur reyndar verið slikt svo lengi semégman. Kristin Þorsteinsdóttir. mynd um klám — í Norræna húsinu í dag, miðvikudag 21. mars, kl. 18.00. Myndin var sýnd sl. sunnudag á vegum kvikmynda- klúbbsins Norðurljóss og urðu þá margir frá að hverfa vegna mikillar aðsóknar. Aðgöngu- miðar verða seldir við innganginn. — Myndin er stranglega bönnuð börnum — íþróttir Firma- og félagakeppni innanhússknattspyrna Dagana 24. og 25. mars verður kcppnin haldin á vegum meistaraflokks U.B.K. í hinu nýja glæsilega íþróttahúsi Kópavogs við Skála- heiði. Sú nýbreytni verður: 1.5 leikmenn í hverju liði. 2. Skorun ekki bundin við punktalínu. 3. Mun stærra vallarsvæði en áður hefur þekkst. 4. Sjónvarpað verður beint frá leik Liverpool- Everton. 5. Margvísleg hressing á staðnum. Þátttökugjald er 2000 kr. Þátttaka og greiðsla verða að hafa borist fyrir fimmtudaginn 22. mars. Nánari upp- lýsingar og þátttökutilkynningar í síma: Gunnar Þórisson s. 27500, Magnús Jónatans- son s. 78169, Pétur Omar s. 40082. Meistaramót 16 ára og yngrf Reykjavíkurmeistaramót 16 ára og yngri innanhúss verður haldið 31. mars— 1. apríl 1984. Mótshaldari er frjálsíþróttadeild 1R. Keppt verður í eftirtöldum greinum: 50 m hlaup, 50 m grindahlaup, hástökk, langstökk og langstökk án atrennu. Þátttökutilkynning- ar skulu hafa borist Jóhanni Björgvinssyni, frjálsíþróttadeiid IR, á löglegum til- kynningarspjöldum í seúiasta lagi mánu- daginn 26. mars. Einnig er hægt að senda þátttökutilkynningar til Frjálsíþróttaráðs Reykjavíkur, pósthólf 4284, 124 Reykjavík. Golf Æfingatímar Goifklúbbur Reykjavikur hefur fengið að- stöðu til inniæfinga í Tranavogi 1. Hefur þar verið komið fyrir netum til að slá í og sett upp lítil púttbraut. Aðgangur verður ókeypis en kylfingar þurfa sjálfir að koma með bolta og kylfur. Opið verður þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 16—22, laugardaga kl. 10—16 og sunnudaga kl. 13-19. FerðalÖg Ferðafélag íslands Myndakvöld Ferðafélags íslands Myndakvöld verður haldið á Hótel Hofi 22. mars (fimmtudag) kl. 20.30. Efni: 1. Grétar Eiriksson sýnir myndir frá Vestur- og Suöurlandi o.fl. 2. Sigurjón Péturs- son sýnir myndir frá ferð á Öræfa jökul og ferð yfir Vatnajökul. ATH: Sýningardagur er fimmtudagur. Allir velkomnir félagar og aðrir. Veitingar í hléi. Helgarferð í Þórsmörk 23.-25. mars: Hin árlega vetrarferð í Þórsmörk verður farin ki. 20 föstudaginn 23. mars. I Skagfjörðs- skála er góö aöstaða fyrir gesti og setustofa fyrir kvöldvökur. Gönguferðir um nágrennið. Farmiðasala og allar upplýsingar á skrifstof- unni,Oidugötu3. Ferðafélag Islands. Siglingar Aætlun Akraborgar Frá Akranesi Frá Reykjavík Kl. 8.30 Kl. 11.30 6K1. 14.30 Kl. 17.30 Kl. 10.00 Kl. 13.00 Kl. 16.00 Kl. 19.00 Lestunaráætlun HULL/GOOLE: Jan ROTTERDAM: . 19/3,2/4,16/4,30/4 Jan. ANTWERPEN: . .20/3,3/4,17/4,1/5. Jan HAMBURG: . .21/3,4/4,18/4,2/5. Jan HELSINKI/TURKU: . .23/3,6/4,20/4,4/5. Mælifell 23/3. Hvassafell LARVIK: Francop GAUTABORG: . 12/3,26/3,9/4 , 23/4. Francop KAUPMANNAHÖFN: 13/3,27/3,10/4,24/4. Francop SVENDBORG: 14/3,28/3, 11/4,25/4. Francop AARHUS: 15/3,29/3, 12/4,26/4. Francop FALKENBERG: 16/3,30/3, 13/4,27/4. Helgafell 15/3. Mæiifell GLOUCESTER, MASS.: Jökulfell 14/3. Skaftafell HALIFAX, CANADA: 24/3,25/4. Skaftafell IVIinningarspjöld Minningarkort Slysavarnafé- lags íslands Minningarkort SVFI fást á eftirtöldum stöð- um í Reykjavík. 1 Bókabúð Braga, Amarbakka Reykjavík. Bókabúð Braga, Lækjargötu, Reykjavík. Ritfangaverslun VBK, Vesturgötu 4 Reykja- vík. Bókaverslun Vesturbæjar, Víðmel 35 Reykjavík. Bókabúöinni Glæsibæ, Álfheimum 74 Reykjavík. Blómabúðinni Vor, Austurveri Reykjavík. Bókabúðinni Grimsbæ, Bústaðavegi Reykja- vík. 1 Kópavogi: 1 Bókaversluninni Vedu, Hamraborg 5 Kópa- vogi. Versluninni Lúnu, Þinghólsbraut 19 Kópa- vogi. Tilkynningar Kaffisala Kvenfélags Hallgrímskirkju verður í Domus Medica sunnudaginn 25. mars og hefst kl. 15.00. Félagar úr Módettukór Hall- grímskirkju skemmta, einnig verður skyndi- happdrætti. Félagskonur eru beönar að gefa kökur og verður tekið á móti þeim í Domus Medica eftir kl. 13 á sunnudag. Vonumst við til að velunnarar Hallgrímskirkju fjölmenni. Kattaeigendur Merkið ketti ykkar. Kattavinafélagið. Skrifstofa Al Anon Aðstandendur alkóhólista, Traðarkotssundi 6. Opið alla laugardaga kl. 10—12. Sími 19282. Fundir alla daga vikunnar. Opiö hús hjá Aco h/f Dagana 22. og 23. mars nk., milli kl. 13 og 18, verður Aco h/f, Laugavegi 168, með opið hús fyrir alla þá sem vilja líta inn og kynna sér það nýjasta sem er að gerast í grafíska fag- inu. Gefst fólki kostur á að skoða nýjustu setningartækni frá Linotype, framköllunar- og myndavélar frá Eskofot ásamt ýmsu fleira. Húnvetningafélagið í Reykjavík heldur sitt árlega Húnvetningamót í Domus Medica laugardaginn 24. mars nk. kl. 19.30. Heiðursgestir mótsins verða sýslumanns- hjónin á Blönduósi. Félagið er nú að vinna að innréttingu nýs félagsheimilis í Skeifunni 17. Hafa margir félagsmenn sýnt þessari framkvæmd félags- ins mikinn áhuga og hugsa gott til þess að flytja félagsstarfið í nýtt og hentugra hús- næði. Munið minningarsjóð SÁÁ Hringið í sima 82399 og við sendum minn- ingarkortin fyrir yður. Minnúigarkortin eru einnig seld í versl. Blóm og ávextir, Hafnar- stræti 3, sími 12717, og skrifstofu SAA, Síöu- múla 3—5 Reykjavík, sími 82399. Happdrætti Landshappdrætti Körfuknattleikssambands íslands Eftirtalin númer hlutu vúining í Landshapp- drætti Körfuknattleikssambands Islands 1984. 1. Sólarlandaferð með Samvinnu- feröum/Landsýn kr. 15.000,- nr. 5146 , 3187, 7574,375,3092,2715,2539. Bfllinn finnst ekki Fyrir einni viku eöa á miöviku- daginn, 14. þ.m., var bifreið stolið á gatnamótum Oöinsgötu og Þórsgötu í Reykjavík. Bifreiöin er af gerðinni Lada Station árgerð 1980, gul að lit, meö skrásetningamúmerið R-46569. Þeir sem kunna að geta gefið upplýs- ingar um bifreiðina eru beðnir að láta lögregluna vita. Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar: Samþykkti samningana Starfsmannafélag Reykjavíkur- borgar hefur samþykkt kjarasamning sinn við Reykjavíkurborg. Atkvæða- greiðsla um samninginn fór fram í gær og fyrradag. Atkvæði félagsmanna vorutalinígær. Niðurstaða talningarinnar var sú aö 719 eöa 59,5% samþykktu samningana, 462 eða 38,5% voru þeim andvíg og 29 seðlar voru auðir og ógildir. Um 47% félagsmanna neyttu atkvæðisréttar síns eöa 1.210 af þeim 2.588 sem voru á kjörskrá. -JSS. Bella Ég hefði aldrei átt að takmarka reykingarnar við eina sígarettu eftir mat —- nú er ég farin að borða 20 sinnum á dag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.